Beint á leiðarkerfi vefsins

Umhverfi

28. Desember 2006

SÓL Í STRAUMI MÆTIR ÁLJÖF MEÐ 10 MÁLEFNALEGUM RÖKUM


Náttúruverndarsamtökin Sól í Straumi, sem beita sér gegn stækkun álvers Alcans í Straumsvík í Hafnarfirði og almennt í þágu náttúruverndar og heilbrigðrar skynsemi, brugðust við álgjöf Alcans með því að færa fulltrúum álrisans 10 röksemdir gegn stækkun álversins. Mútugjöf Alcans var þannig mætt á málefnalegan hátt. Gjöf Alcans er augljóslega ætlað að kaupa álverinu vinsældir í aðdraganda kosningar um deiliskipulag fyrir stækkun álversins. Gjöfin er ætluð öllum kjósendum í Hafnarfirði! Hún er álinnpakkaður hljóm- og dvd- diskur vinsæls hljómlistarmanns og hefur ekkert með ágæti eða ókosti stóriðjustefnunnar að gera. Þess vegna er réttmætt að tala um mútugjöf. Það er þekkt bragð hjá aðilum með vafasaman málstað að reyna að vinna honum fylgi með því að beina umræðunni frá málefninu og helst að tengja málstaðinn einhverju allt öðru, þess vegna hugljúfum tónum vinsæls listamanns.  
Þegar félagar í Sól í Straumi skiluðu...

21. Nóvember 2006

VALKOSTUR MARGRÉTAR


Umfangsmiklar stóriðjuframkvæmdir eru nú í bígerð. Þegar er hafinn undirbúningur að stækkun álversins í Straumsvík um 250 þúsund tonn, þ.e. úr 180 þúsund tonnum í 460 þúsund tonn og á teikniborðinu er álver í Helguvík upp á 250 þúsund tonn og nýtt áver við Bakka á Húsavík upp á 250 þúsund tonn. Enda þótt endanlegar ákvarðanir liggi ekki fyrir t.d. varðandi stækkun í Straumsvík  hefur tveimur teiknistofum þegar verið falið að gera tillögur um nýja kerskála í samræmi við óskir Alcan um stækkun álversins! þetta kom fram á opnum fundi ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði á sunnudag sem sagt hefur verið frá hér á síðunni...Þetta kom mér upp í hug við lestur áhugaverðrar greinar Margrétar Guðmundsdóttur hér á síðunni þar sem hún hvetur til þess að landsmenn íhugi þá valkosti sem þjóðinni bjóðast um atvinnuuppbyggingu. Hún vill að við eflum Ísland til þess að verða...

20. Nóvember 2006

VÆRI EKKI RÁÐ AÐ HLUSTA Á ÓMAR?

...Þetta væri umhugsunarvert, sagði Ómar Ragnarsson. Hann sagði að sú tíð væri liðin að við gætum rætt þessi mál út frá þröngu sjónarhorni. Hér væri ekki aðeins um að ræða málefni sem snerti Hafnfirðinga eina heldur landsmenn alla. Ef heimild yrði veitt fyrir stækkun í Straumsvík yrðu menn að vera undir það búnir að fórna Brennisteinsfjöllum og fleiri náttúruperlum. Ómar endaði eldmessu sína í bundnu máli og var það mjög áhrifaríkt. Um kvöldið sáum við Ómar Ragnarsson síðan taka við verðlaunum sem sjónvarpsmaður ársins á verðlaunahátíð íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Þar er maður sem er vel að verðlaunum kominn. Til hamingju Ómar Ragnarsson! Til hamingju Íslendingar að við skulum eiga mann á borð við Ómar Ragnarsson!! Væri ekki ráð að ...

5. Nóvember 2006

KRISTJÁN HREINSSON, NÁTTÚRUVAKTIN OG GRASAGUDDA.IS

...En stenst það að ekki hefði orðið af Kárahnjúkavirkjun miðað við þá afstöðu sem nú er uppi með þjóðinni. Á það er til einn mælikvarði og hann er hvort stjórnvöld muni komast upp með að eyðileggja Jökulsárnar í Skagafirði. Það er mælikvarðinn. Nú þarf að blása til sóknarbaráttu gegn stóriðjusinnum sem sýnt hafa með verkum sínum að þeir eira engu þegar stórðiðjan er annars vegar. Það er gott til þess að vita að til er fjöldinn allur af skeleggu baráttufólki sem unnir sér engrar hvíldar í þessum slag. Eitt aðdáunarvert dæmi þar um er ...

6. Október 2006

STÖNDUM VÖRÐ UM JÖKULÁRNAR Í SKAGAFIRÐI


...Í gær var samþykkt í sveitarstjórn Skagafjarðar að virkjanir í báðum Jökulánum, Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun, skuli fara inn á aðalskipulag sveitarfélagsins. Þetta er stefnuyfirlýsing meirihluta sveitarfélagsins, sem er í höndum Framsóknarflokks og Samfylkingar, um að þessar virkjanir geti orðið að veruleika.
...Þess vegna mega menn nú ekki sofna á verðinum. Það verður að stöðva frekari virkjanir í þágu stóriðju í landinu og við verðum að koma í veg fyrir að stóriðjugráðugt fólk grandi öllum fegurstu náttúruperlum landsins. Bjarni Jónsson, oddviti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði og félagar hans hafa um árabil staðið sig hetjulega í baráttunni gegn þessum áformum. Þau hafa ein róið á móti straumnum. Nú þurfa þau að finna til samstöðunnar. Ég hvet alla til þess að ljá þeim lið og fjölmiðla hvet ég til þess að fylgjast grannt með gangi mála í Skagafirði. Það er ekki nóg að tala um Fagra Ísland...

22. September 2006

FREISTINGIN OG KÁRAHNJÚKAR

Birtist í Morgunblaðinu 21. september 2006
Í magnaðri grein sem birtist í Morgunblaðinu nýlega eftir dr. Gunnar Kristjánsson prófast og prest á Reynivöllum í Kjós, Stríð streymir Jökla, dregur höfundur fram þá togstreitu sem iðulega hefur verið á milli manns og náttúru. Íslendingar hafi löngum litið á náttúruna sem afl sem þyrfti að sigrast á: "Iðnbyltingin fór framhjá okkur og framkvæmdir með stórfelldu inngripi inn í náttúrulegt umhverfi gerðust hér síðar en annars staðar í hinum vestræna heimi. Á meðan náttúruspjöll hafa fylgt iðnvæðingu og vaxandi ágangi á óspillt svæði annars staðar hefur tíminn unnið með lífríki Íslands. Engu að síður hafa Íslendingar eins og aðrar þjóðir haft tilhneigingu til að líta á náttúruna sem andstæðing sem þyrfti að sigrast á, beisla og gera sér undirgefinn."

14. September 2006

VERNDUM HÁLENDI AUSTURLANDS

Félag um verndun hálendis Austurlands  safnar nú liði með undirskriftasöfnun. Okkur í Vinstrihreyfingunni grænu framboði er þetta fagnaðarefni enda er þessi barátta í nákvæmlega þeim anda sem við höfum barist á undanförnum árum.
Í yfirlýsingu segir einnig um markmið félagsins: "Nú berst það einnig fyrir öryggi og heill íbúanna. Þess er krafist að óháð matsnefnd meti áhættu og arðsemi Kárahnjúkavirkjunar og fyrr verði engu vatni hleypt á Hálslón. Við viljum að fólk geti vegið og metið af skynsemi hvort ekki sé heillavænlegast að eiga víðernin og vistkerfin áfram og þar með að eyða þeirri ógn sem af Kárahnjúkavirkjun stafar í byggð. Minnumst þess að ...

24. Ágúst 2006

ÓTTINN VIÐ SANNLEIKANN

...Þegar nú gerist við þessar aðstæður að Orkuveita Reykjavíkur leyfir sér að setja múlband á einn helsta jarðvísindamann þjóðarinnar, Grím Björnsson, jarðeðlisfræðing og meina honum að tjá sig frekar um Kárahnjúkavirkjun þá eru menn komnir á braut sem er alvarlegri en svo að við verði unað ... Eru menn virkilega orðnir galnir?  Á að banna vísindamanni að tjá sig um málefni sem varðar þjóðarhag? Og hvers konar endemis rugl er þetta með samkeppnisaðila? Þetta minnir okkur á hvílíkt glapræði það er að samkeppnis- og einkavæða grunnþjónustu samfélagsins...Nú á að ganga enn lengra og skipa Grími Björnssyni að þegja. Því verður ekki tekið þegjandi enda hafa borgarfulltrúar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs þegar skrifað formanni stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur bréf þar sem þessum vinnubrögðum er harðlega mótmælt. Í bréfi Svandísar Svavarsdóttur og Árna Þórs Sigurðssonar segir m.a...

21. Ágúst 2006

FJÖLMIÐLAR TAKI FORSÆTISRÁÐHERRA Á ORÐINU


Geir H. Haarde, forsætisráðherra opnaði fyrir umræðu um stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar  með yfirlýsingum sínum í fjölmiðlum eftir för sína inn á fórnarlönd Alcoa við Kárahnjúka í boði Ómars Ragnarssonar nú um helgina. Forsætisráðherrann var nýlentur í Reykjavík eftir ferðina þegar hann sagði að vissulega þyrfti alltaf að eiga sér stað ákveðið “hagsmunamat” þegar stórar ákvarðanir væru teknar. Orðrétt sagði forsætisráðherra í samtali við Fréttablaðið: "Ég tel að við höfum tekið hárrétta ákvörðun. Auðvitað er alltaf eftirsjá að landi sem hverfur. Hins vegar er mikið af þessu örfoka land, þótt eitthvað sé um gróin svæði. Ef ég ætti að velja efnahagsáhrifin af virkjuninni eða halda þessu landi myndi ég velja nákvæmlega sama kost og  við gerðum á sínum tíma .." Það er nefnilega það. Geir H. Haarde finnst lítið til um "örfoka land" og ...Eigum við þá ekki að ræða þennan meinta efnahagsávinning...?

27. Febrúar 2006

ALCAN OG BÖRNIN

Tilefni þessa pistils er þó ekki nýjustu afrek Alcoa heldur Alcan, sem rekur álverið í Straumsvík. Vaxandi andstaða er gegn stækkun þess. Hvað skal þá til bragðs taka? Að sjálfsögðu er hafin áróðursherferð. Við því er lítið að segja nema hvað henni er einkum beint að yngstu kynslóðinni. Nú á að finna stærðfræðisnillinginn í hópi hennar. Þetta er að sjálfsögðu kynnt sem græskulaust gaman með teiknimyndum og  öllu tilheyrandi. En er þetta bara græskulaust gaman? Er til of mikils mælst að börnunum verði hlíft?

19. Febrúar 2006

HVERS VEGNA ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU UM STÓRIÐJUSTEFNUNA?

Birtist í Morgunblaðinu 18.02.06.
...Uppbygging stóriðju hefur yfirskyggt allt annað í atvinnustefnu stjórnvalda á undanförnum árum. Æ fleiri telja brýnt að gera grundvallarbreytingar á þeirri stefnu, svo að leggja megi grunn að uppbyggingu og framförum í íslensku samfélagi á traustum og varanlegum forsendum. Atvinnulíf verður að hvíla á sjálfbærum grunni eigi uppbygging þess að standast til langframa. Reynsla seinustu ára sýnir að þróttmikil nýsköpun í atvinnulífi og lítil og meðalstór fyrirtæki hafa mesta vaxtarmöguleika, skapa flest störf og skila þjóðarbúinu mestu. Með því að styðja slíka atvinnuþróun má auka útflutningstekjur þjóðarinnar og stuðla að hagvexti án þess að gengið sé á höfuðstól náttúrunnar. Fjölmargar ástæður renna stoðum undir þá hugmynd að frekari framvinda stóriðjustefnu og tilheyrandi bygging stórvirkjana verði ráðin í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu sem allir atkvæðisbærir landsmenn geti tekið þátt í. Einmitt nú eru slík tímamót að...

17. Febrúar 2006

“HOW DO YOU LIKE DYSNES?”


Þessari spurningu, hvað finnst ykkur um Dysnes, beindi einn fundarmanna að forstjóra Alcoa á fundi á Akureyri um síðustu mánaðamót ( sbr. Fréttir NFS 1.feb. sl.) Fundurinn var fyrsti kynningarfundur samráðsnefndar um álver á Norðurlandi. Engin svör fengust á fundinum en í fréttum af honum kom fram að Alcoa hygðist bíða enn í nokkrar vikur áður en yfirlýsing yrði gefin út um hvort þeir hafi áhuga á norðlensku álveri og þá hvort það muni rísa í Skagafirði, við Húsavík eða á Dysnesi við Eyjafjörð.
Næsta sem gerist í málinu er að svæðisútvarp Norðurlands upplýsir...Einhver nýlendubragur þykir mér yfir þessu. Það hentar Alcoa betur að fá Íslendingana til New York til að hlýða á boðskap sinn heldur en ómaka sjálfa sig á því að ferðast til Íslands. Í fréttatíma RÚV sama dag er “nýlendufréttin” síðan áréttuð: “Alcoa ákveður 1. mars hvort og þá hvar verður haldið áfram með undirbúning að byggingu álvers á Norðurlandi. Verkefnastjórn hefur verið boðuð til fundar í New York nefndan dag og þá verður tekin...

1. Febrúar 2006

MORGUNBLAÐIÐ: SANNFÆRING EÐA TVÍSKINNUNGUR?

Í pistli hér á síðunni í gær lauk ég lofsorði á Staksteinahöfund Morgunblaðsins fyrir ágæta hugvekju frá síðasta sunnudegi. Ekki er efni til að endurtaka lof og prís vegna Staksteinapistils frá í dag. Umræðuefnið er andstaða Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs við stjórnarfrumvarp, sem auðveldar Valgerði álráðherra og félögum hennar í ríkisstjórn að veita heimildir til að rannsaka virkjunarkosti svo svara megi orkuþörf þeirra stóriðjufyrirtækja sem lokkuð hafa verið til landsins með kostaboðum um lágt orkuverð og þæg og undirgefin stjórnvöld...Annars vegar er um að ræða meirihluta, sem getur keyrt sitt í gegn í krafti yfirburðastöðu sinnar, hins vegar er það minnihluti sem reynir að breyta gangi mála. Morgunblaðið segist sammála minnihlutanum í þessu máli, Vinstrihreyfingunni grænu framboði, en biður flokkinn jafnframt um að þegja. Hvað segir þetta okkur um sannfæringu Morgunblaðsins í þessu máli? Mér finnst þessi afstaða jaðra við tvískinnung. Staksteinahöfundur staldrar ekki við til að spyrja hvers vegna alþingismaður flytji vandaða og tilfinningaþrungna ræða í fimm klukkustundir. Staksteinahöfundur gerir þetta að umræðuefni, að því er virðist, til þess eins að ...

26. Janúar 2006

DAGUR ÁN SAMFYLKINGARINNAR Á ALÞINGI

Á Alþingi í dag var til umræðu frumvarp ríkisstjórnarinnar um rannsóknir á auðlindum í jörðu. Þetta er hitamál sem Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur beitt sér mjög gegn en iðnaðarráðherra hefur að sama skapi hamast fyrir samþykkt þess. Ágreiningurinn snýst um eftirfarandi grundvallaratriði: Ráðherrann vill fá heimild til að úthluta rannsóknarleyfum til virkjunarþyrstra orkufyrirtækja en VG vill á hinn bóginn að nú verði stopp sett á frekari áform í þágu erlendra álfyrirtækja sem bíða í röðum eftir að fá að versla við lítilþægustu ríkisstjórn í Evrópu ... Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs er því vanur að standa náttúruvaktina einn innan veggja Alþingis – það gerðum við í Kárahnjúkadeilunni og í deilunni um Þjórsárver - og verður svo í þessu máli. Dagurinn var eins og flestir dagar að mörgu leyti ágætur – en hann varð án Samfylkingarinnar þegar á hann leið og nú ...

24. Janúar 2006

BÓKUN ÁLFHEIÐAR

Getur verið að fjölmiðlar hafi ekki almennilega kveikt á perunni, nefnilega að Álfheiður Ingadóttir, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í stjórn Landsvirkjunar, greiddi ein atkvæði gegn tillögu um að hafnar skyldu viðræður við Alcan um orkusölu til stækkunar álversins í Straumsvík í 460 þúsund tonna framleiðslu á ári? Sannast sagna kann ég ekki aðra skýringu á sinnuleysi þeirra um afstöðu fulltrúa VG í Landsvirkjun. Ef til vill horfir þetta til bóta því í dag sendi þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs frá sér ályktun um "stækkunarviðræðurnar" ásamt bókun Álfheiðar Ingadóttur, en bókun hennar er svohljóðandi...

18. Janúar 2006

TELUR LANDSVIRKJUN LÝÐRÆÐIÐ VERA TIL TRAFALA?

...Friðrik Sophusson gerði því skóna í útvarpsviðtalinu í morgun að þetta skýrði viðsnúning Samfylkingarinnar varðandi Norðlingaölduveitu. Í útvarpsviðtalinu sagði hann að ástæða þess að meirihlutinn í Reykjavík snérist nú gegn þessari framkvæmd sé ótvíræður vilji borgarbúa í þessum efnum. Orðrétt sagði forstjóri Landsvirkjunar: "...þessi niðurstaða borgarinnar og þá sérstaklega meirihlutans sýnir að það eru kosningar í nánd og að það eru að koma prófkjör..."  Ef þetta er rétt, þá bið ég um ...Reyndar er sérkennilegt að fylgjast með tungutaki þeirra Landsvirkjunarmanna þessa dagana. Nú er allri umræðu um virkjanir og orkumál snúið upp í þröngt fyrirtækjatal. Það eru sagðir "óeðlilegir hagsmunaárekstarar" að sami aðili, þ.e. Reykjavíkurborg...

7. Janúar 2006

ERTU AÐ VERÐA NÁTTÚRULAUS?

...Ég lái ekki þáttastjórnanda í Kastljósi fyrir að þakka ráðherra fyrir komuna og reyna að ljúka þættinum, eða var það ef til vill eftir yfirlýsingar hennar um hve æskilegir vinnustaðir álver væru fyrir æsku landsins í framtíðnni, sem þáttastjórnandinn ákvað að slíta samtalinu? Synd að Valgerður Sverrisdóttir, náttúruverndarsinninn að eigin sögn, skyldi ekki vera á tónleikunum í kvöld. Ég held að það væri æskilegt að ráðherrar tækju til umfjöllunar á að minnsta kosti einum ríkisstjórnarfundi spurninguna um hvort verið gæti að ríkisstjórnin sé á góðri leið með að verða náttúrulaus. Sennilega væri þó markvissara að spurt yrði hvort ríkisstjórnin væri að...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Umhverfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta