Umhverfi
13. Ágúst 2008
FAGRA ÍSLAND Í 1.461 DAG
6. Ágúst 2008
GOTT HJÁ ÞÓRUNNI, EN...
Birtist í Fréttablaðinu 05.08.08.
...Samráðherrar Þórunnar, bæði úr Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu, lýsa því yfir að álver verði byggt á Bakka hvað sem tautar og raular. Bera í besta lagi í bætifláka fyrir umhverfisráðherra með því að segja að Þórunn sé að sinna nauðsynlegum formsatriðum. Gagnrýnin á umhverfisráðherra þykir mér ekki byggja á haldbærum rökum.
En hvers vegna efasemdarfyrirvarinn sem ýjað er að í fyrirsögn þessa greinarkorns?
Á umhverfisráðherranum sjálfum er nefnilega svo að skilja að heildstætt umhverfismat muni ekki breyta neinu, að í huga hennar sjálfrar sé...
2. Júlí 2008
TAKK ÞÓRUNN!

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráherra, upplýsti í Kastljósviðtali í kvöld að það hefði verið hún sem vann að undirbúningi tónleikanna sem Björk, Sigurrós, Ólöf Arnalds og Ghost Digital og Finnbogi Pétursson komu fram á í Laugardalnum í Reykjavík síðastliðinn laugardag. Ef ég á að segja alveg einsog er þá hafði mig alltaf grunað einmitt þetta, að á einhvern hátt væru þessir frábæru tónleikar Samfylkinginni að þakka. En að það hafi verið sjálfur umhverfisráðherrann sem skipulagði tónleikana var extra bónus. Ef ég skildi viðtalið við Þórunni umhverfisráðherra rétt þá höfðu þær unnið að undirbúningi tónleikanna saman hún og Björk. Frábært framtak. Takk. Allt í þágu náttúruverndar. Gegn stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar. Yfirlýsingarnar sem birtust á risaskjá á tónleikunum um náttúruspjöllin voru sláandi. Skyldi textinn hafa verið...
28. Júní 2008
ÍSLANDSTÖFFARAR: BJÖRK, LILJA OG SIGURRÓS

Því miður missti ég af fyrstu tónleikaatriðunum í Laugardalnum í kvöld, auglýstum Radium og Ólöfu Arnalds. Radium á ég eftir að kynnast, líka Ólöfu Arnalds sem allir sem til þekkja segja að sé á leið í fyrstu deild. Til hamingju með það Ólöf. Enginn deilir um að í fyrstu deildinni eru hins vegar Björk sem sannaði í kvöld hvað það er sem til þarf til að fanga heiminn! Það gerði Sigurrós líka. Í gærkvöldi hlustaði ég á Benna Hemm Hemm á útgáfuhátíð Draumalands Andra Snæs fyrir enskumælandi markað í Norræna húsinu. Þá rann það upp fyrir mér - eða kannski á ég að segja að ég hafi fengið staðfest - það sem ég áður vissi, að til er orðinn hinn íslenski tónn; íslenskt sérkenni í tónlist! Glæsilegt fólk! Gæsahúð og unaðstilfinning!! Mikið er stórkostlegt að finna fyrir baráttu þessa fólks fyrir náttúru Íslands. En þá er kominn þriðji töffarinn sem ég vil nefna. Það er hún Guðfríður Lilja...
27. Júní 2008
ER SAMFYLKINGIN ORÐIN GALIN?

...Ég hélt að hámarkinu væri náð þegar Condi Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, höfuðtalsmaður Íraksinnrásarinnar og Guantanamó pyntingabúðanna, fékk skartgrip að gjöf frá formanni Samfylkingarinnar og kossaregn frá þeim Ingibjörgu Sólrúnu og Geir. Þá hélt ég sannast sagna að niðurlægingin gæti ekki orðið meiri. Samfylkingin fékk fylgi í síðustu kosningum m.a. vegna stefnuyfirlýsingar sinnar undir kjörorðinu „Fagra Ísland". Fyrirheitin um umhverfisvernd eru nú svikin einsog að drekka vatn. Ég spyr, hvaða umhverfis telur ráðherra umhverfismála sig vera að gæta? Stássstofu ríkisráðsfunda á Bessastöðum? Eru ráðherrastólar dýrmætari en náttúruperlur Íslands? Er Samfylkingin algerlega samviskulaus? Eða er hún...
9. Maí 2008
ER REYKJAVÍKURBORG SVONA ÓDÝR?

Ekki ætla ég að útiloka að eitthvað geri Rio Tinto Alcan vel. Eitt veit ég þó að Rio Tinto Alcan er engin brautryðjandi í umhverfismálum. Því fer fjarri. Reyndar svo fjarri að Río Tinto er talinn einhver versti og ósvífnasti umhverfissóði heimsins. Þessu fyrirtæki hefur Reykjavíkurborg nú heimilað að kaupa sig inn í átak um að fólk hjóli eða gangi í vinnuna. Mér er kunnugt um að svo ofbjóði jafnvel hörðustu umhverfissinnum samanlögð ósvífni stjórnvalda í Reykjavík og Rio Tinto að þeir hafi varla geð í sér að taka þátt í átakinu. Fólki finnst með öðrum orðum það vera misnotað. Þetta minnir óneitanlega á það þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sæmdi stríðsglæpafyrirtækið og umhverfisspillinn Bechtel sérstökum ...
8. Apríl 2008
FAGRA ÍSLAND - DAGUR SEX
6. Desember 2007
LAGAHEIMILDIR SKORTIR FYRIR FRAMKVÆMDUM VIÐ ÞJÓRSÁ!

Hinn 9. maí síðastliðinn samþykktu ráðherrar þáverandi ríkisstjórnar fyrir hönd ríkisins samkomulag um yfirtöku Landsvirkjunar á vatnsréttindum ríkisins í neðri hluta Þjórsár án nokkurs fyrirvara í þágu fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs andmælti þessu á þeirri forsendu að þetta væri gert án heimildar í lögum og fór fram á að Ríkisendurskoðun kannaði hvort þetta stæðist lög. Í dag birti Ríkisendurskoðun niðurstöður sínar þar sem fram kemur að gagnrýni VG var á rökum reist ...
5. Desember 2007
SJÓN ER SÖGU RÍKARI

...Það sem við, sem andæfðum þessum áformum, því miður vissum eða grunaði sterklega var að ákvörðun um virkjun hefði í reynd verið tekin... Það skyldi virkjað hvað sem tautaði og raulaði. Á þessu ferðalagi okkar sáum við fjölda þungavinnuvéla... Skýringin var sögð sú að verið væri að rannsaka svæðið. Hverju barni mátti þó vera ljóst... Þetta flaug mér í hug þegar ég sá í dag plakat með myndum og spurningum frá nátturuverndar- og umhverfissamtökunum Sól á Suðurlandi. Á plakatinu má sjá framkvæmdir við Þjórsá...
28. Október 2007
ÁKALL UM NÁTTÚRUVERND ÚR KRÝSUVÍKURKIRKJU

Á sunnudag fyrir réttri viku predikaði séra
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLÆTI
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIÐ VONBRIGÐUM!
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGÐ Í MUNNINN
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓÐ KVEÐJA
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
Jón Jón Jónsson












