Beint á leiðarkerfi vefsins

Umheimur

25. September 2010

ÍSLANDI TIL SÓMA!


Aldrei hefur mér þótt eins vænt um málflutning af Íslands hálfu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og þann sem Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, flutti nú í vikulokin.  Þeir sem segja að litlu máli skipti hverjir fara með stjórn á Íslandi ættu að lesa ræðu hans (sjá slóð að  neðan).  Ég leyfi mér að fullyrða að slík ræða hafi aldrei verið flutt áður á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna af íslenskum ráðherra.
Hér var talað tæpitungulaust og óttalaust um réttlætismál án þess að fá áður stimpil að utan, það mátti sjá úr mílufjarlægð - svo mikið þykist ég vita um utanríkismál. Í Vinstrihreyfingunni grænu framboði erum við flest ósammála utanríkisráðherra um ESB en mannréttindakafla þessarar ræðu hefðum við getað flutt kinnroðalaust. Svo mikið veit ég. Össur tók upp mál íslensku sjálfboðaliðanna sem Ísraelar komu í veg fyrir að kæmust með gervifætur til að setja á íbúa á Gaza, sem hafa misst útlimi vegna hernaðar Ísraela. Hann sagði Ísraelum umbúðalaust til syndanna, og að framferði af þessu tagi væri óverjandi og ómanneskjulegt ranglæti sem væri þeim til skammar.
Össur Skarphéðinsson tók líka upp mál sem hefur verið mér sem ráðherra mannréttindamála mjög hugleikið, en það er mál írönsku konunnar, Ashtiani, sem stjórnvöld þar í landi ætla að grýta til dauða. Það mál hefur verið mikið til umræðu í fjölmiðlum heimsins, og verið til umfjöllunar hjá Amnesty hér á landi og annars staðar. Framtaksamir mannréttindasinnar hér á landi hafa einmitt sett í gang undirskriftalista til stuðnings Ashtiani, og ég hvet alla til að skrifa nafn sitt til stuðnings henni.
Ég var starfandi formaður utanríkismálanefndar þegar Ísraelsmenn réðust á hjálparskipin sem voru á leið með neyðaraðstoð til Gaza. Meirihluti nefndarinnar samþykkti þá harkaleg mótmæli, og beindi eindregnum tilmælum til Össurar að fara sem utanríkisráðherra Íslands til Gaza til að sýna íbúum þar stuðning Íslendinga. Að því er ég best veit hafa Ísraelar ekki hleypt honum, fremur en ráðherrum annarra ríkja inn á Gaza ennþá, og eru sennilega ekki líklegir til þess eftir ræðuna hjá SÞ. Það á eftir að koma í ljós. Þá er að reyna aðrar leiðir.
Össur tók líka upp mannréttindi samkynhneigðra, sem líklega er ekki oft til umfjöllunar á Allsherjarþinginu. Ég hef ekki oft heyrt áskoranir þaðan til þjóða heimsins um að afnema með öllu misrétti vegna kynhneigðar fólks.
Enn er það eitt sem mér þótti vænt um í ræðu Össurar. Það var umfjöllun hans um vatn og mannréttindi. Ég gagnrýndi það hér á síðunni í sumar, þegar mér fannst sérkennilegt að íslenska fastanefndin sat hjá, þegar til umfjöllunar var tillaga um að skilgreina aðgang að hreinu vatni sem mannréttindi. Ég sagði af því tilefni að hjáseta Íslands hlyti að hafa verið slys. Á Allsherjarþinginu tók utanríkisráðherrann af öll tvímæli um afstöðu íslensku ríkisstjórnarinnar. Í hrárri þýðingu minni sagði hann að það væri "staðföst afstaða ríkisstjórnarinnar að réttinn til öruggs drykkjarvatns og lágmarkshreinlætis ber að viðurkenna sem mannréttindi, sem er undirstaða lífsgæða og allra annarra mannréttinda."

Svona á Ísland að tala á alþjóðavettvangi. Segja hlutina hreint út og taka afstöðu. Slíkur málflutningur er Íslandi til sóma.


Ræða Össurar: http://www.utanrikisraduneyti.is/frettir/nr/5955

 


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

21. Maí 2012

UM LÝÐRÆÐI OG EIGNARRÉTT Í STJÓRNARSKRÁR-DRÖGUM

...Þar brást þú við fyrri færslu minni (auk annarra stjórnlagaráðsliða) sem ég birti hér neðst - en sólarhring síðar birti ég nefnilega þessa efnisathugasemd sem gaman væri að fá viðbrögð þín við: "Eins og Hjörtur Hjartarson lýsir hér að hér að ofan fyrir tæpnum sólarhring eru stór skref stigin í þágu beins lýðræðis sem Ögmundur kallar eftir og tel ég því fullsvarað og afstöðu Ögmundar misskilning - enda heldur forseti auk þess óskertum málskotsrétti. Hinu þarf líka að svara - sem Ögmundur segir um eignarrétt; hann virðist eins og fleiri ekki hafa áttað sig á merkilegu nýmæli í eignarréttarákvæðinu. Vissulega er rétt að 1. mgr. þess er óbreytt, orðrétt frá 72. gr. stjórnarskrárinnar (13. gr. frumvarpsins): "Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess ...
Gísli Tryggvason

21. Maí 2012

UM KÍNVERSK LANDSÖLUMÁL O.FL.

...Bara að láta Innanríkisráðherrann vita, að nú undir kvöld (bréfið barst 16/5), á síðustu metrunum fyrir Kristi Himmelfartsdag, berast þau tíðindi frá RÚV sjálfu, að nú vilji þeir loksins kveða Lilju með þér. Það var tími til kominn að sú vesæla fréttastofa rifi sig loks upp á rassgatinu og segði sannleikann, sem þú og við svo ótal mörg höfum alltaf vitað, þó sú fréttastofa þegi þunnu hljóði, sem ætíð, um samfylktu íslensku landsölumafíuna sem þú ert í stjórn með og hlýtur því að treysta ógesslega vel, en litlu verður Vöggur þó feginn á þessum síðustu og alverstu tímum og leyfum því RÚV að njóta þess, þegar fréttastofa þess segir amk. einu sinni sannleikann um Nubo og co...
Jón Jón Jónsson

13. Maí 2012

HEIMILI EÐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLÆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóðin mín:

Umheimur

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta