Umheimur
29. Nóvember 2009
ŢAĐ ER HĆGT AĐ TRYGGJA MANNRÉTTINDI Í PALESTÍNU!

Erindi flutt í Norræna húsinu á samstöðudegi SÞ með palestínsku þjóðinni
...Hvernig skyldi maðurinn sem missti báða fætur sínar í árásinni á Gaza skilgreina hlutleysi, eða sjómaðurinn sem missti hönd sína í skotárás, maðurinn sem Hjálmtýr Heiðdal segir okkur frá? Eða öll hin, sem eiga um sárt að binda? Hvernig skyldi þeim verða við þegar Öryggisráð SÞ mun neita - að kröfu Bandaríkjastjórnar - að virða niðurstöður rannsóknarskýrslu Goldstone-nefndarinnar? Og hvað skyldi þeim þykja um hlutleysi Norðmanna eða værukærð íslenskra stjórnvalda? Þar er ég líka að tala um sjálfan mig...Engar patentlausnir eru til. En hitt er ljóst að heimurinn má ekki sofna. Og ef hann heldur vöku sinni mun sigur vinnast. Fólkinu í heiminum tókst á endanum að ...
28. Nóvember 2009
SÝNUM PALESTÍNUMÖNNUM SAMSTÖĐU

...Sunnudaginn 29. nóvember verður efnt til samstöðufundar með Palestínu. Fundurinn er haldinn í Norræna húsinu í Reykjavík og hefst hann klukkan 15. Gert er ráð fyrir að hann standi í klukkustund eða þar um bil. Þessi dagur er alþjóðlegur samstöðudagur og er haldinn að undirlagi Sameinuðu þjóðanna ár hvert. Það er nefnilega svo einsog margir vita að Sameinuðu þjóðirnar hafa margoft... en síðan mun Björn Thoroddsen og félagar í Guitar Islandicio flytja nokkur lög og Anna Tómasdóttir hjúkrunarnemi flytur erindi og sýnir myndir...
11. Október 2009
ÍSLAND Í ÚTLÖNDUM

Aldrei hef ég verið í eins mörgum viðtölum við erlenda fjölmiðla og á undanförnum dögum - í kjölfar afsagnar minnar úr ríkisstjórn. Þótt ýmsum áhugamönnum um átakalaus stjórnmál hafi ekki orðið svefnsamt vegna væringa sem tengjast afsögninni þá leyfi ég mér að fullyrða að viðtöl við íslenska stjórnmálamenn í erlendum fjölmiðlum eru málstað Íslands til góðs. Þannig get ég huggað mig við að ég kunni að hafa lagt eitthvað gott af mörkum undanfarna daga utan heilbrigðisráðuneytisins....Sem dæmi um vefmiðil sem milljónir heimsækja er vefmiðill breska útvarpsins BBC en þar birtist í dag grein þar sem m.a. er vísað í mín ummæli og Stefáns Ólafssonar, prófessors við Háskóla Íslands...
12. September 2009
RÉTTLĆTANLEGUR SAMANBURĐUR? SVAR: JÁ
22. Júlí 2009
SKILABOĐ VERHAGENS

...Undir það vil ég taka og bæta því við að tilraun til að tengja ríkisábyrgð vegna Iceave við aðildarumsókn Íslands að ESB er ósvífin og hlýtur að hringja varúðarbjöllum meðal Íslendinga. Reyndar fagna ég því að þessi afstaða hollensku ríkisstjórnarinnar skuli ekki liggja í þagnargildi. Það er mikilvægt fyrir okkur að vera vel upplýst um raunverulega afstöðu viðsemjenda okkar innan Evrópusambandsins nú þegar rætt er um aðild Íslands að sambandinu; að þar eru ekki bara viðhlæjendur á ferð, notalegt samstarfsfólk úr nefndastarfi í Brussel, heldur harðsvíraðir hagsmunagæslumenn, vel verseraðir í utanríkispólitík nýlendutímans.
15. Júní 2009
ŢÖRF LESNING FYRIR AGS, GYLFA OG BJARNA

Allsérstæð umræða hefur farið fram að undanförnu um samhengið á milli ofurvaxta Seðlabankans og niðurskuðrar á ríkisútgjöldum. Þannig hefur komið fram að fulltrúar Alþjóðagjaldeyrsissjóðsins hafa ákaft varað við vaxtalækkkunum og viljað áður að ríkissjórnin sannaði að hún væri "trúverðug" við að beita niðurskurðarsveðjunni. Undir þetta sjónarmið hefur formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, tekið og í síðustu viku einnig prófessor við Háskóla Íslands, Gylfi Zoega. Fleiri hafa kvatt sér hljóðs til að tala fyrir þessari undarlegu hagfræðikenningu einsog ég hef vikið að hér á síðunni...Allt þetta samhengi hlutanna var til umræðu á nýafstöðnu þingi EPSU, European Public Servises Union, en það eru Evrópusamtök starfsfólks í almannaþjónustu. Þar kom fram sú einarða afstaða að efling almannaþjónustu væri lykilatrið við lausn efnahagskreppu. Á vefsíðu BSRB er...
3. Júní 2009
FRIĐFLYTJANDI HEIMSĆKIR ÍSLAND
Það var ánægjulegt að hitta Dalai Lama, friðarverðlaunahafa Nóbels og trúarleiðtoga Tíbeta að máli í heimsókn hans til Íslands. Í seinni tíð hefur athygli mín oft beinst að Tíbet. Það átti ekki síst við á síðasta ári þegar Ólympíuleikarnir voru haldnir í Kína. Þá gerðist tvennt í senn: Andófsöfl í Tíbet reyndu að vekja athygli á hlutskipti Tíbeta innan Kínverska Alþýðulýðveldisins og Kínaher reyndi af sama tilefni að bæla allt andóf niður. Hér á landi var efnt til mótmæla við kínverska sendiráðið í Reykjavík nokkra laugardaga í röð og hinn 24. ágúst var stofnað til sérstakrar menningar- og baráttuhátíðar í Salnum í Kópavogi af hálfu Vina Tíbets. Ég tók þátt í hvoru tveggja, mótmælunum við kínverska sendiráðið og fundinum í Salnum en þar flutti ég jafnframt ræðu. Á þetta minnti ég þegar ég var spurður...
22. Maí 2009
ALŢJÓĐAHEILBRIGĐISŢINGIĐ Í GENF
Fyrri hluta vikunnar sótti ég ársþing Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, World Health Organization (WHO), í Genf í Sviss... Þegar dómarar í Old Baily fangelsinu í London hrundu niður einhvern tímann um miðbik 19. aldarinnar er taugaveiki geisaði innan múranna, rann það upp fyrir bresku yfirstéttinni að heilbrigðismál hinna snauðu kæmu einnig henni við. Hvort það er af sjálfsupphafningu eða einskærri góðmennsku og vorkunsemi að Bill og Melinda Gates eiga margfalt stærri hlut í frjálsum framlögum til WHO en sjálf Bandaríkjastjórn veit ég ekki. Sjálfur gæti ég vel hugsað mér að ...
18. Janúar 2009
MĆTUM Á STÓRFUNDINN Í HÁSKÓLABÍÓI!!!

Í dag - sunnudag - klukkan 15 gangast fjölmörg félagasamtök, stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök fyrir mótmælafundi í Háskólabíói undir kjörorðinu: ÞJÓÐARSAMSTAÐA GEGN FJÖLDMORÐUNUM Á GAZA. Dagskráin er í senn kröftug og vönduð....Í ljósi voðaverkanna á Gaza er það nánst skylda sérhvers manns að gera allt sem í hans valdi stendur til að stöðva ódæðið. Fjöldafundir af því tagi sem hér er boðað til styrkir kröfu alþjóðasamfélagsins um að Ísrael verði beitt þrýstingi til að láta af ofbeldinu. Þess vegna verða allir að mæta sem eiga þess nokkur kost!
10. Janúar 2009
FJÖLMENNUM Í IĐNÓ!

Í dag klukkan 16 verður efnt til fundar í Iðnó í Reykjavík vegna grimmdarverkanna á Gaza. Það er mikilvægt að fólk sýni samstöðu með fórnarlömbunum og þá jafnframt og kannski fyrst og fremst, andstöðu við glórulaust ofbeldið...
8. Janúar 2009
FJÖLMENNUM VIĐ SENDIRÁĐ BANDARÍKJANNA

Sjónvarpið á lof skilið fyrir að sýna viðtal við norskan lækni starfandi á Gaza ströndinni. Myndir og frásagnir læknisins færa okkur heim sanninn um hve hrikalega stríðsglæpi Ísraelar eru að fremja á svæðinu. Allt þetta gerist í skjóli Bandaríkjanna, stærsta herveldis heimsins. Þess vegna er við hæfi að efnt skuli til mótmælafundar klikkan 17 í dag við sendiráð Bandaríkjanna að Laufásvegi 21 í Reykjavík. Það er félagið Ísland Palestína sem efnir til mótmælafundarins gegn fjöldamorðunum á Gaza. Formaður félagsins, Sveinn Rúnar Hauksson mun...
8. Janúar 2009
FÓRNARLÖMBIN ERU BÖRNIN
Frá lesendum
21. Maí 2012
UM LÝĐRĆĐI OG EIGNARRÉTT Í STJÓRNARSKRÁR-DRÖGUM
Gísli Tryggvason
21. Maí 2012
UM KÍNVERSK LANDSÖLUMÁL O.FL.
Jón Jón Jónsson
13. Maí 2012
HEIMILI EĐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLĆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ŢARF SJÁLFBĆRA FERĐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTĆKARI EN AĐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIĐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIĐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIĐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAĐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AĐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERĐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












