Umheimur
24. September 2007
ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF SAMTAKA LAUNAFÓLKS

Í dag hófst í Vínarborg 28. þing Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, Public Services International, sem um þessar mundir fagna 100 ára afmæli sínu. Þingið mun standa til 28. september nk. Þar eru komnir saman 1500 fulltrúar frá öllum heimshornum; þar á meðal eru fulltrúar BSRB. Undanfarna daga hefur verið lögð lokahönd á mikla undirbúningsvinnu fyrir þingið. Ánægjulegt hefur verið að taka þátt í því starfi og verða vitni að þeim krafti og samheldni sem ríkir á meðal þess fólks sem þarna er mætt fyrir hönd 650 samtaka er hafa á að skipa 20 milljónum félagsmanna í um 150 löndum. Enn og aftur erum við minnt á mikilvægi alþjóðlegs samstarfs og samstöðu sem verkalýðshreyfingin á heimsvísu hefur löngum sótt kraft og næringu til...
7. September 2007
UTANRÍKISMÁLAUMRÆÐAN: BETUR MÁ EF DUGA SKAL

...Fundaröðin hefur verið kynnt sem mikilvægt innlegg í stefnumótandi umræðu um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Ef þessi fundur er vísbending um það sem koma skal þá þurfa háskólarnir á Íslandi heldur betur að taka sig á vilji þeir á annað borð bjóða upp vandaða gagnrýna og vekjandi umræðu um utanríkismál, stöðu Íslands og stefnumótun á sviði utanríkismála. Þessi umræðufundur reis ekki undir væntingum og var langt frá því að vera á dýptina. Fyrst og fremst var fjallað um stofnanlega umgjörð utanríkisstefnunnar en ekki tekist á við þau mál sem helst brenna á okkar samtíma og mikilvægt er að efna til umræðu um...Þegar undirritaður óskaði eftir því að forsætisráðherra og utanríkisráðherra tjáðu sig um það efni sagðist forsætisráðherrann þurfa að víkja af fundi en myndi án efa eiga orðastað við mig um þetta efni á Alþingi! Utanríkisráðherrann vék að fyrirspurn minni undir lok fundarins en svaraði henni ekki. Sagði að þessir fundir væru fyrst og fremst til að "örva háskólasamfélagið" en stjórnvöld myndu ekki koma beint að þessum fundum...
2. September 2007
MISLUKKUÐ SAMFYLKING
Ég er að verða meyr með aldrinum. Svo er komið að ég farinn að kenna í brjósti um Samfylkinguna. Henni virðist ekki ætla að lukkast að lenda neinu máli áfallalaust. Síðast var það Árni Páll Árnason Samfylkingarþingmaður sem kallaði fram þessa tilfinningu. Það gerðist við lestur greinar hans í Morgunblaðinu 23. ágúst sl. Þar er vísað til þess að hann sé varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis eins og til að árétta þann skilning að greinin fjalli um utanríkismál. Á þessu var ekki vanþörf því viðfangsefnið var fyrst og fremst Vinstrihreyfingin grænt framboð undir fyrirsögninni: "Að styðja Hamas en fordæma Norðmenn." Árni Páll gerir því skóna að fulltrúar VG séu harla...
Frá lesendum
21. Maí 2012
UM LÝÐRÆÐI OG EIGNARRÉTT Í STJÓRNARSKRÁR-DRÖGUM
Gísli Tryggvason
21. Maí 2012
UM KÍNVERSK LANDSÖLUMÁL O.FL.
Jón Jón Jónsson
13. Maí 2012
HEIMILI EÐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLÆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












