Umheimur
27. Desember 2007
HVERS VEGNA EKKI ERLENDUR FRÉTTASKÝRINGAÞÁTTUR Í RÚV-SJÓNVARPI?

Morðið á Benazir Bhúttó í Pakistan hefur, einsog við mátti búast, vakið heimsathygli. Hinn gamalreyndi fréttamaður og fréttaskýrandi, Bogi Ágústsson, var mættur á skjáinn í fréttatíma RÚV í kvöld með umfjöllun um atburðinn og líklegar afleiðingar. Prýðilegt. En það á eftir að botna fréttina. Slíkt verður aðeins gert í fréttaskýringaþætti. Hvers vegna eru engir erlendir fréttaskýringaþættir í RÚV ohf? Sú var tíðin að slíkir þættir voru vikulega. Bogi Ágústsson var einn þeirra sem stýrðu slíkum þáttum. Hvers vegna í ósköpunum er honum ekki fengið slíkt verkefni nú? Er metnaður RÚV ohf minni en var hjá Ríkisútvarpinu fyrir tuttugu árum? Finnst stjórnendum RÚV ohf þeir ...
16. Desember 2007
VINIR ÍSLANDS?

...Og til Morgunblaðsins: Sú var tíðin að blaðið taldi réttilega Kreml-verja engar málsbætur eiga sér eftir að uppljóst varð um öll þeirra voðaverk, þar á meðal ...fangaflutninga til Síberíu. En hvað með pyntingarflugin til Guantanamo? Ég læt liggja á milli hluta að þessu sinni, Íraksinnrásina, Afganistan, Palestínu, Mið-Ameríku, ofbeldið gegn fátækum þjóðum um víða veröld. Ég staðnæmist að þessu sinni aðeins við frumstæða grimmd sem Bandaríkjastjórn hefur sýnt gagnvart einstaklingum í Guantanamó og Abu Graib. Myndin hér að ofan birtist á sínum tíma í breska tímaritinu Economist og sýnir flutninga á föngum á leið í fangabúðir Bandaríkjahers þar sem þeir voru pyntaðir...Í mínum huga átti að segja upp öllu hernaðar- og varnarsamtarfi við Bandaríkjastjórn um leið og vitað var um þau grófu og grimmilegu mannréttindabrot sem skipulögð hafa verið að hennar undirlagi...
1. Desember 2007
EES MÁ EKKI BYGGJA Á NAUÐUNG
Í Noregi hefur nú hafist umræða um hvort til greina komi að beita neitunarvaldi skv. EES-samningum. Tveir ríkisstjórnarflokkanna VS, Vinstri-sósíalistar og Miðflokkurinn, segja þetta koma til greina. Verkamannaflokkurinn er því hins vegar andvígur. Fyrir nokkrum misserum lýsti Gerd Liv Valla, þáverandi forseti norska Alþýðusambandsins, því yfir að sér þætti beiting neitunarvalds vel koma til álita. Núverandi forysta sambandsins hefur hins vegar ekki tekið afstöðu. Það hefur þó stærsta aðildarfélag þess gert, Fagforbundet, sem og Flutningaverkamenn.
Félögin telja að fráleitt sé að...
29. Nóvember 2007
UMSÁTRINU UM GAZA VERÐI AFLÉTT NÚ ÞEGAR!

Og nú skal enn sorfið að Gaza. Um það er rætt að taka af rafmagn þangað í byrjun desember. Við það munu vatnsdælurnar hætta að ganga og skólplagnir stíflast. En láta Ísraelar og „bandalagsþjóðir“ okkar í NATÓ þetta gerast? Getur það verið? Svarið er að þetta er ásetningur þeirra... Áframhaldandi aðför að íbúum Gaza og og fyrirhugaðar hertar aðgerðir gegn þeim, munu ganga eftir nema VIÐ stöðvum þær. Mannmréttindasinnum um heim allan ber siðferðileg skylda til að reisa baráttufána að húni og berjast af alefli gegn því viðbjóðslega ofbeldi, sem saklaust fólk í Palestínu er beitt. Þessi krafa var reist á fjölmennum fundi félagsins Ísland Palestína sem haldinn var...
27. Nóvember 2007
HEILBRIGÐI OG EVRÓPUSAMBANDIÐ: BOLKESTEIN GENGUR AFTUR

Mánudag og þriðjudag hef ég setið stjórnarfund EPSU, Samtaka launafólks innan almannaþjónustunnar á hinu Evrópska efnahagssvæði. Fundurinn var mjög fróðlegur. Sérstaklega athyglisverð var umræða um síðasta útspil Stjórnarnefndar Evrópusambandsins til að markaðsvæða velferðarþjónustuna...Slagurinn stóð framan af um tillögur sem gengu út á að leggja allt það sem kalla má þjónustu inn á markaðstorgið og láta hana þar lúta "samkeppnisreglum." Alræmd var svokölluð Bolkestein-nefnd, kennd við formann sinn, en hún reyndist mjög harðdrægur málssvari markaðssinna. Þótti mörgum samhljómur með Bolkestein og Frankenstein, hinn fyrrnefndi hafi ógnað lífi verlferðarkerfana...
22. Nóvember 2007
ÞAÐ SEM ÞÉR VILJIÐ AÐ AÐRIR GJÖRI YÐUR...

...Í fréttaskýringum erlendra fjölmiðla kemur fram að orkugeirinn á Filippseyjum hafi hingað til verið varinn ásókn erlendra fjármálabraskara vegna óstöðugleika í landinu en nú væri svo komið að olíuverð væri orðið svo hátt að fjölþjóða orku- og fjármálasamsteypur væru viljugri að taka meiri áhættu en áður við fjárfestingu í orkugeiranum. Einnig kemur fram að fjárhagsvandi ríkissjóðs á Filippseyjum valdi því að stjórnvöld sjái sig knúin til að selja "mjólkurkúna" eða "ættarsilfrið" eins og vísað er til þessarar sölu í þjóðmálaumræðunni á Filippseyjum. Erlendu fjárfestarnir láta sér fátt um finnast tilfinningaþrungna andstöðu almennings...
6. Nóvember 2007
GUÐFRÍÐUR LILJA, ENGISPRETTAN, ASÍA OG VIÐ
Auðvitað eiga Íslendingar að taka þátt í uppbyggingarstarfi víðs vegar um heim og þá ekki síst í verkefnum sem við erum sérfróð um, svo sem á sviði jarðvarmavirkjana. Slíkt gagnast þurfandi samfélögum og Íslendingar hagnast því vísindamenn okkar fá verkefni, hvatningu og fjármagn og orkuveitur okkar styrkjast að sama skapi. Við yrkjum þannig akurinn á þann hátt að allir uppskera. Á uppskeruakri heimsins eigum við að vera hin hjálpandi hönd en ekki vágesturinn sem fer ránshendi um allt, engisprettan sem Guðfríður Lilja Grétarsdóttir skírskotaði til í frábærum Morgunblaðspistli sínum um helgina...4. Nóvember 2007
HVAÐ HEFUR BREYST?

...Hernámsþjóðirnar í Írak, Bandaríkjamenn og Bretar ásamt bandalagsþjóðum sínum, innan sem utan NATÓ, klifa á því sýknt og heilagt að unnið sé mikið hjálpar- og uppbyggingarstarf í Írak á þeirra vegum. Þetta kom upp í hugann við að fylgjast með fréttum í Bandaríkjunum (þar sem ég er nú staddur í nokkra daga) um vandræðagang í sambandi við vopnasölu til Íraka. Þannig er að fyrir ári borguðu Írakar tvo milljarða Bandaríkjadala fyrir vopn sem ekki hafa enn...
18. Október 2007
GLEYMUM ALDREI EIGIN GLÆPUM!
...Fyrir okkur Íslendinga er það umhugsunarefni að íslensk stjórnvöld fylgdu Bandaríkjastjórn að máli – án gagnrýni og í blindri hlýðni – eins örugglega og rófa fylgir hundi. Ekki nóg með það. Allan tímann lágu íslensk stjórnvöld á hnjánum og báðu sömu stjórnvöld og stýrðu Helförinni á hendur írösku þjóðinni að verja sig gegn öllu illu! Fréttir frá pyntingum í Guantanamó eða Abu Graib breytti engu! Það verður að segjast eins og er að það er dapurlegt að horfa upp á nýja ríkisstjórn Sjálfstæðis/Samfylkingarflokksins horfa jafn gagnrýnislaust á alþjóðamálin og forveri hennar í Stjórnarráðinu gerði. Hér er mynd Pilgers...24. September 2007
ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF SAMTAKA LAUNAFÓLKS

Í dag hófst í Vínarborg 28. þing Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, Public Services International, sem um þessar mundir fagna 100 ára afmæli sínu. Þingið mun standa til 28. september nk. Þar eru komnir saman 1500 fulltrúar frá öllum heimshornum; þar á meðal eru fulltrúar BSRB. Undanfarna daga hefur verið lögð lokahönd á mikla undirbúningsvinnu fyrir þingið. Ánægjulegt hefur verið að taka þátt í því starfi og verða vitni að þeim krafti og samheldni sem ríkir á meðal þess fólks sem þarna er mætt fyrir hönd 650 samtaka er hafa á að skipa 20 milljónum félagsmanna í um 150 löndum. Enn og aftur erum við minnt á mikilvægi alþjóðlegs samstarfs og samstöðu sem verkalýðshreyfingin á heimsvísu hefur löngum sótt kraft og næringu til...
7. September 2007
UTANRÍKISMÁLAUMRÆÐAN: BETUR MÁ EF DUGA SKAL

...Fundaröðin hefur verið kynnt sem mikilvægt innlegg í stefnumótandi umræðu um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Ef þessi fundur er vísbending um það sem koma skal þá þurfa háskólarnir á Íslandi heldur betur að taka sig á vilji þeir á annað borð bjóða upp vandaða gagnrýna og vekjandi umræðu um utanríkismál, stöðu Íslands og stefnumótun á sviði utanríkismála. Þessi umræðufundur reis ekki undir væntingum og var langt frá því að vera á dýptina. Fyrst og fremst var fjallað um stofnanlega umgjörð utanríkisstefnunnar en ekki tekist á við þau mál sem helst brenna á okkar samtíma og mikilvægt er að efna til umræðu um...Þegar undirritaður óskaði eftir því að forsætisráðherra og utanríkisráðherra tjáðu sig um það efni sagðist forsætisráðherrann þurfa að víkja af fundi en myndi án efa eiga orðastað við mig um þetta efni á Alþingi! Utanríkisráðherrann vék að fyrirspurn minni undir lok fundarins en svaraði henni ekki. Sagði að þessir fundir væru fyrst og fremst til að "örva háskólasamfélagið" en stjórnvöld myndu ekki koma beint að þessum fundum...
2. September 2007
MISLUKKUÐ SAMFYLKING
Ég er að verða meyr með aldrinum. Svo er komið að ég farinn að kenna í brjósti um Samfylkinguna. Henni virðist ekki ætla að lukkast að lenda neinu máli áfallalaust. Síðast var það Árni Páll Árnason Samfylkingarþingmaður sem kallaði fram þessa tilfinningu. Það gerðist við lestur greinar hans í Morgunblaðinu 23. ágúst sl. Þar er vísað til þess að hann sé varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis eins og til að árétta þann skilning að greinin fjalli um utanríkismál. Á þessu var ekki vanþörf því viðfangsefnið var fyrst og fremst Vinstrihreyfingin grænt framboð undir fyrirsögninni: "Að styðja Hamas en fordæma Norðmenn." Árni Páll gerir því skóna að fulltrúar VG séu harla...
31. Ágúst 2007
"ÞEGAR BYSSURNAR ERU ÞAGNAÐAR"

...Hið sama gildir um allt tal um hina lýðræðislegu umræðu sem fram þurfi að fara. Hvers vegna fer hún ekki fram áður en ákvarðanir eru teknar? Er það þetta sem menn kalla umræðustjórnmál, að segja eitt en gera annað?
Formaður Samfylkingarinnar segir að við þurfum "að hafa metnað og þor til þess að láta rödd okkar heyrast. Sammála, en hvar? Eigum við ekki að hafa metnað og þor til að standa utan h
30. Ágúst 2007
ÞEGAR HIN ÞÖGLA BARÁTTA FÆR ANDLIT
...Það var merkilegt að heyra Eduardo Grutzky nefna nöfn Íslendinganna í fréttatíma í útvarpi, þar á meðal nafn Önnu Atladóttur. Þetta endurtók hann á fyrirlestri sínum í Norræna húsinu. Mér fannst þar með þrotlaus barátta Önnu Atladóttur og félaga hennar í Amnesty Int29. Ágúst 2007
EN HVAÐ FINNST HÖFUNDI REYKJAVÍKURBRÉFS UM ÞENNAN MANN?

Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins um síðastliðna helgi er athyglisvert. Það fjallar um stjórnarhætti í Rússlandi og þá sérstaklega undir Pútín núverandi Rússlandsforseta. Spurt er hvort í fæðingu sé fasískt ríki í Rússíá. Greining Reykjavíkurbréfs á ástandinu í Rússlandi virðist mér vera trúverðug....Listinn er óendanlegur. Spyrja má hvort Morgunblaðið hafi kynnt sér stefnuskrá American First Century, samtakanna sem allir helstu stuðningsmenn Bush forseta áttu hlut að undir síðustu aldamót. Ef þetta voru/eru ekki fasísk samtök þá veit ég ekki hvað fasismi er og þá ekki heldur neitt um sagnfræði. Þó var reynt að kenna mér hana í nokkur ár við háskólann í Edinborg á öldinni sem leið. Þar las ég m.a. um fasisma á fyrri hluta tuttugustu aldarinnar, aðferðafræði Hitlers og félaga. Ég þykist skilja mæta vel spurningar og vangaveltur Morgunblaðsins sem fram koma í eftirfarandi klausu...
13. Ágúst 2007
STRÍÐSLEIKUR FYRIR 45 MILLJÓNIR AF ÞÍNUM SKATTGREIÐSLUM !

Í Tíu-fréttum Sjónvarps í kvöld fengum við að heyra að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, er tilbúinn að eyða einum milljarði króna af skattfé landsmanna til að halda úti Ratsjárstofnun svo hún geti fylgst með því að flugvélar "sem ekki senda frá sér merki" og gera grein fyrir sér mælist á skermum þessarar stofnunar. "Hvaða vélar skyldu það vera?-" spurði forsætisráðherra íbygginn fyrir framan sjónvarpsvélarnar. Það er nú það, eins gott að fylgjast með þeim! Ég spyr, gæti verið að þær kæmu frá Líbýu eða Kasakstan, Formósu - eða kannski Sovétríkjunum? Getur verið að ríkisstjórn Íslands hafi ekki borist fréttir af nýrri heimsmynd, að hún sé föst í viðjum liðins tíma? Er ef til vill verið að gera grín að þjóðinni? Hlýtur það ekki að vera grín þegar okkur er sagt að verið sé að æfa árás á landið þar sem Norðmenn eru árásaraðilinn ...Haldið þið að við - almennir skattgreiðendur - séum tilbúin að láta ykkur sólunda peningum okkar á þennan hátt?
31. Júlí 2007
RÉTT HJÁ MOGGA – RANGT HJÁ ÖSSURI

...Þótt þessir tónar séu góðir er ég ósammála heildarboðskapnum sem ég hef grun um að sé settur fram til að sýna utanríkisráðherra Samfylkingarinnar samstöðu, en sem kunnugt er hafnaði Ingibjörg Sólrún því alfarið að eiga nokkur samskipti við Hamas, sigurvegara síðustu þingkosninga í Palestínu. Um þetta segir ÖS ... Ég hef í nokkrum greinum og pistlum gert grein fyrir því hvers vegna ég tel fráleitt að sniðganga Hamas. Morgunblaðið sá framvinduna fyrir, að Ísraelar og bakhjarlar þeirra myndu reyna að hrekja lýðræðislega stjórn Palestínumanna frá völdum og að slíkt gengi ekki...30. Júlí 2007
"VARNARSTEFNA" RÍKISSTJÓRNARINNAR OG SPURNINGAR ÞORSTEINS PÁLSSONAR
...þær upphæðir sem hér er um að tefla eru gríðarháar eða á annan milljarð króna, talsvert meira en allur rekstrarkostanður menntastofnunar á borð Háskólann á Akureyri! Haft er eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra, að kostnaður við þessa áætlun hafi ekki verið tekinn saman en hann sé lægri en hann hefði getað orðið! ...Augljóst er að þegar Alþingi kemur saman í haust mun fara fram rækileg umræða um varnir og öryggi Íslands, skuldbindingar okkar og markalínur á milli borgaralegra og h30. Júlí 2007
UM ÖFGAR OG ÖFGALEYSI
Árni Páll er ekki einn um að reyna að innprenta fólki að ég sé sérstakur talsmaður Hamas. Það gerir m.a.
26. Júlí 2007
FLÓTTAMENN Í LÍBANON OG ROTNANDI ÁVEXTIR Í GAZA

...Einn aðalframleiðenda myndarinnar var Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Hún og félagar eiga þakkir skyldar. Það á Sjónvarpið líka fyrir að sýna myndina. En hvers vegna var hún sýnd klukkan hálf ellefu að kvöldi – á eftir öllum sápuruglþáttunum? Ég minntist á það um daginn hve lélegt það var að sýna Barenboim-þáttinn undir miðnættið. Ætlar Sjónvarpið aldrei að læra – aldrei að kunna að meta að verðleikum gott sjónvarpsefni og vera stolt af okkar fólki sem er að
24. Júlí 2007
ÓRAUNSÆI UTANRÍKISRÁÐHERRA
...Einu sinni mátti ekki ræða við fulltrúa Fatah, ekki mátti ræða við Arafat og nú er það Hamas sem ísraelska hernámsliðið með fulltingi Bandaríkjastjórnar bannar að sé rætt við. Mergurinn málsins er hins vegar sá að þetta snýst ekki um samtök og persónur heldur um lýðræði. Og þetta snýst líka um raunsæi. Ef einhver von á að vera til þess að ná árangri þarf auðvitað að ræða við alla hlutaðeigandi, hvort sem það er Fatah, Hamas eða Ísraelsstjórn, alla þá sem hafa lýðræðislegan hljómgrunn hjá fólkinu. Það er nauðsynlegt að ræða við þessa aðila af virðingu fyrir lýðræðinu og vegna þess að annað skilar ekki árangri...
23. Júlí 2007
HVERJU ER INGIBJÖRG SÓLRÚN AÐ LOFA FYRIR OKKAR HÖND?
...Nú hefur komið fram að ísraelsk stjórnvöld hafa verið afar ánægð með málflutning og afstöðu Ingibjargar Sólrúnar í nýafstaðinni heimsókn, jafnvel viljað fá hana sem málamiðlara í „deilunni“ við Palestínumenn, að hennar sögn. Í framhaldinu hljóta fjölmiðlar að ganga eftir því við utanríkisráðherrann hverju hún sé að lofa fyrir hönd þjóðarinnar í viðræðum af þessu tagi. Hvers vegna eru Ísraelar svona himinlifandi? Og hvað veldur því að fulltrúi Bush stjórnarinnar bandarísku kemur skælbrosandi af fundi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í Reykjavík nýlega og segist ...
22. Júlí 2007
ÞANKAR FRÁ SÉRA GUNNÞÓRI, ROWAN WILLIAMS OG URI AVNERY

Í predikun sem séra
19. Júlí 2007
SAID OG BARENBOIM Í RÚV: KENNSLUSTUND Í SIÐFERÐI OG HUGREKKI

Í gær var sýndur afbragðsgóður þáttur í Sjónvarpinu um friðarframtak þeirra félaga, snillinganna Edwards heitins Saids og Daniels Barenboims. Sá fyrrnefndi Palestínumaður, hinn gyðingur, sem að hluta til óx úr grasi í Ísrael. Á sama tíma og hernámsþjóðin ísraelska hefur reist múr sem umlykur fórnarlömb hennar í Palestínu hafa þessir menn leitast við að brjóta niður múra – einkum hina huglægu.
Sjónvarpsþátturinn í gær fjallaði um það framtak þessara manna að mynda fjölþjóðlega hljómsveit ungs fólks, þar á meðal með hljóðfæraleikurum frá Ísrael og Palestínu, með það fyrir augum að færa nær hvert öðru fólk sem býr sitt hvoru megin óvildarmúra. Hápunktur þessa framtaks voru hljómleikar í Ramallah á Vesturbakkanum. Þeir voru áhrifaríkir og þá ekki síður hitt að fylgjast með Barenboim...
6. Júlí 2007
PÓLITÍSKT MAT Á MANNSLÍFUM

... Ekki veit ég hve oft brugðið hefur verið á skjáinn myndum af logandi jeppabifreið við flugstöðvarbygginguna í Glasgow í Skotlandi. Breska lögreglan telur að þar hafi hryðjuverkamenn komið að verki. Engan sakaði. Mikil leit fer nú fram á hugsanlegum vitorðsmönnum. Sama dag og þetta gerðist féllu 60 Afganar fyrir hendi NATÓ hersins í Afganistan, þar á meðal fjöldi barna. Frétt um þetta efni birtist í flestum meiriháttar fjölmiðlum. Síðan gufaði fréttin upp. Engar spurnir hafa borist af því að...
20. Júní 2007
STÓÐ EKKI TIL AÐ NÝ RÍKISSTJÓRN MÓTMÆLTI ÍRAKSSTRÍÐINU?

...Myndir af hrottafengnum pyntingum í bandarískum herfangelsum, hrannvíg á óbreyttum borgurum og stórfelld eyðilegging á öllum innviðum samfélagsins koma upp í hugann auk að sjálfsögðu borgarastríðsins sem smám saman hefur verið að magnast í landinu eftir innrásina árið 2003. Er það svona sem utanríkisráðherra Íslands og formaður Samfylkingarinnar kemur mótmælum á framfæri við herveldið bandaríska? Viðbrögðin eru þessi: Ekkert stórmál, gaman væri að fá ykkur í Öryggisráðið...!
7. Júní 2007
EVRÓPSK VERKALÝÐSHREYFING Á VAKTINNI – MINNT Á UNDIRSKRIFTASÖFNUN
...Hví nefni ég þetta hér? Það geri ég vegna þess að okkur kemur þetta heldur betur við. Reglur sem gilda um markaðsvæðingu á hinu Evrópska efnhagssvæði taka til okkar. Þess vegna eigum við ekki að sýna andvaraleysi þegar þessi mál eru annars vegar. Í gegnum verkalýðshreyfinguna getum við haft áhrif og vil ég í því sambandi minna enn og aftur á undirskriftasöfnun á vegum hinnar evrópsku verkalýðshreyfingar um að verja velferðarþjónustuna. Ég hvet alla til þess að taka þátt í þessari söfnun. Það er hægt að gera HÉR. Við megum ekki sofna á verðinum þegar framtíð velferðarsamfélagsins er annars vegar. Á stjórnarfundi EPSU voru gefnar skýrslur af ...10. Maí 2007
Á ÁFRAM AÐ ÞEGJA ÍRAK Í HEL?

...Annað sem vekur athygli er hve sáralitla umfjöllun málið fékk í fjölmiðlum. Fréttastofurnar virðast hreinlega hafa sofið á sitt græna eyra þegar við reyndum að ná til þjóðarinnar og vara við því sem framundan væri.
Í dag var send út fréttatilkynning frá VG þar sem ríkisstjórnin er enn krafin svara, - á formlegu erindisbréfi frá Alþingi og að þessu sinni um ný málsatriði. Mun það endurtaka sig enn á ný að ríkisstjórnin komist upp með að þegja málið í hel...?
23. Apríl 2007
TEKIÐ UNDIR ÁKALL HÚMANISTA UM EVRÓPU ÁN KJARNORKUVOPNA

Forsvarsfólk Húmanistahreyfingarinnar í Evrópu hefur sent frá sér ákall um afnám kjarnorkuvopna. Íslenskum stjórnmálaflokkum og einstökum stjórnmálamönnum hefur verið ritað bréf þar sem spurt er um afstöðu til þessa framtaks. Ég fékk slíkt bréf og fyrir mitt leyti vil þegar í stað bregðast jákvætt við þessu ákalli. Bréfið fer hér...
28. Mars 2007
LÝSUM YFIR STUÐNINGI VIÐ ÞJÓÐSTJÓRNINA Í PALESTÍNU

Íslensk stjórnvöld ættu að sýna þann manndóm að lýsa þegar í stað yfir eindregnum stuðningi við þjóðstjórnina í Palestínu og fylgja þar með góðu fordæmi frænda vorra Norðmanna. Á aðalfundi Félagsins Ísland Palestína var samþykkt ályktun þar sem segir m.a.: “Það er smánarblettur á Vesturlöndum að hafa fylgt Ísraelsstjórn í því að refsa Palestínumönnum fyrir að hafa kosið öðru vísi en þessum stjórnvöldum líkar". ... Stjórn Félagsins Ísland Palestína hefur óskað eftir fundi með Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra um málið. Með þeim fundi verður fylgst ...
19. Mars 2007
STAÐFASTIR STRÍÐSANDSTÆÐINGAR Í AUSTURBÆ

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Helgi Hjörvar verða ræðumenn á fundi Staðfastra stríðsandstæðinga á fundi í Austurbæ í kvöld – mánudaginn 19. september klukkan 20.
Nú eru liðin rétt fjögur ár frá innrásinni í Írak. Innrásin var gerð eftir áralangar þrengingar írösku þjóðarinnar vegna viðskiptabanns á hendur Írak. Bæði viðskiptabannið og innrásin voru réttlætt með upplognum sökum og til þess eins að þjóna viðskiptalegum og hernaðarlegum hagsmunum fjármagnsafla heimsins, einkum hinna bandarísku.
Sem kunnugt er létu þeir Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra og
11. Mars 2007
ÍRAKSSTRÍÐIÐ OG FRAMSÓKNARFLOKKURINN
...Þetta stenst að sjálfsögðu engan veginn enda var því aldrei mótmælt af hálfu íslenskra stjórnvalda þegar Bush veifaði listanum hróðugur hvar sem hann fór. Framsóknarforsystan þarf þá líka að svara því hvers vegna þáverandi utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins,
Í DV 21. mars 2003, segir...
Frá lesendum
21. Maí 2012
UM LÝÐRÆÐI OG EIGNARRÉTT Í STJÓRNARSKRÁR-DRÖGUM
Gísli Tryggvason
21. Maí 2012
UM KÍNVERSK LANDSÖLUMÁL O.FL.
Jón Jón Jónsson
13. Maí 2012
HEIMILI EÐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLÆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












