Umheimur
25. Desember 2006
BETLEHEM FYRR OG NÚ
Í Betlehem er barn oss fætt, er sungið um jólin þegar fólk minnist fæðingar Krists. Okkur er innrætt að jólin eigi að vera tilefni til göfugrar hugsunar. Prestarnir predika um mannkærleikann og boðskapur réttlætis og friðar er í hávegum hafður. Allt of mörgum þykir það hins vegar vera þægilegra að hugsa um tvö þúsund ára réttlæti eða ranglæti, eftir atvikum, en veruleika samtímans sem kallar á afstöðu okkar hér og nú. Í dag heyrðum við í fréttum Svein Rúnar Hauksson, lækni og formann félagsins Ísland-Palestína, tala frá Betlehem. Hann hafði komist til borgarinnar í fylgd biskups frá Jerúsalem, að því er mér skildist (eða var það biskupinn af Kantaraborg sem einnig var í Jerúsalem í dag?). Borgin er nánast eins og lokað fangelsi, umlukt múrum og umsetin ísraelsku hernámsliði. Þetta ætti að vera umfjöllunarefni úr hverjum predikunarstól á jólum meðan þetta kúgunarástand varir. Orð Sveins Rúnars voru ...29. Nóvember 2006
SAMSTÖÐUFUNDUR VEGNA PALESTÍNU – SAMTÖK LAUNAFÓLKS HVETJA TIL SAMSTÖÐU
Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi fyrir sjálfsákvörðunarrétti palestínsku þjóðarinnar efnir félagið Ísland Palestína til samstöðufundar á Hótel Borg í kvöld, miðvikudag kl. 20, þar sem Ziad Amro, helsti frumkvöðull blindra og fatlaðra og stofnandi Öryrkjabandalags Palestínu, er aðalræðumaður. Hann mun fjalla fjalla um áhrif hernáms á líf þjóðar, með sérstakri áherslu á fólk með fötlun. Ziad missti sjálfur sjónina af völdum hernámsins.28. Nóvember 2006
ÞAU SKORTI REISN OG DÓMGREIND

...Nálgun Guðna Ágústssonar er hins vegar röng í tvennum skilningi. Í fyrsta lagi er rangt að skírskota til vilja þjóðarinnar í því samhengi, sem Guðni gerir. Vilji hennar lá alltaf ljós fyrir. Ítrekað sýndu skoðanakannanir að þjóðin var andvíg árásarstríðinu. Það var því íslenska ríkisstjórnin sem misnotaði íslensku þjóðina en ekki Bush. Í öðru lagi var það íslenska ríkisstjórnin sem einhliða tók ákvörðun sína um að lufsast með þeim Bush og Blair þrátt fyrir að þær upplýsingar, sem nú liggja fyrir væru öllum sem vildu vita morgunljósar. Hér vísa ég í frábæra grein Steinþórs Heiðarssonar, hér á vefsíðunni. Þar segir á meðal annars: Til að gera langa sögu stutta, lágu fyrir allar þær upplýsingar sem þurfti til að taka rétta ákvörðun í þessu afdrifaríka máli, bæði um stöðu mála í Írak og þau hagsmunasambönd sem sköpuðu samstöðu innrásarríkjanna. Það sem íslensku ráðherrana – Davíð, Halldór, Geir, Þorgerði, Valgerði og öll hin – skorti í raun og veru var einfaldlega ...
15. Nóvember 2006
HVERS VEGNA SENDIHERRA ÍSRAELS VILL EKKI FUND MEÐ VG
14. Nóvember 2006
ÍSLENSK GAGNRÝNI SAMKVÆMT GAMALKUNNRI FORMÚLU

...Enda þótt
13. Nóvember 2006
HALLAR Á LÝÐRÆÐIÐ Í EVRÓPU?

Á miðvikudagsmorgun klukkan 8:15 er efnt til morgunverðarfundar á Grand Hótel í Reykjavík undir fyrirsögninni: EVRÓPUSAMVINNAN OG LÝÐRÆÐIÐ. Það er Evrópufræðasetrið að Bifröst sem stendur að fundinum í samvinnu við BSRB, ASÍ, Samtök atrvinnulífsins og Samtök iðnaðarins.
Marius Vahl sérfræðingur um málefni EFTA ríkjanna hjá CEPS stofnuninni (Center for European Policy Studies) í Brussel flytur erindi á fundinum sem hann nefnir: Double democratic deficit; Influence of the EEA on democracy in
Af þessum titli sýnist mér að megi ráða að fyrirlesari telji að við séum í tvöföldum mínus hvað lýðræðið snertir með hlutdeild okkar í Hinu evrópska efnahagssvæði. Hvað hann á við með því að tala um tvöfaldan mínus á eftir að koma í ljós – hvort hann telur að það ...
1. September 2006
PRÓFDÓMARINN

...Davíð Oddsson, seðlabankastjóri hefur aðra skoðun á þessu máli. Það er honum að sjálfsögðu frjálst að hafa og ekkert nema gott um það að segja ef ekki væri fyrir þær sakir að Ríkisútvarpið gerir hann að eins konar prófdómara í þessu máli. Þegar menn opnuðu vefsíðu Ríkisútvarpsins í morgun gat þar að líta flennimynd af Davíð Oddssyni. Fyrirsögn stórfréttar Ríkisútvarpsins var einkunnagjöf þessa merka álitsgjafa: Davíð Oddsson segir umræðu um Grímsskýrslu vera vitleysu...
29. Ágúst 2006
FRAMTÍÐ FRIÐARGÆSLUNNAR

Að undanförnu hefur farið fram talsverð umræða um aðkomu Íslendinga að friðargæslustörfum. Eins og kunnugt er olli það talsverðum deilum þegar íslenskir friðargæsluliðar voru sendir til Afganistans til starfa í tengslum við Bandaríkjaher og NATÓ. Þótti okkur mörgum að verið væri að koma á fót íslenskum her bakdyramegin. Þessu var afdráttarlaust neitað af hálfu utanríkisráðuneytisins þótt myndir af íslenskum friðargæsluliðum sýndu menn með alvæpni og fram kæmi að þeir bæru titla og heiti sem notuð eru í herjum.
10. Ágúst 2006
HEFUR ÍSRAEL FYRIRGERT TILVERURÉTTI SÍNUM?
Áfram berast fréttir frá Ísrael, Palestínu og Líbanon þar sem ekkert lát er á ofbeldinu. Mér varð hugsað til ferðar minnar til Palestíunu þegar ég sá í fréttum að minn ágæti félagi og bílstjóri í ferðinni, Qosai Odeh, hafði verið tekinn höndum fyrir mótmæli við bandarísku ræðismannsskrifstofuna í Jerúsalem og beittur harðræði af hálfu ísraelskra hermanna. Qosai er íslenskur ríkisborgari og væri fróðlegt að vita hvort íslensk stjórnvöld hafi mótmælt handtökunni. Mér varð hugsað til foreldra Qosais, sem ... Þá hafa birst bréf hér á síðunni þar sem skrif mín og annarra, sem hafa verið mjög gagnrýnin í garð Ísraela, eru sögð of einstrengingsleg. En hvað skyldi þeim hinum sömu þá þykja um skrif hins heimsþekkta norska rithöfundar Josteins Gaarder í Aftenposten um síðustu helgi undir fyrirsögninni Guðs útvalda þjóð. Jostein Gaarder segir að Ísrael sé liðin tíð; að við eigum ekki lengur að viðurkenna Ísrael. Ekki verði lengur umflúið að komast að þessari niðurstöðu. Ísrael hafi svívirt viðurkennigu heimsins á tilvist sinni. Ísraelum sé sjálfum um að kenna og eigi þeir ekki að fá frið fyrr en þeir leggi niður vopn. Jostein Gaarder segir stofnum Ísraels hafa verið réttlætanlega í kjölfar Heimsstyrjaldarinnar síðari en með skefjalausu ofbeldi, ofsóknum og rasisma hafi ríkið fyrirgert tilverurétti sínum. Nú sé nóg komið og að menn eigi að tala tæpitungulaust. Grein Josteins er birt hér að neðan á norsku ásamt slóð inn á greinina í Aftenposten. Ég skal viðureknna að ég verð sífellt meira og meira efins um þann rétt sem gömlu nýlenduveldin tóku sér til að stofna ríkið Ísrael með því að hrekja þáverandi íbúa á brott eins og gert var. Ef gyðingar áttu siðferðilegan rétt til stofnunar sjálfstæðs ríkis, eftir Helförina,...4. Ágúst 2006
UM MÆTINGU Á MÓTMÆLAFUNDI GEGN STRÍÐSGLÆPUM
...Það getur vel verið að á Fréttablaðinu þyki þetta fyndið. Okkur sem sóttum fundinn þótti hann hins vegar vel mannaður, þótt það veki óneitanlega áhyggjur hvílíkt sinnuleysi margir sýna þeim stríðsglæpum sem heimurinn verður nú vitni að í Líbanon og Palestínu og læt ég þá liggja á milli hluta afstöðu hinna sem telja ástæðu til að hafa þessi mál í flimtingum. Með því að gera lítið úr mótmælum sem þessum, er Fréttablaðið að taka afstöðu. Að vísu með hinum lítilmannlegu vopnum, hroka og kaldhæðni, en afstöðu samt...
2. Ágúst 2006
HVAÐ ER BEST FYRIR HANA?
Þorleifur Gunnlaugsson, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík skrifar umhugsunarverða grein hér á síðuna þar sem hann hvetur til þess að stjórnmálasambandi verði slitið við Ísrael og viðskiptabann sett á landið. Undir þetta skal tekið. Ég setti fram svipaðar vangaveltur vorið 2004. Til sanns vegar má færa að ástandið sé nú orðið mun verra en það var þá og full ástæða til að íhuga þennan kost vel. Sjálfum fyndist mér að fyrsta skrefið eigi að vera...
2. Ágúst 2006
RÍKISSTJÓRNIN OG LÍBANON: BETUR MÁ EF DUGA SKAL
...Í bréfi Valgerðar Sverrisdóttur, utanríkisráðherra, er uppi sama framsetningin og Bandaríkjastjórn og sú ísraelska leggja mest upp úr: "Réttur" Ísraels til að verja sig. Þessi "réttur" er rækilega tíundaður í hinu "harðorða" bréfi. Hvergi er minnst á "rétt" Palestínumanna, hvorki til að verja sig né hafa sjálfsforræði yfir eigin málum. Nýkjörin stjórn Palestínu hefur þannig ekki fengið leyfi til að starfa, þingmenn og ráðherrar verið fangelsaðir af ísraelska hernámsliðinu, skatttekjum haldið frá lýðræðilega kjörinni stjórn þannig að hún hefur ekki getað rekið velferðarþjónustu og aðra samfélagsþjónustu. Allt þetta og utanríkisráðherra Íslands á varla nógu sterk orð til að lýsa vináttu Íslands í garð Ísraelsríkis og leyfir sér þar í ofanálag að segja í þessu samhengi að "aldrei (sé) einum að kenna þegar tveir deila", eins og
31. Júlí 2006
TVÍSKINNUNGUR STÓRVELDANNA – OG MORGUNBLAÐSINS
...Jafnframt er haldið uppi stöðugum manndrápum og ofbeldisaðgerðum. Allt þetta gerist eftir að Hamas samtökin, sem kjörin voru lýðræðislega til valda, höfðu einhliða virt vopnahlé í 16 mánuði. Í kjölfar þessara atburða sauð upp úr og bæði Hamas og Hizbollah í Suður-Líbanon gripu til vopna. Bæði Bandaríkin og Evrópusambandið höfðu stutt Ísraela í ofbeldinu og eftir að til átaka kom, var viðkvæðið: “Ísraelar hafa rétt til að verja hendur sínar.” Gott ef ekki heyrðist eitthvert taut um þetta í Stjórnarráði Íslands líka, frá umsækjendunum um fulltrúasæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna....
30. Júlí 2006
ÍSLAND GETUR HAFT ÁHRIF Í LÍBANON
...Ályktun 377, kom upphaflega til sögunnar árið 1950 að frumkvæði Bandaríkjastjórnar, sem leitaði leiða til að komast framhjá neitunarvaldi Sovétríkjanna í Öryggisráði SÞ. Það var reyndar Bandaríkjastjórn, sem nýtti sér þessa aðkomu í Súezdeilunni vegna neitunarvalds Breta og Frakka í ráðinu. Ályktun 377 gengur einnig undir heitinu Sameining í þágu friðar, Uniting for peace. Í ályktuninni er minnt á þá skyldu Sameinuðu þjóðanna og allra stofnana þeirra að...
28. Júlí 2006
STÖÐVIÐ MORÐIN NÚNA!!!
Ávarp fyrir framan bandaríska sendiráðið á opnum fundi sem Herstöðvaandstæðingar boðuðu til....Nú þarf að reisa kröfu á hendur Ísraelum og bakhjarli þeirra, Bandaríkjunum: Stöðvið stríðsglæpina, stöðvið mannréttindabrotin. Heimurin krefst þess að vopnin verði tekin af fólki, sem ekkert kann annað en að drepa hvert annað.
Ísland á að krefjast þess að Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna verði kallað saman þegar í stað svo stöðva megi ofbeldið. Sýnum að okkur er alvara; að við viljum aðgerðir. Enga bið. Okkar krafa er...
27. Júlí 2006
FÖSTUDAG HÁLF SEX FYRIR FRAMAN BANDARÍSKA SENDIRÁÐIÐ
25. Júlí 2006
ÞRIGGJA DAGA "AÐGERÐUM" LOKIÐ Í NABLUS

...Augu heimsins beinast augljóslega fyrst og fremst að atburðum innan Líbanon, afleiðingum h
10. Júlí 2006
FJÖLSÓTTUR UMRÆÐUFUNDUR HJÁ BSRB

Fyrirlesararnir frá PSI, Jurgen Buxbaum og Alan Leather.
Á föstudaginn, 7. júlí, fór fram á vegum BSRB umræðufundur um opnun vinnumarkaða bæði í Evrópu og á heimsvísu. Fjölmenni hlýddi á tvo fyrirlessara frá Public Services International – Samtaka launafólks í almannaþjónustu – sem BSRB á aðild að. ... Jürgen Buxbaum dró upp mjög áhrifaríka mynd af þjóðfélögum í vestanverði álfunni sem byggju við ákveðið grunnkerfi hvað varðar félagsþjónustu, stöðu verkalýðsfélaga, lýðréttindi og lýðræðislegar stofnanir og bar hana saman við austanverða álfuna eftir hrun kommúnismans ... Niðurstaðan hefði orðið óheftur markaðsbúskapur með tilheyrandi misskiptingu og örbirgð hjá drjúgum hluta samfélagsins. Alan Leather setti fleiri drætti inn í þessa mynd – vék að flutningi starfsfólks í heilbrigðisgeiranum bæði innan Evrópu og á heimsvísu. Fram kom að í reynd væru þróunarríkin að fjárfesta í ...
8. Júlí 2006
VG SKRIFAR FORSETA ÍSRAELSKA ÞINGSINS
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hefur sent forseta ísraelska þingsins, Daliu Itzik, bréf þar sem mannréttindabrotum í Palestínu af hálfu ísraelska hernámsliðsins er harðlega mótmælt, jafnframt því sem óskað er eftir liðsinni þingsins við að fá palestínska þingmenn og ráðherra, sem hafa verið hnepptir í varðhald setta lausa. Fangelsun þingmanna er táknræn um það virðingarleysi sem ísraelska ríkið sýnir lýðræðinu. Bréf þingflokks VG fylgir hér að neðan...
8. Júlí 2006
MÓTMÆLUM OFBELDINU Í PALESTÍNU
Það er ekki nóg með að vestræn ríki og þá einkum Bandaríkin og Evrópusambandið horfi aðgerðarlaus upp á skefjalaust ofbeldi ísraelska hernámsliðisins í Palestínu, þau eru beinir þátttakendur í ofbeldinu...Til sanns vegar má færa að í mannlegu tilliti skiptir ekki máli hver það er sem verður fyrir ofbeldi. Það hefur hins vegar táknræna þýðingu þegar það nú gerist að ráðherrar og þingmenn Palestínumanna eru numdir nauðugir á brott af ísraelska hernámsliðinu og haldið föngnum. Slíkt er táknrænn máti að svívirða lýðræðið. Skyldi vera nokkur von til þess að ríkisstjórn Íslands hafi sig upp af hnjánum og sýni þann manndóm að mótmæla þessum mannréttindabrotum í Palestínu, glæpsamlegri hóprefsingu á saklausu fólki? Þeir sem styðja ofbeldið eru samsekir. Spurning er hvort það eigi ekki einnig við um hina sem þegja. Okkur ber öllum siðferðileg skylda til að...
26. Júní 2006
ÞJÓÐHÁTÍÐ BANDARÍKJANNA: AT THE INVITATION OF SEGLAGERÐIN ÆGIR
Hinn 4. júlí nálgast óðum og líður því senn að því að ríkasta stórveldi heimsins, Bandaríki Norður-Ameríku, haldi upp á þjóðhátíðardag sinn. Hinn 4. júlí árið 1776 var lýst yfir sjálfstæði Bandaríkjanna, sem heyrt höfðu undir bresku krúnuna. “Þar með hófst ameríski draumurinn”, segir George Bush Bandaríkjaforseti á sérAllt þetta umstang hlýtur að kosta sitt. Bjór og pitsur er að vísu ekki mjög kostnaðarsamur kostur á mælikvarða Íraksstríðsins eða stjörnustríðsáætlunarinnar en allt telur þetta. Þess vegna ber að fagna því að...
22. Júní 2006
BÓN RÍKISSTJÓRNAR ÍSLANDS: VALDNÍÐINGUR VERNDI OSS FRÁ ÖLLU ILLU
...Andúð í garð fasisma er sem betur fer mikil í Evrópu og eru mótmælin við komu Bush vitnisburður um hana. Bandaríkin hafa verið framvörður fjármagnsins um heillar aldar skeið og iðulega farið fram af mikilli hörku og grimmd til að verja h5. Maí 2006
LYGARINN SEM RÍKISSTJÓRNIN VILL AÐ VERJI ÍSLAND
...Ríkisstjórn Íslands hefur fylgt Bandaríkjastjórn eins staðfastlega og rófa fylgir hundi. Í samræmi við það er sú staðreynd að það virðist engin áhrif hafa á þann ásetning ríkisstjórnarinnar að leita ásjár hjá Bandaríkjastjórn þótt hún hafi ítrekað orðið uppvís af stríðsglæpum, pyntingum á föngum, stórfelldum mannréttindabrotum, lygum og fölsunum. Sem betur fer er heiðvirt fólk í Bandaríkjunum að rísa upp gegn þessum óþjóðalýð. Þar má nefna Ray McGovern, sem í 27 ár starfaði með bandarísku leyniþjónustunni CIA. Hann hefur í ræðu og riti sakað núverandi valdhafa Bandaríkjanna um að hafa beitt stórfelldum lygum í aðdraganda innrásarinnar í Írak. Á fundi í Atlanta í Bandaríkjunum nýverið, spurði hann Donald Rumsfeld "varnarmálaráðherra" Bandaríkjanna, hvers vegna hann hefði logið því að hann hefði vitneskju um tilvist gereyðingarvopna í Írak. Rumsfeld svaraði því til, að hann hefði engu logið, stjórnina hefði hins vegar grunað að Írakar hefðu gereyðingarvopn undir höndum. McGovern sagði ráðherrann hafa staðhæft árið 2003 að ríkisstjórnin hefði...9. Apríl 2006
Á MÓTI LÝÐRÆÐI: ÍSRAEL, ÍSLAND, ESB OG BUSH

Athygli vakti við umræðu um utanríkismál á Alþingi í vikunni hve mjög
1. Apríl 2006
LEITAÐ ÁSJÁR HJÁ STRÍÐSGLÆPAMÖNNUM
Ég heyrði ekki fréttir í gærkvöldi. Ekki heldur fréttirnar af samningaviðræðum við fulltrúa Bandaríkjastjórnar um framhald á "varnarsamningi". Ég hef fregnað að Kani hafi einkum viljað vernda okkur fyrir spillingu og mansali! Halda samningamenn Bush ef til vill að þeir séu staddir í Eistlandi? Og skyldu þetta vera réttu aðilarnir til að vernda þjóð vora fyrir spillingu og mansali, sömu menn og flytja fanga utan dóms og laga landa á milli til að verða pyntaðir? Undirlægjuháttur íslenskra stjórnvalda er með ólíkindum. Það er hrikaleg tilhugsun að stjórnarerindrekar Íslands skuli liggja á hnjám frammi fyrir verstu stríðglæpamönnum veraldarinnar í betlibæn um að þeir verndi íslenska þjóð gegn öllu illu! Hvílík niðurlæging!! Halldór Ásgrímsson og Geir H. Haarde eru skelfingu lostnir yfir þeirri tilhugsun að...29. Mars 2006
NÝR ÍSLANDSVINUR FUNDINN?
...Haft er eftir Össuri í fjölmiðlum að forseti Þingmannasambands NATÓ, Pierre Lellouche hafi lýst undrun á framgöngu Bandaríkjastjórnar og hvatt til þess að íslenskir þingmenn tækju málið upp á aðalfundi sambandsins í París í vor. Af þessu tilefni langar mig til þess að stinga ábendingu að formanni íslensku NATÓ-deildarinnar og hún snýr að þessum nýfundna Íslandsvini. Staðreyndin mun vera sú að vandfundnari er hægri sinnaðri þingmaður á franska þinginu en téður Pierre Lellouche. Hann gagnrýnir hægri sinnuð frönsk stjórnvöld jafnan frá hægri og þótt hann nú gagnrýni Bandaríkjastjórn þá studdi hann Íraksinnrásina allra manna harðast á þeim tíma sem franska ríkisstjórnin hafði í frammi mótmæli gegn árásarstefnu Bandaríkjamanna og Breta. Eru það slíkir menn sem við erum að...21. Mars 2006
ENN OF SNEMMT AÐ SEGJA TIL UM HVORT INNRÁSIN Í ÍRAK HAFI VERIÐ TIL GÓÐS EÐA ILLS?
Auðvitað kemur að því einhvern tímann að birtir yfir Írak. En það verður ekki vegna þess að Bandaríkjamenn og Bretar, með stuðningi viljugra vina sinna, réðust á þjóðina heldur þrátt fyrir þá árás og allar þær hörmungar sem...
18. Mars 2006
VILLIMENNSKA ELUR AF SÉR VILLIMENNSKU
16. Mars 2006
BEINUM SJÓNUM OKKAR AÐ PALESTÍNU Í MINNINGU RACHELAR COREY
...Víða um heim minnast menn nú þess að í dag eru liðin þrjú ár frá dauða þessarar ungu stúlku. Hún var tuttugu og þriggja ára gömul þegar ísraelskir hermenn myrtu hana. Morðið var framið á yfirvegaðan og kaldrifjaðan hátt. Um þennan atburð sagði ég á heimasíðun minni vorið 2003: "Þessi unga stúlka, sem var einlægur friðarsinni, vildi koma í veg fyrir að hús palestínskrar fjölskyldu yrði jafnað við jörðu. Hún stóð í vegi fyrir jarðýtunni sem var notuð til þess verknaðar. Fyrst var hent braki og jarðvegi yfir stúlkuna og þegar hún féll til jarðar var ýtt yfir hana, handleggir og fótleggir brotnuðu og höfuðkúpan brákaðist. Hún lést skömmu síðar. Þetta gerðist 16. mars ...5. Mars 2006
ÖSSUR, EVRÓPUSAMBANDIÐ OG HLEKKIR HUGARFARSINS
Össur Skarphéðinsson skrifar pistil á heimasíðu sína í lok vikunnar sem hann nefnir Ögmundur – og hlekkir hugarfarsins. Tilefnið voru skoðanaskipti okkar á Alþingi um Evrópusambandið og hvort eftirsóknarvert væri fyrir Íslendinga að sækja þar um aðild. Össur vísar til þess að ég hafi sagt á þá leið í þinginu að ESB "væri einangrunarsinnað innilokunarsamband sem hentaði ekki hagsmunum Íslendinga." Mikið rétt. Í framhaldinu fjallar Össur um tollamúra Evrópusambandsins og spyr...Mér hefur oft orðið það umhugsunarefni þegar menn jafna löngun til að ganga í Evrópusambandið við alþjóðahyggju. Evrópusambandið byggir fyrst og síðast á einangrunarhyggju. Það er miðstýrt og þunglamalegt skrifræðiskerfi sem öllum vill þröngva inn í sama þrönga farveginn. Mér er fyrirmunað að skilja að mönnum finnist það vera eftirsóknarvert hlutskipti fyrir þjóð eins og okkar, sem býr yfir sjálfstæðum lýðræðislegum tækjum til að stjórna sjálf sínu lífi, að gerast þarna innmúrað aðildarríki með völd sem mælast í prómillum. Á sínum tíma sat ég með Össuri í EFTA nefnd Alingis. Þar var...26. Febrúar 2006
EGILL OG BJÖRN Í SILFURSPJALLI
20. Febrúar 2006
ÆTLA ÍSLENDINGAR AÐ STYÐJA OFBELDIÐ GEGN PALESTÍNUMÖNNUM?
17. Febrúar 2006
ÞJÓNUSTUTILSKIPUN ESB - ÚTKOMAN ÓLJÓS

Í gær voru greidd atkvæði um þjónustutilskipun Evrópusambandsins á Evrópuþinginu. Enn á Ráðherranefnd ESB eftir að taka afstöu til tilskipunarinnar eins og þingið afgreiddi hana í gær. Athygli vekur að eini fjölmiðillinn sem fjallar að marki um þetta mál hér á landi er vefsíða BSRB, bsrb.is, en þar eru okkur færðar fréttir af viðbrögðum við atkvæðagreiðslunni í gær. Viðbrögðin eru enn sem komið er nokkuð misvísandi og ljóst að samtök og stjórnmálaflokkar túlka útkomuna á mismunandi veg. Vandinn verður án efa sá að endanlegir úrskurðir um túlkun tilskipunarinnar koma til með að ráðast fyrir dómstólum en ljóst er að markaðssinnar hafa í seinni tíð sett traust sitt á þá. Þess vegna fallast þeir iðulega á loðið orðalag tilskipana ESB og láta síðan dómurum eftir að...
15. Febrúar 2006
GÓÐIR BANDAMENN?

... Myndirnar lýsa viðbjóðslegu atferli. Því reynir enginn að neita. Ekki einu sinni talsmaður Hvíta hússins í Washington. Hann lét þess sérstaklega getið í yfirlýsingu í dag að sérlega "óheppilegt" væri að myndirnar birtust núna, í því andrúmslofti sem hefði skapast í samskiptum vestrænna ríkja við Arabaríkin og átti þá væntanlega við þá reiðiöldu sem risið hefur í kjölfar myndbirtinga Jyllandsposten. Já, það er nefnilega það, óheppilegur tími! Er ekki alltaf réttur tími til að upplýsa um grimmdarverk?...Í vikunni birtu fjölmiðlar víða um heim fréttir af rannsóknarskýrslu sem er í burðarliðnum um pyntingar í bandarísku herstöðinni í Guantanomó á Kúbu. Hún er unnin af fimm sérfræðingum Sameinuðu þjóðanna fyrir Mannréttindanefnd SÞ. Viðbrögð í Washington hafa að sjálfsögðu verið neikvæð. Í fyrsta lagi var reynt að ...
14. Febrúar 2006
30 ÞÚSUND MÓTMÆLA Í STRASSBOURG
31. Janúar 2006
HRYÐJUVERKAMAÐUR EÐA FRELSISHETJA?
...Tilefni þessara skrifa minna eru Staksteinar Morgun-blaðsins síðastliðinn sunnudag. Ekki skrifa ég upp á hvert orð pistilsins. En vitiborinn er hann að mínu mati, ber vott um víðsýni höfundar og er ég, þegar á heildina er litið, boðskapnum hjartanlega sammála. Í þeirri afstöðu sem birtist í þessum Staksteinapistli er að finna lykilinn að friðsamlegri sambúð. Með aðferðafræði suður-afríska biskupsins Desmonds Tutu í ofanálag mætti síðan komast upp úr skotgröfunum. Þjóð Tutus hins blakka biskups hafði verið kúguð, pyntuð, rænd og fangelsuð um áratugi af valdhöfum og handbendum þeirra. Þegar svo kúgararnir gáfust upp, þá setti...
25. Janúar 2006
PYNTINGAR: ÞÖGN ER SAMA OG SAMÞYKKI
...Ef ekki ætti í hlut voldugasta ríki heimsins hefði fyrir löngu komið til tals að slíta stjórnmála-sambandi við það! Ekkert væri fjær íslensku ríkisstjórninni. Gagnvart Bandaríkjastjórn kann hún best við sig á hnjánum. Þegar ríkisstjórnin var knúin til þess að "mótmæla" framferði Bandaríkjamanna vorið 2004 var það gert svo mildilega að ekki nokkur maður tók eftir því. Þetta hafa síðan verið kölluð mótmæli í kyrrþey. Í stað þess að afneita staðreyndum um framferði Bandaríkjamanna á ríkisstjórn Íslands nú að hafa manndóm í sér til að...
9. Janúar 2006
ALÞJÓÐASAMTÖK LAUNAFÓLKS VILJA ALÞJÓÐAVÆÐINGU Á RÉTTLÁTUM FORSENDUM
Í Fréttablaðinu í gær furða menn sig á áherslum BSRB varðandi Doha-viðræðurnar svokölluðu, sem fram fara á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO...Út á hvað ganga þessar ályktanir samtaka launafólks? Tvennt er gagnrýnt. Í fyrsta lagi sú leynd sem hvílt hefur yfir samningaviðræðunum og ólýðræðsileg vinnubrögð...Í öðru lagi eru samningsforsendurnar gagnrýndar... Fréttablaðið gerir að sínum orð Ýmis Arnar Finnbogasonar, eins af pistlahöfundum deiglunnar.com, sem er vefrit frjálshyggjumanna þar sem hann beinir gagnrýni ...Ég tók reyndar þátt í mjög skemmtilegri umræðu um þetta efni með ágætum deiglupenna, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, í síðustu viku á fundi sem Samband ungra sjálfstæðismanna, SUS, boðaði til...
Frá lesendum
21. Maí 2012
UM LÝÐRÆÐI OG EIGNARRÉTT Í STJÓRNARSKRÁR-DRÖGUM
Gísli Tryggvason
21. Maí 2012
UM KÍNVERSK LANDSÖLUMÁL O.FL.
Jón Jón Jónsson
13. Maí 2012
HEIMILI EÐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLÆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












