Umheimur
18. Desember 2005
BARÓNESSA ÚTI Á ÞEKJU
14. Desember 2005
WTO VIÐRÆÐURNAR VERÐI STÖÐVAÐAR
BSRB vill að samningaviðræðurnar á vegum Alþjóðaviðskiptastofnun-
arinnar verði stöðvaðar þar til samningar hafa tekist um nýjar samningsforsendur og lýðræðislegri og opnari vinnubrögð. Geir H. Haarde utanríkisráðherra, sem nú er staddur í Hong Kong á ráðherrafundi Alþjóðaviðskiptastofnun-
arinnar, WTO, barst í dag bréf frá BSRB þar sem þess er krafist að Íslendingar beiti sér í þessa veru en samskonar kröfur hafa nú verið reistar af hálfu verkalýðshreyfingar og félagasamtaka sem beita sér fyrir almannaheill, víðs vegar um heiminn.
14. Desember 2005
HVERS VEGNA ER ELÍASI DAVÍÐSSYNI EKKI SVARAÐ?
...Elías Davíðsson, tónskáld, hefur óskað eftir því að sjá gögnin sem lágu að baki þeirri ákvörðun Íslands að styðja stríðið og ritaði hann utanríkisráðuneytinu bréf þar hann krafðist upplýsinga um þetta efni. Elías hefur jafnframt lagt fram kæru á hendur Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni, fyrrum utanríkisráðherra, fyrir meinta hlutdeild í stríðsglæpum árið 1999. Tilefnið var ákvörðun leiðtogafundar NATÓ í
13. Desember 2005
ER EKKI KOMINN TÍMI TIL AÐ BIRTA SÖNNUNARGÖGNIN?
...Nú er það svo að aðalritari NATÓ lýsti því yfir að ríkisstjórnum NATÓ ríkjanna hefðu verið kynnt sönnunargögn um ábyrgð Al Qaeda á árásunum í
Er ekki kominn tími til þess að Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi forsætisráðherra geri grein fyrir þeim gögnum sem þessar ákvaraðanir voru byggðar á?
11. Desember 2005
NORSKA RÍKISSTJÓRNIN SÝNIR ÁBYRGÐ Í GATS VIÐRÆÐUM!
11. Desember 2005
GATS SAMNINGARNIR VERÐI STÖÐVAÐIR
...Af þessum sökum er nú sett fram tvíþætt krafa af hálfu fjölda verkalýðsfélaga og heimssambanda þeirra, þar á meðal BSRB og PSI.
Í fyrsta lagi verði öllum frekari viðræðum á vettvangi WTO frestað og reynt að ná víðtæku samkomulagi við verkalýðshreyfingu og almannasamtök um nýjar samningsforsendur. Í öðru lagi verði framkvæmt mat á félagslegum, umhverfislegum og menningarlegum afleiðingum þess regluverks í alþjóðaviðskiptum sem hannað hefur verið af fjölþjóðastofnunum á borð við WTO og ríkisstjórnir hafa undirgengist.
Verkalýðsfélög um heim allan hafa sammælst um að koma þessum kröfum á framfæri...
2. Desember 2005
VIÐ VILJUM HAFA LJÓSIN LOGANDI!

Undirritaður við hlið Carolu Fischbach-Pyttel, framkvæmdastjóra EPSU, í göngunni.
Launafólk víðs vegar að úr Evrópu tók þátt í mótmælagöngu og útifundi í Brussel á fimmtudag þegar orkumálaráðherrar Evrópusambandsins komu þar saman til fundar. Frá því hafist var handa um að markaðsvæða raforkukerfin í Evrópu hafa 300 þúsund manns misst atvinnu sína, verðlag hefur hækkað og dregið hefur úr öryggi við afhendingu á rafmagni. Þess vegna hljómaði krafan um að við viljum hafa ljósin logandi!
30. Nóvember 2005
ÓBREYTT ÞJÓNUSTUTILSKIPUN EVRÓPUSAMBANDSINS YRÐI TILRÆÐI VIÐ VELFERÐARÞJÓÐFÉLAGIÐ
Samtök launafólks í almannaþjónustu á Hinu evrópska efnahagssvæði (European Public Services Union) samþykkti á stjórnarfundi í Brussel í dag harðorð mótmæli gegn þeirri ákvörðun starfsnefndar Evrópuþingsins að mæla með því að öll almannaþjónusta skuli falla undir nýja þjónustutilskipun Evrópusambandsins. Þjónustutilskipun Evrópusambandsins, sem hér um ræðir, hefur að geyma svokallaða upprunalandsreglu þar sem kveðið er á um að kjarasamningar þess lands sem farandfyrirtæki er frá, skuli gilda, ekki samningar þess lands sem fyrirtækið starfar í. Þetta myndi gera að engu íslensk lög um að íslenskir kjarasamningar á vinnumarkaði skuli gilda. Þá eru í tilskipuninni að finna ákvæði um að heilbrigðisþjónustan skuli opnuð fyrir einkavæðingu.26. Nóvember 2005
PSI: KRÖFTUGUSTU HEIMSSAMTÖK LAUNAFÓLKS
Í Genf í Sviss hefur í vikunni staðið árlegur stjórnarfundur í Public Services Int23. Október 2005
MARGIR RÁÐHERRAR UM SMÁA GREIN


Birtist í Morgunblaðinu 22.10.05.
...Sannast sagna rak mig í rogastans þegar ég las grein sem utanríkisráðherrar allra Norðurlandanna sendu frá sér í sameiningu og birtist í norrænum blöðum 22. júní sl.. Tilefnið var ráðstefna sem þá var haldin í Brussel um Írak og var fyrirsögn greinarinnar Skilaboð Norðurlanda til Íraksráðstefnu. Mjög erfitt er að átta sig á hver þessi skilaboð áttu að vera að öðru leyti en því að utanríkisráðherrarnir vonuðust til að Írakar fengju að búa við frið og öryggi, njóta mannréttinda og lifa án fátæktar og kúgunar. Hljómar vel. En síðan þegar farið er að rýna í textann kemur í ljós að þessi orðsending frá norrænu utanríkisráðherrunum er lítið annað en réttlæting á innrásinni í Írak og stuðningur við sögutúlkanir Bush-stjórnarinnar bandarísku. Svona er andstaðan við hernmámsliðið afgreidd...
17. September 2005
ÖRYGGISRÁÐIÐ – HVAÐ SKAL GERA?
Erfitt er að átta sig á því hvað verður ofan á varðandi tilraunir Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra að kaupa fyrir Ísland sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra ítrekaði áhuga sinn á sætinu í ræðu sem hann flutti á Allsherjarþingi SÞ. Uppi varð fótur og fit hér heima enda málið mjög umdeilt sem kunnugt er. Um þetta er eftirfarandi haft eftir Guðna Ágústssyni, landbúnaðarráðherra og varaformanni Framsóknarflokksins í Morgunblaðinu í dag...Að lokum ein lítil tillaga: Fari svo að Halldór Ásgrímsson hafi sitt fram og haldi þessu máli til streitu, væri ekki hugsandi að ...14. September 2005
MORGUNBLAÐIÐ LOFAR ANDSTÆÐING "ATKVÆÐAVÆNNA VERKEFNA"
11. September 2005
BSRB OG HVÍTA BANDIÐ

Birtist í Morgunblaðinu 10.09.05.
...Á heiminum öllum hvíla því siðferðilegar skyldur að vinna markvisst að úrbótum. Ört vaxandi heimshreyfing verkalýðssamtaka og annarra almannasamtaka, hefur myndað breiðfylkingu til að örva umræðu og knýja á um markvissar úrbætur og hafa Samtök starfsfólks í almannaþjónustu, Public Services Int
18. Ágúst 2005
HAMAGANGUR Í HOLLANDI ÚT AF "VITRÆNNI HÖNNUN" = "INTELLIGENT DESIGN"
15. Ágúst 2005
AMERÍKUPISTILL

Í sumar dvaldi ég ásamt konu minni um nokkurra daga skeið í St. Paul og Minneapolis, "tvíburaborgunum" svonefndu í Minnesotaríki í Bandaríkjunum. Á þessum dögum fékk ég örlitla innsýn í ýmsa þætti í bandarísku þjóðlífi sem maður hefur ekki að staðaldri fyrir augunum. Ýmsir viðburðir sem að staðaldri eru í heimsfréttum þessa dagana fengu á sig skýrari, og í mínum huga skiljanlegri, mynd.
Auðvitað er ekki hægt að alhæfa um stórþjóð á við Bandaríkjamenn...Annað, og nokkuð sem kom þægilega á óvart, var almennt umburðarlyndi sem ég þóttist verða var við hjá fólki...Auðvitað er himinn og haf á milli þess besta og versta í bandarískri fjölmiðlun. Athygli flestra Evrópumanna vekur þó að ég held, hve þröngur sjóndeildarhringur bandarískra ljósvakamiðla almennt er...Enda þótt bandarísk yfirvöld dýrki ofbeldið og upp um húsveggi margra stórbygginga sé að finna lofgjörð og ákall til h
6. Ágúst 2005
HIROSHIMA OG HRYÐJUVERKARÍKI
16. Júlí 2005
HVERSU LENGI Á BANDARÍKJASTJÓRN AÐ KOMAST UPP MEÐ AÐ FREMJA MANNRÉTTINDABROT?
Á vef CNN fréttastofunnar bandarísku segir nýlega frá dæmum af pyntingum, líkamlegum og ekki síður andlegum, í 6. Júlí 2005
ÞRÓUNARSTOFNUN ÍSLANDS OG MÓTMÆLIN GEGN MISRÉTTI Í HEIMINUM
Það er mikil gæfa að Sighvatur Björgvinsson skuli ekki vera varðstjóri í lögreglunni í Edinborg. Hún glímir nú við tugþúsundir fólks sem þar er saman komið til að vekja athygli á fátækt og misrétti í heiminum í tilefni fundar forsvarsmanna voldugustu hervelda heimsins. Í útvarpsviðtali gaf Sighvatur - sem nú gegnir stöðu framkvæmdastjóra Þróunarstofnunar Íslands – lítið fyrir þessi mótmæli. Hann ætti ekki von á því að slíkt skilaði "miklu fyrir fátækt fólk í Afríku, enda held ég að þessir ribbaldar með sýniþörf séu nú að hugsa um annað en fátæka fólkið í Afríku. Hins vegar er það fundur ráðamanna ríkjanna G-8, sem ég vona nú að geti haldið sinn fund þrátt fyrir að ribbaldar með sýniþörf vilji spilla fundinum." Fréttamaður benti nú á að kannski væru nú ekki allir mótmælendur þarna ribbaldar með sýniþörf. Sighvatur kvaðst...
2. Júlí 2005
BRÚUM BILIÐ
...Við megum ekki gleyma því að hið sama gildir um fátækar þjóðir heimsins. Þeim er jafnvel enn meiri lífsnauðsyn en okkur að efla þjónustu af þessu tagi innan sinna samfélaga. Þess vegna þarf að hjálpa þeim að losna úr viðjum auðhyggjunnar sem fyrrnefndar alþjóðlegar stofnanir hafa hneppt þær í. Brosandi segjast hinar ríku þjóðir nú koma færandi hendi, veita líkn og náð og fella niður skuldir. Um forsendur og skilyrði slíkra tilboða er minna rætt. Mikilvægt er að fjölmiðlar haldi stjórnvöldum, og reyndar okkur öllum, við efnið hvað þetta varðar. Íslendingar eiga aðild að stjórnum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og eigum við þar samstarf við aðrar Norðurlandaþjóðir. Nokkrum sinnum hef ég vakið athygli á málflutningi Norðurlandanna á þessum vettvangi og gagnrýnt það hve hallur hann hefur oft verið undir markaðsöflin. Og ekki má gleyma ...
1. Júlí 2005
UTANRÍKISRÁÐHERRA FÆRT HVÍTA BANDIÐ
Alvarlegasta ógn sem steðjar að mannkyninu er án efa misskiptingin í heiminum og sú örbirgð sem hrjáir drjúgan hluta mannkynsins. Á hverjum degi deyja 30 þúsund börn af völdum fátæktar. Í dag, 1. júlí, er fyrsti baráttudagurinn af nokkrum sem kenndur er við „hvíta bandið“, tákn um þá herör sem skorin verður upp um allan heim af verkalýðssamtökum, félagasamtökum og almenningi gegn þessu misrétti. BSRB tekur þátt í þessu átaki bæði beint og með aðild sinni að alþjóðasamtökum launafólks sem beita sér af alefli í þessari baráttu. Davíð Oddssyni, utanríkisráðherra, var í dag afhent ályktun stjónar BSRB þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til að leggja sitt lóð á vogarskálarnar í þeirri viðleitni að brúa bilið á milli ríkra og snauðra í heiminum. Í samþykkt BSRB segir...22. Júní 2005
FULLTRÚI KRÖFTUGUSTU ALHEIMSSAMTAKA LAUNAFÓLKS Á ÍSLANDI

Á morgun fimmtudag heldur Hans Engelberts, framkvæmdastjóri PSI, Publuic Services International, Samtaka launafólks í almannaþjónustu, fyrirlestur um alþjóðavæðinguna í húsakynnum BSRB að Grettisgötu 89 í Reykjavík. Innan vébanda þessara samtaka eru yfir tuttugu milljónir manna og leyfi ég mér að fullyrða að þetta séu lang kröftugustu verkalýðssamtök starfandi á heimsvísu. Þau hafa beitt sér af miklum krafti fyrir...
9. Júní 2005
LEIÐTOGAR GEGN LÝÐRÆÐI?
Ef fólk er ósátt við ríkisstjórnir gagnrýnir það þær. Að jafnaði beinist gagnrýnin ekki að fólkinu sem kaus þær. Þetta gerum við ekki vegna þess að við séum alltaf elsku sátt við kjósendur. Við gerum þetta af virðingu fyrir lýðræðinu. Eins hefði mátt halda að ríkisstjórnir og svokallaðir leiðtogar, sem komist hafa til áhrifa í samfélaginu, sýndu þeim sem þeir eiga völd sín að þakka – kjósendum – samsvarandi virðingu. Viðbrögð ýmissa forystumanna innan Evrópusambandsins við niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Frakklandi og Hollandi um nýjan ...Leiðtogar ríku iðnríkjanna nota hugtakið lýðræði gjarnan til að réttlæta hagsmuna-slagsmál í ríkjum sem búa yfir ríkulegum auðlindum, svo sem í Írak. Heima fyrir sýna þeir hins vegar að allt eru þetta orðin tóm. Gæti verið að lýðræði sé ...28. Maí 2005
UM MENN SEM "ANNAST YFIRHEYRSLUR"
Morgun-blaðið birtir í laugardags-
blaðinu ágæta frétt um ásakanir sem fram hafa komið að Kóraninn hafi verið óvirtur í fangabúðum Bandaríkja-
manna í Guantanamo til að ögra múslímskum föngum þar... Óhug setti að mörgum við að verða vitni að því að jafnöflugum fjölmiðli og menn töldu Newsweek vera væri sagt fyrir verkum á þennan hátt: Við erum komin ískyggilega nærri því að bandarísk stjórnvöld komist upp með að láta endurskrifa söguna. Eða skyldi fólk vera búið að gleyma því þegar menn voru þurrkaðir af ljósmyndum austur í Sovét þegar ekki hentaði hagsmunum ráðamanna að þeir hefðu verið til! Á fréttamannafundinum sem Morgunblaðið greinir hér frá kemur fram að ásakanir um að Kóraninn hafi verið svívirtur ... reyndist vera rétt þótt ...
18. Maí 2005
TÍMINN.IS OG SANNLEIKURINN
7. Maí 2005
RÆND ÆSKUNNI OG LÍFINU
Síðastliðinn miðvikudag voru tvö palestínsk ungmenni skotin til bana í Beit Liqya, bæ vestur af Ramallah. Jamal Jaber, 15 ára og Uday Mofeed, 14 ára, létust reyndar ekki samstundis. Þeim blæddi út á leiðinni á sjúkrahús. Sjúkrabíllinn tafðist nefnilega, eða öllu heldur...Samkvæmt könnun sem gerð var á vegum UNICEF árið 2003 lifa 93% þeirra barna, sem könnunin náði til, í stöðugum ótta við að á þau verði ráðist eða að eitthvað hræðilegt muni henda þau...4. Maí 2005
U-BEYGJA UM UTANRÍKISMÁL
Málgagn Ungra Vinstri Grænna U-Beygjan sýnir mér þann heiður að taka við mig viðtal um utanríkismál þar sem sérstaklega er fjallað um Alþjóðabankann og Alþjóðagjaldeyrssjóðinn. Þar kemur m.a. fram að :...Þegar fátæku ríkin hafa selt grunnþjónustu sína eru þau ofurseld fyrrum lánveitendum sínum sem nú eru komnir í aðstöðu til að græða á þeim; græða á sömu löndum og þeir voru að lána til. Þannig bera menn sig að við að koma heilum þjóðfélögum undir hælinn á auðvaldinu...Ég er mjög bjartsýnn á að málstaður vinstrimanna sé í sókn enda byggður á traustum málefnalegum grunni auk þess sem reynslan er okkur í hag. Við eigum ekki að sleppa hægrimönnum við að skoða eigin spor og afleiðingar gerða sinna...1. Maí 2005
1. MAÍ Í GRAFARVOGSKIRKJU: Á AÐ BJÓÐA HINN VANGANN?
...Þegar svara skal spurningum um réttlæti og hefnd gerist áleitið að spyrja hvort jafna megi saman annars vegar ríki og hins vegar einstakri mannpersónu; hvort rétt sé að meta ábyrgð ríkisins og einstaklingsins á sama mælikvarða...?16. Apríl 2005
ORÐ SKIPTA MÁLI – EKKI SÍST ÚR MUNNI FRÉTTAMANNA
15. Apríl 2005
BOÐBERI BUSH Í FALLUJAH: "FRAMTÍÐIN UNDIR YKKUR KOMIN "
14. Apríl 2005
FRÉTTAMOLAR AF EUREC FUNDI
10. Apríl 2005
BANDARÍKJASTJÓRN, AL QUAEDA OG KJARNORKUSPRENGJAN

Haft var eftir Mohamed ElBaradei, forsvarsmanni Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar (Int
16. Mars 2005
VINIR ÍSLANDS?
25. Febrúar 2005
GATS KEMUR ÖLLUM VIÐ

Ítarleg þingsályktunartillaga um GATS samningana var til umræðu á Alþingi í vikunni og er nú komin til umfjöllunar í utanríkismálanefnd þingsins. Hættan er sú að þar dagi málið uppi eins og gerðist á síðasta ári. Andvaraleysi Alþingis í þessu máli er mjög hættulegt því áður en við vitum af erum við flækt í net skuldbindinga sem þröngva okkur til að gera grundvallabreytingar á samfélaginu. Ástæðan fyrir því að þessar viðræður fara leynt og er haldið eins leynilegum og kostur er, er án efa sú að ...
10. Febrúar 2005
HVORT VAR ÞAÐ ALBERT EÐA ÓLAFUR, HALLDÓR?
H7. Febrúar 2005
ENN PUKRAST EVRÓPUSAMBANDIÐ - HVAÐ UM ÍSLAND?
Í apríl árið 2002 varð uppi fótur og fit þegar breska stórblaðið Guardian upplýsti hvaða kröfum Stjórnarnefnd Evrópusambandsins hefði ákveðið að tefla fram gagnvart viðsemjendum sambandsins í hinum svokölluðu GATS samningum. ...Í kjölfarið var ákveðin ný áætlun. Sérhver ríkisstjórn skyldi koma óskum sínum leynilega á framfæri ... Í byrjun ágúst á síðasta ári voru svo sett ný tímamörk ...fyrir “endurskoðaðar óskir” sem nú eiga að liggja fyrir í maí á þessu ári. Hér á landi hefur BSRB staðið framarlega í viðleitni að halda stjórnvöldum við efnið og upplýsa um kröfur Íslands. Hefur það gengið misjafnlega en þó batnað frá því sem í upphafi var og hefur utanríkisráðuneytið boðað til samræðufunda um þessi mál ...þótt út af borðinu standi enn krafa BSRB um að þessar viðræður fari að öllu leyti fram fyrir opnum tjöldum. Enn mun BSRB ...6. Febrúar 2005
ÞAGNARSKYLDA EÐA YFIRHYLMING?
...Öll hafa þau lýst því yfir að þau væru reiðubúin að láta upplýsa hvað þau sögðu á fundinum, einnig
4. Febrúar 2005
FARANGUR FRAMSÓKNAR OG SAKLEYSINGJAR MORGUNBLAÐSINS
1. Febrúar 2005
NÝR FRÉTTASKÝRANDI Á RÍKISÚTVARPINU?
Auðvitað á að dæma menn af verkum þeirra en ekki merkimiðum sem á þá eru hengdir eða þeir hengja á sjálfa sig. Þannig hef ég aldrei verið andvígur því að 25. Janúar 2005
HVERT ER HLUTVERK FJÖLMIÐLA Í ÍRAKSDEILUNNI?
24. Janúar 2005
PALESTÍNA

Við kynþáttamúrinn.
Í framhaldi af umfjöllun um Palestínu hér á síðunni í tengslum við för okkar Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands og Borgþórs Kjærnested (skipuleggjanda ferðarinnar fyrir hönd fél. Ísland Palestína) hefur ég fengið talsverð viðbrögð og er ljóst að áhugi manna að kynna sér ástandið á þessu svæði fer vaxandi. Mikið er um Palestínu fjallað í fjölmiðlum víða um heim en furðu má sæta hve þöglir stóru fjölmiðlarnir sem starfa á heimsvísu eru um þau mannréttindabrot sem daglega eru framin á Palestínumönnum. Hér á landi...
22. Janúar 2005
VELKOMINN Í HÓPINN EINAR ODDUR!
20. Janúar 2005
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN OG MANNRÉTTINDABROTIN Í ÍRAK
13. Janúar 2005
VERÐUR VEGURINN OPNAÐUR?

Sá sem lætur ekki hjartað ráða för endar í blindgötu. Den der ikke bærer hjertet på vejen ender vejen blindt. (Lífssannindi úr suður-jóskum háskóla) Myndin hér að ofan er dæmigerð fyrir það sem sjá má víða í Palestínu. Góðum vegi hefur verið lokað með stórum jarðvegshrúgum. Annars staðar eru vegirnir grafnir í sundur: Allt til að torvelda Palestínumönnum verslun og almennar samgöngur á milli bæja. Vegasamgöngum á milli landránsbyggða Ísraela á herteknu svæðunum er hins vegar haldið í góðu horfi ... Nú að afloknum kosningum í landinu spyrja menn því hvort samskipti Ísraela og Palestínumanna eigi eftir að breytast, hvort opna eigi leið inn í framtíðina. Skírskotun til vegarins hefur þannig hvort tveggja í senn; bæði eiginlega og óeiginlega merkingu ...
11. Janúar 2005
RÆNT Í RÓM

Mordechai Vanunu hafði starfað við kjarnorkuáætlun Ísraels í 9 ár þegar hann ákvað árið 1985 að hefja baráttu gegn smíði Ísraelsmanna á kjarnorkuvopnum.
10. Janúar 2005
RADDIR VONAR
Í heimsókn okkar félaganna Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands og Borgþórs Kjærnested, fulltrúa félagsins Ísland Palestína, til Palestínu og Ísraels hittum við framan af einkum fulltrúa Palestínumanna og kynntumst hlutskipti þeirra, nokkuð sem hafði djúp áhrif á okkur eins og fram hefur komið í pistlum hér á heimasíðunni. Það var því mikill léttir að kynnast einnig gyðingum í Ísrael sem mótmæla í orði og athöfn framferði ísraelsku ríkisstjórnarinnar og ofbeldi og ofsóknum Ísraelsríkis á hendur Palestínumönnum. Fulltrúa eins slíks hóps hittum við í Tel Aviv. Þetta var ungt fólk sem neitar að taka þátt í hernáminu; neitar að gegna herþjónustu á herteknu svæðunum. Í landinu nú eru einir fjórir slíkir hópar og neita þeir á mismunandi forsendum. 9. Janúar 2005
FORSETAKOSNINGAR Í PALESTÍNU Í DAG

Í dag fara fram forsetakosningar í Palestínu og er myndin hér að ofan tekin á kosningamiðstöð undir kvöldið.
8. Janúar 2005
MINNIR ÓÞÆGILEGA Á NASISMANN
Í Þýskalandi nasismans var framinn einhver hrikalegasti glæpur mannkynssögunnar. Fórnarlömbin voru gyðingar, sem voru ofsóttir og myrtir milljónum saman – haldið í fangabúðum og sendir í gasklefa til slátrunar. Í aðdragandanum voru þeir látnir gjalda kynþáttar síns og trúar, sviptir eignum sínum og öllum mannréttindum. Gyðingagettóin, þar sem gyðingar voru lokaðir inni, aðgreindir frá öðrum manneskjum, niðurlægðir og kúgaðir á alla lund eru okkur flestum ofarlega í huga og mega aldrei gleymast. Eftir að nasisminn hafði verið brotinn á bak aftur spurðu menn hvernig þetta hafi getað gerst. Spurt var:
7. Janúar 2005
RÆNDUR LÍFINU – EN ÆRUNNI EKKI

Dauðsjúkur að koma heim eftir rúm tuttugu ár í fangelsi.
... Því má segja með nokkrum sanni að þessi 47 ára gamli Sýrlendingur hafi verið sviptur lífinu í tvennum skilningi, þeim hluta ævinnar, sem menn eru þrekmestir og síðan möguleikanum að fá læknisaðstoð í tæka tíð – annað hvort til að læknast af sjúkdómi sínum eða skjóta banvænum áhrifum hans á frest. En ærunni var
6. Janúar 2005
GETTÓ Í PALESTÍNU

Þorpið Qalqiliya er í Palestínu, eða hvað? Að nafninu til er þetta rétt. Í reynd er þorpið meira og meira að líkjast gettói. Qalqiliya er verið að umlykja rafmagnsgirðingum og múr, hinum illræmda kynþáttamúr. Til stendur að þorpið eða gettóið verði opið þrisvar á dag í innan við klukkutíma í hvert skipti! Qalqiliya var kröftugt samfélag sem þjónaði sveitunum umhverfis. Sú þjónusta er nú smám saman að veslast upp. Sveitafólkinu er gert ómögulegt að komast leiðar sinnar með vörur á markaðinn í bænum eða sækja þangað þjónustu. Jafnvel sjúkrabíl með konu í barnsnauð er vísað frá varðhliðunum utan opnunartíma ...
5. Janúar 2005
SÖGULEGAR KOSNINGAR Í PALESTÍNU

Kennarar í höfuðstöðvum verkalýðshreyfingarinnar í Nablus vinna að undirbúningi forsetakosninganna.
4. Janúar 2005
PALESTÍNA: "VIÐ VILJUM RÉTTLÁTAN FRIÐ"

Í Nablus hafa 700 íbúðarhús verið lögð í rúst og 4000 heimili verið stórskemmd. Á myndinni eru ásamt undirrituðum, Borgþór Kjærnested og Eiríkur Jónsson fyrir framan húsarústir í miðbæ Nablus ... Ástandið á herteknu svæðunum er vægast sagt slæmt. Á svæðum Palestínumanna er allt í hers höndum í bókstaflegum skilningi og eru það hendur ísraelska hersins sem hér ráða öllu. Okkur er sagt að nú í aðdraganda kosninganna hafi heldur dregið úr niðurlægingunni sem Palestínumenn eru daglega beittir á eftirlitsstöðvum ísraelska hersins ...
Frá lesendum
21. Maí 2012
UM LÝÐRÆÐI OG EIGNARRÉTT Í STJÓRNARSKRÁR-DRÖGUM
Gísli Tryggvason
21. Maí 2012
UM KÍNVERSK LANDSÖLUMÁL O.FL.
Jón Jón Jónsson
13. Maí 2012
HEIMILI EÐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLÆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












