Beint á leiðarkerfi vefsins

Umheimur

29. Desember 2004

ANDSTAÐA VEX GEGN ÞJÓNUSTUTILSKIPUN ESB

 

 

...Frá því í haust hefur legið fyrir á Alþingi fyrirspurn frá VG um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við þessari tilskipun en af hálfu VG er eindregin krafa um að Íslendingar beiti sér af alefli gegn tilskipuninni eftir því sem kostur er. BSRB reið á vaðið með opinbera umræðu um tilskipunina hér á landi en stjórn bandalagsins hefur verið mjög vakandi um þetta málefni. Rúmt ár er nú liðið frá því fulltrúi BSRB í ráðgjafanefnd EFTA, Erna Guðmundsdóttir, lögfræðingur BSRB, gerði formlega athugasemd við tilskipunina og alþjóðafulltrúi BSRB, Páll Hannesson, hefur ritað um málefnið og komið fram í fjölmiðlum og kynnt afstöðu BSRB. Hann hefur rannsakað sérstaklega áhrif alþjóðavæðingarinnar á velferðarsamfélagið og verkalýðshreyfinguna, m.a...

28. Desember 2004

HUGLEIÐING Í TILEFNI ÞJÓÐNÝTINGAR Í RÚSSLANDI

... Þrennt er umhugsunarvert við þessa frétt. Í fyrsta lagi að rússnesk yfirvöld skuli vera farin að sjá að sér og reyni nú að ná til baka stolnum þjóðareignum. Í öðru lagi að þjófarnir skuli ætla að fara fram á skaðabætur fyrir að vera sviptir ránsfeng sínum. Í þriðja lagi að “fullvalda ríki” eigi orðið erfitt um vik að framfylgja lýðræðislegum vilja. Smám saman er verið að alþjóðavæða reglur og lög. Yfirleitt er þetta framkvæmt á forsendum markaðsvæðingar og er eignarréttur þar þungamiðja; ekki eignarréttur almennings heldur einstaklinga – manna á borð við þá félaga Khodorkovskí, Berzovsky og Abramovits. “Réttur” þessara manna er nú varinn í dómshúsinu í Houston í Texas jafnvel þótt þar séu á ferðinni ...

23. Desember 2004

Öryggisráðið: Ekki of seint að hætta við

Birtist í Morgunpósti VG 22.12.04
...Ríkisstjórnin hefur ekki sett fram nein sannfærandi rök fyrir því að seta Íslands í Öryggisráðinu sé eftirsóknarverð. Spurningin sem verður að svara er einföld. Á hvern hátt getur Ísland látið gott af sér leiða í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna? Ef ekki er hægt að svara þessari spurningu á afgerandi og sannfærandi hátt ber að hætta þegar í stað við framboð til Öryggisráðsins og beina kröftum utanríkisþjónustunnar að öðrum verkefnum...

21. Desember 2004

EKKI Í OKKAR NAFNI

Þjóðarhreyfingin gengst nú fyrir söfnun fyrir auglýsingu í bandarísku stórblaði til að skýra hvernig á því stóð að Íslendingar höfnuðu á lista hinna viljugu eða vígfúsu ríkja sem studdu Bandaríkjastjórn til innrásar í Írak (ríkisstjórnin vill helst nota hugtakið staðfastur sem þýðingu á enska hugtakinu willing sem er alrangt; viljugur eða vígfús í þessu samhengi er nær lagi). Stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar róa nú að því öllum árum að ófrægja aðstandendur þessa framtaks. Síðan er hinu náttúrlega haldið á loft að ekki megi tala illa um þjóðina í útlöndum: Að út á við þurfum við að standa saman. Almennt virða Íslendingar þessa grunnreglu. Það eru hins vegar forsvarsmenn þjóðarinnar, þeir Davíð Oddsson, utanríkisráðherra  og Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra sem hafa brotið hana með því að ...

21. Desember 2004

Friðargæslan í Kabúl: Göfugt starf eða hreinsunardeild Bandaríkjahers?

...Í umfjöllun New York Times er rætt við Stefán Pálsson, formann Herstöðvaandstæðinga, sem segir eldri kynslóðina á Íslandi hafa verið stolta yfir því að íslendingar hefðu ekki her og brygði nú í brún við að sjá vopnaða Íslendinga á erlendri grundu. Þá er rætt við Illuga Gunnarsson, aðstoðarmann utanríkisráðherra, sem segir af og frá að hinar vopnuðu sveitir séu hermenn og Einar K. Guðfinnsson, formann þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sem segir Íslendinga vinna "göfugt starf"  við uppbyggingu í Afganistan eftir að "hryðjuverkamönnum" hafi verið steypt þar af stóli...Eflaust þykir ... formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins athæfi Bandaríkjamanna í Írak vera sérlega "göfugt" eins og honum reyndar þykir um flestar gjörðir Bush og félaga...  

14. Desember 2004

Nokkrar spurningar um múrinn, pyntingar, dráp og fílinn á NATÓ-fundinum

- Hvað hefði verið sagt ef þessi kynþáttamúr – múr sem reistur er til að skilja að tvær þjóðir, og hafa land af annarri þeirra – hefði verið í Suður-Afríku á apartheid - tímanum?
- Hvers vegna er látið viðgangast mótmælalaust að Ísrael beiti pyntingum í fangelsum? Ísrael er eina landið í heiminum þar sem pyntingar eru beinlínis heimilaðar í lögum!
Hvers vegna lagðist fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi forsætisráðherra Íslands gegn því  að bygging kynþáttamúrsins yrði kærð til Alþjóðadómstólsins, kæra sem leiddi til sakfellingar Ísraels?
- Hvers vegna fáum við ekki að heyra meira um morð og ofbeldisverk sem ísraelski herinn fremur daglega á herteknu svæðunum í Palestínu?
- Hvers vegna fáum við ekki að heyra af ofbeldi og harðræði sem palestínskir forsetaframbjóðendur eru beittir af hálfu ísraelskra yfirvalda?
- Hvers vegna skyldu íslenskir ráðamenn vera eins ósamkvæmir sjálfum sér og raun ber vitni í afstöðu til Íraks annars vegar og Ísraels hins vegar? Íraksstjórn undir stjórn Saddams Husseins hundsaði á annan tug ályktana Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og var árás á landið m.a. réttlætt í því ljósi. Ísrael hefur hundsað yfrir 40 ályktanir SÞ? Enginn talar um að gera loftárás á Tel Aviv.

8. Desember 2004

Halldór Ásgrímsson neitar að axla ábyrgð!

...Ekki verður hið sama sagt um spjall þeirra Halldórs og Óðins Jónssonar fréttamanns á morgunvakt RÚV í morgun. Þar var heldur meira logn. Í rabbi þeirra var vikið að þessum málum og enn eina ferðina "fræddi" Halldór Ásgrímsson þjóðina um stöðuna í alþjóðamálum. Í Afganistan hafi tekist að brjóta hryðjuverkamenn á bak aftur, þar sé nú lýðræði í hávegum haft; í Úkraínu hins vegar væri annað uppi á teningnum, það þekkti Halldór eftir dvöl sína þar. Allt minnti þetta nokkuð á það þegar sami maður kom á sínum tíma af fundi með bandarískum ráðamönnum og sagðist hafa óyggjandi sannanir fyrir gereyðingarvopnum í Írak! Aldrei hefur hann þurft að standa skil á því hverjar þessar sannanir hafi verið. Á Alþingi hafa bæði Halldór Ásgrímsson og núverandi utanríkisráðherra, Davíð Oddsson, farið undan í flæmingi, svarað út og suður eða með skætingi þegar upplýsinga hefur verið óskað og sem kunnugt er mæta þessir forsvarsmenn þjóðarinnar núorðið aðeins í fjölmiðla með því skilyrði að...

6. Desember 2004

Fulltrúar Íslands á heimsráðstefnu verkalýðsins í Japan

Þessa dagana fer fram í Miyazaki í Japan heimsráðstefna Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga (ICFTU). Á þinginu eru þrír fulltrúar frá Íslandi: Þuríður Einarsdóttir og Einar Ólafssson frá BSRB og Gylfi Arnbjörnsson frá ASÍ. Ástæða er til að vekja athygli lesenda síðunnar á fréttum af þinginu en þegar hefur birst ...

2. Desember 2004

Alþjóðasamband starfsfólks í almannaþjónustu - Public Services International

Undanfarna daga hef ég setið stjórnarfund í Alþjóðasambandi starfsfólks í almannaþjónustu, Public Services International (PSI). Samtökin taka til allra heimsálfa og er geysilega fróðlegt að heyra frásagnir og lesa skýrslur frá öllum hornum heimsins. Engin samtök í heiminum, leyfi ég mér að fullyrða, er eins kröftugt mótvægi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Alþjóðabankann, Alþjóðaviðskiptastofnunina og aðrar valdastofnanir og valdatæki alþjóðafjármagnsins og einmitt þessi samtök. Yfir stöðuna í þessu samskiptum var ...

1. Desember 2004

Er 13. janúar táknrænn fyrir vinnubrögð Evrópusambandsins?

Eitt er víst. Evrópuþingið hefur reynst fullkomlega vanmáttugt í viðureign sinni við fulltrúa peningahyggjunnar, sem ráða nú lögum og lofum innan stjórnarnefndar ESB. Gagnrýnin andstaða hefur hins vegar komið frá verkalýðshreyfingunni í Evrópu. Hún hefur í fyrsta skipti í langan tíma sýnt að enn rennur í henni blóðið. Hér á Íslandi hefur BSRB staðið rækilega vaktina, örvað til umræðu og upplýst fólk um málið. Í ráðgjafanefnd EFTA hefur fulltrúi BSRB haft uppi alvarlega fyrirvara og verið einn um bókun hvað þetta varðar.
Fyrir Íslendinga er þetta ekki síður alvarlegt mál en Evrópusambandsþjóðirnar því þær ...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

21. Maí 2012

UM LÝÐRÆÐI OG EIGNARRÉTT Í STJÓRNARSKRÁR-DRÖGUM

...Þar brást þú við fyrri færslu minni (auk annarra stjórnlagaráðsliða) sem ég birti hér neðst - en sólarhring síðar birti ég nefnilega þessa efnisathugasemd sem gaman væri að fá viðbrögð þín við: "Eins og Hjörtur Hjartarson lýsir hér að hér að ofan fyrir tæpnum sólarhring eru stór skref stigin í þágu beins lýðræðis sem Ögmundur kallar eftir og tel ég því fullsvarað og afstöðu Ögmundar misskilning - enda heldur forseti auk þess óskertum málskotsrétti. Hinu þarf líka að svara - sem Ögmundur segir um eignarrétt; hann virðist eins og fleiri ekki hafa áttað sig á merkilegu nýmæli í eignarréttarákvæðinu. Vissulega er rétt að 1. mgr. þess er óbreytt, orðrétt frá 72. gr. stjórnarskrárinnar (13. gr. frumvarpsins): "Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess ...
Gísli Tryggvason

21. Maí 2012

UM KÍNVERSK LANDSÖLUMÁL O.FL.

...Bara að láta Innanríkisráðherrann vita, að nú undir kvöld (bréfið barst 16/5), á síðustu metrunum fyrir Kristi Himmelfartsdag, berast þau tíðindi frá RÚV sjálfu, að nú vilji þeir loksins kveða Lilju með þér. Það var tími til kominn að sú vesæla fréttastofa rifi sig loks upp á rassgatinu og segði sannleikann, sem þú og við svo ótal mörg höfum alltaf vitað, þó sú fréttastofa þegi þunnu hljóði, sem ætíð, um samfylktu íslensku landsölumafíuna sem þú ert í stjórn með og hlýtur því að treysta ógesslega vel, en litlu verður Vöggur þó feginn á þessum síðustu og alverstu tímum og leyfum því RÚV að njóta þess, þegar fréttastofa þess segir amk. einu sinni sannleikann um Nubo og co...
Jón Jón Jónsson

13. Maí 2012

HEIMILI EÐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLÆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóðin mín:

Umheimur

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta