Umheimur
29. Desember 2004
ANDSTAÐA VEX GEGN ÞJÓNUSTUTILSKIPUN ESB


...Frá því í haust hefur legið fyrir á Alþingi fyrirspurn frá VG um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við þessari tilskipun en af hálfu VG er eindregin krafa um að Íslendingar beiti sér af alefli gegn tilskipuninni eftir því sem kostur er. BSRB reið á vaðið með opinbera umræðu um tilskipunina hér á landi en stjórn bandalagsins hefur verið mjög vakandi um þetta málefni. Rúmt ár er nú liðið frá því fulltrúi BSRB í ráðgjafanefnd EFTA, Erna Guðmundsdóttir, lögfræðingur BSRB, gerði formlega athugasemd við tilskipunina og alþjóðafulltrúi BSRB, Páll
28. Desember 2004
HUGLEIÐING Í TILEFNI ÞJÓÐNÝTINGAR Í RÚSSLANDI
23. Desember 2004
Öryggisráðið: Ekki of seint að hætta við
...Ríkisstjórnin hefur ekki sett fram nein sannfærandi rök fyrir því að seta Íslands í Öryggisráðinu sé eftirsóknarverð. Spurningin sem verður að svara er einföld. Á hvern hátt getur Ísland látið gott af sér leiða í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna? Ef ekki er hægt að svara þessari spurningu á afgerandi og sannfærandi hátt ber að hætta þegar í stað við framboð til Öryggisráðsins og beina kröftum utanríkisþjónustunnar að öðrum verkefnum...
21. Desember 2004
EKKI Í OKKAR NAFNI
Þjóðarhreyfingin gengst nú fyrir söfnun fyrir auglýsingu í bandarísku stórblaði til að skýra hvernig á því stóð að Íslendingar höfnuðu á lista hinna viljugu eða vígfúsu ríkja sem studdu Bandaríkjastjórn til innrásar í Írak (ríkisstjórnin vill helst nota hugtakið staðfastur sem þýðingu á enska hugtakinu willing sem er alrangt; viljugur eða vígfús í þessu samhengi er nær lagi). Stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar róa nú að því öllum árum að ófrægja aðstandendur þessa framtaks. Síðan er hinu náttúrlega haldið á loft að ekki megi tala illa um þjóðina í útlöndum: Að út á við þurfum við að standa saman. Almennt virða Íslendingar þessa grunnreglu. Það eru hins vegar forsvarsmenn þjóðarinnar, þeir Davíð Oddsson, utanríkisráðherra og 21. Desember 2004
Friðargæslan í Kabúl: Göfugt starf eða hreinsunardeild Bandaríkjahers?
...Í umfjöllun New York Times er rætt við 14. Desember 2004
Nokkrar spurningar um múrinn, pyntingar, dráp og fílinn á NATÓ-fundinum
- - Hvers vegna er látið viðgangast mótmælalaust að Ísrael beiti pyntingum í fangelsum? Ísrael er eina landið í heiminum þar sem pyntingar eru beinlínis heimilaðar í lögum!
-
-
-
- Hvers vegna skyldu íslenskir ráðamenn vera eins ósamkvæmir sjálfum sér og raun ber vitni í afstöðu til Íraks annars vegar og Ísraels hins vegar? Íraksstjórn undir stjórn Saddams
8. Desember 2004
Halldór Ásgrímsson neitar að axla ábyrgð!
...Ekki verður hið sama sagt um spjall þeirra Halldórs og Óðins Jónssonar fréttamanns á morgunvakt RÚV í morgun. Þar var heldur meira logn. Í rabbi þeirra var vikið að þessum málum og enn eina ferðina "fræddi" Halldór Ásgrímsson þjóðina um stöðuna í alþjóðamálum. Í Afganistan hafi tekist að brjóta hryðjuverkamenn á bak aftur, þar sé nú lýðræði í hávegum haft; í Úkraínu hins vegar væri annað uppi á teningnum, það þekkti Halldór eftir dvöl sína þar. Allt minnti þetta nokkuð á það þegar sami maður kom á sínum tíma af fundi með bandarískum ráðamönnum og sagðist hafa óyggjandi sannanir fyrir gereyðingarvopnum í Írak! Aldrei hefur hann þurft að standa skil á því hverjar þessar sannanir hafi verið. Á Alþingi hafa bæði Halldór Ásgrímsson og núverandi utanríkisráðherra, Davíð Oddsson, farið undan í flæmingi, svarað út og suður eða með skætingi þegar upplýsinga hefur verið óskað og sem kunnugt er mæta þessir forsvarsmenn þjóðarinnar núorðið aðeins í fjölmiðla með því skilyrði að...6. Desember 2004
Fulltrúar Íslands á heimsráðstefnu verkalýðsins í Japan
2. Desember 2004
Alþjóðasamband starfsfólks í almannaþjónustu - Public Services International
Undanfarna daga hef ég setið stjórnarfund í Alþjóðasambandi starfsfólks í almannaþjónustu, Public Services Int1. Desember 2004
Er 13. janúar táknrænn fyrir vinnubrögð Evrópusambandsins?
Eitt er víst. Evrópuþingið hefur reynst fullkomlega vanmáttugt í viðureign sinni við fulltrúa peningahyggjunnar, sem ráða nú lögum og lofum innan stjórnarnefndar ESB. Gagnrýnin andstaða hefur hins vegar komið frá verkalýðshreyfingunni í Evrópu. Fyrir Íslendinga er þetta ekki síður alvarlegt mál en Evrópusambandsþjóðirnar því þær ...
21. Nóvember 2004
Fróðleiksmoli um framlag ríkisstjórnar Íslands til mannréttinda í Írak
...En hvað þá með raunverulegan meirihlutavilja hjá Sameinuðu þjóðunum? 19. Nóvember 2004
Hvað verða margir grafnir?

Við fáum nú fréttir í hverjum fréttatíma frá Írak. Okkur er sagt frá stórsigrum bandaríska hernámsliðsins þar. Svo er að skilja að mannfall hafi ekki orðið mikið í röðum þess og látið að því liggja að óbreyttir borgarar séu nánast undanþegnir hörmungum stríðsins þrátt fyrir að heimkynni þeirra hafi verið jöfnuð við jörðu, skrúfað fyrir vatn og rafmagn, taugaveiki að breiðast út og haldið uppi stórskotaárásum á þá. Þeir einu sem kúlurnar hitti hins vegar séu lögmæt skotmörk, “hryðjuverkamenn” eins og bandarísk hermálayfirvöld skilgreina alla þá sem andæfa hernáminu. Eitthvað kemur þetta ekki heim og saman og hafa gagnrýnir fréttamenn vestan hafs og austan vakið máls á því. Í þeirra hópi er Greg Palast ...
18. Nóvember 2004
Verða fleiri leystir frá störfum?
...Hvað skyldi Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna hafa gert við bréfið – eða öllu heldur ákallið - sem hann fékk frá borgaryfirvöldum í Fallujah þar sem hann var beðinn um stuðning Sameinuðu þjóðanna að koma í veg fyrir fyrirsjáanleg fjöldamorð og hryðjuverk Bandaríkjahers? Skyldi hann hafa sent erindið til Öryggisráðsins? Hefði verið gott að þar sæti nú fulltrúi Íslands? Hefðu íbúar Fallujah átt þar hauk í horni? Hefði hann krafist þess að Öryggisráðið fordæmdi Bandaríkjastjórn og bresku stjórnina og vitorðsmenn þeirra fyrir stríðsglæpi? Er það kannski frekar...
16. Nóvember 2004
Þjóð í þrengingum - Arafat allur. Ræða á samstöðufundi
...Eina leiðin til að skilja Yasser Arafat er að skipta út nafninu Arafat fyrir baráttu palestínsku þjóðarinnar. Öll gagnrýni á Arafat er gagnrýni á þessa baráttu. Hann fæddist inn í baráttuna fyrir frelsi og dó umkringdur óvinum. Undir lokin var litið á hann sem þránd í götu friðarsamninga. Þrátt fyrir að hann hafi verið tilbúinn að gefa eftir mun meira land en margir Palestínumenn gátu sætt sig við, þá var hann aldrei tilbúinn til að semja um að falla frá réttinum til að snúa aftur frá flóttamannabúðunum. Þessi réttur var honum meira virði en frelsi strax, þar sem hann taldi að það yrði hægt að byggja upp pólitíska baráttu síðar, ef fólk aðeins "fengi að snúa aftur". .. 16. Nóvember 2004
Mótmælum stríðsglæpunum í Írak
15. Nóvember 2004
Samstöðufundur með Palestínu
Þjóð í þrengingum - samstöðufundur með Palestínumönnum er yfirskrift fundar sem haldinn verður í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20.00. Eftir fráfall Arafats eru blikur á lofti í Palestínu og því mikilvægt að sýna palestínsku þjóðinni samstöðu.Um áratugi hefur hún mátt þola þrengingar og harðræði að hálfu hernámsliðs Ísraels. Kynþáttaaðskilnaðarmúrinn er til marks um hversu langt er gengið í ofsóknum á hendur Palestínumönnum. Enda þótt Ísraelsstjórn láti í veðri vaka að hún sé nú að draga úr útþenslu á Gaza sviftir kynþáttamúrinn Palestínumenn á Vesturbakkanum stóru svæðum. Múrinn er auk þess reistur til að sundra landi og byggðum, fjölskyldum og samfélagi...11. Nóvember 2004
John Pilger um Írak
11. Nóvember 2004
Vaxandi efasemdir um að Íslendingar eigi erindi í Öryggisráð SÞ
25. Október 2004
Powell og Guðfinnsson skýra hernám Afganistans
24. Október 2004
Einar K Guðfinnsson missir jafnvægið
14. Október 2004
Öryggi Íslands ógnað
...Undarlegt andvaraleysi er hins vegar hjá þessum sömu aðilum þegar raunveruleg ógn við öryggi landsins blasir við. Sjö rússnesk herskip hafa nú í rúma viku haldið til við Þistilfjörð, rétt utan tólf mílna landhelginnar. DV hefur í dag eftir sérfræðingi í rússneska flotanum, Nick Brown, (hjá Jane´s Information Group) að líklegt sé að eitt skipanna, beitiskipið Pyotr Velikiy, sé bilað. Skipið sé kjarnorkuknúið og hugsanlega með kjarnorkuvopn um borð. Í blaðinu er vitnað í talsmenn rússneska hersins sem sagt hafi að skipið sé nánast eins og ruslahaugur, kjarnaofninn hugsanlega í ólagi og að raunveruleg hætta sé á því að skipið gæti sprungið í loft upp...3. Október 2004
Fasisti í framboði
12. September 2004
Gerum 9/11 að alþjóðlegum minningardegi
Grein sem birtist í gær 9/11 í Theran Times er merkileg fyrir ýmissa hluta sakir og þá sérstaklega fyrir yfirvegun og yfirsýn greinarhöfundar, sem heitir Hamid Golpira. Hann hvetur til þess að 9/ 11 verði gerður að alþjóðlegum minningardegi. Í niðurlagi greinar sinnar segir hann, að slík athöfn á heimsvísu "til minningar um allt það saklausa fólk sem lét lífið þennan dag gæti orðið til að stuðla að friði og sanngjarnari heimsmenningu". Greinarhöfundur minnir okkur síðan á að hinn 9. september árið 2001 hafi fleira saklaust fólk látið lífið en þeir sem þann dag voru drepnir í New York og Washington. Þannig hafi á þessum eina degi 30 þúsund börn og 8 þúsund fullorðnir dáið úr hungri og sjúkdómum sem rekja megi til fátæktar. "Börnin í þriðja heiminum upplifa 9/11 á hverjum einasta degi". Síðan rekur Hamid Golpira atburði sem áttu sér stað á þessum tíma víðs vegar um heiminn og er það umhugsunarverð lesning. Þessi nálgun opnar víða sýn á heiminn. Hún hvetur til raunsæis og er stefnt gegn fordómum. Hún er umburðarlynd. Ég læt greinina fylgja á ensku og síðan vefslóðir bæði á þessa grein og blaðið sem hún birtist í.11. September 2004
11.september í Nýju róttæku miðstöðinni
25. Ágúst 2004
Á okkar ábyrgð
Myndir geta verið áhrifaríkari en orð. Faðir huggar son sinn, heitir myndin sem hlaut World Press Photo verðlaunin í ár. Myndina tók franski ljósmyndarinn Jean-Marc Bouju en hann starfar fyrir Associated Press fréttastofuna. Myndin er úr fangabúðum í Najaf í Írak og sýnir fanga reyna að hugga fjögurra ára son sinn. Fanginn er látinn hafa hettu yfir höfði sínu en slíkt virðist tíðkast í herfangelsum Bandaríkjamanna, til að draga úr sjálfsöryggi og svipta menn mennskunni. En hve margir skyldu hugleiða þegar þeir horfa á þessa mynd eða svipaðar myndir, að fangarnir eru meðhöndlaðir á þennan hátt á ábyrgð Íslendinga. Hér á síðunni...17. Ágúst 2004
Lýðræðissinnar fagna úrslitum í Venezuela
8. Ágúst 2004
Andanum lyft á síðum Weekendavisen

Ef allir létu berast með straumnum, spyrðu aldrei gagnrýninna spurninga og andæfðu ekki þegar þeim þætti stefna í óefni, er hætt við að við næðum aldrei því stigi að geta kallað samfélag okkar siðað menningarsamfélag. Það getur krafist hugrekkis að gagnrýna hið hefðbundna. Það á svo sannarlega við um Hirsi Ali, 35 ára konu frá Sómalíu sem nú á sæti á hollenska þinginu. Það á einnig við um Karsten Möller stjórnanda danska herskólans. Þetta eru ólíkir einstaklingar en tilviljun réði því að viðtal er við þau bæði í danska blaðinu Weekendavisen um síðustu mánaðamót (30. júlí – 5. ágúst) og önnur tilviljum réð því að eintak af blaðinu barst mér í hendur. Mér þótti þessi viðtöl gefa bjartsýni byr undir báða vængi. Það er alltaf gaman að heyra til fólks sem lyftir andanum – ekki síst þegar einstaklingarnir koma úr óvæntri átt. ...
20. Júlí 2004
Ríkisstjórnin mótmælir mannréttindabrotum í Guantanamo - í kyrrþey

Mótmæli í kyrrþey skipta nánast engu máli og eru lítið annað en friðþæging. Það sem máli skiptir er hvað sagt er opinberlega helst á pólitískum vettvangi þar sem mannréttindabrjóturinn er veikur fyrir. Það hafa fulltrúar okkar í utanríkismálum, Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson nánst aldrei gert þegar Bush og Bandaríkin eru annars vegar. Fræg að endemum var för Davíðs vestur um haf nýlega þar sem hann spilaði þeirri yfirlýsingu inn í kosningabaráttu Bush að hann hefði gert heiminn friðvænlegri með árásinni á Írak! Ekki orð um Guantanamó eða pyntingar í bandarískum herfangelsum...
16. Júlí 2004
New York Times biðst afsökunar
Þá er þriðji hópurinn sem ekkert viðurkennir og heldur áfram að berja höfðinu við steininn oft að því er virðist til að sýna ráðamönnum í Washington að þeir “bili ekki” eins og það var kallað í Sovét í gamla daga. Davíð Oddsson, forsætisráðherra Íslands, vakti heimsathygli með yfirlýsingum sínum í Washington fyrir fáeinum dögum þegar hann lýsti því yfir að innrásin í Írak hefði verið öllum heiminum til góðs; heimurinn væri nú betri og öruggari en áður. Þetta eru barnalegar yfirlýsingar og dapurleg er sú tilhugsun að við skulum kynnt um víða veröld með þessum hætti. Leiðarinn í New York Times víkur að þeim hópi manna sem engum rökum tekur og segir...
13. Júlí 2004
Davíð Oddsson kemst í heimsfréttirnar: "Heimurinn öruggari"
Davíð Oddsson, forsætisráðherra Íslands hitti George W. Bush í Hvíta húsinu í Washington og er alsæll. Ekki svo að skilja að sýnilegur árangur hafi orðið af heimsókninni. Menn hafa nokkuð hent gaman að för Davíðs og barnslegri ánægju hans yfir því að hafa fengið að hitta þennan vin sinn, sem hann kallar svo. Fyrir Íslendinga er það hins vegar ekkert gamanmál hvernig ráðamenn þjóðarinnar knékrjúpa ráðamönnum í Washington. Davíð komst í heimsfréttir fyrir tvennt...11. Júlí 2004
Mannréttindabrotum í Kína mótmælt
Eins fram hefur komið í fréttum er nú stödd hér á landi fjölmenn sendinefnd frá kínverska þinginu og fer varaforseti þingsins, Wang Zhaoguo, fyrir nefndinni. Á fundi fulltrúa þingflokkanna með sendinefndinni afhenti ég henni skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International um mannréttindabrot í Kína og rakti helstu efnisatriði skýrslunnar þar sem fjallað er um ofsóknir á hendur forsvarsmönnum úr verkalýðsbaráttu, trúarhreyfingum og þjóðernisbaráttu, t.d. Tíbet. Einnig vísaði ég til þeirra kafla í skýrslunni sem fjalla um dauðarefsingu, pyntingar, hlutdræg réttarhöld og ofsóknir af ýmsu tagi. Ég staðnæmdist við mál tveggja einstaklinga, Yao Fuxin og Xiao Yunliang frá Liaoyang í norðaustur Kína, sem hnepptir voru í varðhald í maímánuði á síðasta ári og síðan dæmdir í fangelsi. Annar hlaut ...10. Júlí 2004
Fréttir frá Ríkisútvarpinu eða kosningaskrifstofu Bush?
7. Júlí 2004
Washington og Kabúl
26. Júní 2004
Öryggistilfinning Bandaríkjaforseta
20. Júní 2004
Bandaríkjaforseti: fífl eða fól?
18. Júní 2004
Evrópusinnar – en gagnrýnin
Á nýafstöðnu þingi EPSU (European Public Service Union, Starfsfólk í Almannaþjónustu innan Evrópusambandsins og EES) í Stokkhólmi í vikunni kom fram harðari tónn frá forsvarsmönnum verkalýðshreyfingarinnar og gagnrýnni í garð Evrópusambandsins en fram hefur komið í langan tíma. Tilefnið er ný tilskipun um þjónustustarfsemi, sem nú er í smíðum og telja menn sýnt að henni sé stefnt gegn samfélagslega rekinni velferðarþjónustu...17. Júní 2004
Skýrir sauðargæran lélega kosningaþátttöku í Evrópusambandsríkjunum?
16. Júní 2004
"Bolkenstein / Frankenstein"
11. Júní 2004
Tekist á um framtíð almannaþjónustunnar
Að mínu mati eru Public Services International (PSI), Alþjóðasamtök starfsfólks í almannaþjónustu, kröftugustu alþjóðasamtök launafólks starfandi í heiminum. Þessi samtök hafa beitt sér fyrir úrbótum og framförum innan almannaþjónustunnar og barist gegn einkavæðingu af miklum krafti. Engin samtök hafa átt í eins mikilli gagnrýnni samræðu við Alþjóðagjaldeyrisssjóðinn og Alþjóðabankann.8. Júní 2004
Kröftugur fundur gegn hernaðarofbeli Ísraela

Á laugardag var haldinn útifundur til þess að mótmæla hernaðarofbeldi Ísraela gegn Palestínumönnum. Það var félagið Ísland-Palestína sem stóð fyrir fundinum og stýrði formaður félagsins, Sveinn Rúnar Hauksson, fundinum. Ræðumenn voru Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Össur Skarphéðinsson, alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar. Á fundinum var samþykkt ályktun ( sjá nánar) og Sigurður Skúlason, leikari las ljóð, þar á meðal meðfylgjandi ljóð eftir Kristján Hreinsson, skáld:
7. Júní 2004
Saga Reagans endurskrifuð?
2. Júní 2004
Íslendingar beiti sér gegn mannréttindabrotum Bandaríkjamanna í Guantanamo

Frá fréttamannafundi þar sem áskorunin var kynnt. Á myndinni eru Bjarni Magnússon frá Deiglunni, Huginn Þorsteinsson frá Múrnum, Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Jóhanna K. Eyjólfsdóttir formaður Íslandsdeildar Amnesty International. Mynd Bára.
BSRB, ASÍ, Íslandsdeild Amnesty International og mörg ungliðasamtök stjórnmálaflokkanna hafa sent sameiginlega áskorun til ríkisstjórnar Íslands þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands að koma mótmælum á framfæri með formlegum hætti við ríkisstjórn Bandaríkjanna vegna þeirra mannréttindabrota sem nú viðgangast í herstöðinni við Guantanamo flóa á Kúbu. Þá hafa þessir aðilar ráðist í sameiginlega undirskriftasöfnun á vefslóðinni: www.skodun.is/undirskrift
Í áskoruninni segir:..
1. Júní 2004
Busharon

Ísraelski baráttumaðurinn fyrir mannréttindum, Uri Avnery, segir í blaðagrein sem birtist í Morgunblaðinu, laugardaginn 29. maí, að "sú undarlega skepna Busharon" sé í kreppu. Það eigi bæði við um framenda skepnunnar, George W. Bush, Bandaríkjaforseta og afturendann, Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels. Myndbirtingarnar úr íröskum fangelsum af nöktum föngum hafi opinberað nekt Bandaríkjaforseta. Kreppa Ísraela felist í því að ofbeldið sem þau beiti Palestínumenn færi þeim ekki árangur.
31. Maí 2004
Enn um þrýstiaðgerðir í þágu mannréttinda
28. Maí 2004
Umræðan á fullu um þrýstiaðgerðir gegn Ísrael
24. Maí 2004
Svar félagsins Ísland Palestína: Nei, nú er komið nóg
|
|
Nú hefur svar borist við fyrirspurn minni hér á síðunni nýlega, til félagsins Ísland Palestína, um hvort Íslendingar eigi að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael vegna þeirra alvarlegu mannrétindabrota, sem nú eru framin á ábyrgð ísraelskra yfirvalda. Svar félagsins hvet ég alla lesendur síðunnar til að kynna sérgaumgæfilega. Okkur ber siðferðileg skylda til að íhuga alvarlega hvernig við getum lagt okkar af mörkum í þágu mannréttinda. Svar félagsins er umhugsunarvert og vekjandi:..
20. Maí 2004
Fyrirspurn til Félagsins Ísland – Palestína
Ríkisstjórnir víða um heim mótmæla en oftar en ekki á svo lágum nótum að nær væri að tala um að þær maldi í móinn. Félagið Ísland Palestína hefur staðið vaktina í mannréttindabaráttu Palestínumanna um langt árabil. Það hefur félagið gert af yfirvegun og viti. Fyrir vikið bera allir virðingu fyrir félaginu. Nú beini ég spurningu til félagsins og þætti vænt um að fá svar. Hvað er nú til ráða annað en mótmæla hástöfum? Hvað geta Íslendingar gert? Sjálfur er ég farinn að hallast að því að rétt sé að... 11. Maí 2004
Óviðeigandi, jafnvel ólöglegt !
Í sjónvarpsfréttum lýsti stjórnandi fangelsismála hernámsliðsins í Írak því yfir, að pyntingar á föngum hefðu verið „óviðeigandi, jafnvel ólöglegar“ ( improper, even illegal)! Er það virkilega svo, að stjórnendum fangelsismála hafi þótt þetta óviðeigandi og hugsanlega ekki í samræmi við lög? Í fréttinni með þessum yfirlýsingum herforingjans voru sýndar myndir af nöktum mannslíkömum, bundnum saman í stóra kös; aðrir fangar voru reyrðir fastir, með bundið fyrir augun eða með kvenmannsnærbuxur yfir höfðinu. Allt gert til að valda sem mestri þjáningu og niðurlægingu. Frásagnir af nauðgunum og misþyrmingum fylgdu.
11. Maí 2004
Kúgarar afhjúpaðir
Í niðurlagi leiðara Morgunblaðsins sl. laugardag segir: „Þeir sem ruddu Saddam Hussein á brott í krafti þess að þar væri kúgari á ferð hafa verið afhjúpaðir fyrir ógeðsleg mannréttindabrot.“ Við hlið leiðarans er síðan grein eftir aðstoðarmann utanríkisráðherra, Björn Inga Hrafnsson, sem ...
27. Apríl 2004
Japönum vottuð samúð
24. Apríl 2004
Leiðbeinandi í lýðræði
17. Apríl 2004
Blairstjórnin breska fjármagnar einkavæðingaráróður í þróunarríkjum
16. Apríl 2004
Ósjálfstæði í utanríkismálum
Þegar upp er staðið og ummæli manna krufin þá hlýtur maður að fallast á, að sennilega sé það rétt hjá Halldóri Ásgrímssyni, að ekki er öllum gefið að hugsa málin á yfirvegaðan og rökrænan hátt. Spurningin er hins vegar hvort það eigi einvörðungu við um íslamska öfgamenn...
16. Apríl 2004
Hvað segir ríkisstjórnin um geimvopnaáætlun Bandaríkjastjórnar?
Þetta lítur sem sagt allt alveg ljómandi vel út að mati ríkisstjórnar Íslands – enda allar líkur á að við fáum að vera með! Samkvæmt fréttum virðist mönnum líka ganga ágætlega að réttlæta vígvæðinguna. Þar er gamalkunnugt ráð að koma sér upp óvinum sem þarf að verjast gegn...
13. Apríl 2004
Bandarískur blaðamaður segir augljóst hvað vaki fyrir Sharon
Bandaríski blaðamaðurinn Ray Hanania segir í nýbirtri grein augljóst hvað vaki fyrir ísraelska forsætisráðherranum: Að framkalla ofbeldi af hálfu Palestínumanna. Með því móti styrki hann stöðu þeirra Ísraela sem vilji meiri landtöku á herteknu svæðunum. Í grein á vefsíðu sem er að finna í lokin á þessari samantekt, segir Ray Hanina, að morðið á Ahmed Yassin, helsta forsvarsmanni Hamas samtakanna, nú í lok marsmánaðar, hafi verið úthugsað einmitt með þetta fyrir augum. Ferill Ariels Sharons sé blóði drifinn. Á sjötta áratug síðustu aldar hafi 1. Apríl 2004
Arundhati Roy: Heimsveldisstefnu og lýðræði blandað á staðnum
Einhver kröftugusta baráttukona fyrir mannréttindum, sem nú er uppi, er án nokkurs vafa indverska konan Arundhati Roy. Skrif hennar og ræður eru sterkar og hrífandi. Eina slíka ræðu flutti hún í Harlem í New York í maí síðastliðnum. Í New York var Arundhati Roy á vegum, eða í samstarfi við Samtök um Efnahagsleg og Félagsleg Réttindi ( Center for Economic and Social Rights, CESR). Í upphafi ræðu sinnar segir Arundhati Roy að einhverjum kunni að finnast orka tvímælis að indversk kona skuli komin til Bandaríkjanna til að gagnrýna það ríki. "En þegar land hættir að vera land og verður heimsveldi þá verður eðlisbreyting á gjörðum þess og hlutverki. Ykkur til skýringar þá tala ég sem þegn í heimsveldi, þræll sem gagnrýnir konung sinn."
1. Apríl 2004
CESR: Við getum ekki leyft okkur þann munað að örvænta
25. Mars 2004
Á hvern ætlar NATO núna að ráðast í Kosovo?
Svo virðist sem hafin sé skipulögð herferð til að hrekja Serba frá Kosovo. Tugir manna hafa verið felldir og hús brennd til grunna. Samkvæmt fyrstu fréttum hófst ofsóknarhrinan eftir að fréttir birtust í albönskumælandi fjölmiðlum um að serbneskir menn hefðu orðið þess valdandi að þrjú börn, af albönsku bergi brotin, drukknuðu í ánni Ibar. Þessi tildrög eru nú stórlega dregin í efa og er því haldið fram að þetta hafi verið liður í þaulskipulagðri áróðursherferð til að kynda undir hatur í garð Serba. Jonathan Eyal, forstöðumaður Royal Institute of Armed Forces í London er á meðal þeirra sem fullyrðir að svo sé. Á döfinni sé brottflutningur fjölmennra sveita NATO frá Kosovo og vilji forsvarmenn Albana nú knýja á um aukna sjálfstjórn eða sjálfstæði Kosovo. Jonathan Eyal segir að alþjóðlegir fjölmiðlar bregðist fullkomlega. Þeir setji þetta upp sem átök á milli Serba og Albana, slíkt sé fráleitt. Í þessu sambandi er bent á að í Prizren, svo dæmi sé tekið, þar sem "átök" hafa orðið, búi 100.000 Albanir og 63 Serbar!24. Mars 2004
10 litlir Yassinar og mótsagnakennd afstaða Íslands
24. Mars 2004
Davíð og Halldór sanni mál sitt
Það er kominn tími til að Íslendingar átti sig á ábyrgð sinni í þessum stríðsrekstri. Við berum þar fulla ábyrgð. Utanríkisráðherra Íslands lýsti því yfir síðastliðið vor að hann þakkaði sínum sæla að þurfa ekki að senda íslenska menn í stríðið en bætti við, "ég dáist hins vegar að mönnum eins og Tony Blair sem geta tekið slíkar ákvarðanir með yfirveguðum hætti". Nú hefur komið í ljós að yfirvegun þeirra ...
20. Mars 2004
Ástæður fyrir hernámi Íraks sífellt skýrari
16. Mars 2004
Gyðingar og Palestína – Sara Roy, kyndilberi frelsisins
11. Janúar 2004
Heimsatburðir að hætti Halldórs eða Sunday Herald?
Frá lesendum
21. Maí 2012
UM LÝÐRÆÐI OG EIGNARRÉTT Í STJÓRNARSKRÁR-DRÖGUM
Gísli Tryggvason
21. Maí 2012
UM KÍNVERSK LANDSÖLUMÁL O.FL.
Jón Jón Jónsson
13. Maí 2012
HEIMILI EÐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLÆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...













