SÝNUM PALESTÍNUMÖNNUM SAMSTÖÐU
Sunnudaginn 29. nóvember verður efnt til samstöðufundar
með Palestínu. Fundurinn er haldinn í Norræna húsinu í
Reykjavík og hefst hann klukkan 15. Gert
er ráð fyrir að hann standi í klukkustund eða þar um bil.
Þessi dagur er alþjóðlegur samstöðudagur og er haldinn að undirlagi
Sameinuðu þjóðanna ár hvert. Það er nefnilega svo einsog margir
vita að Sameinuðu þjóðirnar hafa margoft ályktað um
mannréttindabrotin í Palestínu auk þess sem Sameinuðu þjóðarinmar,
sem eru sumpart ábyrgar fyrir tilveru Ísraelsríkis, hafa kveðið
skýrt á um það hvar landamærin á milli Ísraels og Palestínu skuli
liggja. Þessi landamæri hafa Ísraelar aldrei virt og samþykktir SÞ
hafa þeir virt að vettugi og reyndar gengið miklu lengra; hneppt
palestínsku þjóðina í fjötra og svipt hana mannréttindum. (sjá
nánar http://www.palestina.is/frettir/archive/fr126.html
)
Hvað ætlar heimsbyggðin lengi að láta þetta viðgangast? Við erum í
reynd öll ábyrg svo lengi sem við höfumst ekkert að til að breyta
þessu ófremdarástandi. Á þetta verður minnt á samstöðufundinum í
Norræna húsinu.
Ég mun flytja ávarp dagsins á fundinum en síðan mun Björn
Thoroddsen og félagar í Guitar Islandicio flytja
nokkur lög og Anna Tómasdóttir hjúkrunarnemi
flytur erindi og sýnir myndir: Mannréttindabrot í skjóli meints
öryggis. Reynsla sjálfboðaliða í hertekinni Palestínu.