ÍSLAND Í ÚTLÖNDUM

Aldrei hef ég verið í eins mörgum viðtölum við erlenda fjölmiðla
og á undanförnum dögum - í kjölfar afsagnar minnar úr ríkisstjórn.
Þótt ýmsum áhugamönnum um átakalaus stjórnmál hafi ekki orðið
svefnsamt vegna væringa sem tengjast afsögninni þá leyfi ég mér að
fullyrða að viðtöl við íslenska stjórnmálamenn í erlendum
fjölmiðlum eru málstað Íslands til góðs. Þannig get ég huggað mig
við að ég kunni að hafa lagt eitthvað gott af mörkum undanfarna
daga utan heilbrigðisráðuneytisins.
Því miður höfum við ekki lagt nægilega rækt við kynningu á málstað
Íslands erlendis - og fer því reyndar mjög fjarri að svo hafi
verið gert. Þetta hefur svo aftur stórlega veikt samningsstöðu
Íslands gagnvart lánadrottnum okkar.
Sem dæmi um vefmiðil sem milljónir heimsækja er vefmiðill breska
útvarpsins BBC en þar birtist í dag grein þar sem m.a. er vísað í
mín ummæli og Stefáns Ólafssonar, prófessors við Háskóla
Íslands: http://news.bbc.co.uk/2/hi/europe/8298566.stm