FRIÐFLYTJANDI HEIMSÆKIR ÍSLAND

Það var ánægjulegt að hitta Dalai Lama, friðarverðlaunahafa
Nóbels og trúarleiðtoga Tíbeta að máli í heimsókn hans til
Íslands.
Í seinni tíð hefur athygli mín oft beinst að Tíbet. Það átti ekki
síst við á síðasta ári þegar Ólympíuleikarnir voru haldnir í Kína.
Þá gerðist tvennt í senn: Andófsöfl í Tíbet reyndu að vekja athygli
á hlutskipti Tíbeta innan Kínverska Alþýðulýðveldisins og Kínaher
reyndi af sama tilefni að bæla allt andóf niður.
Hér á landi var efnt til mótmæla við kínverska sendiráðið í
Reykjavík nokkra laugardaga í röð og hinn 24. ágúst var stofnað til
sérstakrar menningar- og baráttuhátíðar í Salnum í Kópavogi af
hálfu Vina Tíbets. Ég tók þátt í hvoru tveggja, mótmælunum
við kínverska sendiráðið og fundinum í Salnum en þar flutti ég
jafnframt ræðu. Á þetta minnti ég þegar ég var spurður á
mbl.is hvers vegna mér hefði verið boðið að hitta Dalai
Lama að máli en nokkrar vangaveltur höfðu verið, einkum á
netmiðlum, um fund minn með honum. Sjá m.a.:
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/06/02/radherrar_og_dalai_lama/
http://eyjan.is/blog/2009/06/01/ogmundur-bjargar-andliti-rikisstjornarinnar-aetlar-ad-funda-med-dalai-lama-a-morgun/
Þess má geta að Björgvin G. Sigurðssyni var einnig boðið að hitta
Dalai Lama enda flutti hann ávarp á umræddum fundi í fyrra, þá
viðskiptaráðherra Íslands. Eðlilegt hefði verið að Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir, núverandi þingflokksformaður VG, væri í hópnum því
hún hafði verið fundarstjóri þessa sama fundar. Prímusmótorinn þá
sem nú var Birgitta Jónsdóttir, nýbakaður þingflokksformaður
Borgarahreyfingarinnar. Á fundinum með Dalai Lama í gær var auk
okkar Birgittu og Björgvins, Katrín Júlíusdóttir,
iðnaðarráðherra.
Þess má geta að Dalai Lama tjáði okkur að hann væri staddur hér á
landi fyrst og fremst sem trúarleiðtogi og friðarsinni. Þetta var
og boðskaður hans í troðfullri Laugardagshöllinni í gær.
Hér eru slóðir af fundinum í Salnum, m.a. ræða mín:
http://ogmundur.is/umheimur/nr/4041/
http://ogmundur.is/umheimur/nr/4042/
http://ogmundur.is/umheimur/nr/4040/
http://ogmundur.is/umheimur/nr/4034/
http://ogmundur.is/umheimur/nr/3827/
http://ogmundur.is/fra-lesendum/nr/3822/
http://ogmundur.is/umheimur/nr/3819/
http://ogmundur.is/frjalsir-pennar/nr/3818/
http://ogmundur.is/umheimur/nr/1774/
http://ogmundur.is/umheimur/nr/1083/