MÆTUM Á STÓRFUNDINN Í HÁSKÓLABÍÓI!!!

Í dag - sunnudag - klukkan 15 gangast fjölmörg félagasamtök,
stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök fyrir mótmælafundi í
Háskólabíói undir kjörorðinu: ÞJÓÐARSAMSTAÐA GEGN FJÖLDMORÐUNUM Á
GAZA.
Dagskráin er í senn kröftug og vönduð.
Fundarstjóri er Arnar Jónsson leikari og ræður flytja Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir stjórnmálafræðingur, Jóhanna K. Eyjólfsdóttir
framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Kristín
Helga Gunnarsdóttir rithöfundur. Össur Skarphéðinsson, starfandi
utanríkisráðherra, ávarpar fundinn. Fjölbreytt tónlistardagskrá
verður á fundinum: Trio Nordica, Barnakór Kársnes, Hulda Björg
Garðarsdóttir, Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Lay Low og
fleira.
Eftirtaldir hafa nú þegar staðfest aðild að fundinum:
ASÍ, BSRB, Félagið Ísland-Palestína, Frjálslyndi flokkurinn, KÍ,
Landssamband sjálfstæðiskvenna, SFR, Samiðn, Samfylkingin,
Starfsgreinasambandið og VG.
Í ljósi voðaverkanna á Gaza er það nánst skylda sérhvers
manns að gera allt sem í hans valdi stendur til að stöðva ódæðið.
Fjöldafundir af því tagi sem hér er boðað til styrkir kröfu
alþjóðasamfélagsins um að Ísrael verði beitt þrýstingi til að láta
af ofbeldinu. Þess vegna verða allir að mæta sem eiga þess nokkur
kost!