Umheimur Janúar 2009

Í dag - sunnudag - klukkan 15 gangast fjölmörg félagasamtök,
stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök fyrir mótmælafundi í
Háskólabíói undir kjörorðinu: ÞJÓÐARSAMSTAÐA GEGN FJÖLDMORÐUNUM Á
GAZA. Dagskráin er í senn kröftug og vönduð....Í ljósi
voðaverkanna á Gaza er það nánst skylda sérhvers manns að gera allt
sem í hans valdi stendur til að stöðva ódæðið. Fjöldafundir af því
tagi sem hér er boðað til styrkir kröfu alþjóðasamfélagsins um að
Ísrael verði beitt þrýstingi til að láta af ofbeldinu. Þess vegna
verða allir að mæta sem eiga þess nokkur kost!
Lesa meira

Í dag klukkan 16 verður efnt til fundar í Iðnó í Reykjavík vegna
grimmdarverkanna á Gaza. Það er mikilvægt að fólk sýni samstöðu með
fórnarlömbunum og þá jafnframt og kannski fyrst og
fremst, andstöðu við glórulaust ofbeldið...
Lesa meira

Sjónvarpið á lof skilið fyrir að sýna viðtal við norskan lækni
starfandi á Gaza ströndinni. Myndir og frásagnir læknisins færa
okkur heim sanninn um hve hrikalega stríðsglæpi Ísraelar eru að
fremja á svæðinu. Allt þetta gerist í skjóli Bandaríkjanna, stærsta
herveldis heimsins. Þess vegna er við hæfi að efnt skuli til
mótmælafundar klikkan 17 í dag við sendiráð Bandaríkjanna að
Laufásvegi 21 í Reykjavík. Það er félagið Ísland Palestína sem
efnir til mótmælafundarins gegn fjöldamorðunum á Gaza.
Formaður félagsins, Sveinn Rúnar Hauksson mun...
Lesa meira
Birtist í DV 07.01.09.
Fjarlægðin gerir fjöllin blá og þjóðirnar
einsleitar. Ísraelar verða Ísraelar og Palestínumenn verða
Palestínumenn. Ekki kannski alveg svona einfalt því við erum búin
að ná því að höfuðfylkingar Palestínumanna heita Fatah og Hamas.
Síðarnefndu samtökin höfðu vinninginn í síðustu þingkosningum í
Palestínu. Það líkaði hernámsliði Ísraela illa og neitaði að
viðurkenna réttkjörna stjórn. Þá var mynduð þjóðstjórn með
sameiginlegri þátttöku Fatah og Hamas. Þeirri stjórn settu Ísraelar
skilyrði, sem hún réði ekki við og sprakk hún því. Í kjölfar
vopnaðra átaka á meðal Palestínumanna...
Lesa meira
Tryggingastofnun ríkisins(TR) verði gert óheimilt að skerða húsnæðisbætur langveikra og fatlaðra örorkulífeyrisþega og eftirlaunaþega í EIGNARHÚSNÆÐI, ef þeir leigja út frá sér.
Litið verði á leigutekjur sem atvinnufrítekjur sem er um 107. þús. kr. á mánuði hjá öryrkjum en u.þ.b. 200. þús. kr. á mánuði á öldruðum. SAMBÆRILEGT ÞVÍ SEM GERT ER Á NORÐURLÖNDUM. Ath! Öryrkjar og aldraðir mega vinna "úti" án þess að lífeyrisbætur skerðist. - Hver er munurinn á sitthvoru? Nú er bráðavöntun á húsnæði, jafnt fyrir ...
Björk Magnúsar og Grétudóttir
Lesa meira
Í ellinni eitthvað að vafra
eins og honum ber
Sagður nú sjötíu og fjagra
sóma drengurinn hér.
Nú árin telur ansi mörg
að telja þau ei nenni
Æskann farin fyrir björg
orðinn gamalmenni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Tímarnir breytast og mennirnir með
í pólitík margan þar snúning hef séð
ei lygina segi
villast af vegi
og fullreynt virðist á langlundargeð.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Kyssa vöndinn Vinstri Græn
verja nú Bjarna kallinn
Veikluleg og alls-ekkert væn
vísast er stjórnin fallin.
Með verðbólgu og verðlag hátt
venjast má öllu smátt og smátt
ég lyktina finn
í sjöunda sinn
allt á fleygiferð í gjaldþrota átt.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allrahanda eðalglingur,
allt úr gulli í salnum.
Elísabet er Íslendingur,
ættuð úr Víðidalnum.
Fljótt ég þetta færði í tal,
fleiri kunna að meta.
Virðuleg kona úr Víðidal,
valdist í hásæti Breta.
...
Kári
Lesa meira
Fallin finnur ekki taktinn
farinn samstarfsvilji
þannig endar vina vaktin
vísast að leiðir skilji.
Til helvítis hann sendir börn
frá harðindum á Fróni
En þjóðfélagið þeim veitir vörn
frá viðsjárverðum Jóni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
Lesa meira
Allt Frá lesendum