Umheimur 2006
Hinn 4. júlí nálgast óðum og líður því senn að því að ríkasta stórveldi heimsins, Bandaríki Norður-Ameríku, haldi upp á þjóðhátíðardag sinn. Hinn 4. júlí árið 1776 var lýst yfir sjálfstæði Bandaríkjanna, sem heyrt höfðu undir bresku krúnuna. “Þar með hófst ameríski draumurinn”, segir George Bush Bandaríkjaforseti á sérstakri heimasiðu sem opnuð hefur verið vegna hátíðahaldanna: “Við bjóðum öllum þjóðum heims að halda upp á daginn með okkur á netinu”, segir forsetinn þar í ávarpi. Ekki nóg með þetta, sendiráð Bandaríkjanna um heim allan efna til hátíðahalda í tilefni dagsins. Ég gef mér að svo sé, því varla er einvörðungu stofnað til fagnaðar í sendiráðinu í Reykjavík en frá því streyma nú út boðskortin.
Allt þetta umstang hlýtur að kosta sitt. Bjór og pitsur er að vísu ekki mjög kostnaðarsamur kostur á mælikvarða Íraksstríðsins eða stjörnustríðsáætlunarinnar en allt telur þetta. Þess vegna ber að fagna því að...
Lesa meira
...Andúð í garð fasisma er sem betur fer mikil í Evrópu og eru mótmælin við komu Bush vitnisburður um hana. Bandaríkin hafa verið framvörður fjármagnsins um heillar aldar skeið og iðulega farið fram af mikilli hörku og grimmd til að verja hernaðarhagsmuni sína og hagsmuni bandarískra auðhringa. Mikil breyting hefur þó orðið á framgöngu Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi frá því á öndverðri og miðri 20. öld og þar til nú. Svo mikil er þessi breyting að hún hlýtur að flokkast undir eðlisbreytingu. Ekki hefði ég fyrr leyft mér að kalla bandarískan forseta fasista. Sú eðlisbreyting sem átt hefur sér stað þótti mér koma vel fram í frásögn bandaríska rannsóknarfréttamannsins Greg Palsat nýlega þar sem hann lýsir því hvernig faðir hans, stoltur medalíuhafi í Bandaríkjaher frá síðari heimsstyrjöldinni, hafi fyllst efasemdum og síðar andúð þegar...
Lesa meira
...Ríkisstjórn Íslands hefur fylgt Bandaríkjastjórn eins
staðfastlega og rófa fylgir hundi. Í samræmi við það er sú
staðreynd að það virðist engin áhrif hafa á þann ásetning
ríkisstjórnarinnar að leita ásjár hjá Bandaríkjastjórn þótt hún
hafi ítrekað orðið uppvís af stríðsglæpum, pyntingum á föngum,
stórfelldum mannréttindabrotum, lygum og fölsunum. Sem betur fer er
heiðvirt fólk í Bandaríkjunum að rísa upp gegn þessum óþjóðalýð.
Þar má nefna Ray McGovern, sem í 27 ár starfaði með bandarísku
leyniþjónustunni CIA. Hann hefur í ræðu og riti sakað núverandi
valdhafa Bandaríkjanna um að hafa beitt stórfelldum lygum í
aðdraganda innrásarinnar í Írak. Á fundi í Atlanta í Bandaríkjunum
nýverið, spurði hann Donald Rumsfeld "varnarmálaráðherra"
Bandaríkjanna, hvers vegna hann hefði logið því að hann hefði
vitneskju um tilvist gereyðingarvopna í Írak. Rumsfeld
svaraði því til, að hann hefði engu logið, stjórnina hefði hins
vegar grunað að Írakar hefðu gereyðingarvopn undir höndum. McGovern
sagði ráðherrann hafa staðhæft árið 2003 að ríkisstjórnin
hefði...
Lesa meira

Athygli vakti við umræðu um utanríkismál á Alþingi í vikunni hve mjög Geir H. Haarde endurómaði áherslur bandarískrar utanríkisstefnu í ræðu sinni. Þannig réðst hann á Íran og lagði lykkju á leið sína til þess að gagnrýna nýkjörna stjórn í Palestínu... Að þessu leyti er líkt komið á með Hamas og stjórnvöldum í Ísrael því hin síðarnefndu hafa ekki viljað viðurkenna tilvist Palestínu, eins og hún var ákveðin á vettvangi Sameinuðu þjóðanna eftir hin blóðugu átök á árunum 1948 – 49. Þar var ákveðið að Palestínumenn fengju rúman fimmtung af Palestínu eða um 22%. Núverandi stjórn í Ísrael ætlar Palestínumönnum innan við 10% af sundurtættri Palestínu. Myndirnar hér að ofan sýna þessa þróun. Lengst til vinstri er Palestína árið 1945 þegar gyðingar hafa verið að koma sér fyrir á svokölluðum landnemabyggðum. Síðan eru landamærin 1947 og þá samkvæmt grænu línu Sameinuðu þjóðanna 1949 eftir stríðsátökin. Þá eru landamærin eftir Sex daga stríðið 1967 og loks eins og staðan hefur verið síðan 2000. Hvað eftir annað hafa Sameinuðu þjóðirniar ályktað en þegar komið hefur til kasta Öryggisráðsins hafa Bandaríkjamenn jafnan beitt neitunarvaldi...
Lesa meira
Ég heyrði ekki fréttir í gærkvöldi. Ekki heldur fréttirnar af
samningaviðræðum við fulltrúa Bandaríkjastjórnar um framhald á
"varnarsamningi". Ég hef fregnað að Kani hafi einkum
viljað vernda okkur fyrir spillingu og mansali! Halda samningamenn
Bush ef til vill að þeir séu staddir í Eistlandi? Og skyldu þetta
vera réttu aðilarnir til að vernda þjóð vora fyrir spillingu og
mansali, sömu menn og flytja fanga utan dóms og laga landa á milli
til að verða pyntaðir? Undirlægjuháttur íslenskra stjórnvalda er
með ólíkindum. Það er hrikaleg tilhugsun að stjórnarerindrekar
Íslands skuli liggja á hnjám frammi fyrir verstu stríðglæpamönnum
veraldarinnar í betlibæn um að þeir verndi íslenska þjóð gegn öllu
illu! Hvílík niðurlæging!! Halldór Ásgrímsson og Geir H. Haarde eru
skelfingu lostnir yfir þeirri tilhugsun að...
Lesa meira
...Haft er eftir Össuri í fjölmiðlum að forseti
Þingmannasambands NATÓ, Pierre Lellouche hafi lýst undrun á
framgöngu Bandaríkjastjórnar og hvatt til þess að íslenskir
þingmenn tækju málið upp á aðalfundi sambandsins í París í vor. Af
þessu tilefni langar mig til þess að stinga ábendingu að formanni
íslensku NATÓ-deildarinnar og hún snýr að þessum nýfundna
Íslandsvini. Staðreyndin mun vera sú að vandfundnari er hægri
sinnaðri þingmaður á franska þinginu en téður Pierre Lellouche.
Hann gagnrýnir hægri sinnuð frönsk stjórnvöld jafnan frá hægri og
þótt hann nú gagnrýni Bandaríkjastjórn þá studdi hann
Íraksinnrásina allra manna harðast á þeim tíma sem franska
ríkisstjórnin hafði í frammi mótmæli gegn árásarstefnu
Bandaríkjamanna og Breta. Eru það slíkir menn sem við erum
að...
Lesa meira
...Það er dapurlegt til þess að hugsa að eftir allar fréttirnar
af fjöldamorðum, ógninni og kúguninni, pyntingum og niðurlægingu,
sem tengist innrásinni og hernáminu í Írak, skuli höfðinu enn vera
barið við steininn í Stjórnarráði Íslands. Það er ennþá of
snemmt að segja til um hvort innrás, sem nú hefur leitt til
borgarastyrjaldar í landinu, hafi verið til góðs eða ills, segir
forsætisráðherra þjóðarinnar!
Auðvitað kemur að því einhvern tímann að birtir yfir Írak. En það
verður ekki vegna þess að Bandaríkjamenn og Bretar, með stuðningi
viljugra vina sinna, réðust á þjóðina heldur þrátt fyrir þá árás og
allar þær hörmungar sem...
Lesa meira
...Grimmd kallar á grimd og villimennska elur af sér
villimennsku. Fáir búa yfir slíkum styrk að geta varðveitt velvild
og skilning gagnvart féndum sínum og ofsækjendum. Hjá flestum okkar
nær hatur og hefnigirni yfirhöndinni við slíkar aðstæður. En það er
einnig annað sem gerist: Sjúkir einstaklingar, þeir sem haldnir eru
grimmd og kvalalosta dafna og eflast, eru jafnvel hafnir upp til
skýjanna...Séra Örn Bárður, sem stýrði pallborðsumræðum var góður
að vanda. Hann minnti okkur á að forsenda fyrir friði og öryggi
væri réttlæti. Í pallborðinu var margt ágætt sagt. Hallgrímur
Helgason, rithöfundur, sagði, ef ég heyrði rétt: "Bleyðan sækir
fram í djúpum stól." Hárrétt! Þetta minnir okkur á hlut
Íslendinga, hinnar viljugu þjóðar; eða öllu heldur...
Lesa meira
...Víða um heim minnast menn nú þess að í dag eru liðin þrjú ár
frá dauða þessarar ungu stúlku. Hún var tuttugu og þriggja ára
gömul þegar ísraelskir hermenn myrtu hana. Morðið var framið á
yfirvegaðan og kaldrifjaðan hátt. Um þennan atburð sagði ég á
heimasíðun minni vorið 2003: "Þessi unga stúlka, sem var
einlægur friðarsinni, vildi koma í veg fyrir að hús palestínskrar
fjölskyldu yrði jafnað við jörðu. Hún stóð í vegi fyrir jarðýtunni
sem var notuð til þess verknaðar. Fyrst var hent braki og jarðvegi
yfir stúlkuna og þegar hún féll til jarðar var ýtt yfir hana,
handleggir og fótleggir brotnuðu og höfuðkúpan brákaðist. Hún lést
skömmu síðar. Þetta gerðist 16. mars ...
Lesa meira
Össur Skarphéðinsson skrifar pistil á heimasíðu sína í lok
vikunnar sem hann nefnir Ögmundur - og hlekkir
hugarfarsins. Tilefnið voru skoðanaskipti okkar á Alþingi um
Evrópusambandið og hvort eftirsóknarvert væri fyrir
Íslendinga að sækja þar um aðild. Össur vísar til þess að ég hafi
sagt á þá leið í þinginu að ESB "væri
einangrunarsinnað innilokunarsamband sem hentaði ekki hagsmunum
Íslendinga." Mikið rétt. Í framhaldinu fjallar Össur um
tollamúra Evrópusambandsins og spyr...Mér hefur oft orðið það
umhugsunarefni þegar menn jafna löngun til að ganga í
Evrópusambandið við alþjóðahyggju. Evrópusambandið byggir fyrst og
síðast á einangrunarhyggju. Það er miðstýrt og þunglamalegt
skrifræðiskerfi sem öllum vill þröngva inn í sama þrönga farveginn.
Mér er fyrirmunað að skilja að mönnum finnist það vera
eftirsóknarvert hlutskipti fyrir þjóð eins og okkar, sem býr yfir
sjálfstæðum lýðræðislegum tækjum til að stjórna sjálf sínu lífi, að
gerast þarna innmúrað aðildarríki með völd sem mælast í prómillum.
Á sínum tíma sat ég með Össuri í EFTA nefnd Alingis. Þar var...
Lesa meira
Tryggingastofnun ríkisins(TR) verði gert óheimilt að skerða húsnæðisbætur langveikra og fatlaðra örorkulífeyrisþega og eftirlaunaþega í EIGNARHÚSNÆÐI, ef þeir leigja út frá sér.
Litið verði á leigutekjur sem atvinnufrítekjur sem er um 107. þús. kr. á mánuði hjá öryrkjum en u.þ.b. 200. þús. kr. á mánuði á öldruðum. SAMBÆRILEGT ÞVÍ SEM GERT ER Á NORÐURLÖNDUM. Ath! Öryrkjar og aldraðir mega vinna "úti" án þess að lífeyrisbætur skerðist. - Hver er munurinn á sitthvoru? Nú er bráðavöntun á húsnæði, jafnt fyrir ...
Björk Magnúsar og Grétudóttir
Lesa meira
Í ellinni eitthvað að vafra
eins og honum ber
Sagður nú sjötíu og fjagra
sóma drengurinn hér.
Nú árin telur ansi mörg
að telja þau ei nenni
Æskann farin fyrir björg
orðinn gamalmenni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Tímarnir breytast og mennirnir með
í pólitík margan þar snúning hef séð
ei lygina segi
villast af vegi
og fullreynt virðist á langlundargeð.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Kyssa vöndinn Vinstri Græn
verja nú Bjarna kallinn
Veikluleg og alls-ekkert væn
vísast er stjórnin fallin.
Með verðbólgu og verðlag hátt
venjast má öllu smátt og smátt
ég lyktina finn
í sjöunda sinn
allt á fleygiferð í gjaldþrota átt.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allrahanda eðalglingur,
allt úr gulli í salnum.
Elísabet er Íslendingur,
ættuð úr Víðidalnum.
Fljótt ég þetta færði í tal,
fleiri kunna að meta.
Virðuleg kona úr Víðidal,
valdist í hásæti Breta.
...
Kári
Lesa meira
Fallin finnur ekki taktinn
farinn samstarfsvilji
þannig endar vina vaktin
vísast að leiðir skilji.
Til helvítis hann sendir börn
frá harðindum á Fróni
En þjóðfélagið þeim veitir vörn
frá viðsjárverðum Jóni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
Lesa meira
Allt Frá lesendum