...Það var einmitt þetta trúarlega sjónarhorn sem hreif Van der
Hoeven vísinda- og menntamálaráðherra Hollands, að hennar eigin
sögn. Hún lýsti því yfir opinberlega í vor að hún hefði átt
"stórkostlega merkilega" samræðu við fyrrnefndan Cees
Dekker og í kjölfarið skrifaði hún eftirfarandi á heimasíðu
sína: "Það sem sameinar Múhameðstrúarmenn, Gyðinga og Kristna
er hugmyndin um skapara...Ef okkur tekst að sameina vísindamenn af
mismunandi trúarbrögðum, mætti nýta það í skólum og í kennsluefni
sem þar er kennt..." Í haust ætlar að Van der Hoeven,
ráðherra, að halda seminar um Vitræna Hönnun í
menntamálaráðuneytinu hollenska. Hollenskir þingmenn og vísindamenn
vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið...
Í sumar dvaldi ég ásamt konu minni um nokkurra daga skeið í St. Paul og Minneapolis, "tvíburaborgunum" svonefndu í Minnesotaríki í Bandaríkjunum. Á þessum dögum fékk ég örlitla innsýn í ýmsa þætti í bandarísku þjóðlífi sem maður hefur ekki að staðaldri fyrir augunum. Ýmsir viðburðir sem að staðaldri eru í heimsfréttum þessa dagana fengu á sig skýrari, og í mínum huga skiljanlegri, mynd. Auðvitað er ekki hægt að alhæfa um stórþjóð á við Bandaríkjamenn...Annað, og nokkuð sem kom þægilega á óvart, var almennt umburðarlyndi sem ég þóttist verða var við hjá fólki...Auðvitað er himinn og haf á milli þess besta og versta í bandarískri fjölmiðlun. Athygli flestra Evrópumanna vekur þó að ég held, hve þröngur sjóndeildarhringur bandarískra ljósvakamiðla almennt er...Enda þótt bandarísk yfirvöld dýrki ofbeldið og upp um húsveggi margra stórbygginga sé að finna lofgjörð og ákall til hernaðarhyggjunnar koma önnur skilaboð sums staðar úr grasrótinni...Sú pólitíska umræða sem vakti athygli mína mest í Bandaríkjunum snerist um trúmál og vísindi...Um þessa þróun hefur nokkuð verið ritað. Mest áberandi er umræðan í vísindatímaritum, sértaklega Science, einuvirtasta vísindariti Bandaríkjanna, en í bandarískum blöðum er umræðan einnig áberandi...
...Talsmenn bandaríska sendiráðsins við Laufásveg myndu staðhæfa
við ykkur lesendur góðir eins og þeir hafa gert í mín eyru að
fjöldamorðin hafi verið til góðs, tilgangurinn hafi helgað meðalið.
Þetta er mottó hryðjuverkamanna og einnig hryðjuverkaríkja. Þau eru
tilbúin að myrða og tortíma ef það þjónar hagsmunum þeirra.
Bandaríkin eru hryðjuverkaríki. Bandaríkjastjórn byggir á
hugmyndafræði ofbeldis og framfylgir þeirri stefnu.
Bandaríkjastjórn segir ekki koma til greina að eyða sínum
kjarnorkuvopnum. Bandaríkjastjórn vill hafa þau upp í erminni og
geta notað þau til að hóta andstæðingum. Bandaríkjamenn standa hins
vegar fast á þeirri kröfu að...
... Enginn virðist tala fyrir friði heldur beinist orðræðan að því að kynda undir ófriðnum í Úkraínu og heimta meiri drápstól og blóð. Meira að segja viðist forysta Vinstri grænna fylkja sér í lið með mestu stríðshaukunum. Et ekki kominn tími til að mynda nýja friðarhreyfingu og standa fyrir framan alþingishúsið með kröfuspjöld og krefjast þess að ríkisstjórn beiti sér fyrir friðaviðræðum og hætti þessu stríðstali? Ef þessu heldur áfram eins og er gæti það ... Stefán Karlsson
Leiðtogahjörðin á liðinni stund lyftist á tá hver einasta Hrund þær sér útvöldu sitt ágæti töldu og heimsyfirráð vildu eftir fund. Höf. Pétur Hraunfjörð.
Skýrsluna hefði mátt skrifa betur til nánari skoðunar landinn hvetur þeir vinahóp töldu og ættmenni völdu í eftir á meðferð sjáum hvað setur. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.
... Nú hafnar eldflaug í Póllandi. Bandarísk yfirvöld eru að rannsaka hvort ekki sé öruggt að Rússar hafi skotið henni. Líklegt? Spyr sá sem ekki veit en grunar margt. Við erum í hættulegu kompaníi með stærstu auðhringum heims, þar á meðal hergagnaframleiðendum og handbendum þeirra. Ísland úr NATÓ HERINN BURT. Jóhannes Gr. Jónsson
Með glórulausari gerningum forsætisráðuneytisins er mál nr. 2/2023. Það er tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn „hatursorðræðu.“ Áætlunin, í sautján liðum, var birt í „samráðsgátt“ þann 4. janúar síðastliðinn. Næsta mál gæti heitið „Varnir gegn illsku heimsins“, eða „Aðgerðaráætlun gegn ranglæti heimsins.“ Í tillögunni gegn „hatrinu“ er þó viðurkennt að ...
„Nú vinnum við ætlunarverk NATO“, segir varnarmálaráðherra Úkraínu, Oleksiy Reznikov. Í viðtali í úkraínsku sjónvarpi 5. janúar sl. talaði hann um hvernig hernaður Úkraínuhers fellur að verkefnum NATO. Nánar sagði Reznikov: „Þeir skilja þetta alveg núna. Við sögðum þeim það áður og þeir brostu. En núna segja kollegar mínir, varnarmálaráðherrarnir, skýrt í ræðum sínum ...
Kaup Elon Musk á Twitter voru frágengin í október. Þau fóru fram af hans hálfu undir merkjum tjáningarefrelsis og „afnáms ritskoðunar“. Í íslenskum fjölmiðlum var okkur sagt að eigendaskiptin boðuðu að öllum líkindum stóraukna „hatursorðræðu“. Í desember sl. gerðist það svo að af hálfu nýrra eigenda var gefin, í nokkrum skömmtum, innsýn í innri tölvuskrár Twitter, og þar birtist mikið „ritskoðunarveldi“. Um það heyrum hins vegar lítið í fjölmiðlum ...
Það er útbreidd skoðun í þjóðfélaginu að fullveldi sé gamaldags. „Deilihagkerfið“ gengur út á samnýtingu hlutanna. Þar eru fá ef nokkur takmörk. Fólk telur að hægt sé að „deila fullveldi“ ríkja [sem er ekki hægt], það deilir bílum, tækjum, leigir fötin sem það stendur í, leigir hús og íbúðir (Airbnb) og fleira í þeim dúr. Fólk deilir jafnvel mökum og sambýlisfólki. Þessi þróun er ekki að öllu leyti neikvæð ...
Útbreidd trú er það að Evrópusambandið [ESB/Sambandið] sé sérstakt friðarbandalag og afar lýðræðislegt fyrirbæri. Hvorugt á við rök að styðjast. Enda þótt friður í Evrópu hafi upphaflega legið til grundvallar forvera Evrópusambandsins, þ.e. Kola-og stálbandalaginu, eftir síðari heimsstyrjöld, er fátt sem bendir til þess í dag að sambandið sé sérstakt friðarbandalag, í raun fjarri því ...
Því miður verður ekki sagt um frumvarp um vefverslun (netverslun) með áfengi sem fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu fram í fyrra að því hafi ekki fylgt nein hætta á aukinni neyslu. Sama gildir að öllum líkindum um frumvarp dómsmálaráðherra um sama efni sem væntanlegt var ...