Látum auga heimsins hvíla á Palestínu
Lengi hef ég ætlað að setja niður nokkur orð um Rachel
Corey. Hún var tuttugu og þriggja ára gömul þegar hún var
myrt af ísraelskum hermönnum. Morðið var framið á yfirvegaðan og
kaldrifjaðan hátt. Þessi unga stúlka, sem var einlægur friðarsinni,
vildi koma í veg fyrir að hús palestínskrar fjölskyldu yrði jafnað
við jörðu. Hún stóð í vegi fyrir jarðýtunni sem var notuð til þess
verknaðar. Fyrst var hent braki og jarðvegi yfir stúlkuna og þegar
hún féll til jarðar var ýtt yfir hana, handleggir og fótleggir
brotnuðu og höfuðkúpan brákaðist. Hún lést skömmu síðar. Þetta
gerðist 16. mars síðastliðinn.
Þessi atburður rifjast nú upp þegar frásagnir berast af ofsóknum á
hendur fólki úr sömu samtökum, (GIPP/ISM, Grassroots International
Protection for Palestinians/ International Solidarity Movement).
Þannig var ung bandarísk kona tekin til yfirheyrslu um síðustu
helgi. Hún starfaði að fréttamiðlun fyrir ISM. Konan lýsir ISM
samtökunum, Alþjóðlegu samstöðuhreyfingunni, sem friðarsinnum, sem
hvorki séu háðir Palestínumönnum né Ísraelsmönnum. Sjálf leggur hún
áherslu á að hún sé gyðingur. En í anda samtakanna sem hún
vinni fyrir vaki það eitt fyrir henni að stuðla að friði og efla
mannréttindi. ( meðfylgjandi er vefslóð ISM http://www.palsolidarity.org/
)
Eðlilegt er að spyrja hvers vegna þetta fólk sé slíkur þyrnir í
auga ísraelskra yfirvalda sem raun ber vitni. Skyldi það vera vegna
þess að það er auga heimsins; að það færir umheiminum sýn á það sem
er að gerast? Staðreyndin er sú að vitnin á staðnum eru
áhrifaríkust. Ég hvet fólk til að kynna sér skrifin á frábærri
heimasíðu félagsins Ísland-Palestína: www.palestina.is.
Þar gefur að líta mjög áhrifarík skrif fólks sem farið hefur á
vettvang og sjálft kynnst þeirri kúgun sem Palestínumenn eru
beittir.
Á þessari heimasíðu er til dæmis að finna grein eftir Evu
Líf Einarsdóttur frá 17. janúar s.l.. Þar segir m.a.:
"Því lengri tíma sem ég dvel hér, því meira er ég að
kynnast fólki, fólki sem er búið að upplifa hluti sem eru okkur svo
fjarlægir…maður hefur fylgst með atburðum í fjölmiðlum en þegar
maður er staddur hér þá finnst mér eins og ég sé virkilega að
skilja (og ekki) hvaða hörmungar eru í gangi …..Ímyndaðu þér að í
kringum alla Reykjavík séu eftirlitsstöðvar hermanna … að þú sem
býrð í Kópavogi mátt ekki fara að heimsækja ættingja þína í
Reykjavík.… að í fyrrasumar þurftir þú og fjölskyldan þín að híma
heima í 30 daga með lítinn sem engan mat, og að horfa á sjónvarpið
er engin dægrardvöl því það eina sem þú sérð eru myndir af fólki,
börnum sem þú jafnvel þekkir, dáið eða sært, því einhver hefur
ákveðið að útgöngubann ríki.… að þegar þú ferð í háskólann þarftu
að fara í gegnum eftirlitsstöð þar sem byssum er beint að þér úti
um allt, að sýna skilríki um hver þú ert og láttu þér ekki bregða
þótt þú verðir auðmýkt/ur á allan hátt af þessum hermönnum.… þú
þarft að fara út í búð, þú og maðurinn þinn með tveggja mánaða barn
og þið eruð stoppuð, úti er myrkur og hermennirnir segja manninum
að koma út og labba med þeim fyrir horn … þar afklæða their manninn
og láta hann liggja á jörðinni í 3-4 tíma … þú og barnið bíðið í
bílnum og vitið ekki neitt … og svo sleppa þeir honum, hlæjandi ……
að hermenn ráðist inn á heimili þar sem móðir og börn eru heima …
hermennirnir taka níu ára barn inn á klósett, setja það ofan í
baðkarið, sprauta köldu vatni yfir það um leið og byssum er beint
að höfði barnsins en þeir vilja vita hvar faðirinn er … sem barnið
veit ekki … hermennirnir fara síðan og segjast koma fljótlega aftur
og gera það sama … barnið getur lengi vel ekki talað eða gert sínar
klósettþarfir eftir þetta …Þetta er eitthvað sem á beinan eða
óbeinan hatt hefur hent fólkið sem ég bý hjá hér í Ramallah … þetta
sjáum við kannski ekki í sjónvarpinu en þetta er hræðilegt!
Ástandið er ekki gott … ekki neinsstaðar í Palestínu … og það
verður það ekki fyrr en þessum mannréttindabrotum, drápum og
viðbjóði linnir! Þótt ótrúlegt sé þá getur ein venjuleg manneskja
eins og ég gert mikið fyrir palestínska fólkið, það finn ég, við
úti í heimi gefum þeim von með okkar stuðningi og hann er hægt að
sýna með ýmsu móti."
Eftir morðið á Rachel Corey birtu foreldrar hennar bréf sem hún
sendi þeim eftir að hún var komin til Palestínu. Hún veltir upp
þeirri spurningu hvort börnin sem svipt hafi verið æsku sinni geti
fyrirgefið heiminum þegar það rennur upp fyrir þeim að þetta er á
ábyrgð okkar allra.: "I wonder if you can forgive the world for
all the years of your childhood spent existing--just existing-in
resistance to the constant stranglehold of the world´s fourth
largest military--backed by the world's only superpower--in it's
attempt to erase you from your home. That is something I
wonder about these children. I wonder what would happen if
they really knew."
Rachel Corey sagði í bréfi sínu til foreldranna að það yrði gefandi
fyrir heimabæ þeirra Olympíu í Washingtonríki að taka upp
vinabæjarsamband við bæ í Palestínu. Gæti þetta ekki átt
við um Reykjavík? Ég auglýsi eftir viðbrögðum við þessari
hugmynd.
Hér er að finna frásögn á ensku sem vitnað er til hér að
ofan: