Beint á leiđarkerfi vefsins

Umheimur

25. September 2010

ÍSLANDI TIL SÓMA!


Aldrei hefur mér ţótt eins vćnt um málflutning af Íslands hálfu á Allsherjarţingi Sameinuđu ţjóđanna og ţann sem Össur Skarphéđinsson, utanríkisráđherra, flutti nú í vikulokin....Hér var talađ tćpitungulaust og óttalaust um réttlćtismál án ţess ađ fá áđur stimpil ađ utan, ţađ mátti sjá úr mílufjarlćgđ - svo mikiđ ţykist ég vita um utanríkismál. Í Vinstrihreyfingunni grćnu frambođi erum viđ flest ósammála utanríkisráđherra um ESB en mannréttindakafla ţessarar rćđu hefđum viđ getađ flutt kinnrođalaust. Svo mikiđ veit ég. Össur tók upp mál ...

2. Ágúst 2010

VATNIĐ OG SŢ: MIKILVĆG TÍMAMÓT


Skýringar eru misvísandi á því hvers vegna mörg ríki, þar á meðal Ísland, hafi setið hjá við atkvæðagreiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum, um að tryggja vatn sem mannréttindi....Maude Barlow, hin þekkta kanadíska baráttukona, sem m.a. hefur gegnt ráðgjafastörfum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á sviði þessa málaflokks, segir samþykkt tillögunnar vera mikilvæg tímamót fyrir alla þá sem vilja réttlæti á þessu sviði ...Maude Barlow telur að ágreiningurinn sem fram kom við atkvæðagreiðsluna í eigi rót að rekja til mismunandi grundvallarafstöðu, annars vegar á afstöðu þeirra þjóða sem vilja telja vatn til almannagæða og mannréttinda og svo hinna sem vilja markaðsvæða vatnið...Þessi ólíka grundvallarafstaða hafi síðan ...

17. Febrúar 2010

FRÓĐLEGUR FUNDUR UM VENEZUELA


 Í morgun áttum við Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB stórfróðlegan fund með José Sojo, sendiherra Venezuela á Íslandi með (aðsetur í Osló), í höfuðstöðvum bandalagsins. Það er óneitanlega önnur mynd sem dregin er upp af gangi mála í þessu umtalaðasta ríki Suður- Ameríku en gert er að jafnaði í stærstu fjölmiðlum heims. Hvers vegna er Venezuela umtalað? Jú, vegna harðdrægni Hugos Chavez, forseta og stjórnar hans, í garð fjölþjóða-auðvaldsins sem fyrir stjórnartíð forsetans var að verða talsvert ágengt í að éta upp auðlindir landsmanna. Olíuiðnaðurinn í Venezuela hafði verið í þjóðareign frá miðjum áttunda áratugnum en í ...

29. Nóvember 2009

ŢAĐ ER HĆGT AĐ TRYGGJA MANNRÉTTINDI Í PALESTÍNU!


Erindi flutt í Norræna húsinu á samstöðudegi SÞ með palestínsku þjóðinni

...Hvernig skyldi maðurinn sem missti báða fætur sínar í árásinni á Gaza skilgreina hlutleysi, eða sjómaðurinn sem missti hönd sína í skotárás, maðurinn sem Hjálmtýr Heiðdal segir okkur frá? Eða öll hin, sem eiga um sárt að binda? Hvernig skyldi þeim verða við þegar Öryggisráð SÞ mun neita - að kröfu Bandaríkjastjórnar - að virða niðurstöður rannsóknarskýrslu Goldstone-nefndarinnar? Og hvað skyldi þeim þykja um hlutleysi Norðmanna eða værukærð íslenskra stjórnvalda? Þar er ég líka að tala um sjálfan mig...Engar patentlausnir eru til. En hitt er ljóst að heimurinn má ekki sofna. Og ef hann heldur vöku sinni mun sigur vinnast. Fólkinu í heiminum tókst á endanum að ...

28. Nóvember 2009

SÝNUM PALESTÍNUMÖNNUM SAMSTÖĐU


...Sunnudaginn 29. nóvember verður efnt til samstöðufundar með Palestínu. Fundurinn er haldinn í Norræna húsinu í Reykjavík og hefst hann klukkan 15. Gert er ráð fyrir að hann standi í klukkustund eða þar um bil. Þessi dagur er alþjóðlegur samstöðudagur og er haldinn að undirlagi Sameinuðu þjóðanna ár hvert. Það er nefnilega svo einsog margir vita að Sameinuðu þjóðirnar hafa margoft... en síðan mun Björn Thoroddsen og félagar í Guitar Islandicio flytja nokkur lög og Anna Tómasdóttir hjúkrunarnemi flytur erindi og sýnir myndir...

11. Október 2009

ÍSLAND Í ÚTLÖNDUM


Aldrei hef ég verið í eins mörgum viðtölum við erlenda fjölmiðla og á undanförnum dögum - í kjölfar afsagnar minnar úr ríkisstjórn. Þótt ýmsum áhugamönnum um átakalaus stjórnmál hafi ekki orðið svefnsamt vegna væringa sem tengjast afsögninni þá leyfi ég mér að fullyrða að viðtöl við íslenska stjórnmálamenn í erlendum fjölmiðlum eru málstað Íslands til góðs. Þannig get ég huggað mig við að ég kunni að hafa lagt eitthvað gott af mörkum undanfarna daga utan heilbrigðisráðuneytisins....Sem dæmi um vefmiðil sem milljónir heimsækja er vefmiðill breska útvarpsins BBC en þar birtist í dag grein þar sem m.a. er vísað í mín ummæli og Stefáns Ólafssonar, prófessors við Háskóla Íslands...

12. September 2009

RÉTTLĆTANLEGUR SAMANBURĐUR? SVAR: JÁ

Í morgun fékk ég senda í tölvupósti myndasyrpuna hér að neðan. Hún er áhrifarík. Annars vegar af ofsóknum á hendur gyðingum frá valdaskeiði Nasista og hins vegar af ofsóknum á hendur Palestínumönnum af hálfu Ísraela. Stundum er eins og við - flest hver -  höldum að ofbeldið og hinir raunverulegu glæpir gegn mannkyni séu fyrri tíma mál...

22. Júlí 2009

SKILABOĐ VERHAGENS

Verhagen - EU
...Undir það vil ég taka og bæta því við að tilraun til að tengja ríkisábyrgð vegna Iceave við aðildarumsókn Íslands að ESB er ósvífin og hlýtur að hringja varúðarbjöllum meðal Íslendinga. Reyndar fagna ég því að þessi afstaða hollensku ríkisstjórnarinnar skuli ekki liggja í þagnargildi. Það er mikilvægt fyrir okkur að vera vel upplýst um raunverulega afstöðu viðsemjenda okkar innan Evrópusambandsins nú þegar rætt er um aðild Íslands að sambandinu; að þar eru ekki bara viðhlæjendur á ferð, notalegt samstarfsfólk úr nefndastarfi í Brussel,  heldur harðsvíraðir hagsmunagæslumenn, vel verseraðir í utanríkispólitík nýlendutímans.    

15. Júní 2009

ŢÖRF LESNING FYRIR AGS, GYLFA OG BJARNA


Allsérstæð umræða hefur farið fram að undanförnu um samhengið á milli ofurvaxta Seðlabankans og niðurskuðrar á ríkisútgjöldum. Þannig hefur komið fram að fulltrúar Alþjóðagjaldeyrsissjóðsins hafa ákaft varað við vaxtalækkkunum og viljað áður að ríkissjórnin sannaði að hún væri "trúverðug" við að beita niðurskurðarsveðjunni. Undir þetta sjónarmið hefur formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, tekið og í síðustu viku einnig prófessor við Háskóla Íslands,  Gylfi Zoega. Fleiri hafa kvatt sér hljóðs til að tala fyrir þessari undarlegu hagfræðikenningu einsog ég hef vikið að hér á síðunni...Allt þetta samhengi hlutanna var til umræðu á nýafstöðnu þingi EPSU, European Public Servises Union, en það eru Evrópusamtök starfsfólks í almannaþjónustu. Þar kom fram sú einarða afstaða að efling almannaþjónustu væri lykilatrið við lausn efnahagskreppu. Á vefsíðu BSRB er...

3. Júní 2009

FRIĐFLYTJANDI HEIMSĆKIR ÍSLAND

Það var ánægjulegt að hitta Dalai Lama, friðarverðlaunahafa Nóbels og trúarleiðtoga Tíbeta að máli í heimsókn hans til Íslands. Í seinni tíð hefur athygli mín oft beinst að Tíbet. Það átti ekki síst við á síðasta ári þegar Ólympíuleikarnir voru haldnir í Kína. Þá gerðist tvennt í senn: Andófsöfl í Tíbet reyndu að vekja athygli á hlutskipti Tíbeta innan Kínverska Alþýðulýðveldisins og Kínaher reyndi af sama tilefni að bæla allt andóf niður. Hér á landi var efnt til mótmæla við kínverska sendiráðið í Reykjavík nokkra laugardaga í röð og hinn 24. ágúst var stofnað til sérstakrar menningar- og baráttuhátíðar í Salnum í Kópavogi af hálfu Vina Tíbets. Ég tók þátt í hvoru tveggja, mótmælunum við kínverska sendiráðið og fundinum í Salnum en þar flutti ég jafnframt ræðu. Á þetta minnti ég þegar ég var spurður...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLĆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIĐ VONBRIGĐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGĐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓĐ KVEĐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Umheimur

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta