Beint á leiđarkerfi vefsins

Stjórnmál

18. Apríl 2012

MANNRÉTTINDI HEIMA OG HEIMAN

Ommi og Guðbjartur
Birtist í Fréttablaðinu 17.04.12.
FrettablaðiðSamkvæmt Íslenskri orðabók eru mannréttindi „tiltekin grundvallarréttindi hverrar manneskju, óháð þjóðerni, kynþætti, kyni, trú og skoðunum". Mannréttindahugtakið hefur þróast í margar aldir. Fyrst um sinn náði það einkum utan um borgaraleg réttindi hins frjálsa manns, en ekki hinna sem voru ófrjálsir eða ófrjálsar. Í dag þætti fjarstæðukennt hér á landi að ætla aðeins sumum að njóta kosningaréttar, en ekki þarf að líta nema hundrað ár aftur í tímann til að sjá allt annan veruleika.

En hvernig er staða mannréttindahugtaksins á Íslandi í dag?

Á undanförnum misserum hefur verið unnið að því að greina aðkomu íslenskra stjórnvalda að mannréttindamálum hér innanlands og utan og gera hana markvissari í framkvæmd. Mannréttindi skipa nú sérstakan sess í innanríkisráðuneytinu en snerta engu að síður starfsemi allra ráðuneyta, beint og óbeint. Velferðarráðuneytið fer þar með sérlega mikilvægt hlutverk, enda er aðgengi að heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu samofið mannréttindahugtakinu eins og það hefur þróast. Mennta- og menningarmálaráðuneyti og utanríkisráðuneyti eru einnig þýðingarmikil í þessu sambandi og eiga þessi ráðuneyti öll ómetanlegt samstarf um mannréttindamál. Á þetta ekki síst við um mótun landsáætlunar í mannréttindamálum sem nú stendur yfir en markmiðið með henni er að mannréttindasjónarmið eigi að vera undirstaða allrar stefnumörkunar í samfélaginu og í verkum stjórnvalda.

Alþjóðlegt samstarf nauðyn


Mannréttindi eru bæði innlent og alþjóðlegt viðfangsefni. Frá stofnun hafa Sameinuðu þjóðirnar sett mannréttindi í öndvegi, enda var ljóst eftir seinni heimstyrjöld að alþjóðleg samstaða yrði að ríkja um virðingu fyrir mannréttindum. Með Mannréttindasáttmála Evrópu, sem samþykktur var um miðja síðustu öld, tóku ríki álfunnar höndum saman í von um að tryggja frið, frelsi og mannréttindi.
Starf  Evrópuráðsins er hornsteinn mannréttindamála í Evrópu og hefur Ísland tekið þátt í starfi ráðsins frá árinu 1950. Mannréttindasáttmálar Evrópuráðsins hafi haft veigamikla þýðingu fyrir þróun mannréttinda á Íslandi og er nýlegasta dæmið samningur Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun og misneytingu gegn börnum. Fullgilding hans stendur nú fyrir dyrum hér á landi og í undirbúningi er átak til vitundarvakningar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.
Eftir hrun hefur dregið úr formlegri aðkomu Íslands að starfi Evrópuráðsins en það er álitamál hve lengi skuli svo búið um hnúta. Mannréttindastarf Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins er mikilvægasta alþjóðlega samstarf sem Ísland tekur þátt í, enda hefur það bein áhrif hér heima sem og utan landsteinanna.

Athugasemdir mannréttindaráðs


Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sátu íslensk stjórnvöld nýverið fyrir svörum í svonefndu Universal Periodic Review (UPR). Þetta er ný tilhögun á vettvangi mannréttindaráðs SÞ sem er ætlað að varpa ljósi á það sem vel er gert í framkvæmd mannréttindamála en einnig að vekja athygli á því sem betur mætti fara. Eins og heitið gefur til kynna er áhersla á að skoðunin fari fram á jafningjagrundvelli ríkja. Ríkin beina tilmælum hvert til annars en umfjöllunarefnið hverju sinni er ástand mannréttindamála í því ríki sem situr fyrir svörum, ekki þeirra ríkja sem leggja fram tillögur.
Fyrirspurnir og tillögur annarra ríkja, sem settar voru fram í fyrirtöku Íslands, hafa verið aðgengilegar á vefsíðu mannréttindaráðsins um nokkurt skeið, auk þess sem gerð var grein fyrir þeim á vef innanríkisráðuneytisins og á opnum fundi í Hörpu þann 9. desember sl. Lokaskýrsla fyrirtektarinnar var tekin til samþykktar á fundi mannréttindaráðsins 15. mars sl.
Íslensk stjórnvöld fengu fjölmargar jákvæðar athugasemdir í UPR-ferlinu og er litið til Íslands sem fyrirmyndar á sumum sviðum. Fulltrúar í mannréttindaráðinu veittu meðal annars athygli aðgerðum íslenskra stjórnvalda til að vinna að jafnrétti kynjanna, aðgerðum gegn mansali og vændi, bættri löggjöf um hælisleitendur, auk þess sem Barnahúsinu var hrósað sérstaklega og stjórnvöld hvött til þess að vinna að útbreiðslu þess á alþjóðavettvangi svo eitthvað sé nefnt.
Eftir skoðun sérfræðinga stjórnsýslunnar samþykktu íslensk stjórnvöld ríflega 67 af þeim 84 athugasemdum sem settar voru fram eða lýstu því yfir að þær væru þegar komnar til framkvæmda. Um 12 athugasemdir verða teknar til skoðunar og kannað hvort ástæða sé til að verða við þeim.
Flestar athugasemdanna lutu að áhyggjum af stöðu útlendinga, kynbundnu ofbeldi og meðferð kynferðisbrota og heimilisofbeldismála, kynferðislegu ofbeldi gegn börnum, jafnrétti kynjanna og fangelsismálum. Einnig voru íslensk stjórnvöld hvött til að koma á laggirnar  innlendri mannréttindastofnun í samræmi við alþjóðleg viðmið og undirgangast ýmsar mannréttindaskuldbindingar.

Verk að vinna


Það er okkar mat að Íslendingar hafi verk að vinna í mannréttindamálum, bæði heima og heiman. Í því skyni þarf að efla framlag Íslands á því sviði. Ábendingar erlendis frá tökum við alvarlega, útskýrum okkar málstað ef með þarf og færum hlutina til betri eftir því sem við á. Ísland á í engu að vera eftirbátur annarra þjóða í mannréttindamálum.

Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

16. Maí 2013

BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN

... Teresa May innanríkisráðherra Breta hefur staðið í ströngu að koma dæmdum brottvísuðum öfgaklerki frá Bretlandi en hefur þó þar ríkisfang þar sem hann sé álíka hættulegur og Bin Laden. Þá bregðast dómarar við og dæma honum í vil slag í slag á öllum dómstigum að honum verði misþyrmt jafnvel þótt hann byggi í tjaldi á Gobi eyðimörkinni. Þetta hefur nú þegar kostað þá í málaferli yfir 600 milljónir punda fyrir utan að halda uppi fjölskyldu hans í luxusvillu í Mayfair hverfinu og ríflegum vasapeningum á meðan allt er skorið við nögl hjá heimamönnum. Frúin hefur gefið það út að ætli hæstiréttur landsins að ...
Þór Gunnlaugsson

16. Maí 2013

FRJÁLST FLĆĐI

...Örlítil hugvekja að allfögrum sunnudagsmorgni. Heyrði fyrir ekki all löngu að nú væri að opnast fyrir hið endanlega frjálsa flæði sem ekki hefur svo lítið verið dásamað í umæðu ESB unnenda. Bretar sem eru svo lánsamir að vera bara svona B- gaurar í ESB og hafa hafnað Schengen og Evru hafa gefið það sterkt út að þeir muni ekki flykkjast á Heathrow til að taka á móti þykkum hópum frá Búgaríu eða ég nefni nú ekkI Rúmenum sem einhverra hluta vegna virðist ekki meðal þeirra hjartfólgnustu heimsækjenda hins vestræna heims. Ekki mun okkar ...
Óskar K Guðmundsson fisksali

12. Maí 2013

ÝMIS SPJÓT

Jæja minn kæri nú er að standa sig sem aldrei fyrr, ýmis spjót eru aðstandandi en niðurstaða þeirra mála sem hæst bera þarf að vera í samræmi við þarfir okkar í samfélaginu.
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali

6. Maí 2013

GENGUR VONUM FRAMAR AĐ...

Okkur er sagt að vel gangi í viðræðum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknaflokksins um myndun ríkisstjórnar. Fundarstaðurinn var leynilegur. Það er táknrænt. En fjölmiðlar fundu út að fundað var í sumarbústað pabba annars þeirra Bjarna eða Sigmundar Davíðs við Þingvallavatn. Kannski líka táknrænt. Þeir standa einir í viðræðunum með ritara með sér. Táknrænt. Þetta er allt að...
Sunna Sara 

5. Maí 2013

NAUĐSYNLEGT AĐ RĆĐA OPNUM HUGA

Sæll Ögmundur og þakka vangaveltur þínar um úrslit kosninga. Ég sé ekki betur en þú bregðist við ákalli stuðningsmanna félagshyggjuflokka um að leiðtogarnir fari yfir stöðu mála og leiti skýringa á afhroðinu. Það er mikilvægt að það sé gert með opnum huga en ekki einvörðungu til að viðhalda því hugmyndakerfi sem kom mönnum í ógöngur til að byrja með. Ég vil þó bæta einu hráefni í uppskriftina sem ég tel vera uppistöðuna í þessu en þú virðist ekki sjá, e.t.v. vegna nálægðar þinnar við viðfangsefnið. Þar vísa ég til ...
H.P.

4. Maí 2013

Á AFTUR AĐ STELA ÍSLANDI?

Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara 

4. Maí 2013

ATHYGLISVERĐ MÁLSTOFA

...Þar sem mikið er um að vera í henni veröld og allir sem fást við stjórnmál eru önnum kafin, þá gefst ekki tími að njóta fróleiks og fræðslu. Málstofan sem ég vék að hér á síðu þinni í Landsbókasafni um Eirík bókavörð í Cambridge var ágæt. Þar sem eg tel efni hennar hafa verið áhugavert þá leyfi eg mér að senda þér niðurlagskaflann í erindi mínu sem flestir mættu skoða. Erindið fjallaði um ritskoðun sem Eiríkur var beittur og samskipti Eiríks og Skúla Thoroddsen. Las eg nýfundna heimild ...
Guðjón Jensson

4. Maí 2013

ŢAKKIR

Vildi bara lýsa yfir mikilli ánægju minni með gjörning þinn varðandi jarðakaup erlendra aðila á Íslandi. Takk fyrir.
Ísak Pétur Lárusson

2. Maí 2013

STÖĐVAĐU GRISJUN Í ÖSKJUHLÍĐ!

....Ef þú ert ábyrgur fyrir yfirvofandi grisjun í Öskjuhlíðinni þá verðuru að stöðva það. Þetta er út í hött! Geriru þér ekki grein fyrir mikilvægi skóga? Við ættum að eyða mun meiri orku og peningum í skógrækt. Við ættum að vera að kenna börnum samfélagsins að rækta. Eina gáfulega leiðin til framtíðar er ræktun skóga, matvara og annarra nytjaplantna. Börn þurfa að læra að rækta eigin mat. Við þurfum að sporna gegn veruleikafirringu barnanna okkar! Ekkert er mikilvægara en það sem vex, og þá á ég auðvitað ekki við ...
Konráð Bragason

2. Maí 2013

NÚ SKRÍĐA BRASKARA-ÖFLIN FRAM

Sæll Ögmundur, svona fór þetta þá, hvers vegna ríkisstjórnin lét ekki setja saman áróðurskver til að dreifa inn á hvert heimili í landinu, n.k. „Hvítri bók" hefði verið æskilegt. Leyfi ég mér að nefna gærdaginn „Svartasta dag íslenskrar stjórnmálasögu". Erfiðasta hlutverk nokkurrar ríkisstjórnar á Íslandi var sett undir mælistiku í þingkosningunum í gær. Furðulegt má það vera að tiltektarstarfið eftir frjálshyggjupartíð virðist einskis vera metið. Aldrei áður hefur nokkur ríkisstjórn á Íslandi orðið fyrir jafnmiklum erfiðleikum og ríkisstjórn Jóhönnu og fall hennar er mikið eftir óvægan áróður. Nú geta braskara- og spillingaröflin skriðið fram úr skúmaskotum sínum ...
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

3. Maí 2013

Helgi Guđmundsson skrifar: UM ORSÖK OG AFLEIĐINGU

...Las greiningu þína á kosningaúrslitunum á heimasíðunni, sem mér finnst um margt umhugsunarverð. Mörgu er ég sammála, enda þótt ég hafi ekki lagst í jafn djúpar pælingar og þú. Í öllu falli verður fróðlegt að sjá hverni SDG gengur að koma saman stjórn, og hvort hann velur að gera alvöru tilraun til vinstri. Mér fannst reyndar vanta hjá þér - og það skiptir miklu máli - að helmingur þjóðarinnar kaus ekki til hægri. Líklega meira en helmingur, því af gamalli reynslu veit ég að innan Framsóknar eru vinstri sinnuð öfl, sem í mörgum málum eru ...

25. Apríl 2013

EINAR ÁRNASON HAGFRĆĐINGUR: STÖĐVUM ÓSANNINDIN

Þannig jókst skattbyrði lægstu tekjuhópanna um 10 til 13,5% á þessum tíma en þáverandi stjórnvöld fullyrtu að þeir hefðu samt lækkað. Þessi aukna skattbyrði var vegna þess að skattleysismörk lækkuðu að raungildi þessi ár svo almenningur var að borga skatta af stærri hluta tekna sinna en áður... Sjálfstæðismennirnir sögðu ósatt allan tímann og Framsóknarmennirnir...

20. Apríl 2013

Einar Árnason skrifar: OPIĐ BRÉF TIL FORYSTU-MANNA FRAMSÓKNAR-FLOKKS OG SJÁLFSTĆĐIS-FLOKKS: SVAR ÓSKAST

...Hrunflokkarnir núverandi, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, lofa miklu? Hvar er innihaldið? Hvar er útfærslan? Er þetta ekki sama og með loforð helmingaskiptaflokkanna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, um einkavæðingu ríkisbankanna í dreifða eignaraðild sem vitað er að aldrei stóð til , þó því hafi verið logið að íslenskum almenningi í fjölda ára þ.e. um Landsbanka og KB banka. Þeir slógu það sjálfum sér eins og segir í ævisögu séra Árna Þórarinssonar um sýslumanninn og Sigurð svinakarl sem nöppuðu fé og jörðum frá Guðmundi dúllara. Í þessari helmingaskiptingu milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks greiddu þeir á víxl með lánsfé frá hinum ríkisbankanum.  Svik á víxl. Hvað skyldi forystumönnum...

Slóđin mín:

Stjórnmál

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta