Beint á leiđarkerfi vefsins

Stjórnmál

3. Janúar 2010

RÍKISSTJÓRNIN HEFUR EKKI LEYFI TIL AĐ FARA FRÁ!


Sú ríkisstjórn sem nú situr hefur að mínu mati ekki leyfi til að fara frá vegna Icesave málsins. Hvorki pólitískt né siðferðilega. Allar götur frá því undirritaður Icesave-samningur kom fyrir Alþingi síðastliðið vor hefur ríkisstjórnin sagt að hljóti hann ekki samþykki meirihluta þingsins segi stjórnin af sér.

Það var reyndar meira sagt. Í september fékk ég að heyra að ef ríkisstjórnin talaði ekki einum rómi í málinu þá myndi hún fara frá. Hvað gerði ég? Ég sagði af mér sem ráðherra í ríkisstjórn. Það gerði ég nauðugur. En hvers vegna? Til þess að koma í veg fyrir að ríkisstjórnin spryngi jafnframt því sem ég vildi mótmæla þeim vinnubrögðum sem leiddu okkur inn í það pólitíska öngstræti sem blasti við.

Ég hef alltaf litið svo á að þessi ríkisstjórn hafi ekki verið mynduð um tiltekna útgáfu af Icesave-samningi. Hún var mynduð til varnar og sóknar velferðarkerfinu í fyrirsjáanlegum efnahagsþrengingum. Mér fannst hvorki ég né nokkur annar hefði leyfi til annars en að reyna allt sem gerlegt væri til að hafa áhrif á niðurstöðuna í Icesave án þess að sprengja ríkisstjórnina. Ég hef það sterklega á tilfinningunni að þetta hafi einnig verið vilji yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar. Þverpólitískur vilji hennar. Jafnvel sjálfstæðismenn telja margir að sinn flokkur eigi að sinni ekki erindi í Stjórnarráðið. Barátta gegn Icesavesamningnum jafngildir EKKI baráttu gegn ríkisstjórninni, hvorki á meðal stjórnarliða né stjórnarandstæðinga.   

En hvað gerist nú? Eftir að málið kemur frá Alþingi liggja fyrir tugþúsundir undirskrifta um að samningurinn verði borinn undir þjóðina. VG hefur mjög eindregið talað fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu svo fremi sem tiltekið hlutfall kosningabærra manna sé því fylgjandi. Einmitt það er nú komið á daginn í þessu máli. Icesave er komið úr höndum Alþingis. Réttinn til að vísa málinu til þjóðarinnar hefur forseti lýðveldisins. Hann hefur undanfarna daga talað á lýðræðislegum og ábyrgum nótum. Í nýársávarpi sínu talar hann  um rétt þjóðarinnar. Hann vísar að sönnu til afleiðinga slíkrar ákvörðunar, að þær þurfi að hafa í huga. Að mínu mati verða að vera gríðarlega sterk rök fyrir því að hafna beiðni 55 þúsund kosningabærra manna - vel yfir 20%  - um þjóðaratkvæðagreiðslu; það þurfa að vera mjög afgerandi ástæður til að koma í veg fyrir að slík lýðræðisleg krafa nái fram að ganga. Sjálfur kem ég ekki auga á slík rök.

Nú heyrist á stöku stjórnarliða - félaga minna - að komi til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem málið yrði fellt þá félli ríkisstjórnin jafnframt. Þessu mótmæli ég harðlega. Hér er ekki talað fyrir mína hönd! Þeir sem svona mæla eru reiðubúnir að fórna vinstri stjórn vegna Icesave.

Ég vona að allir haldi ró sinni, horfi á málið af yfirvegun og spyrji sjálfa sig hvort sé mikilvægara, lýðræðið og félagslega þenkjandi ríkisstjórn eða sú útgáfa af Icesave sem nú liggur á borði forseta Íslands. Ég vona að menn geri sér grein fyrir því að það var norrænn velferðarfáni sem til stóð að hefja að húni í Stjórnarráði Íslands næstu fjögur árin. Það er enn verkefnið.


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

21. Febrúar 2012

VÍGSLÓĐI

...Mér finnst eftirfarandi línur í Vígslóða eftir Stephan G. Stephansson eiga vel við ástandið í Grikklandi núna:
Heimurinn sagður ofbirgur af öllu
öðru en gjaldi, sveltan stæði af nægtum.
Lánardrottnar heimsins hafa vitað,
hvað bjó undir stjórnarkápum ríkja:
Stærra veð í fjárhagsþrælkun fólksins
festa mætti, taka í skuldagísling
ófædd börn, til aldurloka jarðar
erfiðandi að gjalda vöxtu af lánum....
Jón Torfason

21. Febrúar 2012

ANNARS BER HENNI AĐ VÍKJA

Það verður að krefjast þess af stjórnvöldum strax að allar aðgerðir gegn heimilunum s.s. fjárnám, vörslusviptingar og gjaldþrotabeiðnir verði stöðvarðar undir eins. Tjónið sem stjórnvöld hafa valdið með þvi að gera þetta ekki nú þegar er gríðarlegt, og ekki eftir neinu að bíða. Þetta er algjörlega nauðsynlegt þar til það liggur fyrir 100% hvernig lánamálum skal háttað hér á landi, bæði varðandi ólöleg gengistryggð lán og verðtryggð íslensk lán. - sé Ríkisstjórnin ekki til í þetta undir eins ber henni að víkja og það strax.
Steinar Immanúel Sörensson

19. Febrúar 2012

ÍSLAND ÚR LOFTI

Setjum svo að við gætum flogið yfir Ísland og sett upp efnahagsgleraugu, svona einsog næturkíki, þá sæi maður eftirfarandi: 2000 milljarða í eigu almennings inni í girðingu sem heitir lífeyrissjóður; maður sæi ríkissjóð í eigu almennings sem skuldar 2000 milljarða; maður sæi 10-20 þúsund manns í atvinnuleysi; maður sæi heilsugæslu í niðurníðslu; maður sæi vegakerfi í ólestri. Fyrsta hugsunin væri auðvitað: Hvað veldur því að almenningur greiðir ekki upp skuldir sínar (helmingurinn af skuldum almennings er við sjálfan sig) með eignum sínum? Hvað veldur því að Alþingi ákveður ekki að...
Hreinn K

14. Febrúar 2012

STUTT AĐ LABBA?

Trúðu mér, að aldrei hef ég fallerað fyrir framsóknarmaddömunni, en maður er svo dannaður að maður hlustar einstaka sinnum eftir orðræðu maddömunnar. Sér í lagi eftir að Utanríkismálanefnd ESB sá ástæðu til að gefa úr sérstaka fagnaðar-yfirlýsingu um að Jón Bjarnason hefði verið hrakinn úr embætti landbúnaðar- og sjávarútvegsmála Íslands og fyrrverandi Icesave fjármálaráðherrann tekinn því djobbi. Nú Sigmundur maddama spurði bara pent: „Hvaða ástæðu hefur Evrópusambandið til að fagna sérstaklega þessum ráðherraskiptum? Á hvaða hátt verður ...
Jón Jón Jónsson

13. Febrúar 2012

GOTT AĐ HAFA ŢIG Í SKOTLÍNUNNI?

Ég hef fylgst með viðureign fréttastofu RÚV við þig Ögmundur og furða ég mig á fréttamennskunni um lífeyrismálin. Útgangspunktur fréttamanna RÚV ert nánast þú einn - einn maður - en ekki málefnið! Nú fer maður að skilja hrunið. Þessir fréttmiðlar fylgdu útrásinni gagnrýnislaust. Nú er sama gagnrýnisleysið uppi á teningnum. Bara breytt formerki. Aðdáun á einkaþotum víkur fyrir áhuga á galdrabrennum. Eins mikil og þörfin er að ræða lífeyrismálin gagnrýnið einsog...
BSRB félagi

13. Febrúar 2012

ŢJÓĐIN BLÓĐMJÓLKUĐ!

Ætlar Innanríkisráðherrann að standa við loforð um mannréttindi í hvívetna? Ásamt því að virða og heiðra álit Mannréttindanefndar SÞ? Og þar með að bæta þeim sjómönnum þau mannréttindabrot sem framin hafa verið? Ekki trúi ég að Innanríkisráðherrann óttist gengið í LJÚ? Að gefnu tilefni finnst mér rétt að árétta við Innanríkisráðherrann stórfelld lögbrot sem framin eru enn í dag, sem og undanfarna áratugi, allt frá setningu kvótalaganna 1984. Umboðssvik og ...
Birgir Rúnar Sæmundsson

13. Febrúar 2012

EKKI LÁTA KÚGAST

Láttu svikula fjölmiðla aldrei kúga þig Ögmundur....
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Stjórnmál

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta