Stjórnmál
2. Apríl 2008
....OG Í EINKAŢOTU

Í dag héldu oddvitar ríkisstjórnarflokkanna Geir H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar til Búkarest. Tilefnið er að sækja fund í hernaðarbandalaginu NATÓ. Almennt hélt ég að þau hefðu öðrum hnöppum að hneppa en sitja saman fundi um málefni NATÓ.
Enginn velkist í vafa um að íslenska þjóðarbúið stendur frammi fyrir alvarlegum erfiðleikum og mikilvægt er að skapa samstöðu um aðgerðir því til varnar. Í því samhengi horfir fólk ekki aðeins til þess sem ríkisstjórnin aðhefst, eða lætur hjá líða að aðhafast eftir atvikum, heldur er líka horft til merkjasendinga úr Stjórnarráðinu.
Á undanförnum árum hefur misskipting á Íslandi stóraukist. Til hefur orðið hópur auðmanna á sama tíma og kreppt hefur að þeim sem lakast standa. Lífsmáti milljarðamæringanna hefur borið þess vott að þeir gefi lítið fyrir íslenskt samfélag. Rauðvínsflösku opna þeir ekki hafi hún kostað minna en hundrað þúsund og ekki kemur þeim til hugar að ferðast öðruvísi en á einkaþotum. Einkaþoturnar er táknmynd óhófs og bílífis - fólks sem slitnað hefur úr tengslum við uppruna sinn.
Þess vegna hrekkur fólk í kút þegar það heyrir að tvímenningarnir Geir og Ingibjörg skuli ákveða að halda til NATÓ fundarins í Búkarest í einkaþotu ásamt fylgdarliði. Ég hef ekki trú á því að þetta séu skilaboð sem þjóðin kann að meta. En hún skilur þessi skilaboð. Þetta eru skilaboð um firringu og valdhroka.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson












