Beint á leiđarkerfi vefsins

Stjórnmál

15. Mars 2008

VG ÁLYKTAR - ÁSTA RANGFĆRIR


Í ályktun sem þingflokkur VG hefur sent frá sér er að finna alvarleg varnaðarorð í garð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, sem hrakið hefur æðstu stjórnendur Landspítalans úr starfi skýringarlaust: „Haldi ráðherra uppteknum hætti er engin spurning hvort hlýtur að víkja, ráðherrann eða þingræðið og heilbrigðiskerfið."
Í útvarpsþættinum Í vikulokin spurði Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, Ástu Möller, formann Heilbrigðisnefndar Alþingis, hvort nefndinni hefði verið kunnugt um að víkja ætti Magnúsi Péturssyni, forstjóra Landspítalans úr starfi og hvort það hefði verið rætt í ríkisstjórn. Athygli vakti að Ásta Möller, formaður Heilbrigðisnefndar kvaðst ekki getað svarað þessari spurningu!!!
Deginum ljósara er að brottvikning Magnúsar er af pólitískum toga, því allir ljúka lofsorði á hann sem óvenju hæfan embættismann.  „Glæpur" hans er að neita að gerast viljalaust verkfæri einkavæðingarráðherrans.  Að baki pólitískum ákvörðunum á að vera pólitísk ábyrgð. Þá ábyrgð neitar Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra, að axla. Í vikunni neitaði hann að taka við mig umræðu utan dagskrár um útboð á heilli spítaladeild á Landakoti en beiðni þar að lútandi hefur legið fyrir síðan 27. febrúar. Útboðsfresturinn rann út 13. mars og hafði ég fengið samþykki forseta Alþingis fyrir umræðunni og að hún færi fram fyrir páska-hlé. Þessu neitaði heilbrigðisráðherra hins vegar enda þótt hann væri til staðar í þinginu að mæla fyrir öðrum málum, þar á meðal að svara spurnigum frá flokkssystur sinni, Ástu Möller, um ágæti stefnu ríkisstjórnarinnar. Í fyrrnefndum útvarpsþætti hélt Ásta Möller því fram að ég hefði ekki lagt áherslu á að fá þessa umræðu. Það er rangt þótt ég hefði vissulega áður verið búin að forgangsraða annarri umræðu, sem einnig laut að heilbrigðismálum, þ.e. manneklu á dvalarheimilum aldraðra. Þeirri umræðu var beint til fjármálaráðherra sem ekki gat tekið hana vegna fjarveru frá þinginu. Ásta Möller ætti að kynna sér málin betur áður en hún fer fram á opinberum vettvangi með fullyrðingar sínar um samskipti mín við stjórn þingsins enda eru þær úr lausu lofti gripnar.
Þetta voru hins vegar ekki einu rangfærslur, þeirrar ágætu konu, Ástu Möller í þessum þætti. Eina ferðina enn fer hún með staðlausa stafi um hjúkrunarheimilið Sóltún, sem hún segir standa öðrum sambærilegum stofnunum framar. Hún neitar hins vegar að horfast í augu við hvers vegna skattgreiðendur borgi  MEIRA til þessar stofnunar en annarra. Samkvæmt úttekt Ríkisendurskoðunar er það vegna þess að eigendur Sóltúns, sem er hlutafélag, borga hluthöfunum arð. Sjálfstæðisflokkurinn tók þá pólitísku ákvörðun fyrir hönd okkar skattgreiðenda að einkavæða á okkar kostnað. Þessari staðreynd horfir Ásta Möller markvisst framhjá og afvegaleiðir þannig þá sem á mál hennar hlýða. Þennan herkostnað einkavæðingarinnar verður að ræða. Þetta er ástæðan fyrir því að bisnissmenn fagna einkavæðingunni. Enda til að þjóna hagsmunum þeirra.

Eftirfarandi  er ályktun þingflokks VG frá  í dag:

HEILBRIGÐISKERFIÐ Í UPPLAUSN - STJÓRNENDUR HRAKTIR ÚR STARFI - HEILBRIGÐISRÁHERRA NEITAR UMRÆÐU Á ALÞINGI - VG krefst þess að RÍKISSTJÓRNIN AXLI ÁBYRGÐ
"Þingflokkur VG lýsir þungum áhyggjum af ástandinu í heilbrigðiskerfinu og því upplausnarástandi sem þar er að skapast vegna framgöngu heilbrigðisráðherra í skjóli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Mikilvægustu heilbrigðisstofnunum landsmanna er haldið í fjárhagslegri spennitreyju, vinnuálag fer vaxandi á þegar undirmönnuðum deildum, vöktum er breytt í óþökk starfsfólks og nú er hafin handahófskennd einkavæðing einstakra þátta heilbrigðisstarfseminnar eða heilla deilda. Afleiðingar alls þessa birtast nú m.a. í hópuppsögnum sem að óbreyttu munu lama ómissandi kjarnastarfsemi í heilbrigðisþjónustunni. Að lokum gefast stjórnendur upp fullsaddir af skeytingarleysi heilbrigðisráðherra og hrokafullri framkomu. Alvarlegra er þegar þeir eru beinlínis hraktir úr starfi eins og nú hefur gerst með æðstu stjórnendur Landspítalans. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs mun ganga eftir því að upplýst verðu um það mál.
Á Alþingi brýtur heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, í blað og hreinlega neitar að standa fyrir máli sínu gagnvart því hinu sama þjóðþingi og hann sækir umboð sitt sem ráðherra til. Með því er brotin stjórnskipuleg grundvallarregla í þingræðisríki sem aldrei má láta líðast. Haldi ráðherra uppteknum hætti er engin spurning hvort hlýtur að víkja, ráðherrann eða þingræðið og heilbrigðiskerfið. Vinstrihreyfingin - grænt framboð mun ekki láta ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar komast þegjandi og hljóðalaust upp með að vinna óbætanleg skemmdarverk á heilbrigðiskerfinu og flæma þaðan burtu í stórum stíl mestu verðmæti þess, starfsfólkið. Heilbrigðiskerfið og mannauður þess er margfalt mikilvægara en einn hrokafullur ráðherra, það er dýrmætara en heil ríkisstjórn"

 

 

 


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Stjórnmál

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta