Stjórnmál
11. Febrúar 2008
BÍRĆFNI

Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, gekkst fyrir því að forsætisráðuneytið svaraði því hve miklum fjármunum hefði verið ráðstafað úr ríkissjóði á hálfu ári í aðdraganda síðustu kosninga, frá því í desemberbyrjun 2006 og fram að kosningum í maí vorið 2007. Skýrsla ráðuneytisins birtist í dag. Þar kom í ljós að á þessu tímabili var ráðstafað úr ríkissjóði litlum 14 milljörðum króna fram í tímann - fyrir utan yfirlýsingarnar og loforðin sem aldrei fóru á blað! Við höfðum sum á orði þegar þessu vatt fram að ráðuneytunum hefði verið breytt í kosningaskrifstofur ríkisstjórnarflokkanna. Þar væri útdeilt fjármunum ráðherrum og flokkum þeirra til framdráttar í kosningabaráttunni.
Hver man ekki eftir öllum borðaklippingunum, fréttamannafundunum og yfirlýsingunum á þingi?
Vinstrihreyfingin grænt framboð lagði í kjölfar kosninganna til að tekið verði fyrir svona ráðslag með lögum.
Óneitanlega gerist áleitin sú hugsun að siðleysi í íslenskum stjórnmálum kunni að vera meira en víða annars staðar. Hvað á annars að kalla það þegar stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar kaupa sig til áhrifa einsog þarna var gert? Þegar menn nota eigin sjóði til slíks er talað um mútur. En hvað ef notaðir eru okkar peningar, peningar skattgreiðenda til að slá ryki í augu okkar eigenda fjárins?! Spillingu? Ég held ég myndi kalla þetta bíræfni vegna þess að þeir sem höguðu sér með þessum hætti reiknuðu með því að komast upp með það gagnvart kjósendum. Mun það gerast aftur?
Í skýrslunni kemur fram hve ráðherrar færðust í aukana síðustu daga fyrir kosningar, lofuðu út og suður og hétu fjárveitingum langt fram í tímann. Hér er skýrslan: http://www.althingi.is/altext/135/s/0593.html
Frá lesendum
6. September 2010
AFTUR TIL MIĐALDA
aagnarsson
5. September 2010
ĆTLAR AĐ FYLGJAST MEĐ
Villi
5. September 2010
LÁTIĐ JÓN Í FRIĐI
Óskar K Guðmundsson fisksali
4. September 2010
LOKSINS
kveðja,
Ver
4. September 2010
UM BIĐLAUN OG LÍFEYRISKJÖR
Edda Ögmundsdóttir
31. Ágúst 2010
STEINHISSA
Sigurður Þórðarson
27. Ágúst 2010
LÝĐRĆĐIĐ LEYSIR ALLAN VANDA
Grímur
26. Ágúst 2010
ÁLIT ÚT OG SUĐUR
Hafsteinn
25. Ágúst 2010
HEFĐI ÁTT AĐ SPYRJA ŢJÓĐINA
Þór Gunnlaugsson
25. Ágúst 2010
VELJUM RÉTT HUGTÖK
Gísli Baldvinsson












