Stjórnmál
7. Febrúar 2008
UTANDAGSKRÁRUMRĆĐA Á ALŢINGI UM LĆKNARITARA

Þegar búið verður að rita inn utandagskrárumræðuna sem fram fór á Alþingi í dag um „útvistun" á störfum læknaritara mun ég setja inn slóðina HÉR. Umræðan var fróðleg um margt. Hún sýndi ákveðna pólitíska skiptingu á Alþingi. Annars vegar var Vinstrihreyfingin grænt framboð og Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sem tóku afstöðu með læknariturum, með persónuverndinni og með skattborgaranum. Hins vegar var svo einkarekstrarliðið, Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra að sjálfsögðu, Ágúst Ólafur, varaformaður Samfylkingarinnar , sem er óskaplega upptekinn af því að einkavæðing sé í lagi ef skattgreiðandinn borgar brúsann! Svo voru Frjálslyndir sem höfðu skilning á útvistun eða þannig. Óþægilegast þotti mér að hlusta á mína góðu vinkonu, Ástu R. Jóhannesdóttur, tala niður til læknaritara. Vélritunarstörf mætti vista hvar sem væri, verkefnið væri tímabundið, og að við hlutaðeigandi aðila, (les læknaritara) hefði verið rætt... allt rangar staðhæfingar og út í loftið. Finnst Samfylkingunni það kannski engu máli skipta þótt farið sé með fleipur? Er samviskan föl fyrir að fá að vera í stjórnarmeirihluta?

Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












