Stjórnmál
27. Maí 2007
HIĐ VALDSMANNSLEGA GÖNGULAG

Sumir hafa auga fyrir umgjörđ. Telja hana jafnvel skipta öllu máli. Innihald blikni í samanburđi viđ vel heppnađa leikmynd. Í ţví samhengi er nćstum brjóstumkennanlegar tilraunir forsvarsmanna Sjálfstćđisflokks og Samfylkingar ađ kenna nýja ríkisstjórn viđ Ţingvelli. Fréttamenn voru neyddir til ađ aka ţangađ í tíma og ótíma međan á fundum stóđ og dyggustu stuđningsmenn ríkisstjórnarinnar í fjölmiđlum tönnlast á hinni nýju Ţingvallastjórn. Ţetta er í og međ tilraun til ađ forđast ţađ heiti sem almenningur gaf stjórninni í upphafi, nefnilega Baugsstjórn.
Lesandi síđunnar vekur athygli á hinum sláandi líku töktum sem "okkar fólk" sýndi viđ kynningu á sjálfu sér og viđhöfđ er í Hvíta húsinu hjá Bush ţegar velţóknanlegir gestir hans eru látnir "taka ganginn" međ honum. Ég get tekiđ undir ţađ međ Stefáni ađ leikmyndin er áţekk og vissulega er göngulagiđ valdsmannslegt.
Eftrifarandi segir Stefán í bréfi sínu: "Ţegar Blair og Bush koma saman fram til ađ verja Íraksstríđiđ, svo dćmi sé tekiđ. Ţá taka ţeir ganginn, eins og sagt er í Ameríku, – ganga ákveđnum skrefum eftir rauđum dregli í takt og stilla sér svo upp viđ ţar til gerđ púlt í húsi, sem ber sama nafn og auglýsingastofa sem kom viđ sögu ţegar hugtakiđ “skítlegt eđli” heyrđist fyrst viđ Austurvöll fyrir sextán árum. Ţeir flytja stutt ávörp um lýđrćđislegar skyldur Vesturveldanna, nauđsyn innrásarinnar í Írak, eđa minnkandi barnadauđa ţar í landi, eđa tala jafnvel um umbótasinnađar ríkisstjórnir. Svo svara ţeir fyrirframgefnum spurningum og láta sig hverfa.
Allt er ţetta undirbúiđ, jafnvel göngulagiđ; og ţú segir ţetta, ţá segi ég ţetta, og svo fer ég í Kastljósiđ og ţú ferđ einn til Ólafs. Leikrit ţar og leikrit hér."
HÉR
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












