Stjórnmál
23. Maí 2007
MAGGIE AND TONY
Birtist í Fréttablaðinu 22.05.07.
Gætu menn ímyndað sér pólitískt hjónaband Margrétar Thatchers, fyrrum leiðtoga Íhaldsflokksins breska og forsætisráðherra Bretlands og Tony Blairs, leiðtoga breska Verkamannaflokksins og núverandi forsætisráðherra Bretlands? Við fyrstu sýn mundi slíkt ef til vill þykja fjarri lagi. Ég held þó að brúðarparinu hefði þótt þetta hinn besti ráðahagur. Hermt er að hin hægri sinnaða Thatcher hafi haft meira dálæti á Blair en flestum öðrum stjórnmálamönnum og langt umfram samherja sína í pólitíkinni, til dæmis eftirmann sinn á forsætisráðherrastóli, John Major. Enda varla að undra. Blair gekk að mörgu leyti harðar fram í "Thatcherisma" en Íhaldsflokkurinn gerði eftir hennar dag í pólitíkinni. Þá vísa ég almennt til stefnu í samfélagsmálum. Í stefnumótun um grunnþjónustu samfélagsins hefur Verkamannaflokkurinn í stjórnartíð Blairs gengið enn lengra en Íhaldsflokkurinn gerði með svokallaðri einkaframkvæmd (Private Finance Initiative). PFI gengur yfirleitt út á það að skattborgarinn borgar fyrir veitta velferðarþjónustu en einkaaðilar framkvæma – og maka krókinn. Skrif formanns Samfylkingarinnar um heilbrigðisþjónustuna í aðdraganda kosninganna og annarra Samfylkingarmanna áður, t.d. varaformanns þess flokks, ganga meira og minna út á þetta og falla því sem flís við rass að stefnu Sjálfstæðisflokksins um einkaframkvæmd í heilbrigðiskerfinu. Sú stefna var ítrekuð á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í vor. Góð tíðindi fyrir starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar? Eflaust hugsa einhverjir bisnissmenn á hvítum sloppum gott til glóðarinnar. Öðru gegnir um hinn almenna starfsmann, hvort sem um er að ræða lækni eða ræstitækni. Hinir síðarnefndu hafa reynsluna af "úthýsingu" með tilheyrandi réttindamissi! Fyrir notandann, sjúklinginn og fyrir velferðarsamfélagið bendir því miður allt til þess að fyrirkomulag af þessu tagi leiði ekki einvörðungu til mismununar heldur sé það einnig dýrara fyrir greiðandann. Þetta sýnir reynslan frá Bretlandi og víðar. En Thatcher og Blair höfðu engan áhuga á reynslunni - þau létu stjórnast af blindri hugmyndafræði. Því miður óttast ég að það geri þau líka, Geir Hilmar og Ingibjörg Sólrún.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson












