Stjórnmál
19. Maí 2007
GRÆNN FLOKKUR OG RAUÐUR

Laugardagsleiðari Morgunblaðsins er sérstakur fyrir ýmissa hluta sakir. Fyrir það fyrsta er þar agnúast út í Steingrím J. Sigfússon, formann Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og honum fundið flest til foráttu. Honum eiga að hafa verið mislagðar hendur umfram alla aðra formenn pólitískra flokka á síðustu vikum og beinlínis sagt að hann ætti að fara að hugsa sér til hreyfings úr formannssætinu.
Nú vill svo til að Vinstrihreyfingin grænt framboð vann meira á í nýafstöðnum kosningum en nokkur annar stjórnmálaflokkur og er í þeim skilningi sigurvegari kosninganna. Ef meta ætti formenn stjórnmálaflokka á mælikvarða árangurs þeirra í kosningunum ætti að óska Steingrími J. Sigfússyni sérstaklega til hamingju en ekki hnjóða í hann eins og leiðarahöfundur Morgunblaðsins gerir.
En það er annað sem leiðarahöfundurinn mælist til við okkur í VG. Hann vill að við hættum að leggja upp úr vinstri pólitík en gerumst þess í stað einvörðungu grænn flokkur. Það var jú heiti téðs leiðara: Grænn flokkur.
Vinstrihreyfingin grænt framboð er vissulega grænn umhverfisverndarflokkur sem samþættir sjálfbæra þróun allri sinni pólitík og stefnumótun. Hann er eini slíki flokkurinn á Alþingi og hefur svo verið allar götur frá 1999 þegar flokkurin var stofnaður. En VG er líka vinstrisinnaður velferðarflokkur sem leggur áherslu á jöfnuð og félagslegt réttlæti. Hann er því grænn flokkur og rauður.
Nú þegar Sjálfstæðisflokkur og Samfylking eru í þann mund að læsa sig saman – tveir markaðssinnaðir stjórnmálaflokkar – hefur þörfin á aðhaldi frá vinstri ekki verið meiri í langan tíma. Það er mín skoðun. Það er hins vegar ekki skoðun Morgunblaðsins. Morgunblaðið vill þvert á móti úthýsa vinstriáherslum úr íslenskri pólitík. Skyldi fólki almennt þykja það heppilegt í þjóðfélagi sem stefnir í misréttisátt að þagga niður alla gagnrýni á markaðshyggjuþjóðfélagið, að vísa út af pólitískum umræðuvettvangi lausnum sem byggja á samvinnu og samhjálp? Er þetta heppilegt í þjóðfélagi þar sem markaðshyggjuöfl eru að treysta völd sín og áhrif sem aldrei fyrr? Er það að mati Morgunblaðsins virkilega best fyrir íslenska þjóð að troða upp á hana markaðslausnum, jafnvel á þeim sviðum þar sem þær hafa gefið slæma raun? Bæði Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafa hugmyndir í þessa veru, t.d. hvað varðar heilbrigðiskerfið.Væri það gott fyrir lýðræðið að vinstri sinnað félagshyggjufólk ætti sér engan pólitískan farveg inn í Alþingi Íslendinga? Er þetta mjög lýðræðisleg hugsun hjá Morgunblaðinu? Sjálfum finnst mér hún hvorki vera vitræn né lýðræðisleg. Í reynd er hún nánast einfeldningsleg. Eða halda menn að vinstrisinnað fólk á Íslandi sé dautt úr öllum æðum? Það get ég fullvissað leiðarahöfund Morgunblaðsins og alla hans skoðanabræður um að ekkert er fjær sannleikanum.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur












