Stjórnmál
17. Maí 2007
ÞAÐ ER ENNÞÁ HÆGT!

Í dag slitnaði upp úr stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Áður hafði
ISG gefur í skyn að helst hefði hún viljað stjórn með VG og Framsókn. Því hefði VG hins vegar verið afhuga. Það er rétt að VG hefur bent á að erfiðleikar kynnu að skapast við myndun slíkrar stjórnar enda hefði Framsókn verið í forsvari fyrir þá málaflokka sem helst hefði steytt á undanfarin ár. Engu að síður hefur VG aldrei blásið slíkan valkost út af borðinu og hefur sá möguleiki því alltaf verið fyrir hendi.
Fyrirstaðan gegn því að á slíka stjórnarmyndun yrði látið reyna hefur fyrst og fremst verið sú að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn slitu ekki stjórnarsamstarfinu og gáfu til kynna áframhaldandi samstarf sín í milli. Umboðið fór því aldrei úr hendi Geirs H. Haarde.
Fyrir ISG væri nú hægur vandinn að láta reyna á samstarf VG, Framsóknar og Samfylkingar. VG hefur lýst vilja að láta reyna á samstarfsvilja þessara flokka. Þeir gætu allir lýst vilja sínum að svo yrði gert. Slíkur vilji hefur þegar komið fram af hálfu Framsóknarflokksins auk VG. Það væri dapulegt ef Samfylkingin vildi ekki láta reyna á slíkar könnunarviðræður. Þetta er enn þá hægt.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur












