Stjórnmál
4. Maí 2007
ÖRLAGARÍKAR KOSNINGAR

Ýmsir hafa haft á orði að kosningabaráttan hafi fram til þessa verið ósköp daufleg og muni að öllum líkindum verða það til enda. Þegar að er gáð kemur í ljós að það eru fyrst og fremst stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem halda þessu fram. Greinilegt er að þeir vilja láta líta svo út að hér sé allt í himnalagi og að kosningabaráttunni megi helst líkja við storm í vatnsglasi – svona annað veifið.
Veruleikinn er allt annar. Í hönd fara örlagaríkustu alþingiskosningar síðari tíma. Við stöndum nefnilega frammi fyrir afdrifaríkum ákvörðunum.
* Ætlum við að stefna áfram hraðbyri inn í amerískt misréttisþjóðfélag?
*Ætlum við að ryðja almennum atvinnurekstri úr vegi með því að greiða götu stóriðju með tilheyrandi þenslu og okurvöxtum?
* Ætlum við áfram að vera handbendi árásargjörnustu hervelda heimsins?
Þetta er rætt á vinnustöðunum í aðdraganda kosninganna. Yfir umræðunni þar hef ég ekki orðið var við neina lognmollu. Skiljanlega óttast ríkisstjórnarflokkarnir alla gagnrýna og vekjandi umræðu og vilja drepa henni á dreif – helst þegja hana í hel. Ríkisstjórnarflokkarnir vilja að þjóðin sofi af sér kosningarnar.
Það er lífsspursmál að örva umræðuna á lokasprettinum.
Ef við kjósum Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk yfir okkur eitt kjörtímabilið í viðbót mun það gerast að:
Einkavæðing heilbrigðiskerfisins verður hafin fyrir alvöru.
Orkugeirinn verður seldur og fákeppnisvæddur á kostnað neytenda.
Utanríkisstefna þjóðarinnar verður áfram Írakstefnan.
Viljum við samfellda Íhaldstjórn í tvo áratugi? Er ekki komið nóg? Stjórnarandstaðan á góða möguleika á að fella ríkisstjórnina og mynda nýja ríkisstjórn á ábyrgum félagslegum grunni. Þetta eru valkostirnir sem kjósendur standa frammi fyrir 12. maí.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson












