Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnmál

20. Apríl 2007

20 ÁRA ÓSLITIN VALDASETA – ÞAÐ MÁ EKKI VERÐA


Þau Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tóku sig prýðilega út í iðagrænni fjallsbrekkunni á nýafstöðnum landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Hönnuðir og leikstjórnendur landsfundarins höfðu greinilega unnið sína vinnu. Formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins birtust okkur sem einlægir náttúruverndarsinnar, fólk sem hafði verið vakið og sofið til verndar öllum þeim djásnum sem náttúru landsins prýðir. Auðvitað hefði það gefið raunsannari mynd af Sjálfstæðisflokknum og stefnu hans að hafa leikmyndina allt aðra. Til dæmis hefði hinn mikli stíflumúr Kárahnjúkavirkjunar sómt sér vel. Þar hefðum við verið minnt á unnin afrek og einnig hitt sem koma skal ef Sjálfstæðisflokkurinn verður áfram við stjórnvölinn. Geir og Þorgerður hefðu þá sennilega þurft að skipta út grárri dragt og gráum jakkafötum, ella hefðu þau horfið inn í múrinn sem hefði þó verið viðeigandi. Þau hefðu til dæmis getað snúið myndinni við og klætt sig aðeins út í grænt. Þó ekki væri nema til að sýna náttúruverndinni örlítinn virðingarvott. Það hefði verið heiðarlegra- eða hvað?

Það er hreint makalaust og með miklum ólíkindum hve vel Sjálfstæðisflokknum tekst að gefa af sér allt aðra mynd en þá sem á sér stoð í veruleikanum. Og ekki hjálpa fjölmiðlarnir mikið upp á - allt of margir láta gott heita að vera  mataðir á tilbúnum réttum. Hvernig stendur á því að við fáum til dæmis ekki gagnrýna umfjöllun um einkavæðingaráform flokksins í raforkugeiranum og þá í ljósi reynslunnar erlendis frá. Þykir mönnum það spennandi tilhugsun að Alcan eða Alcoa ættu Landsvirkjun og Hitaveitu Suðurnesja og versluðu síðan við sjálfa sig? Sjálfstæðisflokkurinn vill opna á þetta. Þetta er stórmál sem þarf að ræða.

Sjálfstæðisflokkurinn hótar því að einkavæða heilbrigðiskerfið. Lesandi þessarar síðu hefur farið betur í það mál en flestir ef ekki allir fjölmiðlar, sbr. HÉR. Sjálfstæðisflokkurinn segist vilja láta skattborgarann greiða fyrir hina einkavæddu heilbrigðisþjónustu. En ef það reynist miklu dýrara og er óhagkvæmara – á samt að einkavæða heilbrigðisþjónustuna? Þetta er stórmál sem þarf að ræða.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú setið að völdum í 16 ár samfleytt. Framsóknarflokkurinn hefur setið við kjötkatlana – þannig er stjórnarsetu þess flokks best lýst – í 12 ár. Vill þjóðin meira? Vilja menn enn eitt kjörtímabilið? Vilja menn 20 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins? Væri það hollt fyrir lýðræðið í landinu? Væri það hollt fyrir íslenskt samfélag? Skoðanakannanir að undanförnu gefa þær hrikalegu vísbendingar að ríkisstjórnin kunni að halda velli. Með enn sterkari Sjálfstæðisflokki en veikari Framsókn – nánast komin í göngugrindina svo gripið sé til orðfæris lesenda hér á síðunni. Hvers konar ríkisstjórn yrði þetta? Enn grimmara Íhald, Framsókn með enn slakari sjálfsmynd. Þetta er stórmál sem þarf að ræða.

Getur verið að kjósendur hafi ekki fengið nóg af Íraksstríðum, öryrkjadómum, svikum við fatlaða og aldraða, misrétti og misskiptingu að ógleymdri einkavinaspillingunni? Ég held að meirihluti þjóðarinnar sé búinn að fá nóg. Búinn að fá sig fullsaddan af stjórn þessara flokka – alla vega að sinni. Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur talað mjög skýrt um stjórnarmynstur á komandi kjörtímabili. Hún hefur beint því til þjóðarinnar að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn út úr Stjórnarráðinu og opna dyrnar fyrir stjórnarandstöðunni. Ég er sannfærður um að það yrði okkar samfélagi fyrir bestu. Okkur tækist betur að jafna kjörin, tryggja jafnrétti, stuðla að stöðugleika í efnahagslífinu, þyrma náttúrunni og færa okkur reisn á alþjóðavettvangi.

Þetta er hægt. Það er hins vegar ekki hægt - það gengur ekki – að Sjálfstæðisflokkurinn stjórni landinu í samfleytt 20 ár. Hversu hlýjar taugar sem menn kunna að hafa til Sjálfstæðisflokksins þá hljóta menn að íhuga hvort tveggja áratuga valdaseta – þar sem flokkurinn hefur verið nánast einráður – sé heillavænleg fyrir þjóðina og þess vegna einnig Sjálfstæðisflokkinn. Nú stefnir í að flokkurinn sitji enn lengur og verði enn einráðari en nokkru sinni fyrr. Það má ekki verða!

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Stjórnmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta