Stjórnmál
18. Apríl 2007
TRYGGJUM GUÐFRÍÐI LILJU GRÉTARSDÓTTUR ÞINGSÆTI !
Í dag var birt á Stöð 2 skoðanakönnum úr Suðvestur-kjördæmi, Kraganum svokallaða. Samkvæmt könnuninni fengi Vinstrihreyfingin grænt framboð 17,4% atkvæða og tvö þingsæti í kjördæminu. Þetta væri þreföldun á fylgi frá kosningunum 2003! Annar þingmaður VG á framboðslistanum stæði engu að síður naumt sem kjördæmakjörinn þingmaður. Minna mætti fylgið ekki vera til að hin galvaska skákdrottning Íslands, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, næði kjöri. Hún yrði að mínu mati einhver öflugasti nýliðinn á Alþingi – og ekki aðeins nýliði, einhver öflugasti þingmaðurinn - ef svo færi að hún næði kjöri. Guðfríður Lilja yrði kröftugur merkisberi velferðar, jafnaðar og kvenfrelsistefnu, sjálfbærrar atvinnu- og umhverfisstefnu auk þess sem hún er einstaklega vel að sér í alþjóðamálum. Þess vegna segi ég af mikilli sannfæringu: Tryggjum Guðfríði Lilju öruggt þingsæti í kosningunum 12. maí. Það verður enginn svikinn af þeirri skörulegu konu!
Sjá þátt á Stöð 2 HÉR
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur












