Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnmál

5. Apríl 2007

KOSNINGABARÁTTA AÐ KOMAST Á FULLAN DAMP !

Augljóst er að málflutningur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fellur í góðan jarðveg hjá þjóðinni. Skoðanakannanir gefa til kynna að VG hafi byr í seglin. Þar sem fulltrúar VG fara er þeim almennt mjög vel tekið. Ástæðurnar eru augljósar.

* Fólk er búið að fá nóg af misréttisstefnu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem biritst í hyldjúpri gjá sem myndast hefur á milli efnafólks annars vegar og lágtekju- og millitekjuhópa hins vegar. Fólk veit að VG er það stjórnmálaafl sem er líklegast að takast á við misréttismeinið.

* Fólk er búið að fá nóg af undirgefni við herveldi heimsins, sérstaklega Bandaríkin. Fáir geta fyrirgefið að forystumenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks skyldu fallast á að Ísland var sett á lista hinna staðföstu stríðsþjóða – hörðustu stuðningsþjóða Bush og Blairs í Íraksinnrásinni. Fólk veit að VG er það stjórnmálalafl sem er líklegast að halda uppi fána sjálfstæðis og réttlætis og beita góðri dómgreind á alþjóðavettvangi.

* Fólk er búið að fá nóg af glórulausri stóriðjustefnu sem ryður annarri atvinnustarfsemi burt – veldur þenslu í atvinnulífinu, keyrir upp vextina og eyðileggur landið. Fólk veit að VG mun standa í fæturna gegn stóriðju og náttúruspjöllum og hefur sett fram markvissa atvinnustefnu sem byggir á fjölbreytni.

Átakanlegt er að fylgjast með tilburðum ráðherra ríkisstjórnarinnar sem nú boða hvern fréttamannafundinn á fætur öðrum til að kynna þjóðinni stefnu sína inn í framtíðina. Með þessu móti vilja ráðherrar drepa á dreif gagnrýni á það sem liðið er auk þess sem þeir nýta ráðuneytin sem kosningaskrifstofur á síðustu metrunum.  Þannig heyrðum við frá okkar ágæta félagsmálaráðherra Magnúsi Stefánssyni að hann vilji herða mjög á jafnréttislöggjöfinni. Nú er staðreyndin sú að á borðum þingmanna fyrir þinglokin lá fullskapað frumvarp sem unnið hafði verið af þverpólitískri nefnd. Stjórnarandstaðan bauðst til að samþykkja frumvarpið en ríkisstjórnin heyktist á því. Frumvarpið var í góðu samræmi við áherslur VG um kvenfrelsi. Mér hefði fundist smekklegra af Magnúsi ráðherra að segja frá þessum áherslum annars staðar en úr dyragætt Stjórnarráðsins þaðan sem hann er á förum. Svo bregður nú við að Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, sem árvisst hefur skorið niður vegaframkvæmdir frá áður kynntum loforðum, útdeilir nú án afláts loforðum, einnig úr dyrum Stjórnarráðsins. Ráðherra virðist brátt um að koma verkefnum í hendur verktakavina sinna áður en hann hverfur úr húsi!

Allt þetta og meira til mun koma til umfjöllunar og umræðu í kosningabaráttunni sem nú er að komast á fullan damp. Þar stendur í stafni okkar vinstri grænna á þéttbýlissvæðinu á suð-vesturhorninu, Suðvestur-kjördæmi (Kraganum) og Reykjavíkurkjördæmunum tveimur, Svandís Svavarsdóttir ásamt góðu liði sem skipuleggur okkur frambjóðendurna af hugviti og röggsemi. Svandís er oddviti VG í Reykjavík sem kunnugt er og átti drjúgan þátt í kosningasigri flokksins í bæjarstjórnarkosningunum fyrir ári.
Ekki kvíðum við þeim tíma sem nú fer í hönd undir verkstjórn Svandísar og félaga. Ég man aldrei til þess að hafa tekið þátt í kosningabaráttu þar sem eins margir leggja hönd á plóg og þar sem eins margir frambjóðendur láta til sín taka í greinarskrifum og á fundum og einmitt nú. Þetta er til marks um hve öflugri og breiðri sveit Vinstrihreyfingin grænt framboð teflir fram í þessum kosningum. Ég trúi því að fái VG stóraukinn styrk í þessum þingkosningum muni okkur takast að gera Ísland betra á næstu fjórum árum. Við sem erum í framboði fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð erum alla vega tilbúin að gera okkar besta til að svo geti orðið.


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Stjórnmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta