Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnmál

15. Mars 2007

UM HUGTAKANOTKUN OG AUÐMANNAÓTTA Í ELDHÚSI ALÞINGIS


Gott kvöld, góðir landsmenn.

Tíminn er afstæður. Tólf ár eru ekki langur tími í sögu þjóðar. 12 ára stjórnarseta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er hins vegar langur tími - alltof langur tími! Vissulega hefur ýmsu þokað fram á við á þessum þremur kjörtímabilum – í sumum tilvikum fyrir tilstilli stjórnvalda – oftar þó þrátt fyrir þau.

Staðreyndin er nefnilega sú að á undanförnum áratug höfum við notið góðs af alþjóðlegri uppsveiflu. Svo samtengt og næmt er hið alþjóðlega hagkerfi að sveiflurnar ríða nú yfir heiminn allan nær samtímis en eru ekki einskorðaðar við einstök lönd og svæði í þeim mæli sem áður var.
Mín kynslóð og þaðan af eldri kynslóðir þekkja hagsveiflurnar – hæðirnar og hinar óvægnu lægðir.
Undir lok níunda og í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar var lægð, samdráttur með fjöldaatvinnuleysi um nánast allan hinn iðnvædda heim – af þessu fóru Íslendingar ekki varhluta. Í ofanálag geisaði hér óðaverðbólga. En okkur tókst með sameiginlegu og samstilltu átaki verkalýðssamtaka, atvinnurekenda og félagslega þenkjandi stjórnvalda að ná tökum á verðbólgunni og afstýra efnahagslegri kollsteypu. Kjörorðið var jöfnuður og samtakamáttur, allir skyldu leggjast á árarnar enda gengið út frá því að allir væru á sama bátnum.  Talað var um þjóðarsátt af þessu tilefni enda lagður grunnur að framförum og uppbyggingu þjóðfélagsins.

Á tíunda áratugnum urðu stjórnarskipti og var þjóðarskútunni nú stýrt til hægri. Minni áhersla var lögð á jöfnuð og sanngjörn skipti og því miður tókst þeim ríkisstjórnum sem fóru með völdin á þeim árum sem nú fóru  í hönd undir forystu Sjálfstæðisflokksins ekki að spila þannig úr kortunum að allir þjóðfélagshópar gætu vel við unað. Þrátt fyrir efnahagslegan meðbyr voru nú stórir hópar hreinlega skildir eftir – hafðir útundan. Það er ömurlegt til þess að hugsa að á tímum efnahagslegs uppgangs skuli fátækt vera við lýði í okkar samfélagi. Það er dapurleg niðurstaða 12 ára valdasetu Framsóknarflokks og 16 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins.

Það þarf sterk bein til að takast á við samdrátt í efnahagslífinu, það þarf líka - og kannski ekki síður - sterk bein til að þola uppgang og þenslu. Þá skiptir máli að halda höfði – fara með gát, ætla sér hvorki of né van.

Þetta hafa ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ekki kunnað. Hér hefur verið spennt og þanið til hins ítrasta án tillits til aðstæðna. Allt skyldi gert á sama tíma og með öfgafullu offorsi. Stóriðjustefnuna þekkja menn. Það er langur vegur frá því að reisa eina eða tvær álverksmiðjur í landinu og  að gera álframleiðslu að uppistöðuatvinnuvegi á Íslandi. Þetta er enn fráleitara nú þegar hægt er að sýna fram á með útreikningum að virðisaukinn af álframleiðslu er hlutfallslega minni en af flestum öðrum atvinnuvegum, fórnarkostnaður náttúrunnar ómældur og ruðningsáhrifin gagnvart öðrum atvinnurekstri gífurleg! Því meira ál, þeim mun minna af annarri atvinnustarfsemi.

Góðir landsmenn.
Verkefnið framundan er að tryggja að allir fái sinn réttmæta skerf og að kaupmáttaraukning verði varanleg og vaxandi. Kaupmáttur verður að vera raunverulegur og byggður á vel reknu þjóðfélagi og vel reknum fyrirtækjum, en ekki einvörðungu byggður á lánsfé. Það var hér áður fyrr kallað að byggja hús sitt á sandi.

Nú í aðdraganda kosninga er mörgum mikið niðri fyrir. Verið er að endurskilgreina hugtök einsog frjálslyndi og íhaldssemi, öfgar og hófsemi. Mér hefur sýnst að það sé tilhneiging til að snúa hefðbundinni merkingu þessara orða á hvolf. Vinstri Græn hafa staðfastlega talað fyrir hófsemi og gætni í efnhagsmálum. En – og eru það sérstaklega Framsóknarmenn sem kalla einmitt þetta öfgar. Þeir sem ekki vilja leggja allt undir strax og undireins og fara hratt í fjárfestingar, hvort sem er í stóriðju eða á fjármálamarkaði eru kallaðir íhaldsmenn. Áhættufíklarnir er hins vegar kallaðir raunsæismenn! Þetta er slæm þróun. Allt of mikið af þeirri áhættu sem íslenskt þjóðfélag er að taka alltof hratt er á ábyrgð ríkisins og þjóðarinnar allrar. Þetta gildir um virkjanir og stóriðju og þetta gildir líka um banka og fjármálastarfsemi.

Vinstri Græn eru að því leyti íhaldssöm að þau vilja að fyrirtækin í landinu standi í samkeppnisrekstri en samfélagið sjái um rekstur þeirrar þjónustu sem ekki er fallin til samkeppni. Við viljum halda sköttum hóflegum en réttlátum, þannig að engum séu gefnir eftir skattar af ótta við að þeir fari burt í fússi.

Stefna Sjálfstæðismanna og Framsóknar mótast af fjandskap við samfélagsrekna þjónustu en um leið af óhóflegum ríkisafskiptum. Síðan er það auðmannaóttinn. Framsókn og Sjálfstæðisflokkur láta stjórnast af auðmannaótta. Auðmannaótta gætir vissulega í fleiri stjórnmálaflokkum. En óttinn er ekki góður ráðgjafi og afskiptasemi er ekki góður stjórnunarmáti.  Hlutverk stjórnvalda er að reyna að jafna sveifur, tryggja réttlæti, jafnvægi í efnahagslífi og gæta þess að innra stoðkerfi þjóðfélagsins virki. Við horfum núna á stjórn sem einkennist af ótta við þá sem þarf að hafa hömlur á, óðagot í ákvörðunum sem varða grundvöll ríkisins, stefnuleysi í umhverfismálum, undirgefni, hégóma og bruðl í utanríkismálum, óheiðarleika gagnvart eldri kynslóðinni og svik gagnvart öryrkjum. Það þarf sterka þjóð til að bera slíka ríkisstjórn á bakinu!

Vinstri Græn vilja tryggja að fjórhjólajeppi Landsvirkjunar spóli ekki upp öllu íslenska hálendinu, að einstaklingum séu sköpuð skilyrði til atvinnureksturs, meðal annars með eðlilegum vöxtum og lánskjörum, einfaldari starfsreglum og vel rekinni og öflugri samfélagsþjónustu. Við viljum að eldri kynslóðin geti átt góð efri ár. Við viljum kvenfrelsi, jafnrétti milli kynja og stétta og landshluta. Þetta er í hnotskurn meint öfgastefna Vinstri Grænna.

Veruleikinn er að sjálfsögðu sá að við viljum hófsemi í nýtingu náttúruauðlinda í stað rányrkju, frjálslyndi í markaðs- og atvinnumálum í stað einokunar og fákeppni, róttækni í bættri umönnun ungra og aldinna í stað stöðnunar, - og varfærni og íhaldssemi í ríkisfjármálum og þegar kemur að varðveislu menningarverðmæta og íslenskrar tungu.

Þessi ríkisstjórn hefur tekið að sér að gefa græðginni að éta. Það er til marks um hennar hófsemi og hennar skynsemi. En græðgin verður aldrei södd einsog kunnugt er.
Góðir landsmenn.
Er ekki rétt að vísa henni aftast í röðina næstu fjögur árin og kalla á hófsemina. Hún hefur meira vit á mat og næringu og leyfir öðrum að njóta með sér.

Umræðan er HÉR 


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Stjórnmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta