Stjórnmál
9. Febrúar 2007
"AUKA FJÁRFRAMLÖGIN...Á NĆSTU ÁRUM"

Á Alţingi var nýlega bent á ađ ráđuneytin vćru smám saman ađ taka á sig mynd kosningaáróđursstofa (sjá HÉR og HÉR). Ráđherrar klippa á borđa, birta skýrslur og áróđursbćklinga eins og Siv Friđleifsdóttir gerđi ekki alls fyrir löngu, fjármagnađan međ peningum úr Framkvćmdasjóđi aldrađra! Stormur í vatnsglasi, sagđi ráđherrann ţegar ađ ţessu var fundiđ. Ţorgerđur Katrín, menntamálaráđherra bođar nýja tíma međ stórkostlegum fjárframlögum ...á nćstu árum.
Í fyrrgreindum umrćđum á dögunum um ţetta efni sagđi ég ađ vel kćmi til greina ađ mínu mati ađ sett yrđu ákvćđi í lög sem meinuđu ráđherrum ađ gefa á síđustu metrum kjörtímabils yfirlýsingar um fjárhagslegar skuldbindingar ríkissjóđs fram í tímann, fram á nćsta - jafnvel nćstu - kjörtímabil. Ţađ á ekki ađ líđast ađ nota ríkissjóđ til ađ kaupa sér atkvćđi. Ţetta er verra fyrir ţá sök ađ ríkisstjórnarflokkarnir hafa ítrekađ leikiđ ţennan leik áđur og síđan svikiđ fyrirheit sín ađ kosningum loknum.
Í dag lögđu ţćr saman menntamálaráđherrann og utanríkisráđherrann. Ţćr Ţorgerđur Katrín og Valgerđur sendu á alla fjölmiđla mynd af sjálfum sér ásamt međfylgjandi texta:
"Valgerđur Sverrisdóttir utanríkisráđherra og Ţorgerđur Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráđherra undirrituđu í dag samkomulag um samstarf ráđuneytanna á sviđi menningarmála. Samkomulagiđ felur ţađ í sér, ađ samstarf ráđuneytanna á ţessu sviđi skuli styrkt. Jafnframt skal mörkuđ stefna sem međal annars taki miđ af ţví ađ efla áhuga erlendis á íslenskri list og menningu, auka möguleika og áhrif íslenskra listamanna á alţjóđlegum vettvangi, bćta menningarímynd Íslands og auka gagnkvćm menningarsamskipti viđ önnur lönd og menningarsvćđi.
Ráđuneytin munu á yfirstandandi ári hvort um sig leggja fé af mörkum til ţessa. Stefnt er ađ ţví ađ auka fjárframlögin í áföngum á nćstu árum."
Já, ţađ var nefnilega ţađ, fjárframlögin koma ađallega á nćstu árum. En myndin er ágćt.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












