Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnmál

1. Desember 2006

HVER KEMUR TIL MEÐ AÐ ANNAST HANNES HÓLMSTEIN?

Birtist í Fréttablaðinu 30.12.06.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson spyr í Fréttablaðsgrein 10. nóvember síðastliðinn hvort Rousseau sé kominn í stað Marx í stjórnmál samtímans, rómantíkerinn í stað efnishyggjumannsins. Báðir fá þeir Rousseau og Marx slæma einkunn hjá háskólaprófessornum þótt hann virðist kunna betur á bókhaldið en tilfinningarnar og eigi þar af leiðandi auðveldara með að skilja efnishyggjumanninn Marx.
Hannesi Hólmsteini er nokkur vorkunn. Við lifum á tíma græðginnar. Öll andmæli heita öfund, öll gagnrýni heitir að vera á móti! Annnað hvort sem kommúnisti eða sem rómantíker. Þess vegna vísan í Rousseau og Marx. Sá hópur fólks sem vill andæfa lífi í græðgi hefur í dag “rangt fyrir sér”. Þetta er samkvæmt boðendum fagnaðarerindis óheftrar frjálshyggju “röng lífsskoðun”. Getur lífsskoðun nokkurn tímann verið „röng“? Þegar allt kemur til alls snýst málið um hvernig lífi við viljum lifa. Um einmitt það snýst lífsskoðunin. Gryfjan sem frjálshyggjumenn falla í er sú, að þeir ganga út frá því að við lifum á brauði einu saman. Að framfarir séu eingöngu efnahagslegar. Að lífshamingju sé aðeins hægt að mæla í gulli. Ef við viljum lifa í gleði og sæmilegum jöfnuði, viljum gæta fjölskyldu okkar, hafa tíma fyrir börnin okkar, þá segja hinir sókndjörfu forystumenn græðginnar: Við höfum ekki tíma fyrir þetta. Á sama hátt og lærisveinar Jesú æmtu þegar hann bað þá að yfirgefa allt og fylgja honum. En herra, sögðu þeir, við viljum hlú að foreldrum okkar og fjölskyldu, við getum ekki yfirgefið allt og alla. Þá sagði meistarinn: Það er meira virði að boða fagnaðarerindið, allir sem það geta eiga að ganga með mér, þeir sem ekki geta það eru hvort eð er dauðir. Látum hina dauðu grafa hina dauðu. Og það er þetta sem frjálshyggjumenn segja við málsvara hófsemi og mannræktar. Við þá sem vilja fara varlega í nýtingu auðlinda. Við þá sem vilja ekki bíða með að sinna öldruðum, þangað til lífeyrissjóðirnir eru orðnir nógu stórir. Við þá sem trúa ekki á sæluríki sem ávallt kemur seinna. Frjálshyggjumennirnir segja: Þið eruð á móti öllu. Þið eruð dauð, þið verðið skilin eftir. Látum hina dauðu grafa hina dauðu.

Fagnaðarerindi dagsins er því miður ekki kærleikur, jöfnuður og bræðralag, heldur yfirtaka á búlgarska símanum, Storebrand og Harrods. En hitt er í fullu gildi að aldraðir og sjúkir fá ekkert núna en mikið seinna. Tökum öll þátt í sókninni, dönsum í kringum gullkálfinn. Hefur einhver heyrt þetta áður? Er þetta kannski þúsund ára gömul saga?

Ég segi að hinir dauðu eru menn peninganna. Hinir dauðu eru þeir sem ekki sjá lífið í kringum sig. Hinir dauðu eru þeir sem ekki vilja hjúkra þeim sem eru sjúkir núna. Þeir sem eru aldraðir núna, fatlaðir núna, þurfandi núna. Hinir dauðu eru þeir sem ekki skilja vefnaðinn í samfélaginu. Skilja ekki mikilvægi hvers og eins. Enginn þrífst án samfélags, allir eru einhvern tímann börn, öll eldumst við og margir verða gamlir. Allir geta lent í vanda. Hver sem er getur lent í að hús hans brennur. Allir þurfa að standa saman þegar vandi steðjar að. Auðmaður með botnlangakast, frumkvöðull sem fer á hausinn, listamaður sem þarf að mennta sig. Menn njóta hvers annars. Maður er manns gaman en ekki þjónn hvers annars. Söngvari, læknir, íþróttaþjálfari,  leiðsögumaður, kennari og þannig mætti áfram telja í sampili þjóðfélagsins. Þarf að skýra út samfélag? Það hefur aldrei verið til auðstétt án samfélags en oft samfélag án auðstéttar.

Í fyrrnefndri greiningu Hannesar Hólmsteins í Fréttablaðinu bendir hann á að stór hluti mannkynsins séu rómantíkerar. Og niðurstaða hans er sú að þessi hópur hafi með einhverjum hætti rangt fyrir sér. Hann tekur sitt uppáhalds dæmi þar sem eignarrétturinn trónir á toppnum: Það sem allir eiga saman er eyðilagt (sbr. t.d. Kárahnjúkar?) en einkaeignin er í góðu standi að mati Hannesar Hólmsteins (kvótakerfið?). Indjánar Norður Ameríku  eru – samkvæmt greinarskrifinu - viskulausir og samviskulausir eyðingarsinnar.

Hefur einhver velt því fyrir sér hvers vegna frjálshyggjan er fátæk af bókmenntum, söngvum, gleði? Hún er hins vegar rík af harðmúlaðri, samanbitinni púrítanískri vinnuhörku. Lífsgleðin er vandfundin í hennar ranni. Nema sú sem er mæld á Gullvoginni. Öðru máli gegnir um samfélagið. Takmarkið með því að ganga inn í samfélag er ekki að hámarka tekjur heldur hámarka lífsgleði og láta þúsund blóm blómstra. Leyfa öllum að njóta sín. Félagshyggja er eins og Óskar Wilde orðaði það: Einstaklingshyggja fyrir alla.
Frjálshyggja í sinni öfgafullu mynd er eins konar grámunkaregla sem vinnur að því dag og nótt, árið um kring, að kreista gleðisnauða hámarksnyt úr innfluttu kúakyni. Eins konar Amish-regla græðginnar þar sem aðeins ein mælistika er til: Gullvogin. Aðeins hún skiptir máli í málmkenndum heimi Hannesar Hólmsteins; heimi þar sem enginn maður deyr og allir eru alltaf ungir. En hver mun annast Hannes Hólmstein þegar hann er orðinn gamall maður? David Friedman? Eða sjúkraliði á Landspítalanum? Hvað skyldi Hannes vilja sjálfur þegar á hólminn er komið?


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Stjórnmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta