Stjórnmál
22. Október 2006
RÚV SEGIR FRÉTTIR ÚR VALHÖLL
Mikið held ég að mönnum hafi létt eftir hina ítarlegu frétt Ríkisútvarpsins í gærkvöld um að eindrægni ríki innan Sjálfstæðisflokksins þrátt fyrir lúalegar árásir pólitískra andstæðinga á
Hér átti dómsmálaráðherrann vitaskuld við þær upplýsingar sem fram hafa komið um að símar alþingismanna, blaðamanna, forsvarsmanna í verkalýðshreyfingu og almannasamtökum hafi verið hleraðir á Kaldastríðstímanum og hugsanlega lengur. Hvílík smámunasemi! Og norska leiðin sem dómsmálaráðherra Íslands segir að komi okkur ekkert við, hver skyldi hún vera? Norðmenn fóru þá leið að skipa rannsóknarnefnd á vegum norska þingsins til þess að fara í saumana á símhlerunum þar í landi á sama tímabili til þess að sannleikurinn yrði dreginn fram í dagsljósið. Þetta finnst Birni Bjarnasyni fráleitt og Sjónvarpinu finnst yfirlýsingar hans í þá veru greinilega ekki gefa tilefni til neinna frekari spurninga!
Auðvitað vita allir að innan Sjálfstæðisflokksins leikur nú allt á reiðiskjálfi, ekki síst eftir að Samband ungra Sjálfstæðismanna gagnrýndi dómsmálaráðherrann fyrir að vilja koma á fót íslenskri leyniþjónustu. Svo var greinilega komið að
Allt gekk eftir: Boðað var til fundar í Valhöll. Fjölmiðlar með RÚV í broddi fylkingar mættu og síðan var messað um eldgömlu málin og hina lúalegu aðför að Birni Bjarnasyni! Allt síðan kórónað með frásögn fréttastofu Sjónvarps sem sagði okkur að ekki hefði verið annað að sjá á fundinum en allt væri í lukkunnar velstandi á milli þeirra Geirs og Björns. En er allt í lukkunnar velstandi á fréttastofu sem tekur svona á málum?
Dæmi hver fyrir sig: http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4284354/2
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur












