Stjórnmál
29. Maí 2006
VILBJÖRN

Þá hefur það gerst að ríkisstjórnin er komin í Ráðhús Reykjavíkur. Þangað er mættur Vilbjörn en svo hefur verið kallað þetta samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borginni, með þá Vilhjálm Þ. og Björn Inga í fararbroddi. Þetta eru ill tíðindi fyrir þá sem vilja efla samfélagsþjónustu og umhverfisvernd. Fyrir áhugamenn um mislæg gatnamót, einkavæðingu, stóriðjustefnu, í stuttu máli fyrir þá sem styðja þá mengunar- og misréttisstefnu, sem Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa rekið í Stjórnarráðinu, er þetta hins vegar drauma stjórnarmynstrið. Og fyrir álrisana, sem þessir flokkar þjóna svo vel, er Vilbjörn himnasending.
Í fréttaviðtölum eftir að tilkynnt var um myndun meirihlutans var Vilbjörn kominn á harðahlaup í flótta frá eigin kosningaloforðum og var það ex-bé hluti Vilbjörns, sem hljóp hraðar. Vilhjálmur brosti þegar umræðunni var beint að kosningaloforðum Björns Inga. Sjálfur vona ég að flokkarnir framfylgi ekki hótunum um að selja hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Verði hins vegar sú raunin, verður fróðlegt að sjá hvort 250 þúsund krónurnar sem Björn Ingi hefur lofað að senda hverjum og einum Reykvíkingi að sölunni aflokinni, verða sendar í ávísun eða rafrænt.
Eitt er víst að Reykvíkingar munu þurfa að hugleiða það mjög alvarlega hversu eftirsóknarvert það er að hafa þessa tvo stjórnmálaflokka, Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn samtímis við stjórnvölinn í Ráðhúsinu og Stjórnarráðinu. Er ekki komið nóg af því að íslensku samfélagi sé stýrt af stjórnmálaflokkum sem ganga erinda peningafólks og erlendra auðhringa?
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson












