Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnmál

1. Maí 2006

HEITT HJARTA, GRÆNIR FINGUR

1. maí ávarp á samkomu Vinstri grænna í Kópavogi .
Í gamla daga var stundum sagt um sósíalista að þótt teórian væri klár, væri praxísinn oft smár.
Á þessu hafa vinstri græn tekið. Vinstri stendur fyrir lífsviðhorf, fyrir félagshyggju; græn fyrir lífsstíl, fyrir framkvæmdina. Félagshyggja er ung hugmynd, auðhyggja og valdhyggja gamlar hugmyndir. Auðhyggjan reynir að endurnýja sig með liðsinni frá fyrrverandi vinstrisinnum. Með því að klæða hugmyndir auðhyggjunnar í föt félagshyggjunnar ætla Samfylking og Sjálfstæðismenn að hefja nýtt skeið í stjórnmálasögunni. Framlag Samfylkingar felst í að krefjast almannaþjónustu fjármagnaða með sköttum og framlag Sjálfstæðismanna er að krefjast þess að þessi almannaþjónusta verði einkarekin. Með þessari ólíklegu samvinnu á að færa þróunina afturábak og nota stofnanir samfélagsins sem innheimtustofnun fyrir auðmenn. Þetta er sama hugmyndin og um ríkisútvarp sem sjálfstætt hlutafélag í eigu hins opinbera.

Félagshyggja er ekkert annað en heilbrigð skynsemi. Þetta viðurkenna allir í dag í orði. Skattheimta og meðferð almannafjár er mikill ábyrgðarhlutur. Sá sem lætur af hendi fjármuni til félagslegra þarfa á rétt á því að kjörnir fulltrúar hafi eftirlit með ráðstöfun fjárins og rekstri þeirra stofnana sem veita samfélagsþjónustuna. Það er ekki hægt að reka félagshyggju samkvæmt lögmálum markaðar. Gæði umönnunar eru ekki vara. Almenningssamgöngur eru ekki vara. Þú velur ekki strætóferð eftir gæðum vagnsins. Þú þarft einfaldlega að komast leiðar þinnar á ákveðnum tíma, burtséð frá verði eða gæðum. Þú velur ekki rafmagn eftir gæðum. Þú ákveður ekki að hætta nota rafmagn eða vatn vegna þess að þér finnst verðið of hátt. Þú getur hins vegar, og þér að meinalausu, sagt upp Stöð 2 eða sleppt því að kaupa þér ís eða frestað því að fara í frí til útlanda og svo framvegis.

Þú frestar ekki hjartaaðgerð, né heldur skoðar maður litprentaða bæklinga - svo illa er enn ekki komið - til að velja spítala, maður frestar ekki matarinnkaupum vegna þess að strætóinn frá besta rekstraraðilanum keyrir bara eftir klukkan 8. Við verðum að gera greinarmun á samfélagsþjónustu og vöru. Við verðum líka að stöðva þá þróun að flytja rekstur samfélagsþjónustu burt frá daglegu eftirliti kjörinna fulltrúa, sem hægt er að draga til ábyrgðar og krefjast upplýsinga og svara.

Hugmyndafræði Vinstri Grænna er skýr: Við teljum að samfélagsleg þjónusta - sú þjónusta sem samfélagið kemst ekki af án - eigi að vera í höndum hins opinbera. Við teljum að almennur rekstur atvinnufyrirtækja eigi að vera í höndum einkaaðila. Núverandi valdhafar virðast hafa öfuga stefnu: Þeir vilja færa rekstur almannaþjónustu til einkaaðila en nota skattpeninga til að ábyrgjast einkarekstur, einkum og sér í lagi stóriðju og bankarekstur. Ríkið er í stórkostlegum ábyrgðum vegna virkjanaframkvæmda og óbeinum ábyrgðum vegna fjárhættuspils íslensku bankanna.

Næg atvinna er lífsgæði. Hagvöxtur er ekki lífsgæði. Hagvöxtur er ekki forsenda nægrar atvinnu. Hagvöxtur er forsenda ákveðinnar tegundar atvinnu. Það þarf að endurskilgreina hagvöxt. Umferðarslys eykur hagvöxtinn, aukinn mengun eykur havöxtinn, eyðilegging Þjórsárvera eykur hagvöxtinn. Bók Andra Snæs Magnasonar minnir mann á það sem maður vissi. En framsetningin er svo sterk og svo mögnuð að hún opnar nýja sýn á möguleika okkar á að lifa við næga og gefandi atvinnu, án þess að gefa eftir þau verðmæti sem mestu máli skipta: umhverfið, heilbrigt líf, nærgætni við sjúka og aldraða.

Félagshyggja er í stöðugri þróun og Vinstri Græn eru kyndilberar nýrrar hugsunar og nýrrar bjartsýni. Auðvitað er hægt að gefast upp einsog Samfylking gerir og ganga út í sólarlagið arm í arm með Sjálfstæðisflokknum. Nútímalegt par við fyrstu sýn, en fyrst og fremst þreytulegt. Draumar lífs þeirra hafa lit sínum glatað. Sjálfstæðismenn og Samfylking eru komin á hugmyndafræðilegan eftirlaunaaldur og þurfa stöðuga þerapíu í nefndum, endurnýjunarhópum og ráðum til að peppa upp nýja og spennandi stefnu.

Vinstri Græn þurfa þess ekki. Öllum er stefnan ljós. Öflug opinber samfélagsþjónusta, heilbrigt líf, raunveruleg náttúruvernd. Fyrir okkur eru heldur engar flækjur í framkvæmdinni. Öflug opinber samfélagsþjónusta krefst þess að hún verði sett efst í forgangsröðina þegar almannafé er ráðstafað, heilbrigt líf þarfnast nægrar og heilbrigðrar atvinnu, að óheyrilegur ójöfnuður verði ekki látinn líðast einsog nú gerist, og að umhverfið verði ekki selt  stórglæpamönnum á sviði náttúrueyðileggingar.

Þetta eru einfaldar hugmyndir og framkvæmanlegar. Þær snúast ekki um að verða stærsti skoðanalausi flokkurinn, ekki um að verða með dularfullum hætti nútímalegur, sem enginn veit hvað þýðir. Við þurfum að vinna hugmyndum okkar fylgi, sýna fram á framkvæmanleika þeirra og besta leiðin er auðvitað að við fáum að spreyta okkur. Það er vont að kjósa fólk til að stýra samfélagsþjónustu sem er á móti henni, fólk sem vill með öllum ráðum koma henni fyrir kattarnef. Það er vont að kjósa fólk til að stýra samfélagsþjónustu sem vill losna undan því hlutverki. Það er afar auðvelt að innheimta skattfé og afhenda það þriðja aðila. Þá losnar maður við ábyrgðina. Það er sagan um litlu gulu hænuna.

Vinstri Græn vilja bera ábyrgð og fylgja hugmyndum sínum eftir, framkvæma þær með þeirri nærgætni sem sá einn getur sýnt sem trúir á þær. Og þar erum við fremst og öruggust.

Fyrsti maí er baráttudagur verkalýðsins. Menn rifja upp gamla tíma, draga lærdóma af reynslu liðinna ára og horfa til framtíðar. Í dag eru baráttufánar dregnir að húni. Þeir eru rauðir, litur baráttu og funa. Rauður er okkar litur. Einng hinn græni litur náttúrunnar. Við höfum heitt hjarta og græna fingur.Við erum Vinstri Græn.
Til hamingju með daginn. 


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Stjórnmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta