Stjórnmál
2. Mars 2006
UM LOTTÓVINNINGA, RÚSSNESKA RÚLLETTU OG PÓLITÍSKA KÖNNUN FRAMSÓKNARFLOKKSINS Á KOSTNAÐ SKATTBORGARA

Það er hressandi að heyra í Skagfirðingum þessa dagana, enginn uppgjafartónn þar á bæ. Það skiptir máli að Vinstrihreyfingin grænt framboð á aðild að sveitarstjórninni í Skagafirði. Í yfirlýsingu sem kom frá VG í Skagafirði í dag er minnt á að " Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur vildu álver í Skagafjörð og voru tilbúin til að fórna skagfirsku Jökulsánum og náttúru þeirra. Vinstri grænir stóðu einir stjórnmálaflokka í Skagafirði með Jökulsánum og Héraðsvötnum og uppskera nú árangur þeirrar baráttu. Mikilvægt er að öllum hugmyndum sem hafa verið uppi um virkjun Jökulsánna verði nú hafnað í aðalskipulagi Skagafjarðar og þær endanlega slegnar út af borðinu, og verndun ánna og tækifæri þeim tengd tryggð til framtíðar."
Sóknartónninn í VG mönnum er ótvíræður: "Vinstri grænir í Skagafirði fagna því að Skagfirðingar geti nú einbeitt sér á nýjan leik að uppbyggingu fjölbreyttara atvinnulífs í héraðinu fyrir það unga fólk sem er að mennta sig til margvíslegra starfa. Áfram verði haldið að skjóta frekari stoðum undir það atvinnulíf sem fyrir er í héraðinu eins og landbúnað og úrvinnsluiðnað, opinbera þjónustu, fjármálastarfsemi og ferðaþjónustu sem nú horfir fram á stóraukna möguleika og tækifæri að áldraugnum gengnum. Ennfremur felast mikil sóknarfæri í eflingu Hátækniseturs á Sauðárkróki, hátækniiðnaði, mennta og þróunarstarfi og fleiri vænlegum atvinnukostum sem unnið er að og styðja fjölbreyttara mannlíf í Skagafirði."
Þá er umhugsunarvert að VG-menn segja ekki að líta beri á áltillögur Alcan og ríkisstjórnarinnar sem mögulegan Lottóvinning eins og álsinnar orða það, heldur eins og rússneska rúllettu og er augljóst að þeim þykir sá verða fyrir áfallinu sem hlýtur álhnossið: "Nú liggur opinberlega fyrir að álrisinn Alcoa og álráðherra Framsóknar, Valgerður Sverrrisdóttir horfa ekki til Skagafjarðar með áform um álbræðslu. Þeim ljóta leik að etja saman héruðum og íbúum þeirra í einskonar rússneskri rúlletu gagnvart uppbyggingu annarra og vænlegri atvinnugreina í viðkomandi héruðum er lokið."
Framsóknarflokkurinn hefur lagt mikið á sig til að sannfæra Norðlendinga um ágæti þess að hleypa Alcoa inn á gafl. Flokkurinn hefur látið gera skoðanakannanir í þessu skyni sem hann vonaðist til að gögnuðust í áróðursstríðinu. Ljóst er að útkoman varð álráðherra flokksins vonbrigði, svo mikil reyndist andstaðan við álver á Norðurlandi. Ég hef kynnt mér niðurstöður könnunarinnar og furða mig á því að spurningar um pólitíska afstöðu manna eru ekki birtar í þeim niðurstöðum sem hafa verið gerðar opinberar. Ég hef hins vegar heyrt frá nokkrum einstaklingum sem lentu í úrtaki þessarar könnunar Framsóknarflokksins og voru þeir spurðir um hvaða flokk þeir styddu. Eru þetta upplýsingar sem Framsóknarflokkurinn ætlar að halda fyrir sig? Mér finnst í góðu lagi að spurt sé um pólitíska afstöðu manna. Ég hef hins vegar um það efasemdir að svo sé gert í skoðanakönnun sem Framsóknarflokkurinn lætur iðnaðarráðuneytið og þar með skattborgarann greiða fyrir.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson












