Stjórnmál
11. Október 2005
EINKAVĆĐINGARFJÁRLÖGIN
Í gćr fór fram á Alţingi einhver undarlegasta umrćđa sem ţar hefur fariđ fram um árabil. Ţetta var fyrsta umrćđa um frumvarp ríkisstjórnarinnar um ráđstöfun á Símasilfrinu, söluandvirđi Símans. Ráđstöfun fjármunanna nćr ekki einvörđungu til yfirstandandi kjörtímabils heldur langt fram á nćsta jafnvel ţarnćsta kjörtímabil! Einsog fram hefur komiđ í fréttum á ađ reisa sjúkrahús, sinna geđfötluđum, íslenskum frćđum, landhelgisgćslunni og samgöngumálum. Allt – eru ţetta hin bestu mál ţótt sitthvađ ţurfi nánari umrćđu viđ áđur en til framkvćmda kemur.
En ţarna stóđu menn í rćđupontu Alţingis og rćddu hvort heppilegt vćri ađ hafa hátćknisjúkrahús viđ Hringbraut eđa einhvers stađar annars stađar; hvort ćskilegt vćri ađ setja upp vegatolla á Sundabraut og hvađ međ vegaumbćtur í Hornafirđi?, spurđi einhver. Menn töluđu sig upp í funa og hita.
En hvers vegna rćđa um ráđstöfun á söluandvirđi Símans á annan hátt en ráđstöfun ţeirra peninga sem viđ komum til međ ađ borga í skatta á komandi árum og ráđstafa ţá á fjárlögum? Eru skattpeningarnir okkar eitthvađ frábrugđnir ţessum fjármunum? Ađ sjálfsögđu ekki.
Skýringin á ţessari framsetningu er ofur einföld. Ţjóđin var almennt andvíg einkavćđingu Símans. Ef eitthvađ er ađ marka skođanakannanir ţá var ţetta tvímćlalaust svo, ţví aftur og ítrekađ kom ţjóđarviljinn fram á ţennan veg í skođanakönnunum sem gerđar voru.
Nú var úr vöndu ađ ráđa fyrir ríkisstjórn sem stađráđin var í ţví ađ hunsa ţjóđarviljann. Eftir nokkra yfirlegu var brugđiđ á ţađ ráđ ađ búa til sérstök Einkavćđingarfjárlög um ráđstöfun símasilfursins. Í Einkavćđingarfjárlögunum skyldi ađeins vera ađ finna vinsćl mál, engin kaup á sćti í öryggisráđi SŢ ţar, umdeildar fjárveitingar til NATÓ eđa annarra mála sem lítt eru til vinsćlda fallin. Slíkt skyldi vera í hinum hefđbundnu fjárlögum. Í Einkavćđingarfjárlögunum ćtti ađeins ađ vera sólskin og gleđi.
Stjórnarmeirihlutinn tók ađ sjálfsögđu bakföll af hrifningu og einskćrri ánćgju yfir gjafmildi ríkisstjórnarinnar. Margir stjórnarandstöđumenn bitu einnig á agniđ og fóru ađ rćđa einstaka efnisţćtti fumvarpsins, ţar á međal fjárveitingar ţingsins á ţarnćsta kjörtímabili! Ţannig var ástandiđ innan veggja Alţingis í gćr.
Ég velti ţví fyrir mér hvort ţjóđin sjái ekki í gegnum ţennan hráskinnaleik ríkisstjórnar sem er ekki vandađri ađ virđingu sinni en svo, ađ hún vílar ekki fyrir sér ađ reyna ađ kaupa sér vinsćldir, breiđa yfir óvinsćla og óafsakanlega ráđstöfun dýrmćtrar ţjóđareignar, međ ţví ađ gefa út sérstök Einkavćđingarfjárlög?
Ég trúi ekki öđru en fólk sjái í gegnum blekkingarnar. Ţegar fram líđa stundir og arđurinn frá Símanum hćttir ađ streyma í ţjóđarvasann mun eflaust renna upp ljós jafnvel hjá ţeim sem nú hafa glýju í augum og telja ađ ríkisstjórnin sé ađ fćra ţjóđinni fé af himnum ofan.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












