Beint á leiđarkerfi vefsins

Stjórnmál

23. Mars 2005

FRJÁLSHYGGJAN KANNIST VIĐ KRÓGANN SINN


Helga Lára Hauksdóttir, Hafsteinn Ţór Hauksson, Sigurđur Kári ásamt undirrituđum.

Ungir sjálfstćđismenn efndu til fundar í Valhöll hádeginu í gćr um frumvarp Sigurđar Kára Kristjánssonar alţingismanns um ađ nema úr gildi heimild til ađ birta skattskrár opinberlega. Ţetta hefur lengi veriđ baráttumál ungra sjálfstćđismanna og hef ég oft furđađ mig á ţví af hve miklum ákafa máliđ er sótt. Á fundinum sannfćrđist ég um ađ ţeir líta á ţetta sem mannréttindabrot enda segir í greinargerđ flutningsmanna, sem auk Sigurđar Kára eru ellefu ţingmenn Sjálfstćđisflokksins, ađ veigamestu rökin ađ baki frumvarpinu séu ţau "ađ telja verđi ađ birting álagningar- og skattskráa samkvćmt ákvćđum núgildandi laga brjóti gegn rétti einstaklinga til friđhelgi einkalífs. Fjárhagsmálefni einstaklinga eru međal viđkvćmustu persónuupplýsinga í nútímasamfélagi sem eđlilegt og sanngjarnt er ađ fari leynt. Ljóst má vera ađ međ framlagningu álagningar- og skattskráa fer fram birting á upplýsingum sem gefa glögga mynd af tekjum nafngreindra einstaklinga…"

Ađ mínu mati vćri ţađ mikiđ skref aftur á bak ef skattskránum yrđi lokađ enda lít ég á ţađ sem spurningu um mannréttindi ađ ţjóđfélagiđ hafi allt upplýsingar um ţađ hvernig verđmćtunum er skipt. Auk ţess tel ég ađ ţađ hafi talsvert ađhaldsgildi gagnvart bírćfnustu skattsvikurunum – ţeim sem velta hundruđum milljóna, jafnvel milljörđum – en telja síđan fram ţađ sem tíđkast ađ kalla "vinnukonuútsvar". Árlega er ţessi mannskapur afhjúpađur í tímaritinu Frjálsri verslun, sem birtir okkur upplýsingar um ţessi efni unga íhaldinu til mikillar armćđu.

Leynd er ađ fćrast í aukana á mörgum sviđum ţjóđlífsins. Á ţví leikur enginn vafi.

Opinberar stofnanir eru gerđar ađ hlutafélögum og ţar međ er lokađ á upplýsingar til almennings um málefni sem ţó varđa samfélagiđ allt. Nćgir ađ minna á Símann. Eftir ađ Landssíminn var gerđur ađ hlutafélagi var byrjađ ađ braska međ eignir hans af miklum móđ. Töpuđust um fimm hundruđ milljónir í einu ćvintýrinu. Upplýsingar fengust ţó treglega og skýldu menn sér á bak viđ hlutafélagalög. Allt átti nú ađ heita viđskiptaleyndarmál. Líka launamál toppanna.

Ţá eru launamál hjá hinu opinbera í síauknum mćli ađ verđa felumál, einnig gagnvart stéttarfélögunum. BSRB hefur ţurft ađ beita hörđu til ađ fá ađgang ađ upplýsingum sem lágu á opnu borđi fyrir ađeins fáeinum árum. Í skjóli launaleyndar inni á vinnustöđum ţrífst síđan misréttiđ.

Bankarnir neita ađ gefa upplýsingar sem eru almenns eđlis og hefđi veriđ taliđ sjálfsagt ađ veita hér fyrr á tíđ. Ţeir eru líka svo ljónheppnir ađ hafa bankamálaráđherra sem fer ađ vilja ţeirra í einu og öllu (sjá nánar hér) en í gćr upplýsti ráđherrann ađ engin ástćđa vćri ađ ganga eftir upplýsingum sem Samtök banka og verđbréfasjóđa hefđu skilgreint sem einkamál!.

Samningaviđrćđum viđ erlend ríki er einnig haldiđ leyndum, sbr. GATS viđrćđurnar ( sjá m.a. hér). Ţetta nefni ég sem enn eitt dćmiđ um leynisamfélagiđ sem veriđ er ađ koma á fót.

Síđast en ekki síst ţá vinna bankar og fjármálastofnanir ađ ţví leynt og ljóst ađ auđvelda eignamönnum ađ fela eignir sínar. Ţegar Landsbankinn opnađi starfsstöđ á Guernsey í Ermasundi var ekki fariđ í grafgötur međ tilganginn eins og fram kom í viđtali viđ Halldór Kristjánsson, bankastjóra í viđtali viđ Morgunblađiđ í ársbyrjun áriđ 2000. Ţegar ţá var komiđ sögu námu eignir í sjóđum Landsbankans á Guernsey um ţremur milljörđum króna. Ţess má geta ađ Guernsey er eitt ţeirra skattleysissvćđa sem lengi hefur veriđ á svörtum lista hjá OECD fyrir ađ neita ađ uppfylla lágmarkskröfur um góđa viđskiptahćtti.  „[Viđ vildum breikka alţjóđlega ţjónustu okkar og gefa kost á lögsögu, eins og Guernsey, sem sérhćfir sig í ađ veita hagstćđ skattaleg skilyrđi til rekstrar,“ sagđi bankastjórinn í viđtalinu. Einnig sagđi hann bankaleyndina mikilvćga enda ţekktu Landsbankamenn ţađ frá Íslandi „…ađ margir einstaklingar vilja ekki ađ ađrir viti eitt eđa neitt um ţeirra stćrri mál, af eđlilegum ástćđum.“ ….. (Um ţetta viđtal fjallađi ég á sínum tíma hér).

Af hálfu Sigurđar Kára Kristjánssonar, Hafsteins Ţórs Haukssonar, formanns SUS og annarra Sjálfstćđismanna sem tóku til máls á fyrrnefndum Valhallarfundi, voru tíunduđ margvísleg rök. Eftirlitsbragur vćri á ţessum málum, borgurum sigađ hvern á annan, upplýsingar um tekjur manna vćru persónuleg mál en ćttu ekki ađ vera opinber, slíkt ţjónađi hnýsni og lágkúrulegri forvitni og ćli á öfund. Vitnađ var í norska könnun sem sýndi ađ börn lágtekjufólks hefđu orđiđ fyrir einelti í skólum eftir ađ upplýst var um bágborinn efnahag fjölskyldna ţeirra. Veigamest ţóttu mér ţau rök ađ alltof oft vildi brenna viđ ađ upplýsingar vćru rangar og auk ţess vćru iđulega skýringar á tekjum sem aldrei birtust međ hráum tölunum. Ţess vegna vćri fólki oft gert rangt til.

Auđvitađ ţurfa upplýsingar ađ vera réttar. Ţađ er mikilvćgt en engu ađ síđur er ţađ tćknilegt úrlausnarefni fyrst og fremst og hefur ekkert međ ţá grundvallarafstöđu ađ gera hvort upplýsingar af ţessu tagi eigi ađ vera einkamál eđa opinberar. Opinberar segi ég: Tekjuskiptingin í ţjóđfélaginu, skipting sameiginlegra verđmćta á ađ vera öllum opin og varđandi litlu börnin í Noregi ţá er fyrst og fremst áríđandi ađ draga úr fátćkt ţeirra. Ekki ţegja um hana. Markađssamfélagiđ elur af sér misskiptingu og ranglćti. Talsmenn slíks samfélags verđa ađ hafa ţrek til ađ horfast í augu viđ afleiđingar slíkrar samfélagsskipunar, horfast í augu viđ eigiđ afkvćmi. Ađstandendur frumvarpsins segja reyndar ađ ţeir hafi engar skrúplur yfir tekjuskiptingunni í samfélaginu – en hvers vegna skyldu upplýsingar um slík efni ţá teljast til "viđkvćmustu persónuupplýsinga."

Annars voru fundarmenn rökfastir og skemmtilegir og gerđu grein fyrir máli sínu á ítarlegri hátt en hér er fćrt til bókar. Ađkomumanni var vel tekiđ ţrátt fyrir skođanaágreining.

Hér er slóđin á ţingmál Sigurđar Kára Kristjánssonar en ţar er ađ finna í greinargerđ ítarlegan og vel unninn rökstuđning hans fyrir ţingmálinu. Vinnan er vönduđ en málstađurinn afleitur. Sjá HÉR.


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Stjórnmál

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta