Stjórnmál
12. Maí 2004
Kannast menn viđ Berlusconi ástandiđ?
Hjálmar Árnason, ţingflokksformađur Framsóknarflokksins, hélt í kvöld andheita rćđu um fjölmiđlafrumvarp Davíđs Oddssonar forsćtisráđherra. Hjálmar studdi frumvarpiđ ákaft í máli sínu. Nauđsynlegt vćri ađ setja löggjöf til ađ koma í veg fyrir samţjöppun á fjölmiđlamarkađi. Um ţetta virđast flestir vera sammála. Stjórnarandstađan á ţingi vill hins vegar setja lög ađ vel yfirveguđu máli. Svo lítiđ sjálfstraust hefur ríkisstjórnin hins vegar, ađ hún treystir sér ekki til annars en ţröngva málinu fram međ offorsi. Athyglivert ţótti mér ţegar Hjálmar Árnason minnti stjórnarandstöđuna á ástand mála á Ítalíu. Ţar vćri mađur sem hefđi heljartak á atvinnulífinu, ţar á međal fjölmiđlum landsins. Muniđ ţiđ eftir Berlusconi veldinu, spurđi Hjálmar og hvessti sig mjög. Samlíkingin átti vćntanlega ađ vera viđ eigendur Baugs hér á Íslandi. En samlíkingin hlýtur ađ ganga lengra ţví Berlusconi er ekki ađeins auđjöfur heldur einnig forsćtisráđherra Ítalíu. Á ţinginu hefur hann beitt sér fyrir lagasetningu sem tryggir honum margvísleg sérréttindi í ítölsku samfélagi, ţar međ töldum ítölskum fjölmiđlum ţar sem hann kemur reglulega fram í svokölluđum drottningarviđtölum. Nú er spurningin á hvorum vettvangnum Berlusconi beitir vafasamari ađferđum, í efnahagslífinu eđa í pólitíkinni. Vćri ef til vill ráđ ađ íslenskir stjórnmálamenn, ekki síst ráđherrar, ţar međ talinn forsćtisráđherrann - íslenskur kollegi Berlusconis - líti örlítiđ í eigin barm og spyrji sjálfa sig hvort ţeir kannist viđ ţađ sem Hjálmar Árnason kallar Berlusconi ástandiđ?
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson












