Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnmál

14. Febrúar 2004

Rætt um árangur í Reykjavík

Vinstrihreyfingin grænt framboð í Reykjavík efndi í dag til félagsfundar um borgaramálefnin. Uppleggið var að fræðast um starf R-listans, "taka út stöðuna" eins og Svanhildur Kaaber komst að orði í inngangserindi sínu, og " veita félagsmönnum tækifæri til að koma ábendingum og skilaboðum til fulltrúa sem starfa á vegum flokksins í borginni".
Vel á fimmta tug félagsmanna sótti fundinn sem var afar fróðlegur.
Svanhildur Kaaber fór yfir málefnasamning R-listans og minnti á aðkomu VG að smíði hans, undir forystu Sigríðar Stefánsdóttur þáverandi formanns VG í Reykjavík.
Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, sagði frá áherslum innan stjórnsýslunnar almennt, fjárhagsáætlunum borgarinnar og athugunum sem fram færu á því hvernig efla megi almenningssamgöngukerfið í borginni. Ýmsa aðra þætti ræddi Árni einnig.
Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi, fór m.a.yfir stöðuna í húsnæðimálum og sagði að frá 1. mars næstkomandi yrðu greiddar sérstakar húsaleigubætur til tekjulágs fólks og væri þetta fyrst og fremst ætlað til þeirra sem væru á biðlistum eftir húsnæði hjá borginni og þyrftu að leita út á rándýran húsaleigumarkaðinn. Gerðu fundaremnn góðan róm að þessu. Einnig voru menn ánægðir að heyra að í haust mun hluti 5 ára barna fá frían leikskóla en þetta er í samræmi við pólitíska stefnu VG að gera leikskólann gjaldfrían í áföngum. Þá kom fram að ráðgert væri að á árinu 2006 hefði náðst það takamark að öll börn 18 mánaða og eldri ættu kost á leikskólaplássi. Einnig var rætt um félagsþjónustu fyrir aldraða og voru óskir um að efnt yrði til sérstaks fundar um það efni. Þá var bent á það af hálfu nokkurra fundarmanna að nauðsynlegt væri að hækka stuðningsgreiðslur til fólks sem þyrfti að treysta á Félagsþjónustuna um framfærslulífeyri.
Katrín Jakobsdóttir,
sem sæti á í Fræðsluráði fjallaði um skólamál.  Hún sagði að á kjörtímabilinu yrði búið að ná því takamarki að bjóða upp á heitar máltíðir í öllum skólum borgarinnar. Katrín sagði frá foreldraráðum við skólana en þau væru hugsuð sem samræðufarvegur á milli foreldra og starfsmanna skólanna. Kvað Katrín brýnt að tryggja sérstaklega aðgengi fatlaðra foreldra og foreldra sem væru af erlendu bergi brotnir, að þessari samræðu við "skólann". Fram kom hjá Katrínu að heldur hefði fækkað nemendum í einkaskólum í borginni en hún vakti jafnframt athygli því að nýskipaður menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, stefndi að því að styrkja einkaskólana til jafns við opinbera skóla. Fundarmenn kváðu þarna kristallast  sá grundvallarmunur sem er á milli stefnu Sjálfstæðisflokksins og R-listans í borginni. Önnur dæmi um þennan grundvallarmun voru tilgreind á fundinum svo sem tilraunir Sjálfstæðisflokksins til þess að draga úr framlagi til almenningsamgangna.
Óskar Dýrmundur Ólafsson fjallaði um skipulagsmál og kom margt fróðlegt fram í máli hans. Á meðal þess, sem rætt var í framhaldi af framlagi Óskars Dýrmundar á fundinum var færsla Hringbrautar en greinlegt er að óánægja er með það í röðum VG, að sú stefna sem fulltrúar VG hafa fylgt um að setja Hrinbrautina í stokk, skuli ekki hafa náð fram að ganga. Vildi Óskar Dýrmundur kenna pólitískri stýringu í Samgönguráðuneytinu um það. Áhugi kom fram um að ræða þetta mál frekar.
Tryggvi Friðjónsson ræddi málefni Orkuveitur Reykjavíkur. Vék hann að frumvörpum sem væru á teikniborði ríkisstjórnarinnar í raforkumálum og um vatnsveitur. Þá ræddi Tryggvi fjárfestingar OR í hlutafélögum, Tetra Íslandi og Línu-neti. Á fundinum kom fram það sjónarmið að þrengingar hlutafélagsins Tetra Íslands minntu okkur á mikilvægi þess að tryggja öryggi í rekstri á grunnþjónustu samfélagsins og hvílíkt glapræði það væri að einkavæða slíka þjónustu. Fram kom hjá Tryggva að OR væri að draga úr fjárfestingum í hlutafélögum og hefði upphæðin sem til slíkra fjárfestinga hefði verið ætluð verið lækkuð úr 300 milljónum í 100 milljónir.
Drífa Snædal, varafulltrúi í Jafnréttisnefnd ræddi um umræðu sem fram hefði farið um að útvíkka jafnréttishugtakið. Þá vék hún að ýmsum þáttum í starfsemi borgarinnar sem snertu jafnréttismálin, þar á meðal kjaramál. Í almennum umræðum á fundinum tóku margir upp þennan þátt og ábyrgð borgarinnar gagnvart láglaunafólki. Drífa Snædal talaði einnig um klámvæðinguna og hve slæmt það væri að borginni væri þröngvað til að standa í því, sem Drífa kallaði "viðbragðsbaráttu" gegn eigendum "súlustaða" sem leituðu sífellt nýrra leiða til að færa út kvíarnar.
Það var lofsvert framtak af Reykjavíkurfélagi VG að efna til þessa fundar. Það er ljóst að mörg verkefni bíða R-listans og vissulega fannst mörgum fundarmönnum of hægt ganga í ýmsum efnum. En jafnframt urðu þeir margs vísari um það mikla og lofsverða starf sem fulltrúar VG vinna í borginni og þann árangur sem þeir hafa náð í starfi sínu. Þegar Svandís Svavarsdóttir, formaður Reykjavíkurfélagsins, sleit fundi undir kliukkan fimm, að lokinni þriggja tíma fundarsetu, var það samdóma álit manna að fundi af þessu tagi yrði að halda með reglulegu millibili bæði til þess að félagsmenn gætu komið sjónarmiðum sínum á framfæri en einnig til hins að fá upplýsingar um það sem vel er gert.


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Stjórnmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta