Beint á leiđarkerfi vefsins

Stjórnmál

22. Desember 2011

ŢJÓĐIN VILL...?

GUL EVRA
Margt ágætt sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld. Ekki var ég honum þó sammála um allt. Þannig var ofsagt hjá honum að mínu mati að „þjóðin" vildi fá að vita hvað kæmi út úr viðræðunum við ESB. Það er líka ofsagt hjá utanríkisráðherra að ESB/EVRU gulrótin væri nú digrari og litfegurri en áður! Um hið síðara ætla ég ekki að fjölyrða... Ég ætla hins vegar að hafa nokkur orð um meintan þjóðarvilja... Við skulum hætta að tala um tímasetningu á þjóðaratkvæðgreiðslu einsog við fáum engu þar um það ráðið, þetta sé nánast komuð undir óviðráðanlegu náttúrulögmáli. Við eigum að sjálfsögðu að segja samninganefndunum hvenær hentar okkur að kjósa. Þær hagi sínum...

11. Desember 2011

HIĐ ŢRÖNGA OG HIĐ VÍĐA SJÓNARHORN

ein -vidsyn
... Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ sagði í RÚV á föstudag að íslenskt launafólk hefði getað staðist hrunið ef við hefðum haft sterkan gjaldmiðil. Með öðrum orðum, þótt bankakerfið (og þá væntanlega einnig lífeyrisskerfið) hryndi, þá væri hagur launafólks tryggur svo lengi sem gjaldmiðillinn væri traustur! Og Gylfi og Ólafur Darri, hagfræðingur ASÍ, hömruðu síðan saman á því að evran væri lausnarorðið. Undarleg tímasetning miðað við hvernig komið er fyrir evrunni! Þar fyrir utan virðist sjónarhorn þeirra ASÍ manna æði þröngt, alla vega borið saman við sýn Nóbelsverðlaunahafans í hagfræði Josephs Stieglitz....

5. Desember 2011

HURĐ SKALL NĆRRI HĆLUM!


Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um stefnu íslenskra stjórnvalda gagnvart erlendri fjárfestingu. Boðuð er grundvallarstefnubreyting að því leyti að í stað þess að opna á erlenda fjárfestingu í orku og auðlindum er áherslan á margbreytileika og nýsprotastarfsemi. Þetta er gott og jákvætt. Það er líka gott og jákvætt að í greinargerð er áhersla á að Íslendingar vilji að orkufyrirtækin og sjávarútvegsfyrirtæki séu í innlendri eign. Að sjálfsögðu er fráleitt að alhæfa um erlenda fjárfestingu. Tvennt þurfa Íslendingar að hafa hugfast að mínu mati. Fyrra atriðið er þetta: ...

9. Nóvember 2011

GÓĐ NÝBREYTNI: BEIN ÚTSENDING FRÁ NEFNDARFUNDUM


...Ýmsir höfðu efasemdir um beinar útsendingar af þingnefndarfundum Alþingis. Sjálfum þykir mér þessi nýbreytni lofa góðu, sérstaklega hvað varðar mál sem eru umdeild og hafa gott af því að komast út í þjóðfélagsumræðuna. Þessar beinu útsendingar gera það að verkum að fjölmiðlunum, fjórða valdinu, einsog það er stundum kallað er gert auðveldara um vik að komast í „hráefni" frétta sinna á einskonar hlaðborði. En jafnframt, sem áður segir, fá áhorfendur tækifæri til að meta hvernig hið fjórða vald beitir sér ...

6. Nóvember 2011

UM VÖLD OG ÁBYRGĐ Í FJÁRMÁLAKERFI


... En tilefni þessara skrifa minna nú er reyndar ekki ummæli Steinþórs Pálssonar bankastjóra Landsbankans, heldur ágætar vangaveltur Kristins, í lesendabréfi hér á síðunni þar sem hann leggur út af orðum bankastjórans. Kristinn segir m.a.: „Sú skoðun að ekki sé farsælt að ríkið eigi banka á fullan rétt á sér en óneitanlega eru rökin fyrir henni til muna veikari en var fyrir nokkrum árum. Sé litið til sögunnar þá hefur einkaeignarhald á bönkum á Íslandi ekki verið farsælt... Það er rétt hjá bankastjóra Landsbankans að víst getur til þess komið að einstakir stjórnmálamenn komi fram með „furðuleg bréf" eða óheppileg afskipti af bankastarfssemi í eigu ríkisins. En það fer ekki milli mála að enn furðulegri tilskipanir fengu bankastjórar einkabankanna...

1. Nóvember 2011

STERK UNDIRALDA Á LANDSFUNDI VG

...Mér þótti líka gott að því skuli hafa verið fagnað að AGS væri farinn. Var satt að segja búinn að fá nóg af öllu þakklætinu í hans garð í Hörpunni á sameiginlegri ráðstefnu Íslands og AGS í aðdraganda Landsfundar VG. Við skulum ekki gleyma því að það var AGS sem bannaði almennar aðgerðir í skuldamálum, og hugmyndafræði  AGS var hvetjandi  til framkæmda utan ríkisreiknings. Ekki gleymi ég heldur áhyggjum AGS af gjaldþrotalögunum nýju. Í skugganum af AGS og ESB athöfnuðu Bretar og Hollendingar sig í Icesave. Aldrei heyrði ég AGS hafa áhyggjur af...

3. Október 2011

VEIKLEIKI HRUNÁRANNA

Eitt má Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, eiga. Hann er alltaf líkur sjálfum sér og sennilega sá maður sem hann helst langar til að vera; óhagganlegur í gömlum tíma. Sem slíkur er Björn okkur alla daga lifandi áminning um hvað það var sem fór úrskeiðis þann tíma sem honum var treyst til að halda um stjórnvölinn í íslenskum stjórnmálum;  þann tíma sem í Íslandssögunni verður eflaust skilgreindur sem Aðdragandi hrunsins.  Fyrir þetta getum við verið Birni Bjarnasyni þakklát...Á þetta minnir Björn okkur svo ágætlega í síðustu viku þegar hann skrifar mikinn dómsdagspistil um meint óhæfuverk núverandi ríkisstjórnar.  Inn í skrif sín tekst honum á sinn hátt að hræra saman í eina blöndu ýmsu sem hann telur að gæti verið til þess fallið að skapa úlfúð og ala á tortryggni í garð ...

3. Október 2011

HIS MASTERS VOICE


Styrmir Gunnarsson virðist óðum að jafna sig á samviskubiti sínu yfir þátttöku í hinu "ógeðslega þjóðfélagi", sem hann nefndi svo í rannsóknarskýrslu Alþingis, og skrifar grein á Evrópuvaktina sem minnir á gamla takta. Þar er látið að því liggja að ég hafi "flúið" af vettvangi þar sem mér hafi þótt óþægilegt að vera nálægt þegar skærist í odda milli lögreglu og ríkisvalds, enda byggi ég feril minn á starfi í launþegahreyfingunni. Ég er stoltur af starfi mínu í verkalýðshreyfingunni og afstaða mín til lögreglunnar hefur ekkert breyst.  
Það er auðvitað erfitt fyrir mann einsog Styrmi, sem byggir feril sinn á dyggri þjónustu við helstu valdaklíkur landsins að trúa öðru en því að allar gerðir manna hljóti að hafa ...

18. September 2011

GREIDDI ATKVĆĐI MEĐ EIGIN TILLÖGUM!


...Frumvarpið fékk góða og ítarlega umfjöllun í samgöngunefnd þingsins sl. vor og síðan í sumar og var gott samstarf á milli allra aðila sem að málinu komu. Allt gagnsætt og uppi á borði. Kvöldið fyrir þinglok var brugðið út af þessu verklagi  því þá, rétt fyrir lokaafgreiðslu málsins og án teljandi umræðu, kom fram  breytingartillaga frá samgöngunefnd Alþingis við eina veigamestu grein frumvarpsins, nefnilega ákvæði um íbúalýðræði. Með breytingartilllögunni var réttur íbúa stórlega skertur þvert á það sem ég sem flutningsmaður frumvarpsins hafði barist fyrir. ...Um þetta hefur verið talsvert fjallað í fjölmiðlum í dag, m.a. á visir.is. Umfjöllunin þar er um sumt góð en greinilega unnin á hlaupum því ...

14. September 2011

VALDIĐ TIL FÓLKSINS

Lydraediradstefna- sept. 2011
Ræða flutt á ráðstefnu um lýðræðismál 14.09.11
...Nú á sér stað hliðstæð barátta milli þingræðissinna og lýðræðissinna, sem vonandi lýkur með sigri lýðræðissinna. Verkefnið nú er að tryggja framgang lýðræðisins og búa því traustan og framsækinn lagalegan ramma. En minnumst þess að ekkert kerfi er eilíft. Til að lýðræðið lifi þarf stöðugt að næra það og gæða það lífi. Vandinn mun síðan í framtíðinni sem hingað til, felast í því að...

6. September 2011

ÓLÖF GUĐNÝ OG PÝRAMÍDINN Á SPRENGISANDI

OGV pýramídi
Aldrei mun ég gleyma því þegar fulltrúar Seðlabanka Íslands komu á fund þáverandi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis til að svara spurningum um efnahagsáhrifin af Kárahnjúkavirkjun og þá sérstaklega hvað varðar framkvæmdirnar. Viðkvæðið var nefnilega að þær þyldu enga bið vegna stundarslaka í hagkerfinu...Ég leyfði mér þá að spyrja hvort áhrifin væru sambærileg ef um það væri að ræða að byggja pýramída á Sprengisandi. Væru hagvaxtaráhrifin, sem þeir mærðu svo mjög sambærileg? Svarið var játandi...En umræðan ætlar að reynast síglid. Í nýlegum pistli á Smugunni segir Ólöf Guðný Valdimarsdóttir - mjög svo réttilega  - að þegar stórákvarðanir sem snerta náttúruna séu annars vegar, beri að ...

29. Ágúst 2011

ARFLEIFĐ AGS LÍMIST EKKI INN Í STJÓRNMÁLASÁLINA!


...Á vegum AGS var aldrei spurt um það svo ég heyrði til, hvaða áhrif hagfræðimódel sjóðsins hefði á líf fólks í landinu; hvernig ástandið væri á spítölum eða hvort öryrkjar næðu endum saman eftir skerðingu á lögbundnum kjörum þeirra.  Það stóð hins vegar ekki á AGS þegar rætt var um hugmyndir um almenna niðurfærslu lána, fyrningu vegna gjaldþrota, hallann á ríkissjóði og fjármálaskuldbindingar út í lönd. Þá var sjóðurinn mættur með allar sínar ráðleggingar og dómsdagsspár. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vildi líka láta innræta okkur vinnubrögð við fjárlagagerð sem byggðu á tilskipunum að ofan og minnist ég sérstakrar kennslustundar, sem efnt var til með ríkisstjórninni til að kenna tilskipunarfræðin. Af þessum sökum fagna ég brotthvarfi AGS og vona að ...

5. Ágúst 2011

HEIMSPEKI ŢRASTAR ÓLAFSSONAR

Birtist í Fréttablaðinu 04.08.11.
Fréttabladid haus...Mér finnst farið að þverra mjög andlegt þrek manna þegar allar hugsanir og allar setningar enda á ESB. Samúðin er í ESB. Mannúðin er í ESB. Samhjálpin er í ESB. Menningarleg vitund okkar er í ESB. Umræðan felst nú í að leysa úr einnar breytu jöfnunni x+ESB=Gott, þar sem x merkir: Allt sem er til í heiminum. Allt sem ESB gerir er gott. Hótanir ESB í garð íslenskra sjómanna vegna makrílveiða eru auðvitað bara umhverfisvernd. Krafan um Icesavegreiðslu er tilraun til uppeldis á óstýrilátu barni. Aðstoð við innheimtu óhóflegra bankalána gráðugra evrópskra banka er "hjálp" til Grikkja. Krafan um að ...Ætli það hafi svo mikið að gera með tilvistarhyggju Sartres, einstaklingshyggju Mills eða sósíalisma Marx? ESB er ekki nafn á heimspekikenningu. ESB er ....

1. Ágúst 2011

HVERS VEGNA SAGĐI ENGINN NEITT?


Hinir mætu útvarpsmenn Ævar Kjartansson og Jón Ormur Halldórsson ræddu við Jón Baldvin Hannibalsson...Í þættinum var spurt hvers vegna hafi verið  lítið viðnám hér á landi við einkavæðingarfárinu og nýfrjálshyggjunni sem reið röftum  á árunum undir hrun. Svo er að skilja að Jón Baldvin hafi meðal annars svarað því til að Samfylkinguna hafi skort sýn jafnaðarmanna á stjórnmálin eins og gömlu kratarnir hefðu búið yfir. Annars hefði Samfylkingin aldrei lagt fylgilag við hugmyndir af þessu tagi. Þetta held ég að sé rétt svo langt sem það nær. En því miður held ég að þessi skýring nái ekki mjög langt ...

24. Júlí 2011

ŢAĐ SEM HELST HANN VARAST VANN...

...Ekki veit ég hve margir hafa lesið ritsmíðar Þorsteins Pálssonar. En sökum nýtni hans nægir að lesa eina, tvær greinar til að fá góða mynd af skoðunum höfundar því alltaf er sama stefið, nánast sama greinin, aðeins mismunandi orðuð... Tilefni skrifa Þorsteins að þessu sinni er einkaframkvæmd, nokkuð sem ég hef lagt mig sérstaklega eftir að rannsaka í hálfan annan áratug... Hef ég í þessu sambandi varað við því að nálgast viðfangsefnið á grundvelli pólitískrar hugmyndafræði en þess í stað ætti að styðjast við reynsluvísindin; skoða staðreyndir gaumgæfilega og meta þær með hliðsjón af reynslunni... Annars ætti  Þorsteinn Pálsson að  íhuga hvort ...

23. Júlí 2011

FRAMTÍĐ REYKJAVÍKURFLUGVALLAR

MBL -- HAUSINNBirtist í Mogunblaðinu 22.07.11.
Málefni Reykjavíkurflugvallar hafa verið nokkuð til umfjöllunar að undanförnu í tengslum við fyrirhugað samkomulag ríkis og Reykjavíkurborgar um að bæta aðstöðu fyrir innanlandsflugið. Hvað sem langtímaáformum líður þá verður ekki undan því vikist lengur að bæta aðstöðu fyrir farþega og starfsfólk. Um þetta er sem betur fer að skapast samstaða. Í framhaldinu hefur síðan kviknað að nýju umræðan um framtíð flugvallarins til langs tíma. Í því sambandi hef ég talað fyrir því að málið verði útkljáð í almennri atkvæðagreiðslu sem taki til landsins alls...

13. Júlí 2011

Í UMBOĐI HVERS?

Birtist í Fréttablaðinu 12.07.11
Fréttabladid haus...Hér vísar ritstjórinn í þá afstöðu mína, sem ég hef verið beðinn um að gera grein fyrir, meðal annars í þessu blaði, að ég vilji reisa nýtt fangelsi á Hólmsheiði og standa þannig að því að kostnaður verði sem minnstur til framtíðar. Ekki er um það deilt að einkaframkvæmd, sem felur í sér að einkaaðili reisi sérhæft húsnæði og leigi síðan opinberum aðilum, er miklu dýrari en að bjóða út hönnun og smíði fangelsis sem yrði frá fyrsta degi í eigu hins opinbera...

6. Júlí 2011

VEGTOLLAR OG KÚLULÁN Í BOĐI SAMTAKA IĐNAĐARINS

Birtist í Morgunblaðinu 05.07.11
MBL -- HAUSINN...Grein sína í Morgunblaðinu nefndi Helgi Magnússon Hugsum stórt - ekki eins og Ögmundur. Það er nefnilega það. Ætli þetta hafi ekki verið hluti af okkar vanda, menn sem sögðust vilja hugsa stórt, en þegar á hólminn kom reyndist stórhugurinn á sandi reistur og það sem verra er, alltaf á kostnað annarra...

2. Júlí 2011

UM LÝĐRĆĐI OG SANNFĆRINGU

Birtist í Fréttablaðinu 1.07.11
Fréttabladid hausKolbeinn Proppé, blaðamaður á Fréttablaðinu, veltir upp mikilvægri spurningu í framhaldi af grein minni hér í blaðinu um vegtolla. Þar lýsi ég því hvernig ég hafði fengið í fangið hugmyndir um að ráðist yrði í kostnaðarsamar flýtiframkvæmdir í vegamálum og yrðu þær fjármagnaðar með vegtollum á viðkomandi leiðum. Aldrei hef ég verið áhugasamur um þessa aðferðafræði en málið engu að síður þess eðlis - verið að selja aðgang að vegum, ekki spítölum - að ég kvaðst reiðubúinn að hafa um það forgöngu að því tilskyldu að um þetta yrði samstaða og þeir sem ættu að borga brúsann væru sáttir. Svo reyndist ekki vera og lýsti ég því þá yfir að við yrðum að hlusta á rödd þjóðarinnar. Þá spyr Kolbeinn: "Ef rödd þjóðarinnar á að ráða í þessu máli, gildir það þá ekki um önnur? Mun Ögmundur framvegis fylgja meirihluta í umdeildum málum svo sem um aðild að Nató...

29. Júní 2011

VEGTOLLAVINIR ENN Á FERĐ

Birtist í Fréttablaðinu 28.06.11
Fréttabladid hausMikilvægt er að halda vel til haga málefnalegum þráðum í umræðunni um samgöngumál; flækja þeim ekki saman því það ruglar umræðuna. Einn þráðurinn snýr að skattlagningu umferðarinnar, hvort halda eigi áfram að skattleggja eldsneytið, aðflutningsgjöld bifreiða og svo framvegis til að fjármagna samgöngukerfið eða skattleggja notkun vegakerfisins með veggjöldum. Gjaldtaka fyrir notkun mun án vafa verða ofan á þegar fram líða stundir. Þarna stendur tæknin hins vegar í vegi enn sem komið er. Þannig hafa Evrópusambandsmenn ítrekað frestað breytingum á skattlagningarkerfinu í þessa veru vegna tæknilegra örðugleika. Annar þráður umræðunnar snýr að því hvort fyrrnefndir skattar af eldsneyti og aðflutningsgjöldum eigi allir að renna til samgöngumála eða einnig til annarra...

26. Júní 2011

HVIMLEIĐAR RADDIR FORTÍĐAR

Birtist í Morgunblaðinu 25.06.11
MBL  - LogoÉg hef orðið var við að margir furða sig á framgöngu forsvarsmanna Samtaka atvinnulífsins í tengslum við kjarasamninga. Í stað uppbyggilegs samtals inn í samfélagið hefur málflutningurinn einkennst af gífuryrðum, svikabrigslum og ásökunum af pólitískum toga um »stjórnleysi« og »forystuleysi« ríkisstjórnarinnar. Alveg sama hvað gert er, alltaf er verið að svíkja þá Vilmund Jósepsson og Vilhjálm Egilsson. Þessum neikvæða tón úr ranni SA höfum við ekki átt að venjast í langan tíma og alls ekki nú síðustu árin, í aðdraganda hrunsins þegar Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráðið lágu á spena stjórnvalda, hvöttu þau til dáða og fengu nær undantekningalaust sínu framgengt. Einhvers staðar held ég að ég hafi séð að Viðskiptaráð hafi ...

16. Júní 2011

UMHUGSUNAREFNI

Birtist í Fréttablaðinu 15.06.11
Fréttabladid hausSíðastliðið haust komu til umræðu, og síðar atkvæðagreiðslu, á Alþingi niðurstöður og tillögur rannsóknarnefndar Alþingis sem starfað hafði fyrri hluta ársins samkvæmt einróma samþykkt Alþingis frá 12. desember 2008. Niðurstaða meirihluta þessarar rannsóknarnefndar var sú að látið skyldi á það reyna fyrir Landsdómi hvort fjórir ráðherrar hefðu rækt ráðherraábyrgð sína í aðdraganda hrunsins. Niðurstaða meirihluta Alþingis varð sú að þetta skyldi aðeins gilda um einn ráðherra, fyrrum forsætisráðherra Geir H. Haarde. Tillögurnar um hina þrjá voru felldar. Um þessa atkvæðagreiðslu ræði ég ekki frekar að sinni þótt tilefni væri til. Þetta var meirihlutavilji Alþingis...

3. Júní 2011

ORĐLJÓTUR FORMAĐUR SJÁLFSTĆĐISFLOKKSINS

Birtist í Morgunblaðinu 02.06.11.
MBL -- HAUSINN...Þá stendur eftir  það sem frétt Morgunblaðsins í gær fjallaði raunverulega um: Formaður Sjálfstæðisflokksins skammar VG fyrir að slíta ekki stjórnarsamstarfinu. Þessi afstaða er í fullu samræmi við fyrri ummæli formannsins en við atkvæðagreiðslu á Alþingi um vantraust á sitjandi ríkisstjórn sagði Bjarni Beneditksson að engu máli skipti á hvaða forsendum þingmenn greiddu tillögu hans um vantraust atkvæði bara að þeir samþykktu hana; með öðrum orðum, bara að menn létu nota sig til að koma ríkisstjórninni frá. Á hvaða forsendum það væri gert eða hverjar yrðu afleiðingarnar skipti engu máli. Góftuskuhugsunarháttur virðist ...

21. Maí 2011

GRUNDVALLARBREYTING: TIL VARNAR MANNRÉTTINDUM GEGN GLĆPUM

Birtist á vefritinu Smugunni 20.05.11
SMUGU sitelogo...Skilaboðin með þessari reglugerð eru skýr: Við beitum öllum tiltækum ráðum til að sporna við glæpum með því að heimila sérstakar rannsóknaraðferðir í baráttu gegn glæpasamtökum og einstaklingum sem stunda grófa glæpi og brjóta niður mannréttindi annarra. Hins vegar er ekki heimilt að beita slíkum rannsóknaraðferðum gegn grasrótarsamtökum eða hópum sem stunda pólitískt andóf. Sem dæmi má nefna að nú þegar reglugerðin tekur  gildi er skýrt að ekki eru heimildir fyrir starfsemi flugumanna á borð við breska lögreglumanninn Mark Kennedy sem tók þátt í mótmælum á Kárahnjúkum árið 2005. Þarna er því um grundvallarbreytingu að ræða.

21. Maí 2011

TIL VARNAR GRASRÓTARLÝĐRĆĐI

Birtist á vefritinu Smugunni 18.05.11
Árni Finnsson skrifar sérkennilega grein á Smuguna í tilefni skýrslu ríkislögreglustjóra vegna fyrirspurnar minnar um breska flugumanninn Mark Kennedy. Í skýrslu ríkislögreglustjóra kemur fram að íslenska lögreglan fékk upplýsingar erlendis frá um mótmælin við Kárahnjúka en lögreglan hafi ekki upplýsingar um hvernig þessar upplýsingar voru fengnar.Um leið og skýrsla ríkislögreglustjóra var sett á vefinn sendi ég frá mér yfirlýsingu sem birt var á vef innaríkisráðuneytisins og komu efnisatriði hennar að einhverju leyti fram í fjölmiðlum. Þóttu mér skilaboðin þar vera svo skýr að enginn þyrfti að velkjast í vafa um afstöðu mína. Ekki er að skilja á skrifum Árna Finnssonar að svo hafi verið. Hann segir mig ekki gera mér „neina rellu"vegna...

8. Maí 2011

EYJU - VIĐTAL


Eyjan 07.05.11
Sjá viðtal: http://vefir.eyjan.is/vidtalid/2011/05/07/ogmundur-jonasson/
... Mér er mikil eftirsjá að félögum mínum sem yfirgefið hafa þingflokk VG. En við skulum ekkert gefa okkur að þau verði á öndverðum meiði við ríkisstjórnina í atkvæðagreiðslu í þinginu á komandi misserum. Við skulum ekki gleyma að þau voru að mótmæla stjórnarstefnunni með því að samþykkja vantraust á ríkisstjórnina. Þeim fannst við hafa brugðist sem velferðarstjórn... Verkefnið nú er að draga velferðarfánann hærra upp eftir stönginni. Eftir því sem hann fer hærra og eftir því sem við stöndum betur í fæturna gagnvart frekju efnamanna í þjóðfélaginu þeim mun traustari verður ríkisstjórnin og meirihlutinn á þingi....

6. Maí 2011

VEGGJÖLD Í LEIĐARA

Birtist í Mbl. 05.05.11
MBL  - Logo...Ég vil enga opna tékka sem síðar féllu á skattgreiðendur eða kæmu fram í niðurskurði, til dæmis til velferðarmála. Í þriðja lagi vil ég benda á í framhaldi af leiðaraskrifum Morgunblaðsins í gær, að nálgun höfundar er mjög skyld vegatollahugsuninni að því leyti að horft er til tiltekinna svæða sem eigi að vera sjálfsaflandi. Bent er á að skattar sem innheimtir eru vegna umferðar á þessum svæðum geri gott betur en að standa undir kostnaði við framkvæmdir á þeim. En mér er spurn, hvort þannig viljum við hafa það, að horft sé til einstakra svæða og þau gerð að efnahagslega sjálfstæðum einingum. Þetta væri fráhvarf frá þeirri hugsun sem við hingað til höfum almennt byggt á og gengur út að fólk á fáförnum svæðum búi við viðunandi samgöngur...

26. Apríl 2011

KRAFAN UM RÉTTTRÚNAĐ


... Þarna sannaðist að sumt fólk missir fótanna þegar sagt er eitthvað sæmilegt um fólk í „hinum söfnuðinum". Þá er eins og menn viti ekki hvaðan á þá stendur veðrið; ekki lengur fast land undir fótum; ekki lengur hreinar línur... Dapurlegur er síðan ritstjórnarpistill Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur á Smugunni, sem mér skilst að vilji vera málgagn róttækrar vinstristefnu...

23. Apríl 2011

EGILL OG ECONOMIST: UM LÝĐRĆĐI OG TRAUST

ECON EGILL
...Leiðarahöfundur Economst staðnæmdist við meint afglöp almennings. Og Agli finnst þetta sérstaklega umhugsunarverð skrif... Almennt held ég að fólk gefi lítið fyrir íhaldssöm skrif ritstjóra Economist og Egils Helgasonar einnig, þegar hann er á þessum nótum. Og þegar þingmenn hafa sagt að þeir treysti ekki kjósendum - eða treysti þeim, eftir atvikum - þá hlæja kjósendur.  Þeim er alveg sama hvort fulltrúar á þingi segjast treysta þeim - eður ei. Þeir vita að valdið er þeirra. Spurningin er sú hvort þeir treysti fulltrúum sínum á þingi...

19. Apríl 2011

RADDIR FORTÍĐAR - FARISEAR NÚTÍĐAR


...Þessir tveir gömlu stjórnmálamenn urðu ekki aðeins sjálfum sér til skammar heldur þeirri tegund stjórnmála sem ekki skilur að valdið er hjá þjóðinni, ekki fulltrúum hennar, hvað þá stjórnmálaflokkum. Ef þjóðin vill taka ákvörðunarvaldið til sín þá hefur hún þann rétt og það er grundvallarréttur. Við slíkri kröfu varð forseti Íslands.
Tuttugasta og fyrsta öldin á eftir að verða öld hins beina lýðræðis. Þá munu kjósendur taka beint í sínar hendur ákvarðanir sem til þessa hafa verið á hendi kjörinna fulltrúa eða stjórnmálaflokka....Með framgöngu sinni urðu þeir fulltrúalýðræðinu til skammar, þótt þess þurfi ekki til, nú þegar vindar alvöru lýðræðis blása um heim allan. Hrikalegt var að heyra tal þeirra um...

11. Apríl 2011

ŢINGFLOKKSFORMENNSKAN OG PRINSIPPIN


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir mætti í gær úr fæðingarorlofi og stóð ég og fleiri í þeirri trú að hún tæki að nýju við sem þingflokksformaður einsog hún var þegar hún fór í fæðingarorlofið. En á þennan veg fór það ekki. Efnt var til atkvæðagreiðslu sem fór á þá lund að Árni Þór Sigurðsson var kjörinn gegn fjórum atkvæðum til Guðfríðar Lilju. Þar með hafði hún verið svipt stöðu sinni. Hvers vegna tek ég þessi innanflokksmál upp hér á opnum vettvangi? Ég geri það vegna þess að ég tel þetta ekki vera neitt einkamál - eða þess vegna innanflokksmál...

8. Apríl 2011

FJÖLMIĐLARNIR HAFA STAĐIĐ SIG VEL - FLESTIR


Í aðdraganda Icesave kosninganna hafa fjölmiðlar kappkostað að draga fram rök með og móti Icesavesamningnum. Að mínu mati hafa þeir staðið sig aðdáunarlega vel. Ríkísútvarpið hefur efnt til vandaðrar sjónvarpsþáttaraðar um málefnið og þannig risið undir skyldu sinni sem fjölmiðill í almannaeign.
Margir höfðu af því áhyggjur þegar ég lýsti því yfir fyrir hönd Innanríkisráðuneytisins að ráðuneytið sem framkvæmdaaðili kosninganna, myndi ekki standa fyrir kynningu annarri en þeirri sem lagabókstafurinn kvæði á um. Töldu margir að þar með yrði kynningu áfátt. Af því hafði ég aldrei áhyggjur því ég treysti á fjölmiðlana og umræðu, skipulagða og óskipulagða. Lögfræðingar færðu síðan fyrir því rök að ...

24. Mars 2011

ATKVĆĐASKÝRING Í FULLRI LENGD


... Það breytir því þó að sjálfsögðu ekki að þeim einstaklingum sem kjörnir voru á stjórnlagaþingið og nú í stjórnlagaráð færi ég mínar bestu velfarnaðaróskir. Það er mjög leitt hvernig þessi mál hafa æxlast og bitnað á þessu ágæta fólki algerlega að ósekju. Ég gerði grein fyrir afstöðu minni við atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag og kom atkvæðaskýring mín víða fram í fjölmiðlum í kjölfarið ekki að fullu heldur hálfu. Ekkert óeðlilegt við það í knöppum fréttatímum. En fyrir bragðið vantaði upp á samhengið. Ég sagði nefnilega ekki aðeins að...

21. Mars 2011

ÚRSÖGN ATLA OG LILJU OG TUNGUTAK HRUNSINS


Í dag gengu þau úr þingflokki VG þau Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir. Mér er  óneitanlega eftirsjá að brottför þeirra enda höfum við verið samherjar um margt. Ég óska þeim hins vegar alls góðs í starfi á Alþingi sem óháðir þingmenn utan þingflokka. Enn eru þau Atli og Lilja félagar í VG og staðhæfa þau í yfirlýsingu sem þau sendu frá sér í dag að þau hefðu ekki orðið viðskila við stefnu flokks síns heldur væri það þingflokkurinn sem það ætti við um. Umhugsunarefni urðu mér eina ferðina enn ummæli háskólaprófessors og fréttamanns í fréttum dagsins. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, sagði að ...

6. Febrúar 2011

REGLUSTRIKUFÓLKIĐ OG LEO TOLSTOY

...En jafnvel þótt menn séu reglustrikumenn og vilji koma öllum niður í ferköntuð box  þurfa þeir engu að síður að fara rétt með. Og best finnst mér fara á því að maður fái sjálfur að gera grein fyrir skoðunum sínum án þess að reynt sé að afbaka þær og afmynda. Það má Björn Bjarnason vita að ég er fullfær um að finna út úr því sjálfur hvernig ég hugsa...

6. Febrúar 2011

HVER SVARI FYRIR SIG

Birtist í DV 04.02.11.
DV...Það breytir ekki hinu að dómur Hæstaréttar og viðbrögð mín eru sjálfstætt mál sem ber að skoða sem slíkt. Ég hef sagt og segi enn að ég tel að Hæstarétti hafi orðið á í ákvörðun sinni og er ég þar á sama máli og fjöldi lögspekinga. Sýnist mér þeim fara fjölgandi sem eru þeirrar skoðunar. Það breytir því ekki að úrskurðinum hlítum við til hins ítrasta á sama hátt og við förum að þeim landslögum sem við erum ósátt við...Ekki hef ég oft séð kröfur reistar á hendur ráðherrum um afsögn í seinni tíð, hvorki í þessu blaði né annars staðar. Spurning hvort menn hafi nú fundið rétta tilefnið? Þeirri spurningu svari hver fyrir sig.

3. Febrúar 2011

VART SĆMANDI OFSTĆKI

...Þetta er greinilega tilhugsun sem er Birni Bjarnasyni ofviða að höndla. Ljóst er að hann hefur ekki náð sér fyllilega eftir þetta viðtal í Sjálfstæðu fólki Jóns Ársæls, því svo ofarlega er honum það í sinni að þegar hann nú í vikubyrjun sá ástæðu til að hnútukastast út í mig, þá dúkkar upp þessi hugsun: Það er kominn anarkisti í ráðuneytið mitt!
Ráðuneytið hét til skamms tíma Dóms- og mannréttindaráðuneyti. Skyldi það vera almennt viðhorf í íslensku þjóðfélagi að varasamt sé að hafa í mannréttindaráðuneyti - og þess vegna dómsmálaráðuneyti -  ráðherra sem er efins um valdstjórn og vill samfélag sem ekki byggir á yfirgangi og undirokun? Eða skyldi vera eftirspurn eftir þeim viðhorfum sem fram koma hér í skrifum  Björns Bjarnasonar...

1. Febrúar 2011

HINIR VAMMLAUSU EĐA BÖRN SÍNS TÍMA?


Gleðilegt er að fylgjast með nokkrum eldri Sjálfstæðismönnum taka út siðferðisþroskann á fullorðinsaldri. Þrír valinkunnir frammámenn Sjálfstæðisflokksins, allir ráherrar í lengri eða skemmri tíma í aðdraganda hrunsins, hafa nú stigið fram með ábendingum og kröfum um að ég segi af mér ráðherraembætti eftir að Hæstiréttur úrskurðaði kosningar til stjórnlagaþings ógildar. Ekki tilgreindu þeir hvort það ætti að vera  vegna ...

11. Janúar 2011

ER VERIĐ AĐ BIĐJA UM ŢÖGN?


..Til að þetta gangi upp mega menn ekki óttast ágreining, aðfinnslur, gagnrýni. Ekki hef ég neitt við það að athuga þótt samstarfsfólki í Samfylkingunni skuli hafa þótt andstaðan við að senda inn umsókn að ESB á sínum tíma bera vott um þröngsýni VG, eða þótt Róbert Marshall, svo tekið sé nýlegt dæmi, hafi þótt skorta pólitíska forystu við sandmokstur í Landeyjarhöfn, eða þótt Merði Árnasyni, samflokksmanni hans, þyki ...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

21. Maí 2012

UM LÝĐRĆĐI OG EIGNARRÉTT Í STJÓRNARSKRÁR-DRÖGUM

...Þar brást þú við fyrri færslu minni (auk annarra stjórnlagaráðsliða) sem ég birti hér neðst - en sólarhring síðar birti ég nefnilega þessa efnisathugasemd sem gaman væri að fá viðbrögð þín við: "Eins og Hjörtur Hjartarson lýsir hér að hér að ofan fyrir tæpnum sólarhring eru stór skref stigin í þágu beins lýðræðis sem Ögmundur kallar eftir og tel ég því fullsvarað og afstöðu Ögmundar misskilning - enda heldur forseti auk þess óskertum málskotsrétti. Hinu þarf líka að svara - sem Ögmundur segir um eignarrétt; hann virðist eins og fleiri ekki hafa áttað sig á merkilegu nýmæli í eignarréttarákvæðinu. Vissulega er rétt að 1. mgr. þess er óbreytt, orðrétt frá 72. gr. stjórnarskrárinnar (13. gr. frumvarpsins): "Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess ...
Gísli Tryggvason

21. Maí 2012

UM KÍNVERSK LANDSÖLUMÁL O.FL.

...Bara að láta Innanríkisráðherrann vita, að nú undir kvöld (bréfið barst 16/5), á síðustu metrunum fyrir Kristi Himmelfartsdag, berast þau tíðindi frá RÚV sjálfu, að nú vilji þeir loksins kveða Lilju með þér. Það var tími til kominn að sú vesæla fréttastofa rifi sig loks upp á rassgatinu og segði sannleikann, sem þú og við svo ótal mörg höfum alltaf vitað, þó sú fréttastofa þegi þunnu hljóði, sem ætíð, um samfylktu íslensku landsölumafíuna sem þú ert í stjórn með og hlýtur því að treysta ógesslega vel, en litlu verður Vöggur þó feginn á þessum síðustu og alverstu tímum og leyfum því RÚV að njóta þess, þegar fréttastofa þess segir amk. einu sinni sannleikann um Nubo og co...
Jón Jón Jónsson

13. Maí 2012

HEIMILI EĐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLĆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ŢARF SJÁLFBĆRA FERĐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTĆKARI EN AĐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIĐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIĐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIĐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAĐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AĐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERĐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóđin mín:

Stjórnmál

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta