Beint á leiđarkerfi vefsins

Stjórnmál

28. Desember 2010

ÁRÁSIRNAR Á ÁSMUND EINAR


...Allir þessir fjölmiðlar hafa hamast á hinum unga galvaska þingmanni Dalamanna Ásmundi Einari Daðasyni. Hann leyfði sér að vera á móti því að sækja um aðild að ESB. Og hann vill ekki láta segja upp starfsfólki á heilbrigðisstofnunum, krafðist úttektar á afleiðingum fjárlagafrumvarps, fékk ekki og sat því hjá. Ásmundi Einari spái ég bjartri framtíð í íslenskum stjórnmálum. Hvers vegna? Jú vegna þess að hann er fylginn sér, heiðarlegur, skeleggur og drengur góður. Ég er oftast sammála honum. Ekki alltaf. ...En hvað veldur því að tilteknir fjölmiðlar sameinast um að rægja þennan ágæta mann? ...Hver heldur um níðpennana á framangreindum fjölmiðlum? Kannski gæti handhafi blaðamannaverðlauna BÍ fundið þetta út fyrir okkur. Kannski gæti hann ... 

23. Desember 2010

SÍĐSOVÉSKAR VANGAVELTUR

Birtist í Morgunblaðinu 22.12.10
MBL  - LogoÍ fyrirsögn Morgunblaðsins í gær segir að ég hafi fyrst frétt af hjásetu þriggja þingmanna VG við atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið. Þetta er ekki rétt. Ég hafði frétt af þessu áður og málið síðan verið til umræðu á þingflokksfundi fyrir atkvæðagreiðsluna. Að þessu leyti kann ég að hafa verið óljós eða misvísandi í ummælum við fréttamann. En að þessu frátöldu er fréttin rétt. Þannig er rétt eftir mér haft í beinni tilvitnun...

21. Desember 2010

Í FRÉTTUM VAR ŢETTA HELST...


Þrír þingmenn VG sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga í síðustu viku. Það hefur orðið stjórnmálamönnum  og fjölmiðlafólki umræðuefni og sumum hneykslunarefni. Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, talaði um óstjórntækt fólk, haldið öfgaskoðunum. Þorsteinn Pálsson, fréttaskýrandi í laugardagsútgáfu sama blaðs, sá hinn sami og telur að stjórnmálamenn gangi kaupum og sölum, talar í sömu veru. Hvorugur treystir sér til að skilgreina þessar meintu öfgar - báðir láta sér nægja  að fordæma. Flokksfélagi minn - starfandi þingflokksformaður í fjarveru Guðfríðar Lilju  Grétarsdóttur, sem er í fæðingarorlofi - segist í Kastljósviðtali vart trúa Morgunblaðsfrétt um að hjásetumenn hafi átt spjallfund með tveimur ráðherrum, Jóni Bjarnasyni og Ögmundi Jónassyni ásamt þingflokksformanni í fæðingarorlofi.  Honum er alveg óhætt að trúa fréttinni - enda var ég búinn að...

12. Desember 2010

ICESAVE, FORSETINN, ALŢINGI OG LÝĐRĆĐIĐ


...Þegar fjölmiðlar rifja upp söguna þykir mér þeir heldur betur gleyma því að það var fyrst og fremst fyrir tilstilli þingmanna úr stjórnarmeirihlutanum að fór sem fór. Þetta mál hefði farið miklu fyrr í gegnum þingið og hljóðlegar ef ekki hefði komið til barátta þessa fólks sem að lokum kom málinu til þjóðarinnar án þess að stjórnin færi frá einsog forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar höfðu hótað að gera. Þetta þekki ég sem ráðherra sem sagði af sér ráðherradómi vegna þessa og einnig áður sem stjórnarandstæðingur á Alþingi í langan tíma...Nú er spurningin hvað forsetinn gerir. Ég hygg að það hljóti að ráðast af hvaða afstaða verður tekin til samningsins á þingi og í samfélaginu almennt. Forsetinn skýrði ákvörðun sína um að skjóta málinu til þjóðarinnar í ljósi lýðræðislegrar andstöðu við málið - innan þings og utan, ekki með skírskotun til málsins sjálfs. Þetta er lykilatriði.
Með hliðsjón af þessu leyfi ég mér að...

1. Desember 2010

LÝĐRĆĐI Í SÓKN - VALDAKERFI Á UNDANHALDI


...
Þess vegna felum við fulltrúum á þingi að finna lýðræðislegum vilja okkar farveg. En eftir því sem það verður auðveldara af tæknilegum ástæðum að kjósa, mun þjóðin í sífellt ríkari mæli óska eftir að taka valdið milliliðalaust til sín. Það mun verða gert í öllum stórum hitamálum sem samfélagið glímir við, varðandi stórvirkjanir, auðlindir, einkavæðingu  - einhverjir eru skelfingu lostnir yfir því að farið verðI að kjósa um fjárlög. Ekki deili ég þessum ótta. Hef reyndar ekki leyfi til þess, fremur en nokkur annar. Það sem drjúgur hluti þjóðarinnar vill að verði tekið til almennrar atkvæðagreiðslu verður að fara þá leið. Í umboði hvers eða hverra skyldu menn fá vald til að banna það?
Verkefnið framundan er að ...

27. Nóvember 2010

EFLUM LÝĐRĆĐIĐ: KJÓSUM !


Í dag er kosið til Stjórnlagaþings. Mikill fjöldi kröftugra einstaklinga býður sig fram í kjörinu, konur og karlar, ungir og gamlir, þéttbýlisbúar og dreifbýlisbúar. Mikilvægt er að við tryggjum góða blöndu kvenna og karla, landsbyggðar og þéttbýlis, eins góðan kokteil og verða má. Mestu máli skipta að sjálfsögðu áherslur frambjóðenda. Vilja þeir lýðræði eða forræði, almannavald eða auðvald, sjálfstætt þing eða ósjálfstætt, auðlindir í almannaeign eða einkaeignarhald á orkulindum og sjávarfangi? Ekki velkist ég í vafa um hvað ræður mínu vali. Að mínu mati hefur vel verið staðið að...

23. Nóvember 2010

„SÉRFRĆĐINGUR" SPEGLAR SIG


Baldur Þórhallsson er prófessor í stjórnmálafræði. Hann er líka varaþingmaður Samfylkingarinnar. Í þriðja lagi er Baldur andheitur stuðningsmaður þess að Ísland gangi í Evrópusambandið. Það var gott hjá RÚV að geta fyrstu tveggja hlutverka Baldurs þegar hann var kynntur í upphafi viðtals í Speglinum í gærkvöld. Fyrir hlustendur sem ekki þekkja til hefði náttúrlega verið forvitnilegast að heyra um þriðja hlutverkið. Þannig hefðu þeir fengið botn í málflutning hans...

20. Nóvember 2010

FLOKKSRÁĐ VG UM VELFERĐ, VEXTI OG ESB

...Sýna þarf fram á að þær heilbrigðisstofnanir sem á annað borð þurfa að sæta niðurskurði séu færar um það án skerðingar þjónustu og uppsagna starfsfólks með tilheyrandi afleiddum kostnaði." Þetta er mikilvæg hvatnig til ríkisstjórnarinnar og stuðningur við heilbrigðisráðherra ... hvetur flokksráðið „ til þess að svo fljótt sem unnt er verði í viðræðuferlinu látið reyna á meginhagsmuni Íslands eins og þeim er lýst í samþykkt Alþingis." Þetta er í anda þess sem ég hef talað fyrir, að flýta ferlinu, láta reyna á meginálitamálin, yfirráð yfir sjávarauðlindinni, landbúnaði og grunnatriðum í sjálfsákvörðunarrétti. Þennan skilning má lesa út úr framantilvitnuðu auk þess sem talað er um að stöðva aðlögunarferlið og fjárframlög til að smyrja samningsferlið og þar með viljann til aðlögunar...

3. Nóvember 2010

HALLDÓR BLÖNDAL OG JÓN GRUNNVÍKINGUR

Birtist í Morgunblaðinu 02.11.10.
MBL  - LogoAlltaf er gott til þess að vita þegar manni berast fregnir um að gamlir samstarfsmenn eldist vel. Fyrir skemmstu skrifaði Halldór Blöndal, fyrrum forseti Alþingis, grein í þetta blað sem sannfærði mig um að hann væri enn sjálfum sér líkur. Grein Halldórs hét  "Mannréttindaráðherrann og Jón Grindvíkingur" og var hugmyndin sú að greinin fjallaði um mig og afstöðu mína til fjárlagafrumvarpsins. Við nánari skoðun mátti skilja að hún fjallaði líka um atvinnustefnu Sjálfstæðisflokksins. Þannig var, að félagar Halldórs á þingi höfðu fundið upp á því snjallræði að spyrja mig út úr um tilteknar forsendur fjárlaganna. Ef ég efaðist um einhver atriði þar, mætti gera því skóna að ekki stæði steinn yfir steini í gervöllu frumvarpinu. Þeir Sigurður Kári Kristjánsson og Einar K. Guðfinnsson léku sitt hlutverk með prýði í þinginu en síðan kom sjálfur guðfaðirinn með...

4. Október 2010

STILLING LÖGREGLUNNUR ER STYRKUR HENNAR


...AGS minnti einnig á sig í fréttatímum dagsins með hefðbundnum boðskap um að ekki mætti koma til móts við skuldara með almennum aðgerðum. Og nú eru mánaðamót þegar lánastofnanir krefjast afborgana.  
Eldar loguðu, egg flugu og því miður einnig grjót og golfkúlur í Alþingishúsið, „húsið okkar" eins og ung stúlka minnti á svo eftirminnilega haustið 2008. „Þetta er húsið okkar" sagði hún og stillti sér upp fyrir framan Alþingishúsið sem þá hafði verið undir skothríð eggja- og grjótkasts. En við þessi orð stúlkunnar hætti grjótkastið.
Lögreglan fékk sinn skerf af grjóti  í kvöld. Og þinghúsið líka. Eldar loguðu á Austurvelli. Fólki var heitt í hamsi. Það var réttlát reiði - hjá flestum. Öllum bar saman um að lögreglan hefði sýnt æðruleysi og stillingu. Og þar með raunverulegan styrk. Stilling er styrkur var einu sinni sagt. Réttilega. Og þannig viljum við hafa lögregluna, rólega , yfirvegaða og æðrulausa: Gæslumenn mannréttinda... 

29. Ágúst 2010

ÓVINIR RÍKISINS?

Undrandi varð ég á ummælum Ólafar Nordal, varaformanns Sjáflstæðisflokksins, í hádegisfréttum RÚV í gær, þar sem hún hélt því fram að ágreiningur sem upp hefði komið innan stjórnarliðsins á Alþingi hefði "skaðað hagsmuni íslensku þjóðarinnar"! Hvað á varaformaður Sjálfstæðisflokksins við, Icesave, Magma eða ESB? Eða er einfaldlega að taka sig upp gamalt mein í Sjálfstæðisflokknum, gömul þrá eftir einni skoðun: Skoðun valdsins, "Réttu skoðuninni"? Þessi tími er liðinn Ólöf. Hann á að vera liðinn. Óvinir ríkisins hétu þau ...

25. Ágúst 2010

JÓN BJARNASON ER EKKI EINN!


...Þegar það síðan gerist að viðræðuferlið verður að aðlögunarferli - að því er séð verður - og boðið er upp á fjárveitingar til að smyrja ferlið sem best, þá spyrnir Jón Bjarnason við fótum enda er það í hans ráðuneytum sem mestu kröfurnar eru reistar. Þetta er fullkomlega málefnalegt og eðlilegt og nokkuð sem ríkisstjórnin mun án efa taka til skoðunar af fullri alvöru. Þá er hitt ljóst að á nákvæmlega sama hátt og stuðningsmenn stjórnarinnar eru frjálsir að því að tjá Evrópusambandinu ást sína, þá eru aðrir frjálsir að hafa uppi efasemdir um slíkt ástarsamband. Rétt er að hafa í huga að síðarnefndi hópurinn á hljómgrunn með stórum hluta þjóðarinnar - að öllum líkindum meirihlutanum eins og staðan er nú! Læt ég þá liggja á milli hluta að...

7. Ágúst 2010

VIRKISTURN Í NORĐRI?

MBL  - Logo...Við sem erum andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið erum iðulega sökuð um einangrunarstefnu og jafnvel þjóðrembu. Í mínum huga er ekkert fjær sanni. Hvað einangrunarstefnuna áhrærir tel ég einmitt vafasamt að einangra Ísland innan múra Evrópusambandsins. Við eigum að staðsetja okkur sem sjálfstætt smáríki, sem nýtur verndar og virðingar heimsins alls. Af þessari sýn okkar hafa ráðandi fjármálaöfl innan Evrópusambandsins áhyggjur...

29. Júlí 2010

STYRMIR OG FORSENDUR SJÁLFSTĆĐIS


Í bréfi til síðunnar vekur Ólína athygli á grein eftir Styrmi Gunnarsson, fyrrum Morgunblaðsritstjóra sem birtist í Sunnudags-Mogga um síðustu helgi undir fyrirsögninni Magmadeilan snýst um grundvallaratriði. Ólína tengir umfjöllun Styrmis uppgjöri hans við liðinn tíma og beinir þeirri spurningu til mín hvort í viðhorfum hans kunni að leynast vegvísir til uppgjörs í flokkakerfinu sem og „í siðferði atvinnulífsins." Þessu er til að svara að ég tel...

23. Júlí 2010

KRÖFTUGT FÓLK


... Í dag birtist skýr og skelegg grein eftir Jón Þórisson, arkitekt og aðstoðarmann Evu Joly, í Fréttablaðinu sem ég hvet alla til að lesa. Hann er í hópi fólks sem gengið hefur fram fyrir skjöldu í baráttu fyrir samfélagslegu eignarhaldi á orkuiðnaðinum og ber að þakka honum, aðkomu okkar ástsælu  Bjarkar, Oddnýjar Eir Ævarsdóttur ber einnig að þakka og margra annarra að undanförnu. Það er ómetanlegt fyrir samfélagið að eiga þetta kröftuga fólk að og mætti nefna mörg fleiri nöfn, svo sem Láru Hönnu Einardóttur sem bloggar reglulega á Eyjuna og Sigrúnu Davíðsdóttur sem hefur verið með frábæra pistla í RÚV. Áfram mætti telja. Að vísu ekkert mjög lengi. Þeir eru nefnilega ekki óteljandi fréttamennirnir sem...

9. Júlí 2010

HVERS VEGNA EKKI FYRSTA FRÉTT?


Í fjölmiðlum í dag eru fréttir af svikamálum gærdagsins. Kyrrsetning eigna og málaferli. Vissulega fréttnæmir atburðir. Svikamál samtímans eiga nú sem fyrr erfitt uppdráttar í fjölmiðlum. Sagt er frá klofningi í nefnd sem fjallar um lögmæti þess að erlent fyrirtæki, Magma Energy Sweden,  kaupi þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins og öðlist ráðstöfunarrétt á orku í iðrum jarðar í heilum landshluta. Hvers vegna... Vefmiðillinn eyjan.is  státar af frábærum pistlum Láru Hönnu Einarsdóttur. Þar er þessu máli gerð frábær skil, m.a. rannsóknarvinnu Teits Atlasonar...Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG hefur aldrei látið deigan síga í þessari baráttu og birti hann í gær grein hér á síðunni um þetta efni þar sem hann beinir spurningum til ríkisstjórnarinnar...

20. Júní 2010

ER SAMSTJÓRN ALLRA FLOKKA ĆSKILEG?

...Þjóðstjórnarfyrirkomulag - sem er háfleygt orð yfir samstjórn allra flokka - breytir því hins vegar ekki að um hugsjónir og stefnumál eru skiptar skoðanir á milli stjórnmálaflokka og hlýtur afstaða til grundvallarmála að skipta sköpum þegar ríkisstjórnir eru myndaðar. Þess vegna verður að spyrja Össur í framhaldinu: Hvað er það sem samstjórn allra flokka  myndi gera sem þessi ríkisstjórn gæti ekki gert?...

30. Maí 2010

KRAFA UM BREYTT VINNUBRÖGĐ Í STJÓRNMÁLUM


...Er það kannski einmitt þetta, skorturinn á auðmýkt og afneitun á að horfast í augu við veruleikann, sem kjósendur Besta flokksins eru að gera uppreisn gegn? Að hluta til held ég að svo sé. Að fólki finnist að veruleikinn sé eitt, orð stjórnmálamanna eitthvað allt annað. Uppreisnin er þannig ekki bara gegn „hrunflokkunum", leiðsögumönnum þjóðarinnar út í efnahagsógöngurnar, heldur líka veruleikafirringu stjórnmálanna almennt; gegn tungutaki ósanninda, auglýsingaskrums um að stjórnmálamenn horfi ævinlega til almannahags, viðhafi opin og lýðræðisleg vinnubrögð þegar allir vita að allt annað er uppi á teningnum. Fólk sér að þrátt fyrir hrun og hunskýrslur  er áfram meira að segja...

28. Maí 2010

ŢAĐ ER EKKI BÚIĐ AĐ KJÓSA Í REYKJAVÍK


Staðreyndin er sú að borgarfulltrúar VG í Reykjavík hafa staðið sig vel allar götur frá því flokkurinn bauð fyrst fram í borginni. Það verður því ekki sagt að sanngirni réði ef fram fer sem nú horfir samkvæmt skoðanakönnunum, að flokkurinn fengi aðeins einn fulltrúa kjörinn. VG hefði átt skilið að fá fjóra eða fimm fulltrúa - að minnsta kosti!
Samkvæmt skoðanakönnunum er Þorleifur Gunnlaugsson, annar maður á framboðslista VG úti, nær ekki kjöri. Það væri mikið slys. Þorleifur hefur verið einn öflugasti baráttumaður fyrir efnalítið fólk í borginni, vakinn og sofinn yfir hagsmunum þess, auk þess sem hann hefur ...

28. Maí 2010

KRAFTUR Í KRAGANUM


Á kosningaskrifstofum VG í Kraganum  hefur verið meira líf en í flestum kosningum fram til þessa... það skiptir máli hvort til áhrifa eru kosnir stjórnmálamenn sem leggja áherslu á atvinnu fyrir alla, jöfnuð og velferð eða þeir sem fyrst og fremst þjóna fjármagninu og handhöfum þess. Frasar? Nei, raunveruleiki sem nýlega var fjallað um í rannsóknarskýrslu Alþingis. það má læra af henni. Það má hafa hana í huga við kjörborðið á morgun.

28. Maí 2010

GÓĐ ÁMINNING Í HAFNARFIRĐI


...Mikilvægt er að draga af þessu rétta lærdóma. Einakframkvæmdin var upphaflega hugsuð til þess að fegra bókhaldið (skuldin var færð á fyrirtækið sem byggði viðkomandi mannvirki en ekki sveitarfélagið sem skuldbatt sig til að borga brúsann) og einnig til þess að færa einkaaðilum auðfenginn gróða á kostnað skattborgarans. Miklivægt er að kjósendur hafi það í huga að verið er að kjósa um raunverulega valkosti. Talsmenn  flokkanna í Hafnarfirði minntu okkur ágætlega á það í gær. Áherslur Guðrúnar Ágústu um jöfnuð, félagslega ábyrgð og umhverfisvernd voru allar á sínum stað...

26. Maí 2010

ENGA ŢÖGGUN TAKK!

Haft var eftir forsætisráðherra í fréttum í gær að þingmenn stjórnarflokkanna ættu ekki að bera ágreiningsefni á torg. ... Ein meginástæða hrunsins var það viðhorf að undir engum kringumstæðum mætti anda á forsvarsmenn í ríkisstjórn. Það myndi skaða og ekki sýna trúverðugleika og styrk út á við. Nú er Lilju Mósesdóttur legið á hálsi að orða þessa hluti nú rétt fyrir sveitarstjórnarkosningar. Hvers vegna gerir hún það og þá einnig ég? Vegna þess að það er verið að ganga frá samningum við Magma núna - reyndar  er búið að því. Lilja Mósesdóttir  var spurð hvers vegna hún hefði ekkert gert. Hún upplýsti um hvað hún hefði gert. Varð það rangt af henni? Skaðar það VG sem baráttuhreyfingu? Nei, ef eitthvað er, þá styrkir það VG að ræða hlutina opinskátt einsog þeir eru...

16. Maí 2010

VIĐ ERUM AĐ BREGĐAST


...Samfélagið er bregðast sjálfu sér; ríkisstjórnin er að bregðast komandi kynslóðum í þessu máli. Við sem sitjum á Alþingi erum að bregðast sem löggjafi því við verjum ekki auðlindir þjóðarinnar gegn braski. Fjármálamenn eru líka að bregðast samfélagi sínu. Þeir ættu að sjá sóma sinn í því að hugsa á félagslega ábyrgan hátt; láta auðlindirnar í friði, ella verður ríkisstjórnin og sameinað Alþingi að bregðast við hart. Andvaraleysi í þessu máli er ekki valkostur.  

16. Maí 2010

VAKINN OG SOFINN FYRIR LANDSBYGGĐINA


... Deilurnar um Stjórnarráðið eru margþættar, lúta að stjórnsýslunni, jafnvel umsókn okkar að ESB. Svo telja margir í VG. Því fer fjarri að Jón Bjarnason sé einn og yfirgefinn að berjast fyrir vönduðum vinnubrögðum þegar kemur að breytingum innan stjórnsýslunnar. Það er nokkuð sem samflokksmenn hans hafa haldið að Alþingi og framkvæmdavaldi alla tíð. Sem formaður BSRB hef ég iðulega komið að því að binda óhnýtta enda eftir flaustursleg vinnubrögð við skipulagsbreytingar. Reynslan sýnir að ...

11. Maí 2010

ENN ER BOĐUĐ FORRĆĐISHYGGJA!

Birtist í DV 10.05.10.
DV...Þessi álitamál eru sem áður segir afgreidd í starfshópi ríkisstjórnarinnar á þann veg að forræði forsætisráðherra eigi að efla. Þetta þarf að ræða miklu betur en gert er í skýrslunni því  einfalt er málið ekki. Sama gildir um staðhæfingar sem fram eru settar um breytingar á Stjórnarráðinu. Þar er margt sagt sem þarf alla vega miklu meiri skoðunar við. Þá vil ég einnig nefna afstöðuna til stjórnunar almennt. Hrunverjarnir töluðu einsog við munum mikið um hina miklu stjórnendur sem allt áttu að vita og kunna. Allir voru þeir á alls kyns hvatalaunum og bónusum. Aðrir áttu að hlýða leiðsögn þeirra - vafningalaust.  Á Alþingi voru sömu formúlur uppi....

10. Maí 2010

TILLAGA VG SAMŢYKKT


...Á Íslandi á enginn stjórnmálamaður sér von um velgengni í pólitík nema hann veiti samþykki fyrir því að allt sé uppi á borðum og að enginn vafi sé á því að fjárhagslegir hagsmunir stjórnmálamanna ráði ekki gjörðum þeirra. Að þessu leyti er afstaðan í Borgarráði spegill á almannaviljann. Þjóðfélagið er nefnilega að vakna.  Enn er þó værukærð á sumum fjölmiðlum. Ekki minnist ég þess að sjá um þetta frétt í Sjónvarpinu svo dæmi sé tekið. En hafi Þorleifur Gunnlaugsson þakkir fyrir frumkvæðið, borgarráð fyrir samþykkið...  

27. Apríl 2010

MIKILVĆG YFIRLÝSING


...Ég spái því að í framtíðinni muni fólk horfa með forundran til okkar tíðar þegar enn er til fjölmargt fólk sem vill meina þjóðinni um þennan sjálfsagða rétt og áttar sig ekki á því að almenningur á réttinn - hann er það sem við köllum mannréttindi. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ákvað með þessari yfirlýsingu að eiga hlutdeild í framtíðinni; lýðræðisþjóðfélaginu sem er handan við hornið.  Nú er að sýna viljann í verki. Öll þurfum við að lyfta undir horn með forsætisráðherra í lýðræðisbaráttunni...

25. Apríl 2010

AĐ SNÚA HLUTUNUM Á HVOLF


Sennilega er Þorsteinn Pálsson, fyrrum ritstjóri og pólitíkus, sannur íhaldsmaður. Hann er íhaldsmaður í þeim skilningi að í Fréttablaðspistli sínum í dag heldur hann sig  við nákvæmlega það sama og hann sagði í síðustu viku, og einnig þarsíðustu. Mér sýnist orðalagið meira að segja eins - alla vega er boðskapurinn sá sami.  Hann er sá að í landinu sitji ágæt ríkisstjórn - afsakið, í landinu sæti ágæt ríkisstjórn, ef ekki væru nokkrir vinstri sinnar í VG sem þvinguðu hana þráfaldlega frá því sem Þorsteinn kallar „hófsemdarhyggju" .  Þorsteinn grætur það í Fréttablaðsgrein sinni að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra  vilji ekki  starfa í anda „Blairismans" heldur hafa ...

22. Apríl 2010

GÖNGULAG LILJU MÓSESDÓTTUR


„Lilja Mósesdóttir er í litlum takti við aðra í flokknum".
Þetta segir í fréttaskýringu um pólitíkina í Fréttablaðinu nú um helgina. Flokkurinn, sem vísað er til, er að sjálfsögðu Vinstrihreyfingin grænt framboð. Þessi fullyrðing stenst ekki. Eða hvað er átt við? Lilja Mósesdóttir hefur staðið sig frábærlega sem formaður Viðskiptanefndar Alþingis, fulltrúi í Efnahags- og skattanefnd, fulltrúi Íslands í Evrópuráðinu og fjölmörgum vinnunefndum Alþingis. Þá er hún ötul baráttukona fyrir því að koma böndum á sukk og spillingu í bönkunum. Ég efast um að nokkur þingmaður hafi staðið sig eins vel og hún í viðleitni til að rétta stöðu skuldugs fólks. Hún er alla vega í góðum ...

20. Apríl 2010

LÝĐRĆĐIĐ ŢARF NĆRINGU - STJÓRNVÖLDIN AĐHALD


...Við þurfum líka að stappa stálinu í okkar eigin stjórnvöld. Standa að baki þeim í kröfum um opin og lýðræðisleg samskipti við umheiminn. Kannski hafa alltof margir sofið á verðinum hvað þetta snertir. Í framtíðinni verður það vonandi óhugsandi að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum séu gefnar skuldbindingar  um íslensk innanríkismál - varðandi skipulag Íbúðalánasjóðs, aðkomu að skuldavanda heimilanna - eða milliríkjasamningum, án þess að slíkt fái opna, gagnsæja og lýðræðislega umræðu í ríkisstjórn landsins, á Alþingi og í samfélaginu almennt. Því miður hefur sú ekki orðið raunin þegar gengið hefur verið  frá skilmálum við AGS.  Og nú eina ferðina enn. Það er óásættanlegt. Breytt vinnulag...
...

15. Apríl 2010

ŢAĐ Á EKKI AĐ HAFA MENN FYRIR RANGRI SÖK


...En er þetta rétt? Eða kannski öllu heldur, er þetta réttlátt? Það er einhverju ábótavant að þegar allir vita innst inni hvað rétt er, en „formið" segir annað. Þess vegna spyr ég: Er rétt að hengja Björgvin Sigurðsson upp í hæsta gálga en hlífa öllum hinum sem raunverulega komu að ákvarðanatöku, voru í hringiðunni, sátu á fundunum, og voru því ábyrgir með aðgerðum sínum og aðgerðaleysi eftir atvikum. Björgvin Sigurðsson átti vissulega að vita hvað var að gerast. Það gerði hann ekki. Hvað hlutdeild hans snertir þá var öll þáverandi ríkisstjórn meðsek. Hún ræddi þessi mál ekki einu sinni á fundum sínum! Sekt hennar er fólgin í ....

 

14. Apríl 2010

EFTIRÁRĆĐUHÖLD

EPTIR A RADUHÖLD
Gott er ef okkur auðnast að draga lærdóma af mistökum fyrri ára. Hver skyldu vera mestu mistökin? Ég hygg að það sé glámskyggni á samtímann. Gærdagurinn er að verða okkur ljós: Spilling, mistök, vanræksla, óheiðarleiki, valdníðsla og undirlægjuháttur. Kannski er hann verstur. Undirlægjuhátturinn. Hann birtist í því að þora aldrei í valdið en glefsa í þá sem liggja. Ef við ætlum raunverulega að læra af martröð undangenginna ára þá breytum við öllu okkar vinnulagi. Við horfumst í augu við þetta, hver og einn þarf að horfa í eigin barm. Stjórnmálamenn  þurfa að breyta vinnulagi sínu. Kerfið þarf að verða opnara og gagnsærra, stjórnmálin lýðræðislegri. Eru þessar ábendingar of almenns eðlis? Eru þetta klisjur? Nei, þetta er...

12. Apríl 2010

GRĆĐGI, SKORTUR Á GAGNSĆI OG HINIR AUĐSMALANLEGU


En skýrslan er líka stórvirki sýnist mér, sigur fyrir íslenskt samfélag, staðfesting á að þrátt fyrir allt eigum við sem samfélag fólk sem getur, kann og skilur. Í því gæti framtíð okkar falist, endurreisnin. En þá verðum við hvert og eitt að hugsa okkar gang: Hvað gátum við gert öðru vísi? Aðeins með því að skoða hug okkar með ganrýnum hætti; stjórnmálamenn, embættismenn, ráðherrar, lántakendur, lánveitendur, kjósendur, öll þurfum við að grandskoða hugsun okkar. Við þurfum að koma höndum yfir...

12. Apríl 2010

ASÍ: ICESAVE ER STÓRIĐJUSTEFNA

Birtist í Fréttablaðinu 11.04.10
FB logo...Í öðru lagi tel ég það hafa verið þjóðinni til góðs að spyrna við fótum gegn því ofríki sem við höfum verið beitt í þessu máli. Þar hafa margir lagt hönd á plóginn - allir þeir sem þokað hafa þessu máli áfram stig af stigi, af einni syllu á aðra eiga þakkir skyldar. Þegar upp verður staðið og málið gert upp í sögulegu samhengi munu menn líta á Icesave sem langvinna baráttu - sjálfstæðisbaráttu - þar sem Íslendingum tókst smám saman að reisa sig á fætur og rétta sinn hlut. Hygg ég að innbyrðis karp og fordæmingar manna hver í annars garð muni þá taka á sig allt aðra og mildari mynd en þá sem nú blasir við á umræðuvettvangi dagsins...

31. Mars 2010

TUTTUGU ŢÚSUND ÁRSVERK VINNAST

Birtist í Fréttablaðinu 30.03.10.
Fréttabladid hausAtvinnuleysi er böl. Ég tek það því alvarlega þegar mér er borið á brýn að hafa stuðlað að auknu atvinnuleysi. Einmitt það gerir Magnús Orri Schram alþingismaður í skrifum sínum í Fréttablaðinu nýlega. Við sem stuðluðum að því að Icesave-samningarnir fóru inn í nýtt ferli, erum sögð hafa með frestun málalykta, valdið gríðarlegum kostnaði sem smám saman sé að koma í ljós: "Lægri laun, hærri vextir, miklu meiri niðurskurður, lægra gengi og a.m.k. 3.300 atvinnulausir er bara ein birtingarmynd þessa kostnaðar." Þetta fullyrðir Magnús Orri...

9. Mars 2010

NÝTUM TĆKIFĆRIN !

Birtist í DV 08.03.10.
DV...Ekki að undra að handhöfum  alþjóðafjármagnskerfisins var lítið gefið um þessa kosningu eftir að hún var sett  inn í samhengið:  fjármagn gegn fólki. Það  er í raun ekki fráleit uppsetning. Sama fólk og lætur sér fátt um finnast þegar lögbundin kjör öryrkja eru skert ætlar upp af hjörunum ef hætta er á að maður tapi einhverjum krónum sem hann á í bankabók. Auðvitað viljum við öll að sparnaður á bankabók verði tryggður. En ekki hvað sem það kostar. Ekki á kostnað öryrkjans eða krabbameinsdeildar Landspítalans.....Þeir stjórnmálamenn sem ekki orka að rísa upp yfir sjálfa sig og þrönga eiginhagsmuni stjórnmálanna í svo stóru máli sem Icesave er, á hreinlega að flauta út af vellinum. Það verður held ég líka gert þegar....

7. Mars 2010

VONANDI MISHEYRĐIST MÉR SUMT Í SILFRINU


Við berum öll saman ábyrgð og okkur ber öllum að vinna saman að framhaldinu á lausn Icesave-deilunnar. Á þessa leið mælti Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í Silfri Egils í dag. Jóhanna Sigurðardóttir talaði um framhald málsins. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að sinn flokkur væri ekki að draga sig út úr samningaviðræðunum um Icesave og sama var uppi á teningnum hjá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins. Birgitta Jónsdóttir frá Hreyfingunni kvaðst vera að skoða málið en fram kom hjá henni traust í garð samninganefndarinnar sem setið hefur á rökstólum við Breta og Hollendinga... Undir niðri í samræðunum í Silfri Egils kraumaði Sturlungaöldin. Stutt var í að menn vildu tengja Icesave og líf ríkisstjórnarinnar. Með öðrum orðum, nota Icesave til að koma ríkisstjórninni frá...

3. Mars 2010

VIĐ SEGJUM:


Ég fagna þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave.  Hún er tækifæri til að segja yfirgangs- og fjármagnsöflum að þegar hagsmunir fólks og fjármagns takast á, þá á fólkið að láta til sín taka. Á Íslandi býðst okkur farvegur lýðræðisins til að láta rödd okkar heyrast. Þennan farveg eigum við að breikka og dýpka. Sú viðleitni er hafin. Við erum að hefja vegferð inn í nýja tíma. Inn í opnara samfélag þar sem forræðishyggja víkur fyrir virkara lýðræði. Þetta grætur forræðishyggjan. Hún vill að lýðræðið taki bara til hundahalds og tímastillingu á klukkunni. Fram hefur komið að...

2. Mars 2010

LEYFUM JÓHANNI AĐ BORGA


Jóhann Hauksson, fréttamaður, hefur skrifað meira en flestir menn til stuðnings Icesave samningum og alltaf stutt af miklum móð þá niðurstöðu sem legið hefur fyrir hverju sinni. Hann studdi Icesave samniginn eins og hann var lagður fyrir Alþingi í byrjun júní, síðan aftur í ágúst og loks í desember. Svo var á Jóhanni að skilja að það nálgaðist skemmdarstarfsemi að setja fyrirvara við samninginn eins og gert var áður en yfir lauk í ágústlok. Þegar Bretar og Hollendingar féllust ekki á þá fyrirvara og Alþingi tók að nýju til við málið, reis Jóhann Hauksson upp að nýju til að verja lakari útgáfuna...

19. Febrúar 2010

ÁFRAM !


Sveitarstjórnarkosningar nálgast. Flokkarnir eru þessa dagana að velja frambjóðendur á lista. Á ýmsu hefur gengið.  Sitt sýnist hverjum um uppröðun á listana. Það á við norðan heiða og sunnan. Hvernig ætti annað að vera? „Ég styð hana eða hann, þú styður hann eða hina". Og sannfæring okkar er mikil....Það tekur á þegar félagar deila. Svo lýkur því. Einsog nú í Reykjavík....Nú reynir á að við fylkjum liði: Í þágu tekjulágra, atvinnulausra, húsnæðislausra, í þágu jafnréttisbaráttu, í þágu jafnaðar, í þágu umhverfisverndar, í þágu skynsemi og lýðræðis, gegn peninga - og forræðishyggju. Nú segjum við öll, stuðningsmenn VG í Reykjavík...

6. Febrúar 2010

HĆTTUM BLEKKINGUM

Birtist í Morgunblaðinu 5.2.10
MBL  - LogoÞórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, skrifaði grein í norska stórblaðið Aftenposten, sem vakið hefur athygli. Ég, á meðal annarra, hef gagnrýnt skrif Þórólfs harðlega. Hann hefur brugðist við gagnrýni minni, m.a. á vefmiðlinum Pressunni. Heldur hann sig við sama heygarðshorn og í Aftenposten þar sem hann gerir því skóna að gagnrýnendur Icesave-samningsins hér á landi fari með ósannindi og máli skrattann á vegginn.

3. Febrúar 2010

SJÁLFSTĆĐISFLOKKURINN FORGANGSRAĐAR


Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mætti í Kastljós Sjónvarpsins í kvöld. Margt var skrafað. En þar kom að spurt var um forgangsröðun Sjálfstæðismanna. Hvað myndir þú gera, spurði Helgi Seljan Kastljósmaður, ef þú yrðir forsætisráðherra. Bjarni sagði að nauðsynlegt væri að byggja á víðtækri sátt um þá stefnu sem fylgja ætti. Sættir yrðu að takast við hagsmunaðila. Þetta sagði formaðurinn, eða á þessa leið. Nú beið ég spenntur, skyldi hann telja upp hagsmunaaðilana sem tala þyrfti við, kannski byrja á því að nefna Öryrkjabandalagið, svo Hagsmunasamtök heimilanna, BSRB, Náttúruverndarsamtökin... Nei, fyrstir inná samráðspallinn hjá Bjarna Benediktssyni átti að vera ...

31. Janúar 2010

STYRKJA SAMNINGSSTÖĐUNA


Flestir sem verða á mínum vegi þessa dagana gleðjast yfir því að möguleikar kunni að opnast á endurupptöku Icesave samninganna. Úrtölufólk er líka til en því fer fækkandi. Sem betur fer. Ég heyri á félögum mínum og vinum sem ég er í samskiptum við innan verkalýðshreyfingarinnar á Norðurlöndum og á vettvangi Evrópusambandsins, að nú blási ferskari vindar og okkur hagstæðari en verið hefur fram til þessa...Tvær konur hafa verið skeleggar í þessu efni síðustu dagana, þær Eva Joly og Lilja Mósesdóttir.  Norrænir þingmenn óskuðu eftir því að Eva Joly gerði grein fyrir sinni sýn á Icesave málið fyrir hálfri annarri viku. Sá fundur muna hafa verið...

26. Janúar 2010

ÖLL GÖGN UM ÍRAK FRAM Í DAGSLJÓSIĐ!

...Gott er að finna fyrir stuðningi Kristins H. Gunnarssonar hvað þetta varðar en fyrir þinginu liggur beiðni frá mér og fleirum um að öll gögn í þessu máli verði gerð opinber og upplýst um það niður í kjölinn. Þingsályktunartillagan er svohljóðandi:  "Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra og utanríkisráðherra að sjá til þess að birt verði öll skjöl og allar aðrar upplýsingar sem fyrir liggja frá ársbyrjun 2002 til desember 2003 sem varpa ljósi á ákvörðun þáverandi ríkisstjórnar um stuðning Íslands við innrás Bandaríkjamanna og Breta og annarra þjóða í Írak árið 2003." ...Sjá hér nánar umfjöllun mína um þetta efni frá því í desember...

15. Janúar 2010

FJÁRMAGN GEGN FÓLKI


...Kannski finnst Reinfeldt forsætisráðherra það vera í góðu lagi að gerast handrukkari. En hvað skyldi sænsku þjóðinni finnast um þetta nýja hlutverk sitt? Hvað skyldi þjóðinni sem átti Olov Palme finnast um að vera komin í fótgöngulið fjármagnsins gegn fólkinu? Skyldu menn almennt átta sig á því að viðhorfsbreytingin í Evrópu á meðal almennings er vegna þess að fólk er farið að stilla dæminu svona upp...

14. Janúar 2010

MARKMIĐ OKKAR ALLRA ER HIĐ SAMA


... Þegar málsmetandi aðilar í evrópskum stjórnmálum, fjölmiðlaheimi og á meðal almennings taka undir með okkur, á faldi íslenskrar lýðræðisbylgju, hljótum við að lyfta jákvæðum röksemdum sem fram eru reiddar en ekki tala þær niður einsog hefur viljað brenna við. Í stað þess að horfa aftur á bak og sýta erfitt hlutskipti okkar eigum við að fagna því þegar staðan batnar og vinna að því að bæta hana enn meira. Það er verkefnið. Sjálfur hef ég alla tíð líkt þessari þrautagöngu við...

10. Janúar 2010

LÝĐRĆĐI EĐA FORRĆĐI?


...Rökum Péturs um að lýðræði í of stórum skömmtum leiði til ranglætis andmæli ég á tvennum forsendum. Í fyrsta lagi þykja mér þau byggja á forrræðishyggju. Þetta voru rök......Þá má spyrja hvort það hefði verið til ills að efnt hefði verið til þjóðaratkvæðagreiðslu um umdeildar ráðstafanir á undangengnum tveimur áratugum. Er það hollt að ríkisstjórninr komi "erfiðum málum", svo vitnað sé í prófessor Davíð Þór, auðveldlega í gegn?  Hefði verið virkjað við Kárahnjúka, hefðu bankarnir verið einkavinavæddir og sjávarauðlindin ef þurft hefði að eiga það við þjóðina beint? Hefði heita vatnið verið einkavætt? Ég held...

5. Janúar 2010

RÖKRÉTT NIĐURSTAĐA FORSETA ÍSLANDS


Að mínu viti er erfitt að sjá hvernig forseti Íslands hefði getað komist að annarri niðurstöðu en hann gerði. Honum bárust undirskriftir fjórðungs atkvæðisbærra manna í landinu sem hvöttu til þjóðaratkvæðagreiðslu. Þennan lýðræðilega vilja hlaut forsetinn að virða. Það hefur hann nú gert. Ég ítreka þá afstöðu mína að ríkisstjórnin á að sitja áfram. Hún var mynduð til að verja velferðarþjóðfélagið á Íslandi og má ekki hlaupa frá því ætlunarverki. Ég hef þegar lýst þessari skoðun í ...

3. Janúar 2010

RÍKISSTJÓRNIN HEFUR EKKI LEYFI TIL AĐ FARA FRÁ!


...Nú heyrist á stöku stjórnarliða - félaga minna - að komi til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem málið yrði fellt þá félli ríkisstjórnin jafnframt. Þessu mótmæli ég harðlega. Hér er ekki talað fyrir mína hönd! Þeir sem svona mæla eru reiðubúnir að fórna vinstri stjórn vegna Icesave.  Ég vona að allir haldi ró sinni, horfi á málið af yfirvegun og spyrji sjálfa sig hvort sé mikilvægara, lýðræðið og félagslega þenkjandi ríkisstjórn eða sú útgáfa af Icesave sem nú liggur á borði forseta Íslands. Ég vona að menn geri sér grein fyrir því að það var norrænn velferðarfáni sem til stóð að hefja að húni í Stjórnarráði Íslands næstu fjögur árin. Það er ...

2. Janúar 2010

AUKA BER VEG HINS BEINA LÝĐRĆĐIS


Forseti Íslands flutti að mínu mati sitt besta nýársávarp til þessa. Hann fjallaði um lýðræðið og hvatti til opnari, gagnsærri og lýðræðislegri stjórnarhátta...Menn velta því nú fyrir sér hvort forsetinn staðfesti Icesave-lögin eður ei. Þau sjónarmið heyrast að það sé ekki við hæfi að bera þetta tiltekna mál undir þjóðaratkvæði, það eigi bara við um önnur mál án þess að það sé skilgreint nánar hver þau eru. Í mínum huga er bara ein skilgreining sem máli skiptir: Lýðræðislegur vilji. Ef hann er fyrir hendi á að virða hann. Sá vilji birtist í tugþúsundum undirskrifta. Vinstrihreyfingin grænt frmaboð hefur alla tíð barist fyrir auknu vægi þjóðaratkvæðagreiðslunnar - og þar með hinu beina lýðræði. Við vildum ...

1. Janúar 2010

MIKILVĆG YFIRLÝSING FORSĆTISRÁĐHERRA

Joh.Sig. VATN 31.des 09
...Yfirlýsingar forsætisráðherra í áramótaávarpinu eru mjög mikilvægar og sérstakt fagnaðarefni. Þessum fyrirheitum þarf nú að fylgja eftir. Í ávarpi sínu sagði Jóhanna Sigurðardóttir um þetta efni:... Það ætti því að vera eitt af okkar brýnustu verkefnum að þessi ómetanlega auðlind, íslenska vatnið, verði skilgreind í stjórnarskránni sem almannaeign - engu síður en fiskurinn í sjónum...  


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Stjórnmál

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta