Stjórnmál
29. Apríl 2009
NÝJA ÍSLAND: ŢINGS OG ŢJÓĐAR AĐ ÁKVEĐA - FRAMKVĆMDAVALDS AĐ FRAMKVĆMA
...Í rauninni var ekkert þar sem átti að koma á óvart; hvorki þegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og fomaður Samfylkingarinnar sagði að sér fyndist eitt brýnasta hagsmunamál Íslendinga vera að komast inn fyrir dyr hjá Evrópusambandinu, né hjá mér þegar ég sagði að það væri það alvitlausasta sem ég gæti hugsað mér. Ónákvæmni gætti hjá mér í einu viðtali þegar skilja mátti að ég legði að jöfnu aðild að Evrópusambandi og viðræðuferli. Það leiðréttist hérmeð. En hvernig leysa samstarfsflokkar í ríkisstjórn djúpstæðan ágreining af þessu tagi? Það gera þeir með aðferðum Nýja Íslands: Lýðræðinu. Þjóðin ákveði...
28. Apríl 2009
FLESTIR VG-KJÓSENDUR Í KRAGA!

Ofarlega í huga eru þakkir til allra þeirra sem lögðu Vinstrihreyfingunni grænu framboði lið í kosningabaráttunni, bæði við undirbúning þeirra og í kjörklefanum. ...Í Suðvesturkjördæmi, svokölluðum Kraga, fékk VG 17,4% atkvæða og tvo þingmenn kjörna. Fyrir þremur árum var enginn þingmaður VG í kjördæminu. Í kosningunum 2007 fengum við fyrsta þingmanninn og eftir þessar kosningar eru þeir orðnir tveir. Bærilegur árangur í kjördæmi sem er hefðbundið vígi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Greinilegt er að VG er að treysta stöðu sína í kjördæminu svo um munar. Kraginn er langfjölmennasta kjördæmi landsins. Þannig skýrist að ...
25. Apríl 2009
ŢJÓNUSTUTILSKIPUN ESB Í EĐLILEGUM FARVEGI
Morgunblaðið tekur bakföll í dag yfir því að ekki skuli hafa verið skrifað undir Þjónustutilskipun Evrópusambandsins á ríkisstjórnarfundi í gær. Ekki dugir minna en forsíða, innsíða og Staksteinar sem er með útleggingar um málið, væntanlega í tilefni þess að í dag ganga Íslendingar að kjörborðinu...Utanríkisráðherra kom í gær á ríkisstjórnarfund með nokkrar tilskipanir frá Brussel til afgreiðslu. Hann kvaðst vilja vekja athygli heilbrigðisráðherra sérstakalega á þjónustutilskipuninni. Óskað var eftir því að málið fengi nánari skoðun. Ég varð ekki var við annað en utanríkisráðherra þætti það fullkomlega eðlilegt. Ísland var keyrt í þrot vegna þess að ...allt var keyrt áfram í óðagoti, umræðulaust.. Það mætti ekki spyrjast að eftir okkur væri beðið. Nægði þá að segja að einhverjir sérfræðingar hefðu lagt blessun sína yfir málið... 24. Apríl 2009
VIĐ HEITUM ŢVÍ AĐ VINNA VEL!

Sannast sagna er ég mjög stoltur af samherjum mínum á framboðslista VG í Suðvesturkjördæmi. Á myndinni hér að ofan er talið frá vinstri Margrét Pétursdóttir ... Ása Björk Ólafsdóttir...Ólafur Þór Gunnarsson.... Andrés Magnússon... Guðfríður Lilja Grétarsdóttir... Sjálfur skipa ég annað sætið, og stend lengst til hægri þótt ég heiti lesendum að í pólitíkinni stefni ég ekki í þá átt.
Hvað skal segja nú rétt áður en kjörstaðir opna annað en að biðja öll þau sem vilja veg Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs sem mestan í komandi kosningum að leggjast á eitt um að safna liði. Hvert atkvæði skiptir máli!!! Myndin er tekin í blaði VG sem dreift var í Kraganum um helgina. Þar var að finna viðtöl og greinar og lýsti ég viðhorfum mínum í svörum við spurningum sem blaðið beindi til mín...
22. Apríl 2009
LÍFEYRISSJÓĐIRNIR TIL BJARGAR

...Fyrir lífeyrissjóðina væri þetta hagkvæm og skynsamleg fjárfesting. Hjá ríkinu væru fjármunirnir vel komnir – jafnvel þótt ríkið standi nú höllum fæti. Fjárfesting með ríkið – okkur öll - sem bakhjarl er öruggari en í fallvöltum atvinnufyrirtækjum. Þetta sanna dæmin. Svo er á hitt að líta að í gegnum almannasjóði streyma peningarnir að nýju út í atvinnulifið í framkvæmdum og þar með til fyrirtækjanna. Þetta myndi því gagnast fyrirtækjum í atvinnurekstri þótt mest liggi fyrirtækjunum á því að fá vextina niður undir frostmark. Meginrök eru og þessi: Ef samfélagið hrynur þá hrynja einnig lífeyrissjóðirnir. Hvorugt ætlum við að láta gerast. Nú þurfa ...
13. Apríl 2009
TÍMI TIL AĐ TENGJA

Þessi mynd var notuð með pistli hér á síðunni í októberbyrjun árið 2007. Til umfjöllunar voru tilraunir fjárfestingabraskara til að hafa af okkur orkuauðlindir, nokkuð sem varað hafði verið við í langan tíma og alveg sérstaklega í aðdraganda þingkosninganna vorið 2007. Fjölmiðlungar eru smám saman að leggja á borð fyrir okkur hvað máli skiptir í styrkveitinga/mútumálum gagnvart stjórnmálaflokkum. Sjálfstæðismenn reyna án afláts að afvegaleiða þá....Gísli Marteinn Baldursson, Sjálfstæðisflokki, segir síðan í útvarpsviðtali í dag að ...
9. Apríl 2009
SKÚRKURINN?

....Það er mín sannfæring að ef frá er skilin pólitísk villukenning Geirs og hve mislagðar hendur honum og samherjum hans í Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Samfylkingu voru hin síðari ár, þá fái það ekki breytt þeirri staðreynd að í mínum huga er Geir H. Haarde heiðarlegur og gegnheill maður. Það hef ég reynt hann af í löngum kynnum þingmannsins/ fjármálaráðherrans annars vegar og formanns Starfsmannafélags Sjónvarps og síðar BSRB/þingmanns hins vegar. Þess vegna þykir mér miður þegar hann leyfir sökudólgum að þvo hendur sínar á sinn kostnað. Sjálfstæðisflokkurinn á að sjá sóma sinn í því að láta raunverulega gerendur axla ábyrgð en nýta sér ekki bak Geirs H. Haarde, fráfarandi formanns, þótt breitt sé....
9. Apríl 2009
MÁLSVARAR OG MÁLSTAĐUR

...Í þættinum baðst Bjarni, formaður flokksins afsökunar og kvaðst ætla að skila fénu til baka. En þarf Sjálfstæðisflokkurinn ekki að biðjast afsökunar á fleiru? Þetta er flokkurinn sem (ásamt hjálparkokkum úr öðrum ónefndum flokkum) er valdur þess að við erum stödd þar sem við nú erum. Bjarni Benediktsson átti í vandræðum í þættinum vegna þess málstaðar sem hann er í forsvari fyrir og vegna foraðsins sem nú er að koma betur og betur í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn er á bólakafi í. En hafi Bjarni átt erfitt í þessum þætti þá verður ekki sama sagt um Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, oddvita Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í kjördæminu. Hún nýtur þess vissulega að vera óvenju skýr og skilmerkileg í málflutningi, segir hlutina þannig að allir skilja. En hún er einnig...
8. Apríl 2009
24%, 20%, 18%....

Hversu langt niður skyldi Sjálfstæðisflokkurinn ætla að tala sig á síðustu metrunum fyrir kosningar? Hann stundar nú það sem kallað er málþóf á Alþingi til að koma í veg fyrir að komið verði á laggirnar sérstöku stjórnlagaþingi á komandi kjörtímabili. Þar er ætlunin að fjalla um stjórnskipan landsins. ... Meira hangir líka á spýtunni. Í ráði er að festa í stjórnarkrá ákvæði þess efnis að 15% þjóðarinnar getist krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um mikilvæg málefni og síðast en ekki síst að tryggður verði í stjórnarskrá eignarréttur á auðlindum sem "ekki eru einkaeignarréttarlegs eðlis." Þetta ávæði er lint en of afdráttarlaust fyrir Vinavæðingarflokkinn, sem má ekki til þess hugsa að ...
1. Apríl 2009
LEIFTRANDI STJÓRNARANDSTAĐA SJÁLFSTĆĐISFLOKKS - EĐA ŢANNIG

Þeim sem tekst að halda sér vakandi yfir daufgerðum ræðuhöldum Sjálfstæðismanna á Alþingi þessa dagana, fá innsýn í harla undarlegan hugarheim. Flokkurinn sem leiddi þjóðina út í dýpsta skuldafen sem hún nokkru sinni hefur ratað í, hafnar nú öllum hugmyndum um kjarajöfnun og bjargráðum ...Það krefst átaks að fylgjast með málatilbúnaði Sjálfstæðismanna í Alþingi. Vissulega er engum vorkunn að fylgjast með umræðu um ranglátan málstað ef hún er skemmtilega fram sett. En pólitískum fjörkálfum Sjálfstæðisflokksins er flest betur til lista lagt en fá hlustandann til að leggja við hlustir. Kjósendum ráðlegg ég hins vegar að fylgjast vel með...
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!
...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLĆTI
...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIĐ VONBRIGĐUM!
...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGĐ Í MUNNINN
Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓĐ KVEĐJA
...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson
Jón Jón Jónsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












