Beint á leiđarkerfi vefsins

Stjórnmál

21. Desember 2009

VIRKJUM LEIKGLEĐINA


...Þegar samvinna og samstaða tekst með einstaklingum vex hver og einn þeirra umfram sjálfan sig - saman fá þeir áorkað meiru en þeir hefðu gert hver á  sínum báti. Samstaða þýðir ekki að fylgja eigi hópi gagnrýnislaust. Sagan kennir einmitt að fátt er varasamara en undirgefni og fylgispekt. Þjóðfélagshrun nú - sem og fyrr á tíð - á meðal annars skýringu í því að stigið er á dómgreind einstaklinganna, þeim gert að lúta boðvaldi. Dómgreind og sjálfstæði þeirra er hins vegar sjálf forsenda lýðræðisins. Ef einstaklingsfrumkvæðið er kæft og sjálfstæð hugsun fær ekki að blómstra hverfur líka leikgleðin. Hún er okkur öllum mikils virði. Þannig samstöðu viljum við - af fúsum og frjálsum vilja án...

6. Desember 2009

GĆSAGANGUR Í GARĐABĆ

...Svo er að skilja á Samfylkingarfélagi Garðabæjar að þannig eigi þetta að vera í pólitíkinni líka; að allir gangi í takt og fari að fyrirskipunum. Þá gangi allt vel. Í ályktun sem félagið sendi frá sér um Icesave málið í nýliðinni viku, segir að Samfylkingin í Garðabæ hvetji þingmenn VG til þess "að taka þingflokk Samfylkingarinnar sér til fyrirmyndar og ganga í takt og í samræmi við ríkisstjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar, öllum til heilla."Nú er það svo að innan VG hefur verið prýðileg samstaða um þau grunngildi sem hreyfingin hvílir á. Hvað ríkisstjórnarsáttmálann áhrærir þá ...

 

3. Desember 2009

UPPLÝST VERĐI UM AĐKOMU ÍSLENDINGA AĐ INNRÁSINNI Í ÍRAK !


Dreift hefur verið á Alþingi þingsályktunartillögu sem ég flyt ásamt þremur öðrum þingmönnum VG þar sem farið er fram á að Alþingi samþykki að fela forsætisráðherra og utanríkisráðherra að opinbera öll skjöl og allar upplýsingar sem liggja fyrir og snerta ákvörðun um að setja Ísland á lista „hinna viljugu þjóða"  sem ákafast studdu innrásina í Írak árið 2003. Greint var frá listanum yfir „viljugar þjóðir",  „coalition of willing nations", á fundi með fréttamönnum í bandaríska utanríkisráðuneytinu, 18. mars 2003. Á fréttamannafundinum taldi talsmaður ráðuneytisins, Richard Boucher, upp þau ríki sem í hlut áttu, sagði að þau hefðu verið spurð...

18. Nóvember 2009

NORRĆN ŢÖGN SAMA OG NORRĆNT SAMŢYKKI


... Strauss-Kahn talar einsog aðrir, um "aðstoð" við Ísland þegar í reynd er um það að ræða að "hjálp" sjóðsins er í því fólgin að hætta að bregða fyrir okkur fæti; hætta að skipa þjóðum heims að loka fyrir lánalínur til Íslands þar til við höfum staðið við "skuldbindingar" okkar gagnvart Bretum og Hollendingum. Það er vissulega engin nýlunda á þessari síðu að fjallað sé um þátttöku Norðurlandanna í aðförinni að Íslandi. En nú er það sjálfur framkvæmdastjóri AGS sem skellir skuldinni á þau í bréfi sem gert hefur verið...

17. Nóvember 2009

KRÖFTUGUR FORMAĐUR HEIMSSÝNAR


... Ásmundur Einar hefur svarað þessu vel og tek ég hjartanlega undir sjónarmið hans. Sjálfur stend ég að aðildarumsókn að ESB til að framfylgja kröfum í þjóðfélaginu um lýðræðislega afgreiðslu á þessu máli án þess nokkurn tímann að hafa látið af andstöðu minni við aðild. Sannast sagna hef ég ALDREI verið því eins fráhverfur og nú að ganga inn í Evrópusambandið. Má ég ekki segja það? Má bara tala fyrir inngöngu og að það sé allra meina bót að Ísland...

14. Nóvember 2009

MATSFYRIRTĆKI: VERKFĆRI FJÁRMAGNSINS?


... Menn hefðu talað - segir hann í sama blaði - eins og hann væri "að stela auðlindum landsins". Það er ekkert skrýtið Ross. Nákvæmlega þetta eru þið hjá Magma að reyna að gera... Síðan er það einsog til að bíta höfuðið af skömminni sem nú heyrist frá  matsfyrirtækjunum svokölluðu. Þau láta nú án afláts frá sér heyra til að hrekja Íslendinga til undansláttar. Í rauninni er þetta ekkert undarlegt því þetta eru í reynd handlangarar fjárfestanna. Matsfyrirtækin gefa þjóðfélögum og einstökum fyrirtækjum einkunn fyrir hve vel þau standa sig í...

12. Nóvember 2009

Í ÁSTARSAMBANDI VIĐ VALDIĐ


...Þessi tími kom upp í hugann þegar ég las athugasemd sem Róbert Trausti Árnason skrifaði á eyjan.is í gær sem viðbrögð við pistli hér á síðunni um misbeitingu atvinnurekendavalds ... Ólína er óneitanlega heimspekilegri en Róbert Trausti ... Hún fjallar um valdið og kemur auga á það sem alltof fáir sjá: Að vald er verðugt umhugsunarefni, ekki bara í sögubókum heldur í samtímanum ... Ég þekki til þingmanna sem eru andvígir Icesave, hafa gagnrýnt vinnubrögð ríkisstjórnarinnar harðlega, ekkert síður en ég, en ætla engu að síður að styðja þá niðurstöðu sem nú liggur fyrir Alþingi. Það gera þeir að yfirveguðu ráði eftir að hafa metið alla kosti og galla í stöðunni... Fyrir þessum einstaklingum ber ég meiri virðingu en fyrir hinum sem alltaf gera það sem auðveldast er í stöðunni hverju sinni....

30. Október 2009

AGS-KRÖFUR: EINKAVĆĐING OG BÓKHALDSFALS?


... Mér brá svoldið á fundi nefndar sem ég hef nýverið tekið sæti í og fjallar um fjárfestingar á vegum hins opinbera, þegar rann upp fyrir mér að það er hugmyndafræði AGS sem stýrir för í vinnu nefndarinnar. Þessa hugmyndafræði þarf að ræða. Opinberlega. Forsenda þess að teknar verði ákvarðanir í þágu almannahagsmuna er opin og lýðræðisleg umræða. Hennar er nú þörf í ríkari mæli en verið hefur...

28. Október 2009

ODDVITI VG: HLUSTUM Á LĆGSTU RADDIRNAR


...Mikið finnst mér það góð tilhugsun að Þorleifur Gunnlaugsson skuli vera málsvari okkar Vinstri grænna í Reykjavíkurborg. Önnur úr framvarðarsveitinni eru vissulega kröftug, Sóley Tómasdóttir og fleiri. Virkilega góð. En Þorleifur er oddvitinn og verður vonandi áfram í brgarstjórnarkosningunum í vor! Í grein á Smugunni er að finna athyglisverðar hugleiðingar hans um kreppuna...

27. Október 2009

VIĐ BÚUM EKKI Í SKÁLDSÖGU


Eitt augnablik hvarflaði að mér að Staksteinahöfundur dagsins á Mogga gæti verið stjórnmálamaður. Með reynslu. Og að hann væri að gefa lýsingu á sjálfum sér, samkvæmt formúlunni, margur heldur mig sig. Auðvitað er af nógu að taka þegar leynimakk og baksamningar eru annars vegar, til dæmis úr heimi bankamálanna sem þessa dagana eru í brennidepli; hvernig bankarnir voru fengnir félögum og vinum í hendur fyrir slikk. Sem væri nú sök sér hefðu þeir ekki síðan komið okkur út í það fen sem við erum nú stödd í. Látum þetta liggja á milli hluta. Nema hvað baksamningar eru á dagskrá í Staksteinum í dag...

13. Október 2009

EINANGRUN ŢORSTEINS PÁLSSONAR

Birtist í Fréttablaðinu 12.10.09.
Fréttabladid haus...Eins er það með hugarburðinn um torfærurnar sem ráðamenn á Íslandi hafa sagst vera staddir í undanfarna tólf mánuði. Síðastliðið haust sögðust leiðtogar ríkisstjórnarinnar vera að brjótast í gegnum skafla, síðan tóku brekkurnar við, að ógleymdum stórfljótunum. Þorsteinn Pálsson, stjórnmálarýnir Fréttablaðsins, telur sig nú vera úti í einu slíku stórfljóti. Hann kemst að þeirri niðurstöðu í skrifum um nýliðna helgi að aldrei hafi "þótt ráðlegt að snúa hesti í miðju straumvatni. Við ríkjandi aðstæður væri það beinlínis háskalegt."
Hross Þorsteins er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn. Sú skoðun, að því fyrr sem við losnum við AGS þeim mun betra, er "háskaleg", að mati Þorsteins, sem gæti leitt til viðsnúnings bykkjunnar. En ef það er raunverulega svo að ...

11. Október 2009

FUNDUR Í KRAGA OG YFIRLÝSING FORSĆTISRÁĐHERRA


Á fundi með VG - félögum í Kraganum í Kópavogi í gær skýrði ég aðdragandann að afsögn minni úr ríkisstjórn.. Þar kom fram að í andmælum Breta og Hollendinga við fyrirvörum Alþingis við Icesaveskuldbindingum Íslands frá í sumar, hefði komið fram að þessar þjóðir neituðu okkur um að véfengja greiðsluskyldu okkar og leita til dómstóla. Þið megið vissulega véfengja skyldur ykkar, sögðu lánadrottnarnir en jafnframt verðið þið að skuldbinda ykkur til að borga það sem við setjum upp hverjar svo sem niðurstöður dómstóla yrðu! ...Ég sagðist aldrei geta samþykkt neitt af þessu tagi og gæti því ekki veitt stuðning við málið á þessu stigi - einsog krafist var af mér ...Í hádegisfréttum á RÚV í dag lýsti Jóhanna Sigurðardóttir, fosætisráðherra, því yfir að þessi afstaða Breta og Hollendinga gengi ekki upp.....

9. Október 2009

SAMSTAĐA ER EKKI SAMA OG UNDIRGEFNI


Sérstakt að lesa Fréttablaðið þessa dagana. Á miðvikudag var blaðið ekki prentað í stóru letri en þó blasti við að það endurspeglaði það sem ég hef fundið fyrir síðustu daga, ótta og áróður. Félagslega sinnað fólk hefur áhyggjur af vinstri stjórn. Miklu meira en það. Vill ekki að andað sé á hana. Ef óþægilegt gæti verið að ræða um.... Eins og fram hefur komið er það ásetningur minn að reyna eftir megni að stuðla að því að ríkisstjórnin haldi. Af þeim sökum sá ég mig knúinn til að segja af mér. Ríkisstjórnin varð samkvæmt formönnum stjórnarflokkanna að tala einni röddu í Icesave málinu, einnig því er varðaði vinnubrögð. Þetta þótti mér...

9. Október 2009

VIĐ ERUM VINSTRIĐ Í RÍKISSTJÓRNINNI


Viðtal úr Morgunblaðinu 7.10.09
MBL  - LogoÖgmundur Jónasson sagði af sér embætti heilbrigðisráðherra í liðinni viku vegna þess að hann gat ekki fallist á kröfu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um að ríkisstjórnin talaði einni röddu í Icesave-málinu. Margir hafa hins vegar á tilfinningunni að hin raunverulega ástæða afsagnar Ögmundar sé ekki komin fram. Hann segir að málið eigi sér langan aðdraganda þar sem baráttan hafi verið á milli opinna, þingræðislegra vinnubragða og valdboðs framkvæmdavaldsins...

7. Október 2009

SJÓNARMIĐIN SKÝRĐ Á BYLGJUNNI

bylgjan xsAfsögn mín úr embætti heilbrigðisráðherra hefur verið talsvert til umræðu undanfarna daga og hefur sitt sýnst hverjum. Ég hef reynt að skýra sjónarmið mín í útvarps- og sjónvarpsþáttum svo og í viðtölum í blöðum. Meðfylgjandi er slóð á viðtal í þættunum´"Í bítið" á Bylgjunni í gærmorgun...

6. Október 2009

Í GÍSLINGU HJÁ GUNNARI HELGA


...Til að finna þessu stað var fenginn stjórnmálafræðingur úr Háskóla Íslands, Gunnar Helgi Kristinsson.
Hann var mættur í uppsláttarfrétt Sjónvarps til að setja staðhæfingar sínar í fræðilegan búning. Ekki þótti mér sérstaklega vel til takast og er ég þó með gráðu í stjórnmálafræðum -nokkuð gamla að vísu, greinilega úrelta. Að þessu vék ég lítillega í viðtölum á fréttamiðlum í kvöld, sbr. neðangreint. Í þessum viðtölum var ég einnig spurður út í umræður á Alþingi um stefnuræðu forsætisráðherra. Í umræðunum var fjallað alemennt um...

5. Október 2009

STILLT UPP VIĐ VEGG


Mig langar til að þakka fyrir allar þær góðu kveðjur sem ég hef fengið eftir að ég sagði mig úr ríkisstjórninni. Menn spyrja hvers vegna ég hafi ákveðið að segja af mér. Fram hefur komið að það gerði ég með trega og eftirsjá en átti ekki annarra kosta völ eftir að mér var stillt upp við vegg og settir afarkostir einsog glögglega mátti sjá bæði í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu daginn sem ég tók...

4. Október 2009

VERĐ EKKI VIĐSKILA VIĐ MÍNA SAMVISKU


Fréttablaðið 1.10.09
Fréttabladid hausÖgmundur Jónasson segir ríkisstjórnina hafa stillt sér upp við vegg varðandi Icesave. Hann segir brotthvarf sitt bjarga ríkisstjórninni fremur en hitt og hann stígi sorgmæddur til hliðar. Skortur á lýðræðislegum vinnubrögðum hafi einkennt Icesave og það sé grundvallarmál. Hann vildi nýja samninganefnd um Icesave... "Þegar við erum að ræða um 7 eða 800 milljarða skuldbindingar geta menn ekki leyft sér eitthvert svona óþolinmæðis- eða þreytutal. Ef Alþingi er þreytt fer það bara og leggur sig og safnar kröftum og kemur síðan óþreytt til verka...

25. September 2009

ATLAGA AĐ EINKAREKSTRI?


...Sú spurning sem vaknar er þá þessi: Munu íslenskir sjúklingar leita inn á hina nýju einkaspítala og krefjast hlutdeildar hins opinbera í kostnaði? Liggur þetta í hugmyndinni? Munu sjálfstætt starfandi læknar vilja fá hið besta af báðum heimum, starfa á einkaspítala en jafnframt fá greiðslur frá hinu opinbera í gegnum Sjúkratryggingar? Hér gilda ekki eingöngu yfirlýsingar um ásetning manna því við verðum í alvöru að velta því fyrir okkur hvaða þrýstingur verður uppi þegar nýr einkarekinn veruleiki lítur dagsins ljós. Mikilvægt er að taka þessa umræðu strax. Um er að ræða hagsmuni sjúklinga, starfsfólks, skattgreiðenda, almannaþjónustunnar - og sjálfstætt starfandi sérfræðinga. Sú staða gæti nefnilega skapast ...

20. September 2009

ŢEGAR FORTÍĐIN GUFAR UPP


Svolítð erfitt er að átta sig á Staksteinum Morgunblaðsins í dag að öðru leyti en því að ritstjóri blaðsins tekur þar undir með forystu Sjálfstæðisflokksins um að álitamál sé hvort sá flokkur eigi yfirleitt nokkra samleið með ríkisstjórninni í Icesave-málinu. Tilefnið er viðtal við mig síðastliðinn föstudag í Spegli RÚV þar sem ég furðaði mig á þessari afstöðu flokksins í ljósi þess sem á undan er gengið. Hef ég hvatt til þverpólitískrar samstöðu í þessu máli og minnt á að þegar þeirri aðferð hefur verið beitt í yfirstandandi erfiðleikum þjóðarinnar þá hefur það skilað árangri. Til marks um það eru Icesave fyrirvaranrir frá í sumar. Þar komu ....

18. September 2009

SJÁLFSTĆĐISFLOKKURINN BREGST!!!


...Undir þetta hafði forsætisráðherrann tekið. Í þessum anda hafði framkvæmdavaldið farið með málið inn í þingið,  skuldbindingalaust - gengið til samráðs - í anda vinnulags sumarsins. Svarið sem ráðherrarnir fá er hins vegar afdráttarlaust. Við ætlum ekki að draga ríkisstjórnina að landi!!!  Þetta voru skilaboð Sjálfstæðisflokksins. Svona hugsa þeir sem telja að flokkur sinn sé stærri en þjóðin. Þjóðin veit hins vegar að svo er ekki. Sjálstæðisflokkuriunn sýndi í kvöld hve agnarsmár hann er...

15. September 2009

ŢEGAR HUGMYNDA"FRĆĐIN" TEKUR YFIR


...Ef það hefði verið boðskapurinn frá hinum norrænu gestum þá hefði verið hægt að taka þá og yfirlýsingar þeirra alvarlega. Svona var það þó ekki. Þess vegna leitaði hugurinn upp á Kremlarmúrinn. Áttatíu árum eftir að hugsjónirnar dóu austur þar. Og við tók jakkafata- og (í minna mæli) dragtarklæddur veruleikinn. Veruleiki sem stýrður er af vel snurfusuðu fólki sem líður vel í öllum kerfum...

8. September 2009

RADDIR GĆRDAGSINS

Birtist í Fréttablaðinu 07.09.09
Fréttabladid hausTveir gamlir stjórnmálajaxlar leggja undir sig leiðarsíðu Fréttablaðsins um helgina. Annar skrifar leiðara, hinn pólitíska fréttaskýringu. Báðir eru fyrrverandi. Leiðarahöfundurinn er fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, stjórnmálagreinandinn fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins. Einhvern veginn fannst mér skrif þeirrra beggja vera svolítið fyrrverandi... Þetta er dæmigerð stjórnmálahugsun gærdagsins. Morgundagurinn snýst um opna umræðu og lýðræðislega. Þeir sem reyna að gera hana tortryggilega eiga heima í sögubókum fortíðarinnar....

1. September 2009

BREIĐ SAMSTAĐA SKILAĐI ÁRANGRI


...Fyrirvararnir eru af tvennum toga. Í fyrsta lagi efnahagslegir fyrirvarar sem hagfræðingahópur í þinginu vann að. Á engan er hallað að nefna Pétur H. Blöndal á nafn öðrum fremur í þessu verki en hann hefur beitt sér frá upphafi fyrir því að settir yrðu fyrirvarar sem tengdu afborganir hagvexti. Lilja Mósesdóttir, Þór Saari, Tryggvi Þór Herbertsson og fleiri komu að þessari vinnu. Í öðru lagi eru það lögfræðilegir fyrirvarar. Grunnplaggið að þeim kom frá baráttumönnum í Indefense hópnum og þá sérstaklega Helga Áss Grétarssyni sem skilaði frábærri faglegri vinnu en síðan fékk hópur undir formennsku Eiríks Tómassonar það verk að samræma sjónarmið og áttu Helgi Áss og Benedikt  Bogason þar einnig sæti, ásamt starfsmönnum ráðuneyta. Ragnar Hall og fleiri lögfræðingar komu einnig að þessum málum...

31. Ágúst 2009

VILL BJARNI NIĐUR Í HJÓLFÖRIN?


Almennt var það viðhorf ríkjandi innan stjórnarandstöðunnar á Alþingi að ríkisstjórnin ætti hvorki að standa né falla með Icesave samningnum. Almennt var það viðhorf ríkjandi að rétt væri að hefja sig upp úr flokkspólitískum hjólförum og vinna á þverpólitískum grundvelli. Þetta var gert. Með stuðningi stjórnarandstöðunnar voru smíðaðir fyrirvarar. Að þeirri vinnu kom Sjálfstæðisflokkurinn ásamt öðrum flokkum. Nú segir formaður þess flokks að ef Bretar og Hollendingar sætti sig ekki við þá fyrirvara sem Alþingi, þar á meðal hann sjálfur, setti þá eigi ríkisstjórnin að segja af sér! Bjarni Benediktsson sagði í Valhöll í gær...

26. Júlí 2009

VINIR ÍSLANDS



...En hvað er það sem líklegast er til að vinna málstað okkar fylgi? Það er að koma fólki í skilning um að þegar á reynir virka réttarkerfin ekki heldur hnefaréttur hins sterka. Farvegur Icesave deilunnar er óræk sönnun þessa. Þegar allt kemur til alls er almenningi umhugað um að verja grundvallarforsendur lýðræðislegs réttarríkis. Þegar okkur tekst að færa sönnur á að okkur er meinaður aðgangur að réttarkerfunum og í stað þess beitt hnefaréttinum; að við viljum standa við lögformlegar og þjóðréttarlegar skuldbindingar okkar; að við viljum borga þær skuldir sem okkur ber að greiða, að við viljum endurheimta stolna fjármuni og...

26. Júlí 2009

OKKUR AĐ KENNA?


... Við eigum það sammerkt að koma beint og óbeint að hreinsunarstarfi eftir frjálshyggjuvaldatímann þar sem þjóðfélagið hefur í bókstaflegri merkingu verið sett á hliðina, þjóðin komin í heljargreipar alþjóðaauðvaldsins, okkur sem þjóð stillt upp við vegg, vinalausum við samningaborð...Nei, Agnes og hægra bloggið er búið að finna það út að allt ...er Svavari Gestssyni og okkur samstarfsmönnum hans að kenna! Mannorð hans sem samningamanns fyrir okkar hönd, megi nú meiða eins og hvern mann lystir! Svo og mannorð Steingríms J. Sigfússonar og allra þeirra sem eiga það sameiginlegt að BERA ENGA ÁBYRGÐ Á ÞVÍ HVERNIG KOMIÐ ER FYRIR ÍSLANDI en reyna nú að leita lausna út úr vandanum. Ræðum þær lausnir sem bornar eru á borð , verum þeim sammála eða ósammála eftir atvikum, samþykkjum þær eða höfnum! Þannig á það að vera í lifandi lýðræði - og á því þurfum við að halda meira en nokkru sinni - gagnrýnu og frjálsu! En hlífum ...

16. Júlí 2009

ESB REYNIR Á VG


... Nokkrir þingmenn studdu tillögu um tvöfalda atkvæðagreiðslu, það er að fyrst yrði þjóðin spurð hvort hún vildi sækja um aðild og síðan yrði kosið um niðurstöðuna. Lengi vel var ég á þessu máli enda hef ég alltaf talið að í grundvallaratriðum lægi ljóst fyrir hvað í boði væri fyrir Ísland og þyrfti engar könnunarviðræður til að leiða það í ljós. En þótt ég hafi verið þessarar skoðunar hafa aðrir haft allt aðra sýn og viljað láta reyna á hvað við fengjum við viðræðuborð. Gott og vel, þá gerum við það. Þannig hef ég hugsað síðustu misserin. Þess vegna var ég reiðubúinn að fylgja þeirri tillögu að ná í samningsdrög til að kjósa um. Í ræðu minni á Alþingi í gær gerði ég grein fyrir þessari afstöðu minni. Jafnframt því  hve arfavitlaust ég teldi það vera að ganga inn í ESB.
Er einhver mótsögn í þessu? Nei, ekki nokkur. Er ég að ...

4. Júlí 2009

ŢJÓĐ Í ŢRENGINGUM

Birtist í Morgunblaðinu 3. júlí 2009
MBL  - LogoMorgunblaðið fjallar síðastliðinn mánudag um viðskipti í heilbrigðisþjónustu. Tilefnið er áhugi "einkarekna heilbrigðisfyrirtækisins Nordhus Medica... á að nýta vannýttar skurðstofur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þar myndu t.d. sjúklingar frá Noregi og Svíþjóð fara í aðgerðir, niðurgreiddar af heimaríkjum sínum." Heilbrigðisráðherrann, undirritaður, er sagður standa í vegi fyrir því að þessar kröfur nái fram að ganga og sjái "ekki ástæðu til að fjalla málefnalega um þær næstu 6-7 vikurnar." Svara sé fyrst að vænta 15. ágúst. Þetta sé aldeilis furðulegt því fjárhagsstaða Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sé bágborin, þjónustan hafi verið skert, en nú bjóðist "sértekjur sem geti styrkt stofnunina."

23. Júní 2009

FULLVELDI, SJÁLFSTĆĐI, FRELSI

Birtist í Morgunblaðinu 22.06.09.
MBL...Fyrir mitt leyti hef ég lítinn áhuga á að komast í nánari snertingu við "vinaríkin" í ESB sem láta sér ekki nægja að stilla okkur upp frammi fyrir afarkostum heldur reyna að græða á ógæfu okkar. Um það bera sérstakar álags-vaxtaprósentur Icesavesamningsdraganna vott, að ekki sé minnst á aðra þætti sem birtast í aðför þeirra að Íslendingum. Allt minnir þetta á þá staðreynd að bæði Bretar og Hollendingar, helstu handhafar Icesave skuldbindinganna, voru alræmd nýlenduríki sem mergsugu þær þjóðir sem þau náðu að undiroka. Þetta minnir okkur líka á að ekki er ýkja langt síðan Ísland var nýlenda. Við, þjóðin, höfðum okkur upp úr vesöldinni. Nú þarf að rifja upp baráttusöguna um hvernig Íslendingar fóru að því að koma undir sig fótunum á öldinni sem leið og þeirri nítjándu. Það var ...

23. Júní 2009

ŢÖGGUNARKRAFA ŢORSTEINS

Birtist í Fréttablaðinu 22.06.09.
Frettablaðið...Fyrir mitt leyti reyni ég að gera það besta úr stöðunni sem ég mögulega get. Aðkoma VG að ríkisstjórn var samfélagsleg nauðsyn. Ekki byði ég í það ef Sjálfstæðisflokkurinn, pólitiskur hönnuður vandræðanna, sæti hér enn við stjórnvölinn. Þetta breytir því ekki að ég vil losna úr bóndabeygju AGS eins fljótt og kostur er. Það telur Þorsteinn Pálsson, sem ekki er bara fyrrverandi ritstjóri heldur formaður Sjálfstæðisflokksins, að megi helst ekki segja. Nú spyr ég hann: Getur verið að þöggunarstefna Sjálfstæðisflokksins eigi hlut í hruninu? Getur verið að opin lýðræðisleg umræða sé það eina sem geti vísað okkur fram á veginn; að í slíkri umræðu felist ...

19. Júní 2009

TVEIR LEIĐIR LEIĐARAR


Tveir undarlegir dagblaðsleiðarar birtust á þjóðhátíðardaginn. Í leiðara Fréttablaðsins þann dag gagnrýnir Jón Kaldal ritstjóri Evu Joly ráðgjafa íslenskra stjórnvalda í rannsókn á efnahagsbrotum sem tengjast hruni bankakerfisins. Eva Joly hefur sem kunnugt er varað við hagsmunatengslum við rannsóknina - nokkuð sem Íslendingar taka almennt undir enda... Svo var það Morgunblaðið. Leiðarinn á þjóðhátíðardaginn var gamli, gamli Moggi. Eldgamli Moggi, sem skrifar um hið illa ríki annars vegar og góðu þegnana hins vegar....

7. Júní 2009

ALLA ÍSLENDINGA Í SAMA BÁTINN

Viðtal í Fréttablaðinu 6.06.09
Ögmundur Jónasson hefur starfað sem fréttamaður og kennari og verið formaður BSRB síðan 1988, þingmaður síðan 1995. Eftir búsáhaldabyltingu var hann skipaður heilbrigðisráðherra, en hann var einn helsti hvatamaður ríkisstjórnar VG og Samfylkingar, ásamt félaga sínum Össuri Skarphéðinssyni. Ömmi frændi, eins og hann er stundum kallaður, vísaði þá til bágs efnahagsástands og afþakkaði ráðherralaun... Ég vissi að við stæðum frammi fyrir mikilli kjaraskerðingu innan heilbrigðiskerfisins, sem er raunin. Kjör starfsfólks hafa rýrnað og ég ber formlega ábyrgð á þeirri framkvæmd. Ég vildi ekki ganga til þessara verka nema með því að vera í hópnum. Þessi ákvörðun stendur þar til annað verður ákveðið...

27. Maí 2009

ŢJÓNUSTUTILSKIPUN MEĐ FYRIRVARA


Gott ef það var ekki á sjálfan kosningadaginn að Morgunblaðið birti forsíðufrétt sem síðan var matreidd í Staksteinum í tilefni alþingiskosniganna um að heilbrigðisráðherra, Ögmundur Jónasson, hefði komið í veg fyrir að þjónustutilskipun Evrópusambandsins yrði samþykkt í ríkisstjórn. Hvorki Morgunblaðið né aðrir fjölmiðlar virtust hafa áhuga á því að grennslast fyrir um hvers vegna ég vildi fara varlega... Í gær var þjónustutilskipunin samþykkt í ríkisstjórn með geirnegldum...

13. Maí 2009

SAMHENGI KVÓTAUMRĆĐUNNAR


Mikið er dapurlegt að hlusta á talsmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks gráta það að til standi að afnema kvótabrask í sjávarútvegi; að loksins, eftir áratuga mótmæli þjóðarinnar, eigi að taka á kvótakerfinu, innkalla aflaheimildir frá mönnum sem hafa sölsað þær til sín til að braska með í eigin þágu og láta þær ganga til endurúthlutunar á réttlátum forsendum. Þetta á ekki að gerast í einu vetfangi einsog margir hafa krafist. Nei, þetta á að gerast á tveimur áratugum!!!... Ýmsir hafa haldið því fram með góðum rökum að einkavæðing sjávarauðlindarinnar hafi verið upphafið af öllu ruglinu. Nú á að...

12. Maí 2009

GERUM OKKAR BESTA...


Fáar ríkisstjórnir á lýðveldistímanum hefja kjörtímabil sitt við eins erfiðar aðstæður og sú stjórn sem tók við um helgina. Við stjórnarskiptin varð minnihlutastjórn VG og Samfylkingar að meirihlutastjórn því við kosningarnar 25. apríl öðluðust þessir tveir flokkar meirihluta á Alþingi. Hver verður prófsteinninn á þessa ríkisstjórn? Hann verður fyrst og fremst hvort okkur sem skipum ríkisstjórnina og sá meirihluti sem hún styðst við tekst að...

29. Apríl 2009

NÝJA ÍSLAND: ŢINGS OG ŢJÓĐAR AĐ ÁKVEĐA - FRAMKVĆMDAVALDS AĐ FRAMKVĆMA

...Í rauninni var ekkert þar sem átti að koma á óvart; hvorki þegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og fomaður Samfylkingarinnar sagði að sér fyndist eitt brýnasta hagsmunamál Íslendinga vera að komast inn fyrir dyr hjá Evrópusambandinu, né hjá mér þegar ég sagði að það væri það alvitlausasta sem ég gæti hugsað mér. Ónákvæmni gætti hjá mér í einu viðtali þegar skilja mátti að ég legði að jöfnu aðild að Evrópusambandi og viðræðuferli. Það leiðréttist hérmeð. En hvernig leysa samstarfsflokkar í ríkisstjórn djúpstæðan ágreining af þessu tagi? Það gera þeir með aðferðum Nýja Íslands: Lýðræðinu. Þjóðin ákveði...

28. Apríl 2009

FLESTIR VG-KJÓSENDUR Í KRAGA!


Ofarlega í huga eru þakkir til allra þeirra sem lögðu Vinstrihreyfingunni grænu framboði lið í kosningabaráttunni, bæði við undirbúning þeirra og í kjörklefanum. ...Í  Suðvesturkjördæmi, svokölluðum Kraga, fékk VG 17,4% atkvæða og tvo þingmenn kjörna. Fyrir þremur árum var enginn þingmaður VG í kjördæminu. Í kosningunum 2007 fengum við fyrsta þingmanninn og eftir þessar kosningar eru þeir orðnir tveir. Bærilegur árangur í kjördæmi sem er hefðbundið vígi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Greinilegt er að VG er að treysta stöðu sína í kjördæminu svo um munar. Kraginn er langfjölmennasta kjördæmi landsins. Þannig skýrist að ...

25. Apríl 2009

ŢJÓNUSTUTILSKIPUN ESB Í EĐLILEGUM FARVEGI

Morgunblaðið tekur bakföll í dag yfir því að ekki skuli hafa verið skrifað undir Þjónustutilskipun Evrópusambandsins á ríkisstjórnarfundi í gær. Ekki dugir minna en forsíða, innsíða og Staksteinar sem er með útleggingar um málið, væntanlega í tilefni þess að í dag ganga Íslendingar að kjörborðinu...Utanríkisráðherra kom í gær á ríkisstjórnarfund með nokkrar tilskipanir frá Brussel til afgreiðslu. Hann kvaðst vilja vekja athygli heilbrigðisráðherra sérstakalega á þjónustutilskipuninni. Óskað var eftir því að málið fengi nánari skoðun. Ég varð ekki var við annað en utanríkisráðherra þætti það fullkomlega eðlilegt. Ísland var keyrt í þrot vegna þess að ...allt var keyrt áfram í óðagoti, umræðulaust.. Það mætti ekki spyrjast að eftir okkur væri beðið. Nægði þá að segja að einhverjir sérfræðingar hefðu lagt blessun sína yfir málið... 
  

24. Apríl 2009

VIĐ HEITUM ŢVÍ AĐ VINNA VEL!


Sannast sagna er ég mjög stoltur af samherjum mínum á framboðslista VG í Suðvesturkjördæmi. Á myndinni hér að ofan er talið frá vinstri Margrét Pétursdóttir ... Ása Björk Ólafsdóttir...Ólafur Þór Gunnarsson.... Andrés Magnússon... Guðfríður Lilja Grétarsdóttir... Sjálfur skipa ég annað sætið, og stend lengst til hægri þótt ég heiti lesendum að í pólitíkinni stefni ég ekki í þá átt.
Hvað skal segja nú rétt áður en kjörstaðir opna annað en að biðja öll þau sem vilja veg Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs sem mestan í komandi kosningum að leggjast á eitt um að safna liði. Hvert atkvæði skiptir máli!!!  Myndin er tekin í blaði VG sem dreift var í Kraganum um helgina. Þar var að finna viðtöl og greinar og lýsti ég viðhorfum mínum í svörum við spurningum sem blaðið beindi til mín...

22. Apríl 2009

LÍFEYRISSJÓĐIRNIR TIL BJARGAR


...Fyrir lífeyrissjóðina væri þetta hagkvæm og skynsamleg fjárfesting. Hjá ríkinu væru fjármunirnir vel komnir – jafnvel þótt ríkið standi nú höllum fæti. Fjárfesting með ríkið – okkur öll -  sem bakhjarl er öruggari en í fallvöltum atvinnufyrirtækjum. Þetta sanna dæmin. Svo er á hitt að líta að í gegnum almannasjóði streyma peningarnir að nýju út í atvinnulifið í framkvæmdum og þar með til fyrirtækjanna. Þetta myndi því gagnast fyrirtækjum í atvinnurekstri  þótt mest liggi fyrirtækjunum á því að fá vextina niður undir frostmark. Meginrök eru og þessi: Ef samfélagið hrynur þá hrynja einnig lífeyrissjóðirnir. Hvorugt ætlum við að láta gerast. Nú þurfa ...

13. Apríl 2009

TÍMI TIL AĐ TENGJA


Þessi mynd var notuð með pistli hér á síðunni í októberbyrjun árið 2007. Til umfjöllunar voru tilraunir fjárfestingabraskara til að hafa af okkur orkuauðlindir, nokkuð sem varað hafði verið við í langan tíma og alveg sérstaklega í aðdraganda þingkosninganna vorið 2007. Fjölmiðlungar eru smám saman að leggja á borð fyrir okkur hvað máli skiptir í styrkveitinga/mútumálum gagnvart stjórnmálaflokkum. Sjálfstæðismenn reyna án afláts að afvegaleiða þá....Gísli Marteinn Baldursson, Sjálfstæðisflokki, segir síðan í útvarpsviðtali í dag  að ...

9. Apríl 2009

SKÚRKURINN?


....Það er mín sannfæring að ef frá er skilin pólitísk villukenning Geirs og hve mislagðar hendur honum og samherjum hans í Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Samfylkingu voru hin síðari ár, þá fái það ekki breytt þeirri staðreynd að í mínum huga er Geir H. Haarde heiðarlegur og gegnheill maður. Það hef ég reynt hann af í löngum kynnum þingmannsins/ fjármálaráðherrans annars vegar og formanns Starfsmannafélags Sjónvarps og síðar BSRB/þingmanns hins vegar. Þess vegna þykir mér miður þegar hann leyfir sökudólgum að þvo hendur sínar á sinn kostnað. Sjálfstæðisflokkurinn á að sjá sóma sinn í því að láta raunverulega gerendur axla ábyrgð en nýta sér ekki bak Geirs H. Haarde, fráfarandi formanns, þótt breitt sé....

9. Apríl 2009

MÁLSVARAR OG MÁLSTAĐUR


...Í þættinum baðst Bjarni, formaður flokksins afsökunar og kvaðst ætla að skila fénu til baka. En þarf Sjálfstæðisflokkurinn ekki að biðjast afsökunar á fleiru? Þetta er flokkurinn sem (ásamt hjálparkokkum úr öðrum ónefndum flokkum) er valdur þess að við erum stödd þar sem við nú erum. Bjarni Benediktsson átti í vandræðum í þættinum vegna þess málstaðar sem hann er í forsvari fyrir og vegna foraðsins sem nú er að koma betur og betur í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn er á bólakafi í. En hafi Bjarni átt erfitt í þessum þætti þá verður ekki sama sagt um Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, oddvita Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í kjördæminu. Hún nýtur þess vissulega að vera óvenju skýr og skilmerkileg í málflutningi, segir hlutina þannig að allir skilja. En hún er einnig...

8. Apríl 2009

24%, 20%, 18%....


Hversu langt niður skyldi Sjálfstæðisflokkurinn ætla að tala sig á síðustu metrunum fyrir kosningar? Hann stundar nú það sem kallað er málþóf á Alþingi til að koma í veg fyrir að komið verði á laggirnar sérstöku stjórnlagaþingi á komandi kjörtímabili. Þar er ætlunin að fjalla um stjórnskipan landsins. ... Meira hangir líka á spýtunni. Í ráði er að festa í stjórnarkrá ákvæði þess efnis að 15% þjóðarinnar getist krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um mikilvæg málefni og síðast en ekki síst að tryggður verði í stjórnarskrá eignarréttur á auðlindum sem "ekki eru einkaeignarréttarlegs eðlis." Þetta ávæði er lint en of afdráttarlaust fyrir Vinavæðingarflokkinn, sem má ekki til þess hugsa að ...

1. Apríl 2009

LEIFTRANDI STJÓRNARANDSTAĐA SJÁLFSTĆĐISFLOKKS - EĐA ŢANNIG


Þeim sem tekst að halda sér vakandi yfir daufgerðum ræðuhöldum Sjálfstæðismanna á Alþingi þessa dagana, fá innsýn í harla undarlegan hugarheim. Flokkurinn sem leiddi þjóðina út í dýpsta skuldafen sem hún nokkru sinni hefur ratað í, hafnar nú öllum hugmyndum um kjarajöfnun og bjargráðum ...Það krefst átaks að fylgjast með málatilbúnaði Sjálfstæðismanna í Alþingi. Vissulega er engum vorkunn að fylgjast með umræðu um ranglátan málstað ef hún er skemmtilega fram sett. En pólitískum fjörkálfum Sjálfstæðisflokksins er flest betur til lista lagt en fá hlustandann til að leggja við hlustir. Kjósendum ráðlegg ég hins vegar að fylgjast vel með...

31. Mars 2009

GOTT HJÁ KRISTNI!


Það er ekki mikil reisn yfir Sjálfstæðisflokknum í stjórnarandstöðu í dag. Þingflokkurinn lagði siig í líma við að þæfa stjórnarfrumvarp sem ætlað er að stöðva leka á gjaldeyrishöftum. Reyndar hékk ýmislegt annað á spýtunni hjá Sjálfstæðisflokknum en hann lét sig hafa að taka þetta mikilvæga mál í gíslingu til að versla með.
Fram hafa komið vísbendingar um að einhverjir útflytjendur fái greitt fyrir vörur sínar innan lands með íslenskum krónum en að kaupandinn greiði, annaðhvort beint eða í gegnum millilið, í erlendum gjaldmiðli til aðila utan landsteinanna. Þetta eru að sjálgfsögðu  svívirðileg svik við ...

15. Mars 2009

FRAM TIL SIGURS Í KRAGANUM !


Niðurstaða liggur fyrir í prófkjörum helgarinnar. Eðli máls samkvæmt er mér efst í huga útkoman hjá Vinstrihreyfingunni grænu framboði í Suðvesturkjördæmi - Kraganum. Þar hlaut afgerandi kjör í efsta sætið Guðfríður Lilja Grétarsdóttir. Sjálfur skipaði ég efsta sæti í síðustu kosningum en bauð mig að þessu sinni fram í 2. sæti listans. Mér varð að þessari ósk og er ég þakklátur fyrir það. Ég er sannfærður um að með samstilltu átaki tekst okkur að fá tvo til þrjá þingmenn kjörna...

14. Mars 2009

FORVAL Í DAG !


Við sem erum á þessari mynd bjóðum okkur fram í forvali VG í Suðvesturkjördæmi sem fram fer í dag. Allar upplýsingar um tilhögun forvalsins og um einstaka frambjóðendur er að finna hér: http://www.vg.is/media/kosningar/2009/forvalsbaekl_SV_net.pdf
Ég hvet alla félaga í VG í Suðvesturkjördæmi að taka þátt í forvalinu og bendi jafnframt á að hægt er að skrá sig í flokkinn á kjörstað og öðlast þar með kosningarétt.

13. Mars 2009

FORVAL Í KRAGA Á MORGUN !

Á morgun fer fram forval hjá VG í Suðvestur kjördæmi. Ég er í hópi þeirra sem býð mig fram í forvalinu og óska ég eftir stuðningi við að skipa 2. sæti listans í komandi Alþingiskosningum. Í síðustu kosningum, vorið 2007, skipaði ég 1. sæti listans og komst á þing en þetta var í fyrsta skipti sem VG fékk mann kjörinn í kjördæminu. Nú þurfum við að berjast fyrir fleiri þingsætum...

13. Mars 2009

"ŢAĐ SEM HELST HANN VARAST VANN...


...Nú er gamli valdaflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, flokkurinn sem stýrt hefur þjóðarskútunni upp á sker með hrikalegum afleiðingum, kominn í stjórnarandstöðu. Ekki ferst honum það hlutverk vel úr hendi. En á næstu árum mun það vonandi lærast. Það þarf nefnilega að vera innihald í málflutningi stjórnarandstöðu. Slíkt er illgreinanlegt hjá Sjálfstæðisflokknum. Mér sýnist hans hlutskipti ætla að verða ...

11. Mars 2009

UM HEIĐARLEIKA OG HEILBRIGĐISKERFIĐ

Birtist í Morgunblaðinu 10.03.09.
MBL  - Logo...Í fyrsta lagi virðist mér fyrrverandi heilbrigðisráðherra gefa sér að ávinningurinn af einstökum kerfisbreytingum væri í hendi þegar aðeins var um markmiðssetningu – ágiskun – um fjárhagslegan ávinning að ræða. Þetta hef ég staðreynt. Nú er unnið að því að breyta óskhyggju í árangur. Í öðru lagi skiptir pólitíkin máli þegar stefnumótun í heilbrigðisþjónustunni er annars vegar. Ég hef þannig séð gögn sem sýna ótvírætt að ...

14. Febrúar 2009

STĆRRI EN ŢJÓĐIN

Birtist í Morgunblaðinu 13.02.09.
MBL -- HAUSINN...Forsætisráðherra ritaði Davíð Oddssyni, og bankastjórunum tveimur, bréf sem hún gerði opinbert. Kannski var það misskilið gegnsæi. Hún bauð bankastjórunum að segja af sér sem lið í að geta byggt upp traust á íslensku fjármálalífi. Ekki af því að þeir hefðu gerst brotlegir við lög, heldur vegna þess að mikilvægt væri að skipta um áhöfn í brúnni. Menn, velviljaðir aðalbankastjóra Seðlabankans, sem ég hygg að hafi réttilega getið sér til um að honum var bréfið fyrst og fremst ætlað, myndu ekki kalla þetta áfellisdóm heldur Salomonsdóm. Í framhaldinu ...

13. Febrúar 2009

UM AFNÁM EFTIRLAUNALAGANNA


...Hófst nú barátta fyrir því að koma sérréttindakerfi þessara aðila fyrir kattarnef. Sú barátta  snerist í reynd ekki um krónur og aura. Hún snerist um það hvernig menn fara með völd sem þeim er treyst fyrir. Nýr meirihluti á Alþingi hefur nú lagt fram frumvarp um afnám hinna umdeildu laga. Svo sjálfsagt er að afnema þessi lög að varla á að þurfa að hafa um það fleiri orð. Engu að síður hefur þetta ekki fengist framgengt fyrr en nú. Það segir okkur að nokkuð um breytta stjórnarhætti. En fyrst og síðast minnir þetta á að ...

8. Febrúar 2009

FORĐUMST ALHĆFINGAR - LÍKA UM DAVÍĐ!

Davíð oddsson central bank
...
Sjálfstæðismenn telja að frumvarpið sé fyrst og fremst sett fram til að koma Davíð Oddssyni seðlabankastjóra frá völdum. Ég skil þessar vangaveltur en ætla að frábiðja allar aðdróttanir um annarleg sjónarmið af minni hálfu. Ég var sérstaklega kallaður til umræðunnar af hálfu einstakra þingmanna Sjálfstæðisflokksins, spurður um hvort ég ætlaði ekki að verja seðlabankastjóra einsog ég gerði jafnan þegar launafólk ætti í hlut. Ég kom til þings og svaraði fyrir mig... Ég vil þó gjarnan að sú skoðun mín komi fram að á síðustu vikum. mánuðum og misserum hefur mér stundum þótt sem Davíð Oddsson væri gerður að blóraböggli fyrir sitthvað sem hann hefur ekki átt beina sök á....

5. Febrúar 2009

NÝJAR ÁHERSLUR

Birtist í DV 04.02.
DV -...Hvað leyndina áhrærir hefur mér þótt gott að hlýða á nýjan viðskiptaráðherra Gylfa Magnússon útlista áherslur sínar um mikilvægi þess að aflétta þeirri leynd sem hvílt hefur yfir fjármálakerfinu. Þetta er í fullu samræmi við áherslur sem fram hafa komið í þjóðfélaginu á undanförnum vikum enda fullt samræmi á milli orða Gylfa Magnússonar í míkrófóninn á Austurvelli og nú sitjandi í Stjórnarráði Íslands. Á undanförnum árum hefur sá sem þetta ritar margoft flutt þingmál um að aflétta hvers kyns leynd í fjármálakerfinu. Vonandi heyrir það sögunni til að bankastjórar réttlæti stórfellda fjármagnsflutninga í skattaparadísir á Ermarsundi og í Suðurhöfum á þá lund að  eðlilegt sé að menn vilji hafa sín „stærri mál" út af fyrir sig! Stóra breytingin með nýjum áherslum við stjórn þjóðarskútunnar mun...

1. Febrúar 2009

KVEĐUR VIĐ NÝJAN TÓN Í STJÓRNARRÁĐI


Í dag tók við stjórnartaumum ný ríkisstjórn á Íslandi. Hún mun ekki sitja lengi því stefnt er að kosningum til Alþingis 25. apríl næstkomandi. Ríkisstjórnin hefur sett sér skýra verkáætlun fram til kosninga. Þessi verkáætlun er í góðum samhljómi við kröfur fjöldafundanna undangengnar vikur: Opna fyrir upplýsingar, virkara lýðræði, bráðaaðgerðir til bjargar heimilum og atvinnulífi og undirbúa stjórnarskrárbreytingar sem tryggi eignarhald á auðlindum.
Síðdegis undirritaði ný ríkisstjórn eiðstaf á Bessastöðum. Undir kvöldið ....

29. Janúar 2009

„VONANDI BETRA ÍSLAND"

Nýr formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Gunnlaugsson, hlýtur almennt lof fyrir framgöngu sína í þjóðmálaumræðunni. Hann ber með sér inn í pólitíkina ferskleika - nýjan andblæ. Sigmundur hefur talsvert látið að sér kveða á undanförnum misserum einkum í skipulagsmálum en athygli hefur vakið frumleg nálgun hans til þeirra mála. Ekki þekki ég stjórnmálaskoðanir Sigmundar gerla en þó þykist ég finna að ekki fari þær saman með þeim viðhorfum sem voru ríkjandi á þeim tíma sem Framsókn var í sambúð með Sjálfstæðisflokknum frá miðjum tíunda áratugnum og fram til 2007. Allt þetta á eftir að koma í ljós. Hitt er þegar ljóst....

25. Janúar 2009

HVERSU MARKTĆKUR ER PRÓFESSORINN?


Í landinu er stjórnarkreppa. Við blasa erfiðleikar sem jaðra við þjóðargjaldþrot. Afleiðingarnar verða hrikalegar!
Mörgu er um að kenna: Óheftri og skefjalausri markaðshyggju; gripdeildum fjármálamanna, siðlausri og óábyrgri stjórnarstefnu undangengin 18 ár undir leiðsögn Sjálfstæðisflokks í samstarfi við Alþýðuflokk, Framsóknarflokk og Samfylkingu. Þetta eru flokkarnir sem hafa keyrt okkur út í fenið....Allt þetta kom upp í hugann þegar ég hlýddi á viðtal við háskólaprófessor í Sjónvarpsfréttatíma í hádeginu í dag. Spurt var hvað VG þyrfti að gera til að verða stjórntækur flokkur! Ég spyr á móti: Hversu marktækur getur Gunnar Helgi Kristinsson talist sem prófessor í stjórnmálafræði sem sá ástæðu til að ...

25. Janúar 2009

SKÝR SKILABOĐ OG JÁKVĆĐ


Björgvin G. Sigurðsson - nú fyrrverandi viðskiptaráðherra - gaf skýr og jákvæð skilaboð á fréttamannafundi í morgun.  Hann sagði af sér embætti og viðurkenndi að hann bæri að hluta til ábyrgð á því hvernig komið væri. Hann sagði að  það gerðu fleiri í stjórnmálunum og stjórnsýslunni. Að sjálfsögðu þarf hér að bæta við upptalningu Björgvins, sjálfum höfuðpaurunum - „útrásarvíkingunum" , sem reyndust þegar á hólminn kom, vera innrásarvíkingar sem tæmt hafa allar fjárhirslur þjóðarinnar og gott betur....Það sem nú þarf að gerast er að ....

23. Janúar 2009

FRÉTTAMANNAFUNDUR Í VALHÖLL


...Flokkurinn hefði ákveðið að efnt skyldi til kosninga 9. maí næstkomandi. Ekki var látið svo lítið að kanna vilja annarra stjórnmálalflokka á þingi. Kannski ekkert skrítið, eftir tæplega tveggja áratuga ofstjórn þar sem allir þræðir hafa legið í Valhöll.
Hitt er svo annað mál að mikinn skugga bar á fréttamannnafundinn í dag, sem í mínum huga yfirskyggði allt annað. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, tilkynnti um alvarleg veikindi sín og nauðsyn þess að hann gengist undir skurðaðgerð. Þetta eru slæm tíðindi. Óska ég Geir alls hins besta, góðs og skjóts bata.   

22. Janúar 2009

ÓTTAST AĐ KOSNINGAR TRUFLI EINBEITINGUNA


...Í lesendabréfi sem birtist á síðunni í dag er réttilega bent á þá veruleikafirringu sem fram kemur í afstöðu forsætisráðherra. Hann verður að skilja að gagnrýnin og reiðialdan beinist ekki gegn honum persónulega á nokkur hátt. Sjálfur er ég eindregið þeirrar skoðunar að Geir H. Haarde sé mjög heiðarlegur og grandvar maður, sem vill þjóð sinni vel...Nú dugir enginn sýndarveruleiki lengur. Þjóðfélagið logar í bókstaflegri merkingu. það er ábyrgðarhluti að leggja ekki sitt af mörkum til þess að reiðin beinist í lýðræðislegan og uppbyggilega farveg. Það yrði gert með því að...

17. Janúar 2009

UM HEILBRIGĐI VIĐSKIPTABLAĐSINS


...Þegar hið endurreista Viðskiptablað kom út að nýju í eignarhaldi nýrra aðila í vikunni fjallaði leiðarinn um hve jákvætt það væri að einkavæða heilbrigðisþjónustuna.  Heilbrigt skref var fyrirsögn leiðarans ...Ítrekað skal að einkavæðingaráhuginn er ekki nýr af nálinni á ritstjórn Viðskiptablaðsins. Hins vegar vakna ýmsar spurningar þegar auðmenn ná undirtökum í stjórnmálum og fjölmiðlum og hagsmunabarátta auðmannanna og ritstjórnarstefna fjölmiðla í þeirra eigu renna saman í eitt.  Þess vegna þessar hugrenningar að gefnu tilefni: Lofgjarðar,  um ráðherra sem deilir út ábatasömum verkefnum, í leiðara blaðs í eigu manns sem vonast til að komast sjálfur yfir verkefnin...

16. Janúar 2009

ER AĐ UNDRA AĐ FÓLK HEIMTI KOSNINGAR?!


Í dag fékk ég þennan reikning sendan. Hann er ekki stílaður á mig einan heldur þjóðina alla. Á meðan skrifað er upp á reikning af þessu tagi fyrir okkar hönd virðist mér Samfylkingin bíða í ofvæni eftir því einu hvað Sjálfstæðisflokkurinn ætli að gera gagnvart umsókn um aðild að Evrópusambandinu! Er þessi flokkur orðinn staurblindur...

11. Janúar 2009

ENDURHEIMTUM ŢJÓĐAREIGINIR

Birtist í Morgunblaðinu 09.01.09.
MBL  - LogoÞað er smám saman að renna upp fyrir þjóðinni hvað hefur hent hana á undanförnum árum. Allar eignir hennar hafa annað hvort verið teknar af henni með einkavæðingu eða þær hafa verið veðsettar að fullu og hún svipt þeim með þeim hætti...feigðarflanið hófst með einkavæðingu kvótakerfsins. En einmitt þar á nú að byrja að vinda ofan af öfugþróuninni.  Ná þarf að tryggja sjávarauðlindina aftur í þjóðareign. Sama gildir um vatnið, heitt og kalt, rafmagnið og alla grunnþjónustu samfélagsins ...Markaður á að ríkja þar sem hann gerir gagn. Ekki þar sem nú hefur sannast að hann gerir ógagn.  Brýnasta verkefni þjóðarinnar nú er að ná auðlindunum tilbaka. Ef við missum þær úr hendi til auðmanna innan lands eða utan þá eigum við okkur ekki viðreisnar von. Aldrei. Látum það ekki henda...

7. Janúar 2009

ŢINGFLOKKUR VG ÁLYKTAR UM UPPGJÖF RÍKISSTJÓRNARINNAR


Í dag rann út frestur til að lögsækja bresk stjórnvöld fyrir að beita Íslendinga hryðjuverkalögum. Það gerði Gordon Brown, forsætisráðherra Breta  til að slá tvær flugur í einu höggi: Eyðileggja íslenska bankakerfið erlendum fjárfestingafyrirtækjum sem víti til varnaðar og til að bæta eigin stöðu í skoðanakönnunum.
Íslenska ríkisstjórnin þorði ekki í mál og má ráða af því að hún hafi enga trú á málstað Íslendinga. Formenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar segja okkur að tilteknir lögfræðingar hafi sagt þeim að ...

6. Janúar 2009

EKKI VĆRI LÚĐVÍK KOMINN Á HNÉN

Ég hef hlustað á talsmenn ríkisstjórnarinnar reyna að skýra hvers vegna hún hefur lyppast niður gagnvart yfirgangi Breta sem beittu hryðjuverkalögum við að koma íslenska bankakerfinu á hliðina þegar það mátti minnst við. Nú er orðið ljóst að ríkisstjórnin ætlar ekki að láta reyna á lögmæti þessara hryðjuverkalaga Breta... En það má ríkisstjórnin vita að málið snýst ekki einvörðungu um að tapa eða vinna málaferli heldur að sýna fram á trú okkar á eigin málstað. Það út af fyrir sig myndi styrkja okkur í samningum um lánskjör Icesave-lánanna... Þetta hafði ekkert með lögmæti að gera heldur trú á málstað og vald. Sá sem trúir á málstað sinn öðlast vald. Það skildu landhelgiskempurnar okkar. Lúðvík Jósepsson kemur upp í hugann. Hann var einn fremsti foringi okkar í landhelgisstríðunum. Hann var málsvari til að reiða sig á vegna þess hve mikill baráttumaður hann var. Í nýútkomnu blaði Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Kópavogi, Kópi, vík ég að baráttu Lúðvíks...

3. Janúar 2009

FYRST TÓKUM VIĐ KVÓTANN, SÍĐAN BANKANA OG SVO LÍFEYRISSJÓĐINA...


Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands og sérlegur hugmyndafræðingur Sjálfstæðisflokksins um árabil, er holdgervingur öfgafrjálshyggjunnar sem riðið hefur húsum á Íslandi með þeim hrikalegu afleiðingum sem nú blasa við. Meðfylgjandi er ársgamalt viðtal við Hannes  Hólmstein úr þættinum Ísland í dag á Stöð 2. Bernsk trú Hannesar á ágæti markaðshyggjunnar  skín í gegn þegar hann í ákafa sínum hvetur til þess að menn gefi betur í og haldi enn lengra...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Stjórnmál

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta