Stjórnmál
30. Ágúst 2008
UM HARĐSTJÓRN HUGMYNDAFRĆĐINNAR

...Og fólkið sem hneykslaðist hvað mest á skrifum á þessari síðu á sínum tíma um hvort við kynnum að vera betur komin með hugsunarhátt af þessu tagi utan landsteinanna en innan, segir nú vera fullkomlega skiljanlegt að auðkýfingarnir hugsi sér til hreyfings ef almenningur er ekki reiðubúinn að opna sjóði sína þeim til styrktar og lúti þeim í auðmýkt í stóru og smáu. Sá stjórnmálaflokkur sem stýrt hefur Íslandi inn á þessar glæfralegu brautir heitir Sjálfstæðisflokkur. Óumdeilanlegt er að hann stendur til hægri í stjórnmálum. Þetta er flokkurinn sem gaf bankana, greiddi götu þotuliðsins og hlóð undir gullrassana. Þetta er líka flokkurinn sem lækkað hefur álögur á stóreignamenn og hlaðið gjöldum á sjúkt fólk og fátækt. Næst á dagskrá hjá flokknum er að eyðileggja Íbúðalánasjóð og ...
28. Ágúst 2008
VILJA MAKKA UM EIGIN KJÖR
Birtist í DV 27.08.08.
...En hvers vegna í ósköpunum láta fjölmiðlamenn þau Geir og Ingibjörgu komast upp með þetta blekkingartal um samráð við stjórnarandstöðuna? Og varðandi aðferðafræðina spyr ég hvort fjölmiðlamönnum geti virkilega fundist eðlilegt að þingmenn og ráðherrar makki á bak við tjöldin um eigin sérréttinda-lífeyriskjör eins og formaður Samfylkingarinnar sagði Kastljósáhorfendum að unnið væri að? Hvers vegna er ekki spurt út í þetta? Og einnig hitt, hvers vegna er komið í veg fyrir að greidd séu atkvæði um þær tvær leiðir sem deilt er um, sérréttindaleiðina fyrir þingmenn og ráðherra annars vegar og almenn kjör þeim til handa hins vegar? Ekki svo að skilja að ekki verði séð til þess að atkvæðagreiðsla um þessa tvo ...
21. Ágúst 2008
UPPSKERAN Í HÚS HJÁ LITLU, LITLU FRAMSÓKN

...Eftir kosningarnar 2006 efndu Framsóknarmenn til uppskeruhátíðar. Þeir fögnuðu að vísu fáum atkvæðum í Reykjavík, en mögulegum aðgöngumiða að kjötkötlum borgarinnar. Á uppskeruhátíð Framsóknar sem haldin var hjá Siv Friðleifsdóttur, þingmanni flokksins, voru þeir gleiðbrosandi, Óskar framsóknarmaður og Guðlaugur framsóknarmaður. Nú er uppskeran, sem Siv segir frá á heimasíðu sinni, komin í hús. Óskar framsóknarmaður orðinn formaður í aðskiljanlegum nefndum og Guðlaugur framsóknarmaður stjórnarformaður í OR.
Eflaust er Framsóknarflokkurinn ánægður. Það er svo hitt að spyrja yfir hverju ...
18. Ágúst 2008
ER RÚV AĐ HJÁLPA INGIBJÖRGU OG GEIR AĐ VIĐHALDA EFTIRLAUNA-SÉRRÉTTINDUM SÍNUM?

...Ömurlegt er að fylgjast með tilraunum ráðherranna tveggja að ná samkomulagi um lágmarksbreytingar á lífeyrislögunum með það fyrir augum að viðhalda sérréttindum sínum. Ég frábið að fjölmiðlar hjálpi þeim í þessu ætlunarverki. Ekki gleyma því að lífeyrislögin alræmdu eru sérstaklega sniðin að hagsmunum ráðherra sem fá 6% af launum sínum fyrir hvert ár í embætti sem ráðherra. Þingmenn fá 3%. Í LSR er rétturinn innan við 2% og í mörgum lífeyrissjóðum minna en 1,5%! Fullkomin sátt? Við hvern? Þingið? Þjóðina?...
10. Ágúst 2008
EFTIRLAUNALÖGIN OG AFSTAĐA EINSTAKRA ŢINGMANNA

...Í mínum huga er málið mjög skýrt. Fyrir þinginu liggur frumvarp frá Valgerði Bjarnadóttur um afnám eftirlaunalaganna. Í frumvarpi hennar er kveðið á um að lífeyriskjör ráðherra, þingmanna og ýmissa embættismanna verði samræmd almennum lífeyrisréttindum starfsmanna ríkisins. Málið er fullfrágengið. Málið er tilbúið til afgreiðslu. Málið er í höndum þingsins...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












