Stjórnmál
24. Júní 2008
ŢYKIR ŢJÓĐINNI NÓG KOMIĐ AF AFTURHALDI?

Menn velta því fyrir sér hvers vegna fylgi ríkisstjórnarinnar fari nú ört dalandi...Hér hefur nefnilega verið innleiddur hrá-kapítalismi 19. aldarinnar sem neitar að viðurkenna allt sem heitir samfélag. Þannig hafa bankastjórar talað í mín eyru um ójafnræði á markaði þegar samfélagið vogar sér að reka sameiginlegan Íbúðalánasjóð fyrir alla landsmenn! Frá Brüssel hafa þessir afturhaldsmenn sótt sinn styrk í gegnum EES samninginn sem aldrei skyldi gerður hafa verið. En enda þótt gjaldþrot óheftrar markaðshyggju hljóti að vera hverju barni augljóst virðist ríkisstjórnin staðráðin í að skrönglast áfram með sömu stefnuna, fela fjárglæframönnum raforkugeirann, heilbrigðiskerfið og aðra grunnþætti samfélagsins til rekstrar. Síðasta afrekið er að ...
22. Júní 2008
FJÖLMIĐLAR UPPLÝSI UM HAGSMUNATENGSL STJÓRNMÁLAMANNA

Hinn 12. Júní skrifar Jóhann Hauksson, fréttamaður einkar athyglisverðan pistil á DV bloggið undir heitinu Litla sæta kunningjaþjóðfélagið. Greinin fjallar um tengsl stjórnmálamanna, bein og óbein, við heilbrigðiskerfið - sama heilbrigðiskerfi og Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra einkavæðir sem mest hann má með dyggri aðstoð Samfylkingarinnar. Ég vil þakka fyrir þessa grein. Á daginn kemur að stjórnmálamenn eru sjálfir á kafi í bisniss sem tengist einkavæðingunni. Þeir eru með öðrum orðum hagsmunatengdir í beinhörðum peningum. Það sem ég furða mig mest á er að Jóhann Hauksson skuli vera einn á báti þegar kemur að rannsóknarskrifum af þessu tagi. Hvar er nú Kastljósið, Spegillinn, Ísland í dag, Fréttablaðið, 24 Stundir og Morgunblaðið?
Það er helst að horft sé til
11. Júní 2008
BROTTREKNIR RĆSTITĆKNAR Í VALHÖLL?
Birtist í Fréttablaðinu 09.06.08
Vefsíða Landspítalans auglýsir fundi fyrir starfsmenn Landspítalans með heilbrigðisráðherra. Ekkert nema gott um það að segja að heilbrigðisráðherra vilji sitja fyrir svörum hjá starfsfólki í heilbrigðiskerfinu og eðlilegt að Landspítalinn auglýsi þetta framtak ráðherrans. Það sem hins vegar er óvenjulegt við þetta fundarboð á vef Landspítalans er að fundarstaðurinn skuli vera Valhöll, félagsheimili Sjálfstæðisflokksins...
3. Júní 2008
HEILBRIGĐISŢJÓNUSTUNNI RÁĐIĐ HEILT?

Þeir félagar Guðlaugur þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins og Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, eiga sér draum. Sá draumur er að koma á markaðskerfi fyrir heilbrigðisþjónustuna á Íslandi. Þeir eiga stuðning hjá hægri sinnuðum mönnum í sínum flokkum... Þetta er sama hugsun og „Nýi Verkamannaflokkurinn" undir forystu Tonys Blairs hefur framfylgt í Bretlandi en sá flokkur er í stjórnartíð sinni kominn vel á veg með að koma breska heilbrigðiskerfinu út á markaðstorgið...
1. Júní 2008
GUĐLAUGUR ŢÓR AUGLÝSIR

Í gær birtist auglýsing í Morgunblaðinu frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Auglýst er starf forstjóra „sjúkratryggingastofnunar." Þessi stofnun er ekki til. Kannski er þetta eins konar afsökunarbeiðni því í auglýsingunni er okkur sagt að þar sem Alþingi hafi ekki samþykkt lög um þessa stofnun verði að framlengja umsóknartímann...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












